Tíminn - 28.01.1964, Blaðsíða 1

Tíminn - 28.01.1964, Blaðsíða 1
\ *• '',WWiV\V \\ I*. \> v.'* V benzin eða dieset LÁND^ sfKOVER 22. tbl. — Þriðjudagur 28. janúar 1964 — 48. árg- NORDURLANDSBORINN Vilja ekki missa Norðurlandsbor KH-Reykjavík, 27. janúar Allmikill hiti er í Húsvíkingum út af þeirri ákvörSun jaröborana- deildar raforkumálaskrifstofunnar að hætta nú leit að heitu vatni á Húsavík með Norðurlandsbornum og flytja hann til Vestmannaeyja. Kom þeim ákvörSun þessi mjög á óvart, þar sem samningur hafði verið gerður um leit á tveimur öðrum stöðum en þeim, sem borað hefur verið á að undanfömu. Húsvíkingar vissu ekki um þessa ákvörðun jarðboranadeildarinnar, fyrr en á laugardag. Komu þá bæj arráð Húsavíkur og hitaveitunefnd saman á fund og mótmæltu harð- lega þessari ákvörðun. Bæjarráð og hitaveitunefnd samþykktu að fara fram á það við þingmenn Norðurlandskjördæmis eystra, að þeir ynnu að því, að jarðborana- deild breytti ákvörðun sinni um brottflutning borsins frá Húsavík. Áskell Einarsson, bæjarstjóri á Húsavík, er kominn til Reykja- víkur til ráðagerða, en hann vildi ekki segja annað um málið í dag en að borinn væri enn þá á Húsa- vik og han vonaðist til, að málið mundi leysast. Gunnar Böðvarsson hjá jarð- boranadeild raforkumálaskrifstof- unnar, sagði blaðinu, að hinn ár- angurslausa leit að heitu vatni á Húsavík hefði valdið meiri von- brigðum en víða annars staðar, því að þar hefði einmitt verið talsverð von um vatn. í ljós kom við borun- ina, að þetta hitaveitusvæði er eldra en víða annars staðar og bergið meira ummyndað, en það þýðir, að sprungur og glufur eru fullar af kalki og kisil, og er því ástæða til að sýna meiri varkárni við leitina og mundi henni verða hætt í bili. Gert er ráð fyrir að taka aftur upp boranir á Húsavík, en þá með minni bor og ódýrari gegn úrskurðinum um fiskverðið: SEGJA UPP KH-Reykjavík, 27. janúar. Mikil ólga er nú meðal sjó- manna út af úrskurði yfirnefndar um fiskverðið. Boðuðu sjómenn í Bora eftir neyzluvatni á Bakkanum HJ-Eyrarbakka, 27. janúar. Hafizt hefur verið handa um að bora hér eftir neyzlu vatni, en það er af skomum skammti i þorpinu. Brunnar eru við svo að segja hvert íbúðarhús, en nokkuir vand- ræði eru með vatn til fisk- vinnslunnar. Á þriðjudaginn kom hing að bíll með bor frá Jarðbor- unum ríkisins. Bornum er ætlað að bora hér eftir neyzluvatni fyrir þorpið. Verkið hefur gengið vel til þessa, og mun holan vera orðin 15 til 20 metrar að dýpt. Verður reynt að bora niður úr hrauninu til þess að finna þar vatn. Borinn er staðsettur við frystihúsið. Áður en langt um líður verður borinn þó tekinn i burtu um sinn og fluttur til Vestmannaeyja, þar sem einnig er ætlunin að reyna að bora eftir neyzluvatni. Hafnarfirði til fundair í gær, þar ! sem þeir samþykktu meðal annars ! einróma að segja þegar í stað upp I á bátunum og leggja niður vinnu frá og með 4. febrúar n. k. Má þá búast við, að állur hafnfirzki Iínu veiðiflotinn stöðvist næsta mánu- dag, og einnig má búast við mót- mælaaðgerðum í öðrum verstöðv- um. Samkvæmt upplýsingum Einars Jónssonar, stýrimanns í Hafnar- firði, komu nokkrir sjómenn þar saman, strax eftir að spurzt hafði um úrskurðinn um fiskverðið og mótmæltu honum harðlega. Siðan fóru þeir um borð í bátana og söfnuðu undirskriftum til mót- mæla, sem send voru sjávarút- vegsmálaráðuneytinu. Sagði Ein- ar, að fengizt hefðu undirskriftir allra skipshafna í Hafnarfirði. Fundur hafnfirzkra sjómanna í gær var mjög fjölsóttur, og munu flestir eða allir sjómenn af land- legubátum hafa mætt. Jón Sig- urðsson, formaður Sjómannasam- bandsins, og Tryggvi Helgason, sem báðir áttu sæti í yfirnefnd, mættu á fundinum og útskýrðu, hvernig nefndin starfaði. Þá voru umræður og síðan einróma sam- þykkt eftirfarandi yfirlýsing: .Fun'dur, haldinn af sjómönnum í Hafnarfirði 26..1. 