Vísir - 03.11.1943, Blaðsíða 3

Vísir - 03.11.1943, Blaðsíða 3
VÍSIR VISIR Innheimtumaður Röskur og áreiðanlegur piltur eða stúlka óskast strax til að innheimta mánaðarreikninga. Þurfa að vera vel kunnug í bænum. A.v.á. Ríkissjóður á að greiða kostnaðinn við íramkvæmd lögreglumála í landinu. Nýtt frumvarp komið fram á Alþingi. JARNI BENEDIKTSSON borgarstjóri flytur frumvarp á Alþingi um lögreglumenn, þar sem gert er ráð, fyrir því að ríkisstjómin ákveði fjölda lögregluþjóna í hverjum kaup- stað eða kauptúni, þar sem hún telur lögregluþjóna þörf. Það sé og ráðherra sem skipar lögi-egluþjóna og veitir þeim lausn og ennfremur skuli kostnaður allur, sem leiðir af framkvæmd þessara laga þ. á m. laun allra lögregluþjóna og annarra lög- reglumanna greiddur úr ríkissjóði. Húsakynni bæjarbóka- saíns Reykjavíkur alltof þröng. Bækiir §afn§in$ liafa §jöfaldazt að töln. §íðan fliitt var í Iní§akynuin i Ingfólfsstrætt 13. Viðtal við Snorra Hjartarson bókavörð. TJ úsnæði Bæjarbókasafns Reykjavíkur er nú orðið ** svo þröngt, að ekki verður við unað lengur, en þó er ekki útlit fyrir annað en j>að verði að kúldrast í sömu húsakynnum ^nn um óákveðinn tíma. Vísir átti tal við Snorra Hjartarson bókavörð safnsins og skýrði liann svo frá, að safnið liefði verið í sömu húsakynn- unum — í Ingólfsstræti 12 — í 15 ár, en á þeim tima liefir bindatala safnsins nærri sjöfaldazt og var húsrúinið l>ó ekki of stórt, þegar í það var flutt. DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Ritstjórar: Kristján Guðlaogsson, Hersteinn Pálsson. Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni Afgreiðsla Hverfisgöia 12 (gengið inn frá Ingólfsstræti). Símar: 16 6 0 (fimm línur). Verð kr. 4,00 á mánuði. Lausasala 35 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. Hreinar YFIRLÝSING ríkisstjórn- arinnar varðandi sjálf- stæðismálið hefir vakið meiri og óskiptari ánægju manna á meðal, en dæmi eru til. Allir ijúka upp einum munni um það, að rikisstjórnin hafi gert tvennt í senn: Tekið afstöðu til sjálfstæðismálsins, sem var í samræmi við vilja alls þorra manna, og sett niður óviðeig- andi deilur um málið, sem öll- um leiddust. Hefði yfirlýsing þessi verið gefin af ríkisstjórn, er skipuð liefði verið af flokk- unum, liefði hún énga athygli vakið og að engu gagni kom- ið, en með því að ríkisstjórn- in er þaðvsem kallað er „beztu manna stjórn“, er nýtur einkis flokksfylgis, hefir yfirlýsing hennar sérstakt gildi í augum þjóðarinnar og markar í raun- inni afstöðu hennar til endan- legrar afgreiðslu málsins. Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar er skýr og ótvíræð. Aldrei hafa lireinni línur verið dregnar í nokkru máli. Hver sá, er ef- ast kann að hafa, efast ekki lengur. Afgreiðsla málsins er tryggð og tryggð á þann hátt, sem allir óska, — jafnvel þeir 270 áhrifamenn, er rituðu nafn sitt undir yfirlýsinguna frægu um frestun afgreiðslu málsins. Þessir menn vilja það sama og við hinir og eru sízt verri íslendingar en við, en hinsveg- ar skyggnast þeir um of um allar gættir. Afstaða þeirra markaðist af óþarfri varúð, en ekki af hinu, að þeir væru ó- skertu sjálfstæði mótfallnir, er fyrsta og bezta tækifæri gæfist. Þessir menn munu á engan hátt reynast verr en aðrir, er á hólminn kemur, og enginn má leggja þeim varúð þeirra til lasts. Deilurnar um afgreiðslu