Tíminn - 30.04.1955, Blaðsíða 3

Tíminn - 30.04.1955, Blaðsíða 3
»6. blað. TÍMINN, laugardaginn 30. apríl 1955. 3. Nýjar þjóðsögur EINAR GUÐMUNDSSON: Gambanteinar, Leiftur. Reykjavík 1955. Þjó'ðsögum Jóns Árnasonar vár ekki fagnað af öllum, þégar þær komu út í fyrsta síán. Til vorii þeir myndar- menn, sem töldu slíkar bæk- ur þjóðinni til skammar — furóufegt’ ’úþpátæki að vera að apglýsa hjátrú :og hindur- vitni fáfóðra og ýkinna manna, — cg--til voru líka þeir, sem litir þgtnnig á, að sögurnar væm..Sþillandi fyr- if trú og siðgæði. En þjóð- sögurnar unnu sér snemma hylli alis "þol'ra manna, og þjóðsöguf ög ságnir hafa ffam á þennan dag notið einna mestra vinsælda allra bökmeupta. ipeð þessari þjóð. Þj óðsagnab'indin, smá og stór, sem út hafa verið gefin, skipta mörgum tugum, og árlég'a bgétá’át' við' ný, gamlar og nýjar sögur af furðuleg- um verum og dularfullum fyrirbrigðúm,-af sérkennilegu fblki eða að einhverju frá- sagnarverðu, örnefnasagnir, sem vhðast sumar ævagaml- ar, — og svo inn á milli þætt ir, sem greina einkum frá ættum manna, siðum horf- inna kynslóða, minnisverðum atburðum úr lífsbaráttu þeirra og frásagnir og lýs- ingar á atvinnu og aðdrátt- um. Og vel er, að enn eru slíkar bókmenntir vinsælar. Það bendir eindregið tU þess, að enn sé lifandi tilfinning íslendinga fyrir furðum til- verunnar, enn þá hafa ekki asmn og hávaðmn gert þá ónæma fyrir hinni miklu dul hennar, enn þá ekki daufa fyrir yminum frá ósýnileg- um strengjum hinnar miklu lífsheildar — og að enn þá sé óslitinn sá ættbundni og sagnræni þáttur, sem verið hefir líftaug íslenzkrar menn ingar á bðnum öldum. Einar Guðmundsson kenn- ari hefir iagt mikla rækt við söfnun þjóðlegs fróðleiks á Suðurlandi og á Vesturlandi. Hann hefir gefi'ð út nokkrar bækur, sem í eru þjóðsögur og sagnir, og bera þær því öruggt vitni, að hann hafi næman skilning á hinni náttúrubundnu skynjun ís- lendinga á dulardómum um- hverfisins — og að hjá hon- um sé hún ærið traust, ætt- artaugin sagnræna. Auk þjóð sagnanna hefir Einar gefið út eina iitla bók, sem í eru frumsamdar smásögur, og benda þær W þess, að hann eigi sér skáldæð, er sé í nán um tengslum við náttúru landsins, sögu þjóðarinnar og baráttu hennar við eld og ís, hamra og himinglævur. Nýlega er komin frá hendl Einars bók, sem hann nefn- ir Gambanteina. Hún flytur þjó'ðlegan fróðleik. í henni eru örnefnasögur, draumar, sagnir af forspá og fjar- skyggni, huldufólki og útilegu mönnúm, íangur kreddubálk ui:, sögur af sérkennilegu fóiki, fráscgn af erfiðum að- ch'áttum ■ og - loks kvæði og vfsur. Nokkuð -af því sem bókin fiytur-'i héíír : Einar skrifað sjálfur, og er frásögn hans öll hin skiimerkilegasta og málið hvcrt tveggja í senn, lipurt.og hreint. Sumt af efni ritsins er prentað eftir hand ritum annarra en safnand- ans og þar á meðal veiga- mestu sagnþættirnir. Próf- arkalestur er vandaður — eins og jafnar á þeim bókum, sem koma frá hendi Einars. Af sögum þeim, sem Einar hefir skráð, verða sérlega minnisstæðar Strokuhesti bryn?it og Gesturinn í Ham- arsholti. Sú fyrri sýnir greini lega, að th hafa veri'ð hér á landi hjá löngu liðnum kyn- slóðum svipuð. viðhorf vi'ð dýravernd og nú eru talin hæfa siðuðum mönnum, og sú síðari er sérkennileg og einnig eftirminnileg fyrir það, að hún er tengd Fjalla-Ey- vindi og félögum hans. Eftir- tektarverð er Forspá, þar sem sagt er frá hinum furðu lega forvitra og fjarskyggna Drauma-Jóa. Skemmtileg og Þ'óðleg er frásögnin af vi'ðar- ferðum Snæfjalla og Langa- dalsstrandamanna við ísa- fjarðardjúp norður yfir Drangjökul, og skringilegt er margt í kreddubálkinum. Kreddurnar eru hálft annað hundrað, og er annar helm- ingur þeirra úr gamalli syrpu en hinum hefir Emar safna'ð, einkum við ísafjarðardjúp og í Súgandafirði. í kreddum þessum er t. d. ráð við skalla: „Láti maður mjólka seinustu dropana úr kú niður í hvirfil sinn, vex honum mikið hár og fagurt.