1964, mótmælir harðlega útkomnu fiskverði, sem gefið var út á sama tíma og aðrir| launþegar í landinu hafa fengið hækkun á lunum sínum á síðasta Framhald á 15. síðu. I í rekstri, sem getur aðeins borað 500 m. niður. Á morgun fara tveir menn frá jarðboranadeildinni og ákveða, Framhald á 15. slðu. SKOTID Á LJÖS- DUFLIÐ ÁJ-Rifi, FB-Reykjavík, 27. janúar. Fyrir nokkrum dögum hætti ljós duflið hér fyrir utan að lýsa reglu lega, og var vitaskipið Árvakur kvatt á vettvang til þess að athuga það. Kom þá í ljós, að skotið hafði verið á Ijóskerið, og sjór farið inn í það, sem síðan hafði eyðllagt Ijósið. f fyrstu var talið, að ljósduflíð væri að verða gaslaust, þegar það hætti að sýna ljósmerkin reglu- lega. Svo var þó ekki, heldur mun hafa verið skotið á duflið með byssu, og við það komst sjór inn í það. Talið er fullvíst, að ekki hafi verið skotið á duflið úr landi, því að vegalengdin er um 1 km. Eitt skotgat var á gleri Ijóskersins, en auk þess voru mekri um fleiri skot annars staðar á duflinu. Þykir mönnum sem eðlilegt er, furðu sæta, ef sjómenn hafa það sér til afþreyingar að skjóta á vita, sem eiga að visa þeim sjálfum leiðina til lands, en samkvæmt upp lýsingum skipstjórans á Árvaki, mun ekki áður hafa verið skotið á ljósdufl, svo vitað sé, en hins vegar hafa menn gamnað sér við að skjóta á vitana. HAFISINN REKUR YFIR LÓÐIRNAR GS-ísafirði, 27. janúar Mikil brögð hafa verið að því að undanförnu, að bátar hafa misst lóðir sínar undir ís hér úti á mið- unum. fsinn færist mikið úr stað, og er oft kominn yfir lóðirnar eftir 3—4i tíma, þótt þær hafi ver ið lagðar, þar sem hvergi sér í ís. Guðbjörg missti fyrir nokkru 80 lóðir, og má gera ráð fyrir, að tjón ið sé sem svarar 25—30 þúsund krónum. Einnig hafa brezkir tog- arar valdið miklu veiðarfæratjóni hjá bátunum í vetur. í gærmorgun kom varðskipið Óðinn hingað með Keili frá Skaga- strönd, sem hafði verið.að veiðum um 29 milur norðaustur af Horni, en þar lenti báturinn í ís og skemmdi skrúfuna, svo hann gat ekki komizt hjálparlaust til lands. Keilir var búinn að draga lín- una, þegar þetta gerðist, en mjög margir bátar hafa misst lóðirnar að undanförnu bæði vegna íssins og geysilegs ágangs brezkra tog- ara, en það er haft eftir skipstjór- um, að þýðingarlaust sé fyrir fiski- bátana að leggja línu í djúpáln- um, því þeir hafi þar ekki frið fyrir togurunum, sem séu búnir að leggja hann undir sig. Reyndar eru brezku togararnir ekki einir um þetta heldur draga íslenzku togararnir þvers og krus og skipta engu um veiðafæri bátanna. Um ísin er það að segja', að hann hefur verið óvenju nálægt landi það sem af er vetrarins. Oft hefur hann verið á 27 mílna svæðinu og svo út á 35—40 mílna svæðinu, og Framnaltí á 15. siðu. hvernlg það getur gerzt að svona merkur maður . . . sé glataður okkur", — sagði Jack Ruby um Kennedy Bandaríkjaforseta á blaðamanna- tundi, sem Ruby hélt f ríkisfangels- inu i Dallas um helgina. Ruby hefur setið þar síðan hann myrti Oswald. Lögfræðingar Rubys hafa viljað fá hann lausan gegn tryggingu, en fyr- ir vlku var nú ósk dregln tll baka. Ruby situr þvf áfram f stelnlnum, en hefur þar talsvert frelsl, og gat m. a. haldið blaðamannafundlnn. Þar voru myndirnar teknar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.