Tíminn - 21.11.1952, Blaðsíða 4

Tíminn - 21.11.1952, Blaðsíða 4
4. TÍMINN, föstudaginn 21. nóvember 1952. 265. .b.lað. Jón Kjartansson, bæjarstjóri: Frystihúsmál Siglfirðinga Óskar Halldórsson útgerð-. armaður, hefir ritað tvær greinar í Morgunblaðið á1 'þessu ári, um framtíðarrekst rr togara Siglufjarðarkaup- otaðar og frystihús það í Siglufirði, sem nú er verið að stofnsetja á vegum Síldarverk ímiðja ríkisins og hefir hann áhyggjur út af hvoru tveggja. Fyrri grein Óskars birtist í Mbl. 12. febrúar s.l. og nefnd ist „Frystihúsmálið í Siglu- Firoi“, síðari greinin birtist ííu mánuðum síðar undir yf- irskriftinni „Frystihúsin og ;ogararnir.“ XJppistaðan í báðum þess- um greinum er ádeila á rík- isstjórnina og stjórn Síldar- /erksmiðja rílcisins fyrir að stofnsetja nýtt hraðfrystihús . einni af mjölskemmum S.R. . Siglufirði. Þykir mér rétt að gera nokkra grein fyrir máli þessu frá mínu sjónarmiði. Haustið 1951 hófu nokkrir Lulltrúar frá bæjarstjórn 3iglufj arðar, síldarverksmiðj .mum í Siglufirði, verkalýðs- Félögunum og atvinnurek- sndafélaginu þar, umræður um það alvarlega ástand, sem Tið langvarandi síldarleysi .lefoi leitt yfir Siglufjörð og oiglfirðinga. Allir voru á einu máli um það, að nauðsyn bæri til, að íoma á fót fjölbreyttari at- /mnuháttum í bænum og stöðva fyrirsjáanlega neyð í- ;3úanna. í framhaldi af viðræðum íramangreindra aðila voru á aæjarstjórnarfundi 6. okt. .1951 samþykktar ýmsar til- lögur, sem miða áttu að því, að endurskipuleggja atvinnu iíf Siglíirðinga. Meðal þeirra tillagna var ein um að kom- iö yrði upp hraðfrystihúsi í Siglufirði á vegum S. R. All- :ir bæjarfulltrúai’nir voru samþykkir tillögu þessari. — Töldu þeir eina úrræðið að koma á fót nýjum atvinnu- tækjum í bænum og beinast lægi við að efla og stofna til útgerðar og j af nf ramt tryggja skilyrði til að full vinna í Siglufirði þann fisk, sem siglfirzku skipin öfluðu. Þegar umrædd tillaga var sambvkkt, gerðu Siglíirðing- ar út tvo togara. Allir voru sammála um. að það vantaði aukinn hraðfrystihúsakost í bæir.n til þess, að togararnir kæmu aö tilætluðum notum, þ.e. taæta úr atvinnuleysinu i bænum. Óskar Halldórsson heldur því fram í greinum sínum, að ekki hafi þurft ný frystihús 1 Siglufirði, þótt þaðan sé gerður út sá skipastóll, sem raun er á. Hraðfrystihúsa- kostur sé þar nægur, en þar séu fjögur hraðfrystihús í einkaeign. Eðilegt er að ó- kunnugir leggi nokkurn trún að á þetta, en hvað er hið rétta í þessu máli? Það er satt, að í Siglufirði eru fjög- ur hraðfrystihús að nafninu til. Eitt er í eign Ásgeirs Pét- urssonar h.f. Það hefir ekki verið starfrækt s.l. 7 ár fyrir fisk og alls ekkert s.I. 3 ár, svo það má alveg sleppa því húsi, þegar talað er um „frystihús" í Siglufirði. Ósk- ar Halldórsson á þar 20 ára gamalt timburhús, sem mun vera með frystivélum. í húsi þessu hefir, eftir því sem ég bezt veit, aldrei annað verið fryst en síld, enda allur véla- kostur þess eingöngu miðaö- ur við hægfara síldarfryst- ingu. í Siglufirði eru aöeins tvö hraöfrystihús, Hrímnir h. f. og ísafold s.f. samanlögð af köst þessara. tveggja húsa mun vera ca. 10 tonna flaka- frystmg á venjulegum vinnu tíegi Ó. H. heldur því fram í grein sinni Í2. nóvember s.l. aö af- kr.stamöguleikar frystihús- anna í Siglufirði séu álika miklir og Akranessfrystihús- anna. Þetta er ekki rétt með farið. Afkösí Akranessfrysí.i- húsanna eru a.nx.k. ca. fimm- föld í dag á við núverandi afköst hraðfrystihúsanna í Siglufirði. Af framansögðu sézt, að tiauðsyn bar til að bæta við hraðfrystihúsin í Siglufirði. Togararnir, sem