“ Þarna eru og ráð fyrir menn sem eru á biðils- buxum, en vegnar þunglega: „Viljir þú snúa hugarfari stúlku, þá skrifaðu nafn henn ar með refsgalli í lófa þinn, og taktu síðan í hönd henni.“ Þá er þessi speki fyrir þá, er búast við skeggöld og skálm- öld: „Beri maður muru á sér hrífur ekkert byssuskot á hann.“ Veigamestu sögur bókar- innar hefir Einar fundið í handritum Ingivalds Nikulás sonar. Ingivaldur átti heima á Bíldudal í Arnarfirði og vann þar alla algenga vinnu, en var mjög hneigður til rit- starfa, athugull, minnugur og fróður, mjög vel ritfær og sérstæður persónuleiki. Lengst er sagan Fellshjónin, af þeim Jóni Þórðarsyni og Halldóru Guðmundsdóttur, sem bjuggu á Kvígindisfelli í Tálknafir'ði á fyrri hluta 19. aldar. Fyllir hún þrjátíu síður í bókinni, lýsir vel þessum emkennilegu hjónum, sonum þeirra og fleir um, sem vi'ð sögu koma, og er auk þess merkileg lýsing á aldarfari. Af vísum þeim og kviðlingum, er bókin flytur, mun þessi einna líklegust til vinsælda, en hún er frá Jó- hannesi Kjarval: „Merina, karl minn, mína, karl minn, má ég ekki Ijá, heyið, karl minn, heim að, karl minn, henni flyt ég á, sauðina, karl minn, sem ég á haustin sker, en tólgina, karl mtan, treð ég, karl minn, í tunnurnar hjá mér.“ Pappírinn í bókinni er hvorki vandaður né veigamik ill, en letur er skýrt og frá- gangur á kápu snyrtilegri og haldbetri en gerizt og geng- ur. Guðmundur Gíslasott Hagalín amP€R ** I Raflagnir — Viðgerðir I Rafteikningar Þingholtsstræti 21 Sími 8 1556 = S iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiuiuiimiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuinw Frá Bændaklúbb Skagfirðinga Föstudaginn 1. apríl s. 1. var fundur haldinn í Bændaklúbb Skagfirðinga að Hótel Villa- Nova Sauðárkróki. Á fundin- um voru mættir 32 bændur, víðs vegar að úr Skagafirði. Framsöguerindi á fundinum fluttu Vigfús Helgason, kenn ari, Hólum, og Egill Bjarna-1 son, ráðunautur, Sauðárkróki. Ráðunauturinn flutti mjög athyglisvert erindi um búfjár ræktarlögin og framkvæmd þeirra. Benti hann bændum á hin óleystu verkefni, er biðu þeirra og hversu mikils þeir mættu vænta af kynbótastarf inu. Framsögumaður, Vigfús Helgason, kennari, flutti er- indi um búfjármörk. Skýrði hann allýtarlega tillögur sín ar, er hann lagði fram á fund inum. Fundarmönnum duldist ekki að hér var um stórmál að ræða. Kosin var nefnd til að athuga tillögur framsögu- manns og skyldi hún leggja niðurstöður sínar fyrir fund í Bændaklúbbnum, svo fljótt sem auðið er. Tillögur Vigfúsar eru svo- hljóðandi: 1. gr. Marka skal eyru búfjár eftir fylgjandi höfuðreglum: a) Á hægra eyra skal marka mark búfjáreiganda og er það hans eignarmark. b) Á vinstra eyra skal marka hreppsmark og sýslumark og engin ben önnur er leyfilegt að marka á það eyra. Ekki má afmarka ben á því eyra,- né afmá á neinn hátt. Mörk vinstra eyra skulu mörkuð með marka klippum (benjaklippum). 2. gr. Búfjármörk skal marka á eftirfarandi hátt: a) Hægra eyra. Markist með venjulegum benjum á sauðfé, en aðeins með undir- benjum á hrossum. b) Vinstra eyra: 1) Hreppamörk skulu mark ast sem yfirmark á vinstra eyrá sauðfjár, en sem undir- ben neðan við mitt vinstra eyra aftan, hjá hrossum. 