Vísir - 11.09.1935, Blaðsíða 3
VISIR
Bretap og Frakkar reiðu-
búnir til þess aö aö fram-
fylgja sáttmála þj óöabanda—
lagsins.
Búist er við, að Hoare, utanríkismálaráðherra
Bretlands, lýsi yfir því í ræðu sinni á banda-
lagsfundi í dag, að Bretland sé reiðubúið til
þess að taka þátt í sameiginlegum ráðstöfun-
um bandalagsþjóðanna gegn þeirri þjóð, sem
byrjar árásarstríð. Búist er við, að Frakkar
gefi samskonar yfirlýsingu.
Genf ii. sept.
Tilraunir ráðs Þjóðabandalags-
ins til þess að leiða deilur ítala og
Abessiniumanna friðsamlega til
lykta hafa raunverulega farið út
um þúfur, þar eð Aloisi hefir neit-
að samvinnu við fimm þjóða
nefndina, sem samkomulag náðist
um á ráðsfundinum, að tækí að sér
að leggja fram nýjar tillögur til
Íausnar deilunni. — Þeir Hoare ut-
anríkismálaráðherra Bretlands,
Anthony Eden og Laval hafa í
gærkveldi og í morgun setið á
löngum viðræðum. Hoare flytur
ræðu í dag á fimdi Þjóðabanda-
lagsins og er búist við, að hann
muni tilkynna, að Bretland sé
reiðubúið til þess að standa við
allar skuldbindingar sínar gagn-
vart Þjóðabandalaginu og taka
þátt í sameiginlegum ráðstöfunum
Þjóðabandalagsins friðinum til
verndar. Að ræðu Samuels Hoare
lokinni er búist við, að Laval gefi
samskonar yfirlýsingu.
(United Press—FB)
Vanþ akka ð
pannsókna-
verk.
Leitt þótti mér að sjá grein
þá í Vísi 7. þ. in., sem G. B.
stendur undir. Er þar um megn-
án misskilning að ræða. Þvi að
það er vissulega ekki ástæðá til
annars en að fagna því, að einn
af mik,ilhæfrustu jarðfræðing-
um sem nú er uppi skuli fara
að taka þátt. í að rannsaka ís-
íand, og síst furða, þó að maður
sem mjög hefir kannað Græn-
land, vilji einnig kynnast ís-
landi af eigin sjón. Ög um hinn
ágæta. Svía, próf. Bácklund,
sem dr. Lauge Koch hefir féng-
ið til með sér, þarf í rauniími
ekki að vita meira en það, að
hann er eftirmaður Högboms í
Uppsölum, því að það má telja
vist, að til að taka við af slík-
um manni, hafi verið valinn
maður mjög. Um liina mennina
sem eru með dr. Iíoch, er mér
minna kunnugt, en efast þó
ekki um, að einnig þar er um
valda menn að ræða. Þá má
minna á, hvilíkur skóli það hlýt-
ur að reynast jarðfræðinemend-
um, að vera með mönnum eins
og þessir eru. Og allir sem
nokkurn skilning hafa á þýð-
ingu jarðfræðinnar, mega vera
dr. Lauge Kocli þakklátir fyrir
það þrekvirki sem liann hefir
unnið með því að breyta eins og
raun sýnir, hugsunarhættinpm
gagnvart því, liversu leggja
skuli fram fé til slikra rann-
sókna.
9. sept.
Helgi Pjeturss.
Ritfregn.
Ólafur Jóh. Sigurðsson: Um
sumarkvöld. Barnasögur
með myndum. Útgefandi
Ólafur Erlingsson. Reykja-
vík 1935.
Höfundur þessarar bókar
mun vera kornungur sveitapilt-
ur. Honum er bersýnilega mjög
létt um að skrifa' og sögur hans
eru flestar laglega sagðar. Hann
hættir sér elcki út í viðfangsefni,
sem hann ræður ekki við. Eins
og að líkindum lætur um svo
ungan höfund, er sumstaðar
nolckur viðvaningsbragur á frá-
sögninni, en þess líáttar mun
liverfa með meiri þroska og
leikni. — Ó. S. er ekki með öllu
ókunnur höfundur, þó að ungur
sé, því að áður hafa komið út
smásögur, við barnahæfi. Hét
sú bók: „Við Álftavatn“ og var
svo vel tekið, að fyrsta prentun
seldist á skönnnum tíma og var
bókin þá prentuð öðru sinni.
