Alþýðublaðið - 14.11.1943, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 14.11.1943, Blaðsíða 7
Simnudag’ur 14. nóvember 1943 ^IÞYÐU^UÐIÐ * Jarðarför dóttur minnar, Sveinfríðar R. Elíasdótfur, fer fram þriðjudaginn 16. þ. m. frá dómkirkjunni. — Athöfnin hefst með bæn á Laugavegi 8 B kl. 1 e. h. Elías Eiríksson. HAFNARFJÖRÐUR: 2 siúlkur og 1 afgreiðslumaður geta fengið atvinnu við verzlunarstörf frá S næstu áramótum. Umsóknir ásamt kaupkröfu q sendist blaðinu merkt ,,Hafnarfjörður“ fyrir S 20. þ. m. ^ S önglingarykfrakkar Dömurykfrakkar enskir og innlendir. Sjóklæði og Fatnaður S.f. Varðarhúsinu. — Sími 4513. Innilegt þakklæti færi ég öllum þeim mörgu, fjær og nær, er með heimsóknum, skeytum, gjöfum eða á annan hátt minntust mín á sjötíu og fimm ára afmælisdegi mínum, 9. þ. m. — Ég bið guð að blessa ykkur öll. Hafnarfirði, 12. nóv. 1943. SIGURGEIE GÍSLASON. 0000000<><>O<3>0O<3><3><>O0<3>0<3><3^^ ^Bcerinn í dag. | Næturlæknir er í nótt í Lækna- varðstofunni, sími 5030. Helgidagslæknir er Jóhannes Björnsson, Hverfisgötu 117, sími 5989. Næturvörður er í Reykjavíkur- apóteki. ÚTVARPIÐ: 14.00 Messa í Fríkirkjunni (séra Árni Sigurðsson) . 15.30—16.30 Miðdegistónleikar (plötur): Slav- nesk tónlist. 18.40 Barnatími (Þor steinn Ö. Stephensen o. fl.). 19.25 Hljómplötur: Píanóverk eftir Schuloff. 19.45 Auglýsingar. 20.20 Einleikur á fiðlu (Þórarinn Guð- mundsson). Sónata nr. 8 í G-dúr eftir Beethoven. 20.35 Erindi: Steinvirki og trjálundir (Þórir Baldvinsson húsameistari). 20.55 Hljómplötur: Norðurlandasöngvar ar. 21.10 Upplestur: „Undir gunn- fána lifsins", kafli úr bók eftir Milton Silverton (Árni Pétursson læknir). 21.35 Hljómplötur: ,,.Úr héimi barnsins", eftir Schumann. 2,2.00 Danslög (Danshljómsveit Þóris Jónssonar. kl. 22.00—22.40). Hallgrímsprestakall. kl. 2 messa í bíósal Austurbæjar skólans, séra Sigurbjörn Einars- son. kl. 11 f. h. barnaguðsþjón- usta, séra Jakob Jónsson. kl. 10 f. h. Sunnudagaskóli í Gagnfræða skólanum við Lindargötu. Leikfélag Reykjavíkur sýnir Lénharð fógeta kl. 3.30 í dag og leikritið ,,Ég hef komið hér áður“ kl. 8 í kvöld. Alþýðufræðsla Fulltrúaráðsins 1 dag kl. 1.30 í Iðnó flytur Einar Olgeirsson alþm. fyrirlestur, um utanríkispólitík íslyendinga og þátt hennar.í að tryggja atvinnu og frelsi þjóðarinnar. Er þetta ann að erindið í fræðsluerindaflokki, sem fræðslunefnd Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna stendur að. Nýstárleg skemmtun. Frú Hallbjörg Bjarnadóttir efn- ir til samkeppni milli ungs fólks um fegurstu söngraddirnar. Fer keppnin fram í Listamannaskál- anum í dag og hefst kl. 3 e. h. Sigvaldi Kaldalóns og Eggert Stef ánsson halda hljómleika- og söng- skemmtun í Grindavík í dag kl. 5. Sigurður Nordal prófessor flytur í dag kl. 4 fyrirlestur í Góðtemplarahúsinu í Hafnarfirði, um Þorstein Erlingsson og þjóð- félagið. Fyrirlesturinn er fluttur á vegum Verkamannafélagsins