Tíminn - 19.05.1957, Blaðsíða 1
Fylgist með tímanum og lesið
TÍMANN. Áskriftarsímar: 2323
og 81300. Tíminn flytur mest og
Ijölbreyttast almennt lesefni.
41. árgangur.
Reykjavík, sunnudaginn 19. maí 1957.
Inni í blaðinu í dag:
„Hreiðra sig blikinn og æðuria
fer“, bls. 5.
Vaxandi álit Macmillans, bls. 6.
Skrifað og skrafað, bls. 7. t
111. blað.
Söloféiag garSyrkjumanna opnar
sérverzlun með garðyrkjuvörur
Fyrsta verzlunin sinar tegimdar hérlendis
í gær opnaði Sölufélag garðyrkjumanna nýja verzlun að
Reykjanesbraut 6 hér 1 bæ. Þar verður verzlað með garð-
yrkjuvörur eingöngu, og er þetta fyrsta sérverzlunin í þessari
grein, sem hér starfar.
Verzlunin er í nýju húsi, sem
sölufélagið hefir látið byggja á
undanförnum tveimur árum. Húsið
er 600 fermetrar að stærð, með
kæligeymslum í kjallara, rúmgóðu
verzlunarhúsnæði og skrifstofum.
Verzlunin sjálf er innréttuð að ný-
tízkusniði, og er öllu þar haganlega
fyrir komið. Þar verða hvers kyns
garðyrkjuvörur á boðstólum, fræ,
varnarlyf og garðyrkjuáhöld. Þessi
nýja verzlun er hin fyrsta hérlend
is sem eingöngu selur garðyrkju-
vörur.
Framkvæmdastjóri Sölufélags
garðyrkjumanna er Þorvaldur Þor-
steinsson, og mun hann einnig
veita hinni nýju verzlun forstöðu.
Sjáifstæðismenn játa, að sérstjórn
seðlabankans sé spor í rétta átt
Hamast gegn bankafrumvörpunum a'ðeins til
þess aÖ halda í óeílilega valdaaftstöðu
Hermann Jónasson, forsætisráðherra, gerði
grein fyrir bankafrumvörpunum við 1. umr.
Bankamálafrumvörp ríkisstjórnarinnar voru til 1. umræðu
• í neðri deild í gær. Hermann Jónasson, forsætisráðherra,
fylgdt þeim úr hlaði með ræðu, en síðan tók Ingólfur Jónsson
til má!s. Vakti það athygli í ræðu hans, að hann lýsti yfir, að
Sjálfstæðismenn teldu að það væri spor í rétta átt til að
i treysta fjármálakerfi þjóðarinnar að setja seðlabankann und-
| ir sérstaka stjórn. Þetta er einmitt aðalatriði frumvarps ríkis-
stjórnarinnar um Landsbankann. Sést þá, að andstaða Sjálf-
stæðisflokksins gegn frumvörpunum er aðeins byggð á ótta
«þeirra við að missa völd sín yfir tveim aðalbönkum þjóðar-
innar. Málefnalegri er andstaðan ekki.
Bretadrottning og
maður hennar á leið
tií Khafnar
London, 18. maí. Elísabet Breta
drottning lagði í morgun af stað
frá London til Hull ásamt föru-
neyti sínu. Þar dvelst hún í dag
og skoðar borgina, en í kvöld
gengur hún á skipsfjöl ásamt
manni sínum, Filippusi prins, en
þau fara með drottningarsnekkj-
unni Britannia í opinbera heim-
sókn til Danmerkur.
Wyszynski sæmdur
kardínálahatti
maí. — Píus páfi
XII. sæmdi í dag
Wyszynski kardl-
nálahatti, sem ný-
kominn er til
Rómaborgar til
að þiggja hattinn.
Hann var skipað-
ur kardínáli árið
1953, en komst
ekki til Róma-
borgar, þá vegna
þess að hann var handtékinn af
kommúnistum skömmu síðar.
Hermann Jónasson, forsætisráð
herra, minnti á, að bankamála-
frumvörp þessi væru byggð á mál
efnasamningi ríkisstjórnarinnar
um að beita sér fyrir breytingum
á bankalöggjöf landsins fyrst og
fremst þeim, að setja seðlabank-
ann undir sérstaka stjórn, enda
væri það aðaltilgangurinn með
frumvarpinu um Landsbankann.