í bók þeirri — Um sumar-
kvöld -— sem hér um ræðir, eru
9 sögur, fiestar mjög stuttar,
nema hin síðasta. Hún er all-
löng og skift í átta kafla og er
liver um sig með sérstakri fyr-
irsögn.r Söguheitín eru sem
hér segir: „Fólkið í Svarlagili“.
— „Sættir.“ — „I ruslakomp-
unni.“ — „Stóðrekstur.14 —
„Hreiðrið.“ -— „Bernharð gamli
frændi.“ — „Um sumarkvöld.“
— „Úlfhildur“ og „Góðir dreng-
ir.“ Sú saga er léngst og að
mörgu leyti einna best.
Myndir eru í bókinni allmarg-
ar til skýringar atburðum þeim,
sem frá er sagt. — Óhætt mun
að gera ráð fyrir því, að bók
þessi seljist vel, ekki síður en
fyrri bók höfundarins. — Virð-
ist margt benda til þess, að Ólaf-
ur Jóh. Sigurðsson sé efni í
ágætan rithöfund. Frásagnar-
háttur hans er allur með þeim
blæ og brag, að full ástæða er til
að ætla, að þar sé á ferð höfund-
ur, sem mikils megi af vænta
með tíð og tíma. — Er skylt að
taka vel slíkum unglingum og
greiða götu þeirra eftir föngum.
Bókin er prentuð með stóru
og fallegu letri og ytri frágang-
ur hinn myndarlegasti.
Verkfall.
Húsgagnasmiðasveinar lögðu
niður vinnu í morgun.
Félag. húsgagnasmiðasveina í
Reykjavík sendi húsgagnasmiðum
30. f. m: kröfur um kauphækkun
og aukin fríðindi. Samkomulag
var reynt, en náðist ekki. Höföu
sveinarnir tilkynt, aS verkfall yrði
hafið í dag, ef samkomulag næðist
ekki fyrir þann tíma, og var þaS
samþykt á fundi félagsins í gær,
me’ð mjög litlum atkvæðamun.
Komu sveinarnir ekki til vinnu í
morgun. Frekari samkomulagstil-
raunir verða vafalaust gerðar
næstu daga.
Hlaup í j ökul-
ánni Súlu.
10. sept. FÚ.
Jökuláin Súla sem kemur undan
Skeiðarárjökli vestanverðum og
fellur í Núpsvötn hljóp í nótt.
Vatnsflóð mikið og jakaburöur
var kominn frarn á sandinn í dag,
og síðast er fréttist hafði þriðji
símastaur austan Núpsvatna brotn-
að og simasamband slitnað. —
Seinustu fréttip.
Hannes bóndi Jónsson á Núps-
stað skýrSi útvarpinu frá því í
morgun aS jökulhlaupið í Súlu
wstan Skeiðarárjökuls væri altaf
að vaxa. KvaS hann bæSi vatnsflóð
og jakaburS hafa aukist að mun í
nótt.
SkeiSará hafSi aftur á móti ekk-
ert vaxið, er síSast fréttist.
Póst- og símamálastjóra barst í
gær siSdegis svohljóSandi sim-
skeyti:
Engin breyting á .vötnum hér
austur á söndum sjáanleg aS heim-
an.
Stöðvarnar Svínafell og
Skaftafell,
— —i. msstr/ ■ ----
Veðrið í morgun.
í Reykjavík 11 stig, Bolungar-
vík 7, Akureyri 7, Skálanesi 7,
Vestmannaeyjum 11, Sandi 10,
Kvígindisdal 9, Hesteyri 6, Gjögri
5, Blönduósi 5, Siglunesi 5, Gríms-
ey 5, Raufarhöfn 6, Skálum 6,
Fagradal 7, Papey 9, Hólum í
IiornafirSi 9, Fagurhólsmýri 11,
Reykjanesi 11, Færeyjum 10.