Hlíf- ar. Aðgangur 1 kr. — Öllum heim ill aðgangur. Hjónaefní. I gær opinberuðu trúlofun sína frk. Fríða Sigurjónsdóttir Berg- staðastræti 54 og sgt. William R. Trimble, U. S. Army. Hapddrætti háskólass. ' Frh. af 2. síðu. runna, svo að umhverfið verði byggingunum samboðið, og helzt að koma upp lifandi safni allra íslenzkra jurta (botanisk- um garði) á lóðinni. Um kostn- að við allt þetta er ekki hægt að gera neina áætlun enn sem komið er, enda hefir ekki verið gengið frá skipulagsuppdrætti lóðarinnar, en víst er að hann verður geysimikill. Er ætlun há skólaráðs að láta ekki hefja vinnu þessa, meðan eftirspurn er mikil eftir vinnuafli, heldur geyma hana, þangað til að vinnunnar er meiri þörf. Ýmis önnur verkefni bíða úr- lausnar, þó að ekki séu hér tal- in, sem yfirstjórn kennslumál- anna og háskólaráði gæti komið saman um að láta framkvæma á kostnað happdrættis háskól- ans. Viðtal við Stefán jóh. Stefánsson. Frh. af 2. síðu. verkalýðsfélögunum? „Ég hitti Mr. J. Price, sem kom hingað í sumar og sagði hann mér ýmislegt um verka- lýðssamtökin — og meðal ann- ars það, að þau hafa boðað til alþ j óða-verkalýðsmálaráðstef nu í júní í vor í Énglandi til þess aðallega að ræða um endurreisn Alþjóðasambands verkamanna. Vænti hann þess fastlega að Al- þýðusambandið sendi fulltrúa á þá ráðstefnu. Að tilhlutun Mr. Price lét ég brezka útvarpið fá' til afnota við útvarp, sem sér- staklega er helgað verkamönn- um kveðju- og árnaðaróskir is- lenzkra alþýðusamtaka til verkamanna um allan heim, þó ekki sízt til þeirra, sem nú stynja undir oki nazismans“. — 'Hittir þú íulltrúa Norður- landaþjóðanna í London? Moff’ðaBaetBBE ‘í jL©BisI®sa« „Já, og sérstaklega ræddi ég mikið við gamla og nýja kunn- ingja mína í norska Alþýðu- flokknum. Allir voru þeir full- vissir um það, að þeir myndu aftur stíga á norska jörð, kom- ast heim, á næsta árL Þeir eru grunnreifir — og þess albúnir að hefja viðreisnarstarf sitt eft- ir heimkomuna — og taka upp þráðinn, þar sem áður var sleppt í umbótastarfi til hagsbóta fyrir alþýðu Noregs. í viðtölum mín- um við Norðmenn og aðra Norð urlandabúa varð ég var við hinn mesta áhuga fyrir aukinni, ná- inni, norrænni samvinnu eftir styrjöldina, og yrði það einn þátturinn í víðtæku alþjóðlegu samstarfi lýðræðisríkjanna til eflingar friði og bræðralagi meðal þjóðanna“. SJómannaráðdefna Alþýðusambandsins héfst í gær SJÓMANNARÁÐSTEFNA Alþýðusambands íslands var sett af forseta sambandsins, Guðgeiri Jónssyni, í gær kl. 2V2, að Hverfisgötu 21. Lagði forseti fram þessa dag- skrá: 1. Samræming sjómanna- kjara. 2. Skipulags- og út- breiðslumál sjómanna. 3. Dýr- tíðarmál. 