Tíminn - 16.12.1961, Blaðsíða 1

Tíminn - 16.12.1961, Blaðsíða 1
I íslendingar hafa fundið sér margt til dundurs og skemmtunar á liðnum öldum. í þeim efnum á hvert tímabil sína sögu, sem nú er horfin og gleymd, nema að því leyti, sem um hana verða fundnar götóttar heimildir í munnmælum og sögnum. Fornöldin átti sinn garpskap og íþrótt- ir, sem klassísk heiðríkja hefur hvelfst yfir í þúsund ár. En mörlandinn hefur einnig þreyð svarta daga eigi síður bjarta og arfur þeirra í sögn og Ijóði dft orðið honum tamari en bókmenntir um víikinga. Mannfundir og skcmmtanir á miðöldum báru þunglamalegan svip, blandinn viðkvæmum trega, sem varð furðulega lífseigur. Það var tregi viðlags- ins og þjóðvísunnar, sem er rótseigasta líftaugin í íslenzkri lýrik. Stundum var hann eilítið glettinn, jafnvel grár, og það er þetta undarlega sambland af glettni og trega, seín skapar andrúmsloft þeiria ljósaskipta, þegar skemmtanir íslend- inga eru að hverfa úr heiðríkju forn- aldarinnar inn í rqiðaldarökkrið. Dansar og vikivakar Dansleikir með öllu, sem þeim fylgdi, voru á miðöldum einna vinsælastar skemmtanir alþýðu á landi hér. Sjálfpagt hefur það verið fleira en eitt, sem olli því, að kappgirni og íþróttahugur eldri tímg fór halloka í þeirri samkeppni. í fornöld kunnu íslendingar ekki að dansa. Á miðöldum og miklu lengur var vesöld og volæði þjóðarinnar oft meira en hófi gegndi, og geistlega valdið og vaxandi ítök þess kom því til leiðar, að nú voru upp teknar aðrar skemmtanir en áður. Með því jukust einnig erlend menningar- áhrif, sem m. a. komu fram í því, að farið var að líkja eftir skemmtunum útlend- inga, en danslistin barst íslendingum sunnan úr álfu yfir Þýzkaland og boðleið- úm heim. Á þessum tímum var ekki lenzka að leika fyrir dansinum á hljóðfæri, heldur sungu dansfendur vísurnar eða danskvæð- in sjálfir, og var orðið dans þá haft jöfn- um höndum um kveðskapinn og danslpik- Hjörtur Pálsson skrifar um: JÖRFAGLEDI t DÖLUM inn. Þeir, sem þátt tóku í þessum skemmtunum, dönsuðu síðan eftir hrynj- andi söngsins. Framan af fjölluðu dans- arnir oftast um útlend efni og títt um riddarann, sem langaði með jómfrúna góðu út í lundinn., en um siðaskipti tók þjóðin að líta sér nær og orti um íslenzk efni undir erlendum háttum, sem með tilkomu dansanna leystu ljóðamálið úr fötrum dróttkvæðabarningsins, sem þá hafði gengið sér til húðar í upphaflegri mynd. Þessum nýju dönsum var gefið heitið vikivakar. Á öllum öldum Ekki verður með fullri vissu um það sagt, hvenær fyrst var stiginn dans hér- lendis, en það er kunnugt af sögu Jóns biskups helga, að á hans dögum og jafn- vel fyrr var leikur sá kær mönnum „að kveða skyldi karlmaður til konu í dans blautleg kvæði og regileg og kona til karlmanns mansöngsvísur. Þennan leik lét hann af taka og bannaði sterklega. Mansöngskvæði vildi hann eigi heyra né kveða láta, en þó fékk hann því eigi af komið með öllu.