veiða fyrir hraðfrystihúsin, korna oft af veiðum eftir 5—6 daga með ra. 250 tonn af fiski. í dag eru engir möguleikar í Siglu- firði til að taka á móti sliku magni til frystingar. Nærtæk asta dæmið í þessum efnum er það, að togarinn Jörund- ur kotn í haust með ca. 160 'tonn af fiski til Siglufjarðar, Ca. % hlutar þessa fiskjar J fór í Hrímni og ísafold, en ca. ' Vs hluta þurfti togarinn að jfara meö til Ólafsfjarðar. Var hraðfrystihús á vegum S.R., rétta Ieiðin? Ég þykist hér að framan jhafa fært fyllstu rök að því að það var þörf á að stofna !nýtt hraðfrystihús í Siglu- firði. — Þá kemur að því, að athugað sé, hvort sú leið, sem farin var í þessu máli, hafi verið hin rétta. Siglfirðing- um virðist um tvær leiðir hafi veriö að ræða í þessu máli. Byggja nýtt hraðfrysti- hús á vegurn Siglufjarðar- kaupstaðar og útgerðarfyrir- tækja hans, eða búa ein- hverja af hinum auðu mjöl- skemmum síldarverksmiðja ríkisins, hraðfrystitækjum. Það skal játað hér, að æski- legt hefði verið að bæjarút- gerð Siglufjarðar og siidar- verksmiðja Siglufjarðarkaup staðar — Rauðka — hefðu getað sjálfar byggt marg- nefnt hraðfrystihús — en því var ekki að heilsa sölcum fjárskorts. Sú leið var því farin, að skora á ríkisstjórnina og stjórn S. R. að breyta auðri geymslu í hraðfrystihús, við þetta sparaðist verð hússins, eða rúm ein millj. kr. Þaö réð baggamunin. Það gengur nógu erfiðlega að útvega fé til að fullgera hið nýja hrað- frystihús S. R., hvað þá, ef þurft hefði að fá a.m.k. eina millj. kr. í viðbót, en það hefði þurft, ef ráðist hefði verið í nýja hraðfi’ystihúss- byggingu frá grunni. Eitt er það í gfeinum Ó. H,. sem kom mér einkennilega fyrir sjón- ir. Það var sú fullyrðing hans, að Siglufjarðarkaupstaður hafi getað fengið keypt frysti liús í Siglufirði meö „sann- gjörnu“ verði. Ég veit ekki til, að anhað frystihús hafi verið til boöa en hið 20 ára gamla hús Ó. H. fyrir nokkuð á aðra milljón kr. Þessu var hafnað og fannst engum, sem um málið fjallaði, að um „sann- gjarnt“ verð væri að ræöa. Samiiingar S. R. og bæj- arstjórnar um togarana. Ó. H. fullyrðir það í grein- um sínum, að bæjarstjórn Siglufjarðar hafi gert neyö- arsamninga við stjórn S. R. og afhent þeim umráðarétt- inn yfir afla togaranna. Hér J er hallað réttu máli. Hið rétta er, að stjórn S. R. sagði, áður en hún ákvað að leggja út í stofnun hraðfrystihússins, að siíkt væri ekki unnt að gera, nema hráefni væri tryggt. — Þetta skyldu allir bæjarfull- trúarnir í Siglufirði. Endan- iegir samningar urðu þeir, að ef fleiri en tveir togarar eru á veiðum við landið fyrir heimamarkaö, þá þarf bæj- arútgerð Siglufj. að setja annan sinn togara á slíkar veiðar, ef stjórn S. R. óskar, en S. R. getur aldrei krafist ; þess að hinn togarinn fari á . sams konar veiðar fyrir hrað Jfrystihús S. R., ef stjórn bæj- t arútgerðarinnar getur bent á, að um taprekstur sé að ræða við slíkar veiðiferðir. Þegar þess er gætt, að þaö er kappsmál Siglfirðinga, að togararnir veiði fyrir heima- markað, þegar aðstaða hefir skapast til þess, þá þarf ekki sérstaklega að benda á þessa samningsgerð bæjarstjórnar og stjórnar S. R., sem hættu- lega Siglfirðingum. Ó. FI. heldur því fram, að tímafnir munu sanna, að „i íshúsmálinu hafi verið hald- ið illa á málum af hálfu Siglu fjarðarkaixpstaðar." Ég held hio gagnstæða. í þessu máli var farin sú eina leið, sem fæl’ var. Stofnun nýs hraðfrystihúss í Siglufirði er hafin, hvort sem Ó. H. líkar betur eða ven og allir Siglfirðingar binda (Framhald á 6. síðu.) Ilalldór Ólafsson á Búlandi tekur hér