2) Sýslumörk skulu mark- ast sem undirben á vinstra eyra framan. Við flutning bú- fjár gilda eftirfylgjandi regl- ur um markabreytingar: a) Hægra eyra: Eignarmark á- fram í hreppi þeim, sem flutt er inn í, nema sammerkt sé við markeiganda búsettan í hreppnum. Verður þá sá, er flytur í hreppinn, að breyta marki sínu. b) Vinstra eyra: 1) Hreppamörk: Hver hrepp ur skal eiga auk áðurgreindra hreppamarka, aukahreppa- mark er markist, þegar um búfjárflutninga er að ræða milli hreppa. Skal það mark vera gatben á vinstra eyra, er markist sem aukahreppa- mark í viðbót við það hreppa mark, sem fyrir er á eyranu, og er þá orðið gildandi hreppa mark, en hitt gefur til kynna hvaðan búféð var flutt. (Gat- benin geta verið: Hringur (gat), þríhyrningur (hveppsla), tígull, samsíðung ur, sporaskja o. fl., e'ða 2 sam an eftir þörfum. 2) Sýslumörk: Þegar búfé er flutt úr einni sýslu í aðra skal sýslumark fyrri sýslunn- ar haldast, en sýslumark þeirrar síðari skal mafkast hjá sauðfé á vinstra eyra aft- an, gagnstætt hinu — en hjá hrossum ofan við mitt eyra (Framh. á 6. síðu.) Auglýsing um shoðun bifrei&a í Iöí/síií/iiu ru mdœm i Kef luvíkurflufivuiltir Samkvæmt bifreiðalögunum tilkynnist að aðalskoð- un bifreiða fer fram frá 2. til 10. maí n. k., að báðum dögum meðtöldum, svo sem sér segir: Mánudaginn 2. maí J-l—J-50 Þriðjudaginn 3. maí . J-51—J-100 Miðvikudaginn 4. mai J-02001—J-02050 Fimmtudaginn 5. maí J-02051—J-02100 Föstudaginn 6. mai J-02101—J-02150 Mánudaginn 9. maí J-02151—J-02200 Þriðjudaginn 10. maí fer fram skoðun á bifreiðum er hér eru í notkun, en skrásettar eru annars staðar. Beifreiðaskoðunin fer fram við lögreglustöðina hér ofangreinda daga frá kl. 9—12 og 13—16,30. Við skoðun skulu sýnd skilríki fyrir því að lög- boðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi ogfull- gild ökuskírteini skulu lögð fram. Vanræki einhver að færa bifreið til skoðunar á áður auglýstum tíma, verður hann látinn sæta ábyrgð samkvæmt bifreiðalögunum og bifreiðin tekin úr um- ferð, hvar sem tU hennar næst. Geti bifreiðaegiandi eða umráðamaður þifreiðar ekki fært hana til skoðunar á áður auglýstum tíma, ber honum að thkynna mér það bréflega. Athygli er vakin á því, að umdæmismerki bifreiða skuli vera vel læsileg, og er þvi þeim er þurfa að end- urnýja númeraspjöld bifreiða sinna ráðlagt að gera Þetta tilkynnist öllum, er hlut eiga að máli. svo nú þegar. „ Lögreglustjórinn á Keflavíhurflugvelli 26. apríl 1955. BJÖRN INGVARSSON. TILBOÐ óskast í að steypa upp og gera fokheldar 14 íbúðir í 3 raðhúsum Byggingarsamvinnufélags Kópavogs við Álfhólsveg nr. 20, 22 og 24 í Kópavogi samkvæmt teikn ingum hr. Þóris Baldvinssonar, húsameistara. — Frjálst er að miða tUboðin við hraunsteypu eða venju- lega steinsteypu, en æskilegt að hvort tveggja sé boð- ið. Skal miða við að útidyrahurðir og karmar á norð- urhhð séu úr teakvið, svalarhurðir á suðurhlið úr oreg- on-pine, kjallarahurðir úr oregon pine, gluggakarmar úr furu en opnanlegir gluggar úr teakvið. Teikningar, gegn kr. 100,oo skilatryggingu, og nán- ari upplýsingar geta lysthafendur fengið hjá formanni félagsins, Hannesi Jónssyni, Álfhólsveg 30, Kópavogi, sími 2896. Tilboðum sé skilað fyrir kl. 2 e. h. 7. maí nk. Réttur áskilinn tú þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Byggingarsamvinnufélag Kópavogs. S.K.T. Gömlu dansarnir 1 GT-húsinu í kvöld kl. 8. Hljómsveit Carl Billich Sigurður Ólafsson syngur með hljómsveitinni. Aðgöngumiðasala kl. 8. ÁN ÁFENGIS — BEZTA SKEMMTUNIN. Vinnið ötullega að útbreiðslu T I M A N S

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.