Mestur hiti hér í gær 16 stig,
minstur 10. Úrkoma 0.1 mm. Yf-
irlit: Grurin lægS fyrir sunnan óg
suSvestan larid. Horfur: SuS-vest-
urland, Faxaflói: Breytileg átt og
hægviöri. SumstaSar smáskúrir.
BreiSafjörSur: Hæg austanátt. Úr-
komulaust. VestfirSir, NorSurland,
norSausturland, AustfirSir, suS-
austurland : Breytileg átt og hæg-
viSri. Þoka víSa, einkum í nótt, en
úrkomulaust aS mestu.
Sýning Kjarvals
er opin í dag fyrir skólafólk.
Nemendur í öllum skólum öðrum
en barnaskólum fá ókeypis að-
gang.
Varðskipið Þór
kom af síldveiSum í gær.
Aflasölur.
Leiknir hefir selt 1260 vættir af
ísíiski í Hull fyrir 1390 stpd., en
Baldur seldi ísfisk í Cuxhaven í
gær fyrir 22,173 rikismörk.
Hávarður ísfirðingur
íer innan skámms. á karfaveiSar.
Síldveiðarnar.
S. k laugardag var búið aS salta
82.133 tn..síldar, en á sama tíma i
fyrra 206.692 tn.
Skip Eimskipafélagsins.
Dettifoss fer vestur og norður
í kveld kl. 8. Goðafoss er væntan-
legur til Hamborgar í dag. Selfoss
fór héSan á miSriætti síSastliSnu
áleiSis til útlanda. Brúarfoss fór
héðan í gærkveldí áleiSis til út-
landa. Gullfoss er á ieiS til Vest-
mannaeyja frá Leith. Lagarfoss er
á leiS til Kaupmannahafnar írá
AustfjörSum.
Bifreið hvolfir.
Laust eftir hádegi í gær fór bif-
reiSin R.Á. 2 út af veginum skamt
fyrir neSan Lögberg. Hvolfdi
henni og meiddust 10 lömb, af 59,
sem í henni voru, svo mjög, að
þaS varð að lóga þeim þegar í
staö. BifreiSin er eign, Kaupfélags
Rangæinga og stýrði henni Helgi
Hannesson kaupfélagsstjóri. Taliö
KonungsveldLi verðup eud-
upreist í Grikklandi. - Fop-
seti lýöveldisins biöst
lausnap
og Pericles, innanríkisráðherra, sem er lýð-
veldissinni. — Tsaldaris var kúgaður til þess
að mæla með endurreisn konungsveldisins, en
það leiddi til lausnarbeiðni Zaimis. — Lýð-
veldissinnar ætla ekki að taka þátt í þjóðarat-
kvæðinu.
Aþenuborg 11. sept.
Zaimis, forseti gríska lýðveldis-
ins, hefir ákveðið að biðjast lausn-
ar, vegna þeirrar yfirlýsingar
Tsaldaris forsætisráðherra, að
hann teldi rétt að leggja til, eins
og komið væri, að konungsvaldið
væri endurreist í landinu, en Tsald-
aris var raunverulega knúður til
þess að gefa þessa yfirlýsingu, af
konungssinnum með Kondylis í!
broddi fylkingar. Pericles, ráð-j
herra innanríkismála, hefir einnig
beðist lausnar, en hann er lýðveld-
issinni. Kondylis hefir hinsvegar
afturkallað lausnarbeiðni sína. —
Lýðveldissinnar hafa ‘tilkynt, að l
þeir ætli ekki að taka þátt í þjóð-
aratkvæðinu. (United Press).
"’ZÁIMIS
er, að framfjöður hafi brotnað, og
þessvegna hafi bifreiðin farið út
af veginum. Lömbin fóru öll út í
aöra hliöina og við það livolfdi
henni. BifreiSin skemdist allmik-
íS. í bifreiðinni voru 4 menn.
SkrámuSust sumir þeirra, en eng-
inn meiddist alvarlega.
