Vísir - 10.04.1911, Blaðsíða 2
22
V í S I R
5í$av "0 ö vuv.
| Ceves. Stóxt Smebfetegt Alvvat. "Níevíuv
komvð upp \iessa dagaua $\jm ^ásfea.
"Oörttt 5^ ru ^Cotwu 03 yarta.
"VJexat. 5) a^sötúxv.
SÓMI
ÍSLANDS
SVERÐog
SKJÖLDUR
Gjafir til minnisvarða
Jóns Sigurðssonar
Pessi er fyrirsögn í hverju blaði Heimskringlu og þar undit
altaf taldir nokkur hundruð gefendur.
Virðist söfnunin ganga þar greiðar en hjer. 9. f. m. voru
komnar inn í Vesturheimi rúmar 5200 krónur.
‘Jvi úUöu&um.
Hungursneyð á Labra-
dór. A hinum afár stóra skaga
Labrador (hann er 12 sinnum stærri
en ísland), þar sem búa Skrælingjar
og Indíánar, er nú afar mikil hung-
ursneyð, þar sem veturinn hefur
verið óvanalega harður. Skip hafa
veríð send þangað með vistir, en
komast hvergi að landi fyrir ís og
er því við búið að margir farist úr
bjargarleysinu. Landið er afarstrjál-
byggt og aðeins bygð á ströndum,
kring um vötn og með ám. F>að
er talið að þarna búi alls um 15
þúsundir manna.
Neistaskeytastöð mikil er
ný byggð í Gautaborg.
í Portugal er nú kominn á
friður og spefet. Landið hefur þegar
rjett við ^llmikið hvað fjárhag snertir.
Verslun hefur aukist mjög og er nú
allur annar bragurá en undir konungs-
stjórninni.
Loftsteinn afar mikill fjell
aðfaranótt 28. f. m. niður í Kors-
berga í Svíaríki. Hvinur varð svo
mikill að allir menn vöknuðu í næstu
sveitum, en svo varð bjart sem
um hádag.
HersMpaferlíM Engla.
16. jan. þ. á. byrjuðu Englar á
tveim nýum jötunherskipum af þeirri
tegund sem kallað er »Dreadnought«
og hjer hafa verið nefnd Óragur.
Er tegundarnafnið nafn hins fyrsta
skips er gert var með þessu sniði.
Það var fyrir fám árum og þóttu
býsn mikil um allan heim er það
hljóp af stokkunum.
Raunar eru þessi nýu skip enn
stórkostlegri en hin fyrri »Dread-
noughts* og er þessi tegund því
nefnd Super Dreadnoughts eða
Órag meiri, þó fyrra heitinu sje
haldið hjer um öll þessi heljarskip.
Þessi tvö nýju skip heita Georg
V., og er það bygt í Portsmouth og
Centurion, bygt í Devonport. Þau
verða 25 þúsundir smálesta hvort
um sig og eru þau þásvostórsem
mest má verða, til þess að geta
flotið um Suesskurðinn og Panama-
skurðinn.
Tíu fallbyssur hinar stærstu teg-
undar eru á hvoru skipinu og eru
þær í 5 turnbyggingum miðlínu skips-
ins op þeirra fallbyssa er 13 J/2
þumlungur (enskur) að þvermáli og
sprengikúlur þær, sem úr þeim er
skotið vega eitt þúsund tvö hund-
uð og fimmtíu pund hver. Úr
öllum fallbyssum má skjóta samtímis
í sömu átt og geta menn gert sjer
í hugarlund að ein slík skotdemba
hafi dálítil áhrif.
í ársbyrjun núna áttu Englar 10
Óraga, en er þessi fyrnefndu tvö
herskip verða tilbúin og önnur sem
áður var byrjað á, verða þau orðin
25 talsins eða 27 með tveim skip-
um sem nýlendurnar eiga.
Hjer um bil tvö ár tekur að
smíða þessi skip; en frá því þau
hlanpa af stokkunum og þar til þau
»