4. Öryggismál. Umræður urðu stuttar, en snérust aðallega um vinnuhætti ráðstefnunnar, og loks var kos- ið í nefndir eins og hér segir: Samræmingar- og skipulags- nejnd: Bjarni Þórðarson, Norðfirði, Sigríkur Sigríksson, Akranesi, Tryggvi Gunnarsson, Vest- mannaeyjum, Valdimar Guð- jónsson, Keflavík, Magnús Guðmundsson, Reykjavík. Sig- finnur Karlsson, Norðfirði, Sigurður Ólafsson, Reykjavík. Öryggismála^nejnd: Sigurjón Ólafsson, Reykja- vík, Kristján Eyfjörð, Hafnar- firði, Ó-lafur Sigurðsson, Borg- arnesi, Garðar Jónsson, Reykja vík, Páll Ó. Pálsson, Sandgerði, Valdimar Bjarnason, Fáskrúðs- firði. Allsherjarnejnd: Jón Sigurðsson, Reykjavík, Jón Rafnsson ,Reykjavík, Thor- berg Einarsson, Reykjavík, Björn Bjarnason, Reykjavík. Dýrtíðarnejnd: Þóroddur Guðmpndss., Siglu firði, Sveinbjörn Oddsson, Akranesi, Lúðvík Jósefsson, Norðfirði, Sæmundur Ólafsson, Reykjavík. Ánnar íundur ráðstefnunnar verður settur í dag kl. 3.30, að Hverfisgötu 21, en nefndir munu vera að starfi í dag. síðastl. eftir rnikla vanheils‘u. Jarðarför 'hennar fór fram hér frá dómkirkjunni fimmtudag- inn 4. þ. mán. Með frk. Ragnheiði sál. er til moldar gengin merk og göfug kona, hreinskilin og heiðarleg í þess orðs beztu merkingu. grandvör til orðs og verka, mikilhæf og stjórnsöm. Henni var starfið líf og yndi, fyrst og fremst. Þessi kona, sem ár- um sainan hafði strítt ‘ við storma þungbærra sjúkdóma, frá því er hún fyrst veiktist, rúmlega tvítug að aldri, er hún dvaldi við nám í fram- andi landi, virtist búa yfir næst- um yfirnáttúrlegu þreki, virt- ist aldrei verða þreytt. Ég. sem rita þessar línur, átti því láni að fagna, að tilviljunin skikk- aði mig til náins samstarfs við hana um sjö ára bil. — Ég sá mikið eftir henni, þegar hún fór héðan; — þegar hún varð að fara burlu frá starfinu, sem hún unni. Hinn gamli illvígi sjúkdómur hafði ýfst upp að nýju. Nú var lífsþrekið orðið minna, til þess að mæta hon- um, en þegar hann hitti hana fyrst í blóma lífsins. Þessum óboðna gesti sínum, þjáningunni, mætti hún með þeirri hugarrósemi, sem sumir þeir öðlast, sem henni verða handgengnir; — sem þjáningin hefir náð að hefja til æðra skilnings á lífi og dauða. Ragnheiður sál. var fædd 25. nóvember 1879 á Kletti í Geira- dag í Austur-Barðastrandasýslu Foreldrar hennar voru merkis- hjónin Einar Jónsson frá Garps dal, bóndi á Kletti og Halldóra Jónsdóttir, kona hans. Þau voru fimrn systkinin, fjórar systur og bróðir einn. Eftir lifa nú systur tvær, þær frk. Oddfríður og frú Þórdís. Hún var gift Ólafi sál. Ófeigssyni. kaupmanni í Keflavík, hinum mesta merkis manni. Eins og áður var að vikið, fór frk. Ragnheiður sál. ung til náms erlendis. Dvaldi hún í Danmörku alls í þrettán ár. Sérgrein hennar var hússtjórn og matreiðsla. Vann hún á ýms- um beztu veitingahúsum og hótelum Kaupmannahafnar, þar á meðal á ,,Skydebanen“ og „Hotel Phönix“. Eftir að hún kom hingað til lands aftur, vann hún á ýmsum stöðum, stundum fyrir eigin reikning. en lengstum starfaði hún hér í Iðnó sem ráðskona. Hér hafði hún fyrir mörgu fólki að sjá og segja fyrir verkum. Það er vafalaust að mörgum varð dvölin hér, undir stjórn' frk. Ragnheiðar ,hinn ágætasti skóli bæði hvað snerti