“ — Virðast því dansar hafa verið komnir til sögunnar hér á landi fyrir upphaf tólftu aldar. — Blóma- tími vikivakanna mun hafa verið snemma á sautjándu öld. Orðið vikivaki kemur ekki fyrir í fornsögum. Guðbrandur Vig- fússon taldi það hafa komizt inn á 15. öld, því að þar sem fyrst er talað um slíkar skemmtanir á fslandi í seinni tíð eru þær nefndar öðrum nöfnum, vaka eða vökunótt. Síðasti gleðileikurinn á Jörfa í Haukadal í Dalasýslu mun hafa verið haldinn á fyrsta áratug átjándu aldar, sennilega 1706 eða 1707. — En telja má líklegast, að þessi gamla skemmtan, sem tíðkazt hafði á íslandi síðan á elleftu öld, hafi liðið algjörlega undir lok kringum 1800. \ Víöa glatt á Hjalla Sjálfsagt hafa dansar verið iðkaðir víð- ar um land í einhverri mynd en nú er kunnugt. Þó höfum við enn sagnir af gleðileikum og dönsum allvíða. Frægasta skemmtunin af þessu tagi er Jörfagleðin, sem haldin var á Jörfa í Haukadal vestur Var henni við brugðið, og fara ýmsar sögur af svallinu, sem henni fylgdi, en að því verður komið síð- ar. — Fyrir miðja átjándu öld voru haldnir allfrægir dansleikir á Þingeyr- um, en lengst héldust vikivakarnir á Vesturlandi á ýmsum stórbæjum, þó að aðeins séu óljósar sagnir um flestar þess- ar gleðir. Ingjaldshólsgleðin undir Jökli og Stapagleðin voru orðlagðar, en við Stapagleðina var kenndur dans og nefnd- ur Stapadans. Ingjaldshólsgleðin var bæði fræg og fjölsótt, og vitað er til þess, að unglingum var jafnvel kennt að dansa til að þeir gætu staðið sig þar betur. En þessum gleðskap á Ingjaldshóli hnignaði og lagðist að lokum af eftir að einhverjir alvarlegir atburðir gerðust þar, sumir segja, að tveir menn hafi fótbrotnað, aðrir, að bóndinn á bænum hafi andazt með sviplegum hætti nóttina eftir eina gleðina, og hafi þeim þá verið hætt. í þjóðsögum Jóns Árnasonar er getið um aðra jólagleði undir Jökli. Á hún oftast að hafa verið haldin á Munaðarhóli. En sagan segir, að þar hafi einnig gerzt þeir atburðir, sem ekki urðu aftur teknir. Einu sinni sem oftar var þar haldin gleði. Var leikið og drukkið vel um kvöldið, en um nóttina drap Latínu-Bjarni Jónsson Teit Jónsson lögréttumanns á Grímsstöð- um í Breiðuvík með göldrum, og er sagt, að síðan hafi ekki verið haldin jólagleði undir Jökli. Um miðja átjándu öld lítur út fyrir að vikivakarnir hafi átt allgóðu gengi að fagna, því að þá er þeirra getið allvíða, einkum sunnanlands. Þá höfum við sagn- ir af vikivökum í Skálholti, Efra-Seli í Hreppum, Eyvindarroúla í Fljótshlíð, Reykjavík, Flangastöðum á Garðskaga og Þingeyrum nyrðra, eins og áður segir. — Á Hjalla í Ölfusi hafa vikivakar að lík- indum átt sér stað fyrir átjándu öld. Hef- ur þar sennilega verið líf í tuskunum, því að þaðan er runnið máltækið „Nú er glatt á Hjalla". Guð og góðir siðir Fulltrúar annars heims 'í landinu töldu það skyldu sína að berjast gegn þessum leikjum alþýðunn^r, enda var þar oftast nær fast drukkið og „siðferðið stundum eins og hurð á hjörum“. Áður var drepið á baráttu Jóns biskups helga gegn dönsunum, þó að eigi fengi hann með öllu af komið. í vísnabókarfor- málanum talar Guðbrandur biskup Þor- láksson um brunavísur og amorskvæði og virðist ekki sérlega hrifinn. — Séra Jón Magnússon í Laufási (d. 1675) hefur ort sand kvæða, þar á meðal eitt um ónýting tímans, en þar stendur: „Tafl og spil eða ráðlaust reik með lát og leik lítt trúi ég kristnum sæmi.