Með því væri seðlabankinn gerð-
ur sjálfstæður, þar sem honum
væri sett sérstök stjórn. Um þenn
an aðskilnað seðlabankans og við-
skiptabankans hefði oft verið rætt
áður, enda tíðkaðist það víða ann-
ars staðar.
Stjórn seðlabankans er samkv.
frumvarpinu allsjálfstæð, enda
eru þessir trúnaðarmenn ráðnir
þannig, að einn er skipaður af
ríkisforseta, þ. e. ríkisstjórninni,
annar ráðinn af bankaráði ogl
þrír skipaðir af ríkisstjórninnl
eftir tillögum bankaráðs. Það
væri því í raun og veru löggjaf-
arvaldið sjálft, sem veldi fjóra
þessara trúnaðarmanna, þar sem
fjórir af fimm bankaráðsmönn-
um eru kosnir af Alþingi. Vald
stjórnar seðlabankans yrði þó f
öllum stærri málum bundið sam>
ráði við ríkisstjórnina.
Kosið nýtt bankaráð
Sjálfstæðisflokkurinn leggst gegn
skyldusparnaði til heimilismyndunar
Eýr tH yfirvarpstillögu um „frjálsan sparnað“
til íbútJabygginga en undanskilur aí veÖdeiId
EúnatJarhankans fái hluta hans
Önnur umræða um frumvarp stjórnarinnar um húsnæðis-
málastofnun, byggingasjóð ríkisins, sparnað til íbúðabygginga
o. fl. var í efri deild í gær og lá þá fyrir álit minnihluta heil-
brigðis- og félagsmálanefndar, Sjálfstæðismanna, sem þeir
urðu að fá frest til að skila í fyrradag, en meirihlutinn hafði
áður lagt fram sitt álit. — Það er merkilegast við þetta
minnihlutaálit, að Sjálfstæðismenn leggjast gegn skyldusparn-
aði til heimilamyndunar, en það atriði hefir einmitt fengið sér-
staklega góðar viðtökur hjá almenningi og þótt hið merkasta
nýmæli.
veðdeiid Búnaðarbankans og
tryggi sér um Ieið rétt til veru-
legra lána úr deildinni, eins og
gert er ráð fyrir í frumvarpinu.
Sýnir Sjálfstæðisflokkurinn þann
ig eun einu sinni hug sinn til
sveitanna og setur þær skör
lægra en kaunstaðina.
Um þetta atriði segir svo í álit-
inu: „Minnihlutinn telur ákvæði
frumvarpsins um skyldusparnað
ekki vænleg til að hafa sérlega
mikla þýðingu fyrir útvegun fjár
til íbúðalána“. Þannig leggst Sjálf-
stæðisflokkurinn gegn merkilegu
nýmæli um að ungt fólk í sveit og
við sjó tryggi framtíð sína og leggi
nokkuð til hliðar í skyldusparnaði,
sem er tryggður gegn verðfalli og
geymdur á háum vöxtum, til þess
að mynda heimili síðar.
Unga fólkinu í sveitunum
„gleymt“
Hins vegar kemur minnihiut-
inu með sýndartillögu um svo-
nefndan „frjáisan, samningsbund-
itin sparaað tii íbúðabygginga".
Hins vegar er í breytingartiliög-
um þessum ekki gert ráð fyrir, að
veðdeild Búnaðarbankans fái
liluta af þessari sparifjársöfnun,
og er þvi kippt burt þeim mögu-
leika, að ungt fólk í sveitum safni
sparifé til heimilismynduuar í
Baedaríkjastjórn
kynnir sér afvopnun-
artillögnr Rássa
Washington, 18. maí. — Harold
Stassen, aðalfulitrúi Bandaríkja-
manna við afvopnunarumræðurn-
ar í London, sem nú er kominn
vestur um haf, ræddi í dag við
Dulles utanríkisráðherra. Dulles
lét svo um mælt, að fundi þeirra
loknum, að Bandaríkjastjórn væri
nú að kynna sér þær tillögur, er
komið hefðu fram á fundi nefnd-
arinnar, þ. á m. tillögur Rússa.