B. v. Gullfoss
býst á veiöar.
M. s. Eldborg
fer tíl BreiSaf jarðar í kveld.
Kristniboðsfélag kvenna
., heklur íund á morgun kl. 4
Gengið í dag:
Sterlingspund ...... kr. 22.15
Dollar , ,—• 4.4914
100 ríkismðrk.......... — 180.02
----pesetar ......... ■-*— 29.71
— gyllini............. — 75.75
— tékkósl. krónur .. — 146.10
— belgur '............ — 37.15
— svissn. frankar .. — 9.93
— lírur .............. — 62.12
— finsk mörk....... — 303.33
— franskir frankar . — J8-93
— sænskar krónur .. — 114.36
— norskar krónur .. — m.44
— danskar krónur .. — 100.00
Gullverð
ísl. krónu er nú 49.21.
Farþegar á Brúarfossi
til Leith og Kaupmannahafnar:
Helga Markúsdóttir, Þorbjörg
Ingólfsdóttir, frú L. Aridersen,
Hjalti Jónsson, Unnur Óíáfsdóttir,
frú Ásta Paulsén, Unriur Hlíf
Hildiberg, ' Lóa Jórisdóttir, • Ása
Jórisdóttir, Óskar Magnufeori, Sig.
GuSmundsson, Vilhjálmur : LúS-
vígssori, Tómas TfyggvaSori, FriS-
rik Möller, Brödcli ■Jóhánnésson,
ASaÍsteinn Richtér og riöickfir út-
lendingar. ■ ■
Katla
fór í gærkveldi’ frá Port Talbot,
áleiSis til Ítalíu.
S. P. R.
Læknareikningar veröa greiddir
annað kveld kl. 6—7 á SkólavörSu-
stig 38.
Frú Ásta Jónsdóttir
Sólvallagötu 22 á 40 ára af-
mæli í dag.
ísland í erlendum blöðum.
í „News“, blaöi sem gefiS er
út í New Glasgow, N. S. birtist
þ. 3. ágúst grein, sem nefnist
„Stamps of Iceland“. Grein þessi
er allítarleg og hefir inni aö halda
talsverSan fróðleik. Er í greininni
lokið lofsoröi á islensk frímerki,
t. d. AlþingishátíSarfrímerkin,
sém eru tal'in einhver hin fall-
egustu, sem nokkur þjóð hefir gef-
ið út, — í Svenska dagbladet“ 3.
agúst birtist viðtal við Guömund
J. GuSjónsson kennara um skóla-
mál á íslandi. (Island har barn
nién' hehöver skolor. En islandsk
deltager við skolmötet om sitt
lands skolproblem). I Tidens
Tegn 14. ágúst birtist grein um
IslandsferS, eftir Bokken Lasson.
(Paa íslands-ferd. Annet reise-
brev frá Bökken Lasson). — í
þýskum bloöum hefir birst mergö
greina og frásagna um Þýska-
landsför íslensku knattspyrnu-
mannanna. ('FB)
Áðalfundur
Karlakórs K. F. Ú. M. var hald-
inn í gærkveldi. Stjórnin var end-
urkosin, en í henni eiga sæti
Guöm. Ólafsson, bakarameistari,
fonnaSur og meSstjórnendur þeir
SigurSur Waage, forstjóri, og
Magnús Vigfússon, verslunarmaS-
ur. Kórinn byrjar nú tuttugasta
starfsár sitt undir stjórn sama
söngstjóra, Jóns Halldórssonar,
skrifstofustjóra.
Næturlæknir
er í nótt Sveinn Pétursson,
Freýjugötu 24. Sími 1611. — Næt-
urvörSur í Reykjavíkur apóteki og
LyfjabúSinni ISunni.
Útvarpið í kveld:
19,10 VeSurfregnir. 19,20 Tón-
leikar (plötur).: Ýmiskonar söng-
lög. 20,00 Klukkusláttur. Fréttir.
20,30 Erindi: Eyjan Kúba (Ein-
ar Magnússon mentaskólakenn-
ari). ‘21,10: 'Tónleikar: Frá
,,Largo“ ' aö „Presto“ (plötur;
dæmi um ítölsku hraöatáknin).