“ Þó að stundum hafi eflaust verið ástæða til að beita sér gegn því í góðra siða nafni, að leikina keyrði um þverbak, gengu hinir geistlegu herrar á tíðum full- langt í að fordæma alla veraldlega skemmtan og kalla hana „apaskap". — I Fororðningu um helgihald sabbatsins 1744 stóð þessi klausa, gefin út frá Hól- um í Hjaltadal: „Allt tafl, leikir,.hlaup, spil, gárungahjal og skemmtan, — fyrir- bjóðast alvarlega hér með öllum, einum og sérhverjum án mismunar að viðlögðu straffi. sem helgidagsbrot áskilur." — 28. erindið í Upprisusálmi Steins biskups Jónssonar hljóðar þannig: „Leikar, ofdrykkja, dans og spil Drottni gjörast þá sízt í vil, enga guðsdýrkan eflir slíkt, óskikkan sú þó gangi ríkt.“ Dansleikirnir á Þingeyrum urðu til þess, að séra Þorsteinn Pétursson á Stað- arbakka samdi latínurit til höfuðs öllum skemmtunum og leikjum, sem nöfnum tjáir að mefna, öðrum en sálmasöng og guðsorði 1757. Þar segir hann, að stund- um hafi kviknað i leikhúsum, ennfremur hafi fólk dottið og meitt sig við leiki. Þetta álítur prófasturinn, að sé bein refsing frá guði almáttugum fyrir þetta óguðlega athæfi. En þessi dæmi eru þau sögulegu rök, sem höfundurinn færir fyrir því, að öll skemmtan sé syndsamleg og sá, sem hana elski, sé „sem gagnslaus jarðarhnaus". — Hins vegar er Meistari Jón góður fulltrúi þeirra gömlu, íslenzku guðfræðinga, sem láta leiki og hóflegar veraldarskemmtanir njóta sannmælis, en hann segir, að skemmtan sé einn af þeim hlutum, „hver á stundum sé nauðsynleg, bæði fyrir líkamann og sálina, því hvor- ugt af þeim getur þolað jafnaðarlega mæðu, nema maður á stundum taki sér nokkra endurnæring. Þar fyrir er mönn- um það leyíilegt.“ Rétt er og að taka fram, að ekki er víst, að klerkunum ein- um hafi staðið stuggur af gáskafyllstu skemmtunum liðinna alda. Þjóðsögur sköpuðust meðal alþýðu. Hjátrú var land- læg, og taumlausar skemmtanir eiga ef- laust sinn þátt í þjóðsögunum um „móð- ur núna í kví, kví“, dansinn í Hruna og ósköpin á Bakkastað. Vistir og veraldargengi Ráða verður af líkum, að fremur muni það hafa verið óvanalegt, að nokkur einn maður hafi haldið vikivakana eða aðrar hliðstæðar samkomur á eigin kostnað, heldur munu menn hafa lagt saman, þeir er skemmtunarinnar nutu. — Auðvitað var þá munur mannvirðinga og skapgerð- ar engu minni en nú, svo að eflaust hafa verið til þeir höfðingjar og rausnarmenn, sem Iögðu metnað sinn í að bjóða til veg- legs gildis, og sakar ekki að geta þess í því sambandi, að á Jörfa bjuggu jafnan efnamenn og hýstu stórmannlega, svo að það hlýtur að hafa ráðið nokkru um, að sá staður valdist til þessa skemmtana- halds öðrum fremur. Til þess hefur þurft rúmgóð húsakynni, mat og „mjaðarföng minnst tjl þriggja vikna“, eins og Davíð segir f ágætu kvæði um Jörfagleði, en fyrr á öldum var ekki á allra færi að veita það hverjum, sem hafa vildi; þeir voru fleiri, sem höfðu hóg með sjálfa sig. „í dansinn allir bruna .. Jörfi stendur sunnanmegin í Haukadal miðjum undir háum, samnefndum hnúki. (Framhald á 14. síðu).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.