hugarfars- lega menningu og verklega hæfni. Heimanmundur Ragnheiðar sál. frá bernsku- og æskuheimil inu í dalnum fagra, hefir vissu- lega verið góður; — sá ,sem hún bar í brjósti alla ævidaga. Hlutverki hennar hér er lokið með mikilli prýði. Vissulega munu vinir hennar og ættingj ar, fjær og nær, þakka fyrir líf hennar og starf og blessa minningu hennar. —• Þín er saknað, þarfra verka þýðing sést, þótt látist menn; Þeir, sem brutu strauma sterka, studdir kærleik lifa enn. Oddur Ólafsson. Skáiar efna lil merkja- sðlu í dag Álmenningur nýtur oft þjónustu þeirra "O ÆJARBÚUM gefst kost ur á að styrkja félags- skap skáta í dag með því að kaupa merki þeirra, sem þeir munu selja á götunum. Þegar bæjarbúar þuríá á hjálpa að halda svo sem í inflú enzufaröldrum, eða ef einhver slasast og þarf á liði að halda, eða ef einhver tapast í byggð- um eða óbyggðum, þá er þrá- faldlega leitað til skátanna — og það er ekki vitað að þeir hafi nokkurn tíma brugðizt. Á sameiginlegum fundi stjórn ar Bandalags ísl. skáta og Skáta félags Reykjavíkur, höldnum á 31. afmælisdegi Skátafélags Reykjavíkurí, 2. nóv. 1943, var ákveðið að gera nokkra nýskip- an á fyrirkomulagi og starfs- háttum félagsins. Félagið starf- ar eins og hingað til í deildum, en skipt verður í þær eftir skátaprófunum þannig, að ný- liðar verði í einni, annars flokks skátar í annarri, fyrsta flokks í þeirri þriðju, eldri skátar (rekk ar) í einni og loks ylfingar í sérdeild. Eftir því sem þörf verður á, verður öðrum deild- um bætt við sfðar. Fyrir hverri deild verður deildaráðsforingi, einhver borg ari bæjarins, tilnefndur af stjórn félagsins í samráði við stjórn Bandalagsins, til tveggja ára í senn. En þessir deildar- ráðsforingjar hafa sér til aðstoð ar deildarforingja til þess að sjá um æfingar allar. Við þær deildir, sem þegar hefir verið skipað í, hafa þessir menn góðfúslega lofao að taka að sér deildarráðsforingjastörf- in: Við nýliðadeild: hr. Sigur- geir Sigurðsson biskup. Við annars flokks deild: Sveinbjörn Jónsson hrm. Við fyrsta flokks deild: Agn- ar Kofoed-Hansen lögreglustj. Við rekka-deild: Vilhjálmur Þ. Gíslason, skólastjóri. Við ylfingadeild- sr. Jakob Jónsson prestur. Stjóún Skátafélags Reykja- víkur vonast til með þessum breytingum að tengja félagið enn meira við borgara bæjar- ins. Dansskóli Rigmor Hansson tekur til starfa í þessari viku. Aðeins eit mánaðarnámskeið verð ur fyrir jól, og verða nemendur, sem ætla að taka þátt í því að sækja skírteini á þriðjudaginn kl. 5—7 og 8—10 á Hverfisgötu 104C. Æfingarnar verða sem hér segir: Fimmtudaginn 18. nóvember kl. 8 fyrir fullorðna, sem vilja læra nýju danzana. Sama dag kl. 10( fyrir fullorðna byrjendur. Föstu- daginn 19. nóv. kl. 5 fyrir ungl- inga, og laugardaginn 20. kl. 4 fyrir börn, sem ekki hafa lært áð- ur, og sama dag kl. 5.30 fyrir börn, sem sóttu skólann í fyrra.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.