Bóndi nolckur í afskektri sveit
i Kansas fann dag nokkurn vasa-
spegil, sem ferSamaður hafSi týnt.
„Sér er nú hvaS“, sagði hann
um leið og hann leit í spegilinn,
„þaS er þá hann pabbi. Ekki vissi
eg, aS hann heföi látiö: taka rnynd
af sér.“
Hann fór heim meS vasaspegil-
inn og lét á afskektan stað,' en
kerling hans sá til hans og þótti
hann haga sér grunsamlega. Þegar
hann var sofnaður fór hún aS leita
og fann spegilinn.
„A-ha!“, sagSi hún, þegar hún
leit í hann, „svona lítur hún þá
út, drósin, sem hann er aö draga
sig eftir.“ (Úr amerísku blaði).
Skáldkonan
Ólína Andrésdöttir.
Vagga þín stóS þar sem vogar og
sker
og víSsýniö auganu mætir.
Þar aldan í faöminum eyjarnar
ber„
og útvörður tímanna gætir.
Á vinstri hönd jökullinn veglegur
rís,
i vafur-blæ sagna og drauma.
En Látrabjarg stendur gegn ejdi
og ís,
og ágangi fallandi strauma.
Þar fanst þú þinn mátt gegrium
særoksins són,
er svalviörin herjuðu eyna.
M áttir í hörpunni indælan tón,
sem ei þurfti aS skýra’ eSa greina.
Þinn óöur var þrunginn af guö-
anna gjöf*
og GuSsrirú í orði og verki.
Hann flutti til löndin, hann flutti
til höf,
var friöar og kærleikans merki.
Þú áttir í trúrini svö ómældan
sjóö,‘
Og ákveðní, hyggju og mildí.
Því enginn fær neitaS, 'sem les
öll þín ljóö,
þó letrað sé færra en skyldi.
Því betri er gimsteinn, er lýsir
sem ljós,
og leysir upp helmöru-þunga.
En þyrnar, sem stinga, þó reifi
þá rós,
og rækti þá almennings-tunga.
Til dagsins mót sólu þú svifin
ert brott,
með söngvana styrku og mjuku..
| ðFú öölast þú ált, serri er göfugt
og.gott,
; sem græðilyf hjartanu sjúku.
■ Þar bíSun þín alt sem þér æðst er-
og best,
aS ósk þinna drauma og vona.
Þar hittir þú eflaust þinn æSsta
prest,
þú ágæta móðir og kona.
Þú settir þaö æösta í öndvegið
fyrst,
en almennings mattir ei hylli.
í lotningu tignaSir kærleilcans
Krist,
og kvaSst honum andlegri snilli,
Og þaS var þinn máttur, þitt
megin, þitt afl,
sem mótaSi trúna og þrána.
Já, það var þinn sigur, þín sókn,
og þitt tafl,
er sýnir þig lifandi, dána.
Af efnisheims-fjötrunum önd þín
er Íeyst,
og álaga-þunganum skilin.
Og höll þinna vona í hásölum
reisti
og horfin öll sjón-hyarfa-bilin.
Á braut ert .þu, gengin, en gróandi
voy
,mun. græSa upp sárin.og undir. t
En þver vill ei, Ólína, eiga þín-,
; spor —•
um ókomnar framtíðarstundir ?
Ásgeir H. P. Hraundal.
Hitt og þetta.
Einkennileg spá, sem rættist. .
BlaÖiS) Daily Mail skýrir frá
því í fyrra mánuSi, aS maður að
nafni Joseph Middleton í Prud-
hoe, Northumberland, 80 ára að
aldri hafi sagt viS ættingja sinn:
„Eg dey fyrst, svo Jack Scott, en
þvi næst Margaret Dixon“. Jo-
seph Middleton, tengdasonur
hans, John Scott, 67 ára aS aldri
og Margaret Dixon, frænka
Middletons, 64 ára, voru öll látin
innan sólarhrings frá því, er
Middleton spáSi dauöa þeirra, og
þau létust í þeirri röð, sem hann