Tíminn - 14.04.1949, Blaðsíða 1

Tíminn - 14.04.1949, Blaðsíða 1
Mikilsverð reynzla fengin al votheysturnui Samhand íslenzkra sainvinmifélaga teluir míi virkan þátt í npplýsinga- og tilramia- starfsemi risn nýjimg'ar lamlbimaðarins Síðustu árin haía margar merkar nýjung'ar í landbúnað- armálum komið fram á sjónarsviðið. Flestar hafa þessar nýjungar borizt hingað af hendingu og fyrir tilviljun og enn er það svo að margir eru skilningssljóir á nýjungarnar af því þær eru nýjungar, þó að gildi þeirra hafi ótvírætt verið veðurkefint í nágrannalöndunum. Samband ís- lenzkra samvinnufélaga hefir nú mjög látið þessi mál til ! sín taka og gekkst það fyrir því ásamt Gísla Kristjánssyni j ritstjóra Freys, að hingað voru fengnir votheysturnar á síðastliðnu sumri, en þeir hafa mjög rutt sér til rúms eink- | um í Sviþjóð nú upp á síðkastið. Reynsla er nú fengin með þann turn sem látið var hey í síðastliðið sumar, að Gunnarsholti á Rangárvöllum og verður ekki annað sagt en sú reynzla Iofi mjög góðu um þessa fóðurverkunarað- | ferð hér á landi. Samband íslenzkra samvinnufélaga bauð blaðamönnum austur að Gunnarsholti síðastliðinn sunnu- dag til að kynna sér þessa nýjun í íslenzkum landbúnaði, svo þeir með eigin augum gætu séð hvernig heyið er verkað I’etta er framhlið hins nýja gist húss og flugafgreiðslu á Keflavík- urflu velli Votheysturnar nýjung hér á landi. Votheysturnarnir eru nýj- ung hér á landi, þó að þeir hafi árum saman verið notað ir erlendis við góða raun, eink um eftir að nú eru komin til skjalanna tæki sem gera alla vinnu við verkun heysins á þennan hátt, eins auðvelda og hún getur frekast veriö. Er í raun og veru með þeirri bylt- ingu, sem hér er um að ræða . búið að gera heyspapinn að mestu óháðan tíðarfarinu og gera hann að nokkurs konar iðnaði, sem hægt er að vinna eftir fyrirframgerðri áætlun, sem staðist getur svo aö segja upp á klukkustund. Hefir áð- ur verið lýst hér í Tímanum all rækilega vinnuaðferðum við verkun heysins í turnum og skal það ekki endurtekið að þessu s'nni. Margir vantrúaðir í fyrstu. En það er svo með þessa nýjung eins og allar aðrar, að margir eru mótíallnir þeim þegar í upphafi þó engin réynsla sé fengin. Þannig var það líka með votheysturninn í Gunnarsholti. Hafa jafnvel hinar furðulegustu sögusagn ir gengið um landið í sam- bandi við turir'nn. Maður úr öðrum landsfjórðungi kom að Gunnarsholti í vetur og var hissa að sjá þar turninn uppi standandi. í hans byggðar- lagi hafði maður, sem fyrir fram var fróður um verkanir T í m i n n Næsta blað af Tímanum kemur ekki út fyrr en mið- vikudáginn í næstu viku. Al- gert frí er í prentsmiðjunum fram yfir páska. votheysgerðar í turni tilkynnt að turninn væri löngu brunn- in. Átti að hafa hitnað svo í heyinu í turninum að hann hefði brunnið í haust með öllu 1 heyinu sem í honum var. Þessu var trúað, þar til ann- að vitr/.