Tíminn - 13.10.1962, Blaðsíða 1

Tíminn - 13.10.1962, Blaðsíða 1
Auglýsing í Tímanum kemur daglega fyrir augu vandlátra blaða- lesenda um allt land. 229. tbl. — Laugardagur 13. október 1962 — 46. árg. Tekið er á móti auglýsingum frá kl. 9—5 í Banka- stræti 7, sími 19523 Munrýrari kartöflu- uppskera SAMKVÆMT Þeim upplýsing- um, sem fyrir liggja, um kart- öflusprettu, þykir sýnt, að miklu minni heildaruppskera verður á þessu hausti en s. 1. ár. í Eyjafirði var spretta að vísu sem næst í meðallagi, en frost hafa þegar rýrt uppsker- una til muna. Verður hún af þeim sökum ódrjúg mjög, þeg- ar til á að taka að setja hana á markað. — í uppsveitum sunnanlands var vorið kalt og næturfrost snemma á ferð í haust, enda uppskera þar yfir- i I leitt mjög léleg. Aftur á móti er spretta í meðallagi í Djúpár hreppi og Þó sérstaklega í Þykkvabæ og þar var mikið sett niður i vor. — Það verða því Þykkbæingar, sem nú, — ' eins og reyndar oft áður, — j sjá landsmönnum fyrir drjúg- um skerfi neyzlukartaflna. — Mest er ræktað þar af Ólafs- rauð þessu sinni, má því vænta ■ þess, að fá góðar kartöflur I \ þaðan, — ef flokkun, meðferð I! og geymsla á kartöflunum I j verður í lagi. U i OFBEITTIR AFRÉTTIR? BT — Stokkseyri, 11. okt. Ekki verður öllu lengur gengið fram hjá þeirrí sfaðreynd, að alvarlegt vandamál er að skapast í sauðfjárrækt á Suður- landi, einkum á svæðinu milli Hvítár og Þjórsár Mörg undanfarin ár hafa dilkar reynzt rýrir, og að þessu sinni eru þeir í rýr- asta lagi. í haust hafa þeir dilkar, sem gengið hafa á afrétt reynzt mun rýrari en þeir, sem gengið hafa í heimahögum í Flóanum. Þetta hefur komið fyrir einu sinni áð- ur, síðan fjárskiptin áttu sér stað, en það var eftir óþurrkasum arið 1955. Er þó Flóinn talinn lé- legt sauðland. Skilta- skógur ÞAÐ er ekki vandalaust að vera bflst|órt nú á dögum. ÞaS er ekki nóg að einbeita hugan um að akstrinum og hafa auga á hverjum fingri, heldur verður maður líka að taka vel eftir alls konar skiltum, sem velviljuð yfir völd setja upp við veglna, til þess að vara við ýmsum hættum, sem kunna að leynast framundan. Stundum kemur það þó fyrlr, að manni finnst nóg um umhyggju þeirra, og hún reynist hreinlega ofjarl athugunargáfu vesalings bílstjóranna. Myndin hér við hliðina er að vísu ekkl tekin hériendis, heldur úti í Danmörku, þar sem verið er að lagfæra aðalveginn milli Árósa og Grená og belna þarf umferðinni um hliðarveg. — Hvernig hægt er að ætlast til þess að bílstjórarnir geti fest sér allar hætturnar í minni og jafnframt haft hugann við akst urinn þótti mörgum þar ytra erf itt að skilja. En ykkur? Þetta, ásamt mörgu öðra, bend- ir til þess, að afréttarmál Flóa og Hreppa séu komin í hið mesta óefni og þá fyrst og fremst vegna ofbeitar. ", I Eru enn að semja um Faxa KH—Reykjavík, 12. okt. — Eins og Tíminn skýrði frá í frétt sunnu daginn 30. september s.l. hefur Reykjavíkurborg ákveðið að selja Faxaverksmiðjuna gömlu, og er kaupandinn Síldar- og fiskimjöls- verksmiðjan Klettur h.f. Blaðið átti tal við Jónas Jónsson, for- stjóra Kletts, í dag og spurði, hvað máli'nu liði .Sagði hann ekki af því að frétta annað en samningar stæðu stöðugt yfir milli Kletts og Reykjavíkurborgar, en þeir hefðu ! dregizt ögn á langinn. Ekkert vildi hann láta uppi um fram- kvæmdir í verksmiðjunni, fyrr en gengið hefðí verið frá kaupunum. SPARIFJARFRYSTINGU HÆTT - VEXTIR LÆKKI Vextir og lánstími stofnlánadeildar landbúnaðarins, fisk- veiðasjóðs, byggingarsjóðs fyrir kauptún og kaupstaði, raforkusjóðs og byggingarsjóðs verkamanna verða eins og þeir voru fyrir „viðreisn". Hætt verður að frysta í Seðlabankanum hluta af spari- fjáraukningunni og útlánamöguleikar þannig auknir að sama skapi. Nánar er skýrt frá frumvarpi þessu á þingfréttasíðu blaðsins. Þingmenn Framsóknarflokksins í efri deild, 11 að tölu, lögðu í gær fram frumvarp til laga um að hætt verði fryst- ingu sparifjár og að vextir verði færðir í það horf, sem þeir voru fyrir „viðreisn“ og eðlilegum hluta af sparifjáraukning- unni í landinu verði beint til stuðnings þeim framkvæmdum og þeirri uppbyggingu, sem mestu máli skiptir. Verði frumvarp þetta samþykkt gerist þetta m.a.: •jfc- Útlánsvextir fara niður í 8% hæst eins og þeir voru. tI? Vextir af afurðavíxlum færast niður í 5—5V2% úr 7—81/2%. FRESTAÐ TIL FIMMTUDAGS KH—Reykjavík, 12. okt. — Kl. 5 í dag var réttur settur í Félags- dómi og tekið fyrir mál nr. 4, deila Landssambands ísl. verzlun- armanna og Alþýðusambands ís- lands um það, hvort LÍV eigi heimtingu á aðild að ASÍ. Lög- fræðingur ASÍ, Egill Sigurgeirs- son, hrl. lagði fram málsskjöl, en ekkert var lagt fram af hálfu stefnanda. Lögfræðingur LÍV er Áki Jakobsson, hrl. Hákon Guð- mundsson, bæstaréttarritari, lýsti yfir, að gagnasöfnun í málinu væri lokið, og dómurinn ákvað að munn legur málflutningur skyldi fara fram fimmtudaginn 18. þ.m. kl. 4 Ef dómurinn fellur LÍV í vil, fær LÍV 33 fulltrúa á þing ASÍ, og hafa þeir þegar verið kosnir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.