til máls og ræðir um flutning þingfrétta. Ég get tekið það fram strax, að ég er honum að mestu leyti alveg sammála; „Mig langar til að skjótast inn í baðstofuna til ykkar og spjalla við ykkur svolitla stund. Mér skilst. að þar megi ræða um allt milli himins og jarðar, svona eins og gengur og gerist í baðstofu, þar sem margt fóik er samankomið. Sn það er nú bara eitt mál, sem ég vil minnast á við ykkur og það eru þingfrétíir. Ég sé að öllum jafnaði fjögur blöð, frá þrem stjórnmálaflokkum og það er eins og það sé þegjandi samkomuiag j milli allra þessara blaöa, að minn- j ast sem allra minnst á störf Al- ' þingis. Alþingi er þó — þrátt fyrir það, þó að margt megi að störf- ! um þess finna — einhver virðuleg asta og þýðingarmesta stofnun ' þjóðarinnar. Þaö er því engin furða, þó ao almenningur æski . þess, að geta fylgzt sem bezt með störfum þess. j Ég veit, að ýmsir menn munu svara þessu á þá leið, að útvarpið geri þessum fréttum svo góð skil, að á fréttaflutning þessan sé ekki frekari þörf, þörfum þjóðarinnar í þessum efnum sé með því full- nægt. Þetta er að vísu rétt, það sem það nær. Þingfréttaflutningur Helga Hjörvar er með ágætum og þeir, sem þess eiga kost að fylgj- ast vel þar með, hafa ekki yíir neinu að kvarta í þessum efnum. En það er stór hópur manna, sem á þess lítinn eða engan kost að hlusta á þingfréttir í útvarpinu á þeim tíma, sem þær eru fluttar. Á kvöldin kl. 7—8 er fjöldi sveita- manna bundinn við nauðsynleg störf, sem inna þarf af hendi á þessum t;ma, því að „kýrnar kalia á kláfinn sinn“, var einhvern tíma kveðið. Það er því ósk mín, að Tím- inn gerist fyrirmynd annarra Ixlaða í þessum efnum og flytji í hverju blaði stutt eða langt yfirlit — eftir því, sem efni standa til — um störf Alþingis. Ég veit, að þetta er vilji fjölda manna. Það eru því vinsam leg tilmæli mín til þín,. Starkaður sæll, að þú komir þessari ósk mir.ni á framfæri við rétta aðila. Ég hef þá tru, aö þú sem húsböndi í hinni gestkvæmu baðstofu, getir . haft heillarík áhrif í þessa átt“. Þjóðviljinn segir í gær frá kvik- mynd af friðarþingi í Berlín. í því sambandi lýsir liann venjulega íólki í vestrænum löndum, sem ekki hall ast að kommúnisma, á þessa leið: ,,Pölk þetta fær höfuðverk í hvert skipli, sem sólin rennur upp og það hatar æsku, einkum æsku, sem hrópar á frið“. Það er einkennilegt, að kommún- istum sumum hverjum er þannig farið, að þeir viröast ekki geta tekið sér hið blessaða. orð friðarins í munn, án þess að æsa jafnframt til andúoar og haturs gegn ein- hverjurn. Það er eins og þessir vesalingar hugsi sér, að friðarhug- sjónin sé bezt fallin til að æsa menn til haturs cg ófsá, en vitan- lega er ekki til verra guðlast. Það er ekki alveg víst, að menn hati unga fólkið, þó að þeir séu ekki '. kommúnistar. Og friðr.rhrópin geta ! verið með þeim hætti, að þau spegla 1 frernur annað en þá góðvild, sem vill heldur þola illt en gera illt, en sú góðvild ein er öruggur grund- ' völlur friðar. Ég gerj ráð fyrir því, að Þjóð- viljamenn leggi út af þessu og noti bæð'i ráðvendni sína og vitsmuni, svo sem þeim er lagiö. En það er þá ekkert því til fyrirstöðu að tala nánar um það, ef þá langar til. Þetta er grundvallaratriði. Hitt er engin friðarstefna, að segja eins og skáldið: ,,Við sættumst fúsir fjandmenn við, en fyrst á þeirra gröfum“. Það er sama friöarstefna og kom fram hjá Gissuri jarli, þegnr hann vildi fyrirgefa Þórði Andréssyni þeg ar hann væri dauður. — Slík er friðarstefna Þjóðviljans líka. Starkaður gamli.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.