ðist í byggðarlagið, ’eftir ábyggilgum heimildum. Því hefir einnig verið haldið ákaft fram að allt heyið hafi eyðilagzt, sumir segja gegn- frosið í vetur, en aðrir segja að það hafi orðið að eitri. | Frá þessum atvikum er að eins sagt hér til gamans, en þau bregða ljósi yfir það hvernig nýjungum er stund- um tekiö, þó að þær að öðlist miklar og almennar vinsæld- ir. Reynsian í Gunnarsholti | Af þeim fjórum votheys- jturnum sem S. í. S. flutti til | landsins síðastliðið sumar ] reyndist elcki unnt að nota nema einn til heyverkunar, vegna þess hve seint turnarn ir komu á sumrinu. En í Gunn arsholti var turninn fylltur af þrennskonar heyi. Háar- töðu nýskriðnum liöfrum og' grasi af valllendissléttu. Allt verkaðist heyið ákaflega vel, eins og vothey getur bezt ver ið verkað. Ekkert farg var lát ið ofan á turninn og skemmd- ist þó ekki ein einasta tugga af heyinu. í vetur kom einnig reynsla á það að heyið frýs ekki í turnunum, eins og margir voru hræddir um. í Gunnarholti varð frostiö í vetur oft dögum saman milli 10 og 20 stig og var heyið í turninum ófrosið. Ástæðan er ef til vill sú að efnamyndun gerist í heyinu, sem kemur í veg fyrir að þaö frjósi. Runólfur bóndi í Gunnar- holti lét svo ummælt við blaðamenn á sunnudaginn að kýr hefðu þrifist ákaflega vel af votheyinu úr turninum. Hefir þeim daglega verið gef- ið yfir 20 kg. af votheyi, 3 kg. af þurrheyi og lítilsháttar af fóðurbæti eftir nythæð grip- anna. Auk þess sagði Runólfur að mikill munur væri á því hvað auöveldara væri að vinna að hirðingu kúnna og gjafir á votheyinu en þurheyi, eða heyi sem verkaö er í venjuleg um tóftum. Litlar horfur um að hægt verði að koma upp votheys- ] turnum í sumar. Eins og sakir standa eru litlar horfur á því að hægt veriö að koma upp mörgum votheysturnum næsta sumar. Mun vera ákveðið að veita ekki nema 10 fjárfestingar- leyíir fyrir turnum, þó að 140 bændur iiaíi sótt um að fá að byggja turna. Líklega verður ekki leyfður neinn innflutn- ingur á tilbúnum turnum, heldur verða þeir steyptir hér sem reistir verða að þessu sinni. í Svíþjóð leggja bændur og þeir sem fara með leiöbein- ingamál bænda mikla á- herzlu á það að koma upp turnum í stað annarra hey- geymslan. Er nú svo komiðþar í landi að ríkisstyrkur fæst ekki lengur á neinar votheys geymslna.Er nú svo komiðþar telja margir útlendir búnað- arfrcmuðar að þeir nýju bún aðarhættir sem koma með votheysturnum það merkasta sem lcomið hefir fram í þessu efni, enn sem komið er. Samband isl. samvinnufél- aga hefir hafizt handa um að taká af auknum krafti þátt í tilraunum í þágu landbúnað arins svo að auðveldara verði að ryðja hér merkum nýjung um braut. Hefir það i þessu skyni boðist til að aðstoða við athuganir, sem eru enn nýjar af nálinni er- lend's, þar sem fjóshitinh er notaöur til upphitunar íbúð- Hafíslirafl land- | fast við Horn | Hafís sást í gær á sigl- j ingaleið fyrir Norðurlandi | milli Sigluf jarðar og \ Horns. Esja var á ferð á i þessum slóðum og sá hafís j hrafl á allri þessari leið. i ] Við Horn er ísinn landfast j ur frá Reykjarf jarðarál að i i Hornbjargi. Þetta er þá að j eins sundurlaus ís, sem j i hægt er að sigla gegnum, j ; en er hættulegur í myrkri. j j íshraflið virtist ná svo j j langt til hafs sem séð varð. j Almenningi ekki leyft að skoða Keflavíkurhótelið Vegna sÍEtmrar nni- gengni þegar Iiútelið var sýnt Vegna ósæmilegrar fram- komu er nokkrir menn sýndu er komu að skoða Keflavik- urhótelið á sunnudaginn var, hafa þeir sem yfir hótelinu ráða nú ákveðið að hafa hótel ið ekki til sýnis fyrir almenn- ing fyrst um sinn. Þó verður Ferðaskrifstofu ríkisins leyft að fara þangað me‘<$ 200 manns sem fær að skoða hótelið í fylgd með leið sögumönnum skrifstofunnar. Engum einkabifreiðum verð- ur leyft að fara inn á völl- inn. Hefir verið gripið til þessa ráðs vegna ósæmilegrar fram komu í húsakynnum hótels- ins. í mannþrönginni síðast- liðinn sunnudag höfðu ein- hverjir notað tækifærið til að skemma þar húsgögn og krota á veggi ýmislegt ósæmilegt orðbragð og niðrandi ummæli um erlendar þjóðir. Lélegur afli hjá Akranesbátum Frá fréttaritara Tímans á Akranesi. Akranesbátar hafa róið á degi hverjum nú að undan- förnu, en afli hefir verið treg , ur nú um nokkurt skeið hjá flestum bájtaunum en ákaf- lega misjafnt þó. Afla þeir 3—7 smálestir í róðri. Afla- hæstu Akranesbátarnir tveir. í Sigurfari og Böðvar munu nú ; vera með um 400 smálesta afla miðað við slægöan fisk með haus. arhúsa. Má segja að hin ' gamla islenzka aðferð um .fjóshitann í baöstofunum sé ! nú endurborin með nýtísku- legra sniði. Lá erindi varð- andi þetta fyrir síðasta Bún aðarþingi frá S. í. S. Er þetta einn þátturinn í þeirri viðleitni samvinnusam takanna að reisa byggingar og hagnýta þær á sem beztan hátt. Nýr svigbikar Litla skíðafélagið í Reykja- vík hefir afhent Skíðasam- bandinu fagran verðlauna- grip „Svigbikar Litla skíða- félagsins." Verður keppt um hann í fjögura manna sveit- um á Skiðamóti íslands og nú í fyrsta sinn á mótinu sem hefst við Reykjavík þ. 21. apríl n. k. Þá hefir Gunnar Akselsson kaupmaður í Reykjavík af- hent Skíðasambandinu vegg- skjöld, sem sú sveit hlýtur að verðlaupum er vinnur skíða- gönguna á Skíðamóti íslands 1949, en það verður í fyrsta sinn, sem keppt er i þeirri grein á Skíðamóti íslands. Titlillinn „Skíðakappi ís- lands“ hefir nú verið afnum- inn. Titill þessi var áðurnotað ur um íslandsmeistara í nor- rænni tvíkeppni, þ. e. tví- keppni í skíðagöngu og stökki, I en notkun hans var orðin úr- elt þar eð svig og brun eru einnig orðnar höfuðgreinar skíðaíþróttarinnar. I Stjjórn SKÍ hefir löggilt Ragnar Ingólfsson, Reykjavik sem skíðadómara. 5. kirkjutónleikai* Páls tsólfssonar Páll ísólfsson heldur fimmtu kirkjutónleika sína í Dómkirkjunni á þessum vetri á föstudaginn langa. Leikin verður eingöngu föstutónlist og er aðgangur frjáls og ó- keypis. 33. árg. Reykjavík, fimmtudaginn 14. apríl 1949. 77. blað Skrifstofur i Edduhúsinu Fréttasímar: 81302 Off 81304 Afgreiðslusími 2323 Auglýsingasími 81300 Prentsmiðjan Edda Ritstj&ri: Þórarinn Þórarinsson Fréttaritstjóri: Jón Helgason Útgefandl: Framsóknarflokkurinn

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.