Guy Mollet
Stjórn seðiabankans
í frumvarpinu væri Landsbank
inn þó ekki gerður að tveim stofn
unum, sagði forsætisráðherra,
heldur að tveim sjálfstæðum
deildum. Seðlabankinn hefði sér
staka stjórn, en yfir Landsbank
anum öllum væri bankaráð fimm
manna, fjögurra kosna af Alþingi
og formanni skipuðum af ráð-
herra. Þetta bankaráð réði síðan
þrjá bankastjóra fyrir viðskipta-
bankann, en í stjórn seðlabank-
ans yrðu aðalbankastjórinn, sem
skipaður er af forseta íslands að
fengnum tillögum bankaráðs;
bankastjóri, sem ráðinn er af
bankaráði, og þrír menn sem
skipaðir eru af ríkisstjórninni
eftir tillögum bankaráðs.
Meiri áhrif í peningamálum
Með því að skilja þannig að
stjórn seðlabankans og sparisjóðs-
deildar Landsbankans, sagði for-
sætisráðherra, væri ætlunin að
tryggja það, að stjórn seðlabank-
ans gæti betur en verið hefir beitt
áhrifum sínum í peningamálum,
enda væri stjórn bankans fengið
mjög víðtækt vald í þessum efn-
um, m. a. með valdi til eftirlits og
íhlutunar um rekstur sparisjóða.
Guy Mollet krefst traustsyfirlýsingar
viS afgreiðslu fjárlaganna
London, 18. maí. — Guy Mollet, forsætisráðherra Frakka,
hefir farið þess á ieit við neðri deild franska þjóðþingsins, að
hún samþykki traust á stjórnina í sambandi við fjárlagafrum-
varp hennar.
I ræðu, sem Mollet flutti í sam-
bandi við tilmæli þessi, sagði hann
að ekki kæmi til mála að grípa til
gengislækkunar. Undanfarið hafa
hægri flokkarnir ymprað á því að
gengislækkun væri óhjákvæmileg
og síðustu dagana hafa slíkar kröf-
ur orðið háværari.
Mollet sagði, að gengislækkun
myndi hafa mjög slæmar afleiðing-
ar og kæmi verst niður á verka-
lýðnum o
Forsætisráðherra taldi rétt að
taka það fram, að þar sem um all-
víðtæka skipulagsbreytingu væri
að ræða á Landsbanka fslanda
væri mælt svo fyrir í frumvarpinu
að Alþingi kjósi nýtt bankaráð,
þegar lögin hafa öðlazt gildi. Hið
nýkjörna bankaráð sæi síðan um
að framkvæmdastjórn bankans
yrði komið í það horf, sem lögia
mæltu fyrir. Af hinni breyttu skip
an leiddi einnig að sjálfsögðu, að
umboð núverandi bankastjóra hans
féllu niður í því formi, sem það
er nú.
i
Útvegsbankinn hreinn
ríkisbanki "H
Þá ræddi forsætisráðherra nokk
uð um frumvarpið um Útvergs-
bankann. Hann sagði, að bankinn
hefði verið hlutafélag, en 87,69%
af hlutafé bankans ríkiseign. Þar
sem þessu fjármagni fylgdi fullur
atkvæðisréttur yrði reyndin sú, að
ráðherra sá, sem fer með banka-
málin, réði því raunverulega einn,
hverjir væru kosnir í bankaráð og
þá um leið hverjir verða banka-
stjórar. í eigu bankans væru 8,11
% af hlutafé hans en í eingaeign,
aðeins 4,20%.
Með hliðsjón af þessu væri eðli-
legt, að ríkið ætti allt hlutaféð og
bankinn yrði ríkisbanki, eins og
frumvarpið gerði ráð fyrir, en lyti
þó sérstakri stjórn eins og aðrir
viðskiptabankar. — Ríkisstjórnin
beitti sér því fyrir þessari breyt-
ingu. Þess vegna væru og í frumv.
fyrirmæli um eignarnám á þeim
hlutabréfum, sem eru í einkaeign,
og ríkisstjórnin teldi nauðsynlegt,
að þetta eignarnám færi fram þeg
ar eftir gildistöku laganna og nluta
félagið Útvegsbanki íslands hf.
leggist niður, en hinn nýi ríkis-
banki verði stofnaður. Á hið ný-
kjörna bankaráð þá þegar að taka
við stjórn bankans, en þegar bank
inn yrði ríkisbanki væri nauðsyn-
legt að setja um hann heildarlög-
gjöf sem slíkan, enda hefði lög-
(Framhald á 2. sfðu).