Tíminn - 11.09.1964, Síða 1

Tíminn - 11.09.1964, Síða 1
206. tbl. — Föstudagur 11. september — 48. árg. er I.G.Þ., H.F., Reykjavfb 10. sept. Frú Dóra Þórhallsdóttir, forsetairú, andaðist klukkan ellefu í kvöld í Landsspítal- anum í Reykjavík eftir stutta sjúkdómslegu þar á spítalanum. Hún var iögð á sjúkra- hús 30. ágúst síðastliðinn. Bananiein hennar var hvítblæði. Tíminn vottar forsetan- um, herra Ásgeiri Ásgeirssyni, börnum þeirra hjóna og öðrum aðstandendum lýpstu samúð á þessari sorgarstundu, er þjóðin sér á bak mikilhæfri konu, sem skipaði æðsta sæti við hlið manns síns með mikium glæsibrag og vann hugi og hjövtu allra landsmanna með ljúfmannlegri framkomu og göfugmennsku. Frú Dóra Þórhallsdóttir, forsetafrú fæddist í Reykjavík hinn 23. febrúar ár- ið 1893. Hún var því sjötíu og eins árs er hún andaðist. Foreldrar hennar vorú Þórhallur Bjarnason, biskup, og kona hans, Valgerður Jónsdóttir frá Bjarnar stöðum í Bárðardal. Þau áttu þrjú börn fyrir utan frú Dóru, Tryggva Þórhallsson, forsætisráðherra, er giftist önnu Klemenz dóttur, Svövu, er giftist Halldóri Vil- hjálmssyni, skólastjóra Bændaskólans á Hvanneyri og Björn, sem lézt í Noregi árið 1916. Frú Dóra var yngst sinna systk ina. Frú Dóra ólst upp hjá foreldrum sín- um að Laufási við Laufásveg hér í Reykja- vík. Er foreldrar hennar komu fyrst hing- að til borgarinnar bjuggu þau í húsi Steingríms Thorsteinssonar, par sem nú er Landssímahúsið og síðan í Helgesen- húsinu, þar sem nú er Hótel Skjaldbreið. Laufáshúsið var byggt árið 1896 og voru því öll systkinin fædd, þegar þau fluttu í Laufás. Þar var fjölskyldunni búið ynd- islegt heimili og bjó forsetafrúin alla ævi að þeim áhrifum, sem hún varð fyrir í uppeldinu frá fjölmenntuðum föður og gáf aðri og ástríkri móður. Forsetafrú Dóra missti móðir sína árið 1913 og tók hún þá við stjórn heimilisins og stýrði bvi í fjögur ár. Árið 1917 giftist hún herra Ás- geiri Ásgeirssyni, forseta, og bjuggu bau fram til ársins 1932 í Laufási, er maður hennar varð forsætisráðherra. Þá fluttust þau í ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu. Frú Dóra vandist snemma á að stýra fjöl- mennu heimili og gestkvæmu og kom það sér vel síðar. Herra Ásgeir Ásgeirsson tók við forsetaembættinu árið 1952. Frú Dóra gerðist þá verðugur fultrúi hinnar ís- lenzku kvenþjóðar á forsetaheimiíinu og utan þess. Áhugamál forsetafrúarinnar voru margvísleg. Hún var í stjórn Lestrar félags kvenna og starfaði mikið fyr- ir það félag. Hún átti lengi sæti í skóla- nefnd Kvennaskola Reykjavíkur og sokn- arnefnd Dómkirkjusafnaðarins. Frú Dóra var því mjög fylgjandi, að konur ættu sér hugðarefni utan heimilanna, svo fram- arlega sem tími þeirra leyfði Þá hafði hún mikinn áhuga á kirkjumálum og var umhugað um, að meiri rækt yrði lögð við söngkennslu í skólum. Frú Dóra var mik- ill snillingur við hannyrðir og lætur eftir sig marga fallega muni, sem bera hand- bragði hennar gott vitni. Þrátt fyrir anna söm skyldustörf út á við einkum hin síð- ari ár, bjó hún fjölskyldu sinni mikið fyrirmyndarheimili og fórnaði því heiztu kröftum sínum. Þar bjó hún f jölskyldunni öruggt og ánægjulegt athvarf. Frú Dora hefur sjálf lýst heimilinu í Laufási, sem veitti henni bezta veganestið á lífsleiðinni. í Laufási var sameinað margt hið ágætasta úr íslenzkri bænda- menningu og það, sem menntunarskilyrði fjölbýlisins veittu. Á uppvaxtarárum frú Dóru hófst vöxtur ungmennafélagshrcvf- ingarinnar og þangað sótti hún ásamt systkinum sínum marga ánægjuslund. Þjóðlegt uppeldi sem einkenndist af víð- sýni og menntun urðu frú Dóru stvrkast- ar stoðir á lífsleiðinni og kom það fram með ýinsu móti. Forsetafrúin kom oft fram opinberlega klædd íslenzka þjóðbúningnum sem bún bar með inikl- um glæsibrag, og með ýmsu öðru móti sýndi hún virðingu sína fyrir þjóðlegum verðmætum. Börn frú Dóru og herra Ásgeirs 4s- geirssonar eru Þórhallur, ráðuneytisstjóri í Reykjavík, giftur Lily Ásgeirsson. Vala, gift Gunnari Thoroddsen, fjármálaráð herra og Björg, gift Páli Ásgeiri Tryggva- syni, sendiráðsfulltrúa. Barnabörnin eru þrettán. Fru Dora Þorhallsdóttir var ovenju glæsileg kona. Hún bar hróður lands síns víða með rólegri og virðulegri framkomu sinni, sem vissulega hæfði stóðu hennar Á meðal erlendra þjóðhöfðingja hér heima og annars staðar bar nún svip göf ugmennsku og reisnar og mátti sjá að þar fór íslenzk kona. látin

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.