sjálfstæðismálsins eru niður settar. Engum heilvita manni dettur í hug að halda þeim á- fram, enda varðaði slíkt þyngri áfellisdómi í augum þjóðar- innar en liegningarlög gera ráð fyrir. Héðan i frá er brautin bein og hrein. Ekkert hik, — enginn undansláttur. Island fyrir íslendinga og íslendingar viljum við allir vera. Þeir, sem voru í vafa, eru það ekki leng- ur. Teningunum er kastað og það kom upp, sem allir vildu. íslendingar munu standa sam- an um afgreiðslu málsins, hvað sem að liöndum kann að bera, en engin ástæða er til að kvíða neinu. Yfirlýsing ríkisstjórn- arinnar er gefin að vandlega athuguðu máli og ekki stefnt í neina óvissu. Hver sá, er ekki virðir þá niðurstöðu, sem nú er fengin, er ekki Islendingur. Þá fyrst er hægt að uppkveða áfellisdóm, er menn bregðast við endanlega afgreiðslu máls- ins, en allt annað ber að meta á betra veg. íslenzka þjóðin á að sýna, að hún stendur ótvístr- uð og óskipt um stofnun lýð- veldis í landinu. Þegar býður þjóðarsómi, þá eiga fleiri en Bretar eina sál. Árið 1928 flutli Bæjarhóka- safnið í Ingólfsstræti 12 og þá var bindafjöldinn um 7 þúsund. Nú nemur bindafjöldinn 47 þús. bindum. Árið 1928 nam útlán bóka 30 þús. bindum, en árið 1942 143 þús. bindum, svo að tala útlánsbóka hefir nærri fimmfaldast. Mest var þó lánað út af bókum árið 1940, þá voru lánuð út 180 þús. hindi alls. Að bókaútlánið hefir minnkað frá því 1940 telur Snorri að stafi af vaxandi velmegun fóllvs og um leið auknum, bókakaupum þess.‘Annars nemur bókaútlán- ið á degi hverjum því sem næst 400 bindum, og Snorri telur það vera aðalgæfu safnsins hvað mikið af bókum er alltaf í unir ferð, því að annars myndi horfa til stórra vandræða. Húsakynni safnsins eru 5 her- bergi, flest lítil, þar í meðtalinn lestrarsalur og skrifstofa bóka- varðar og skrásetjara, auk bókageymslu í einu her- hergi í kjallara. Veggflöt- ur safnsins er notaður til liins ítrasta, sumsstaðar er bók- um, raðað í margfaldar raðir ofan á skápa og hirzlur, en ann- arsstaðar, eins og t. d. í bóka- geymslunni, verður að stafla bókunum á gólfið. Það sem ef til vill er allra verst, er það að ekki er hægt að koma fyrir, á aðgengilegan hátt, nándar nærri öllum útlánabókum safnsins, iivað þá l>eim, sem, eiga eftir að hætast við. Lestrarsalinn sækja um 40— 50 manns að meðaltali á dag. í honum eru sæti fyrir 20—30 manns við langborð. Salurinn er þröngur og óvistlegur og fyr- irkoinulag hans samsvarar ekki á neinn hátt sjálfsögðum kröf- um um lestrarsali í söfnum. Snorri Hjartarson sagði að minnsta liúsrými sem Bæjar- bókásafnið kæmist af með þyrfti að vera allt að því fimm- falt stærra en það, sem safnið hefir nú. Meðal annars er nauð- synlegt að lcoma upp bæði les- stofu og sérstakri útlánadeild fyrir börn. Hann sagðist telja gott útlánahókasafn eina mestu menningarstofnun hvers bæjar- félags, en það þyi'fti að svara til nauðsynlegustu og sjálfsögð- ustu kröfum um húsnæði og fyr- irkomulag. Björt og rúmgóð liúsakynni, sem laða fólk að sér og myndi safnið þá verða meira og almennara notað en nú. 1 Osló og Stokkhólmi eru bæjar- bókasöfnin meðal glæsilegustu stórhýsa. Snorri kvaðst vita að Reykjavíkurbær hefði í mörg horn að líta hvað byggingar og aðrar framkvæmdir snerti, en eitt af því fyrsta sem hefjast þyrfti handa um, væri útvegun á öðru og stærra húsnæði fyrir Bæjarbókasafnið. Sú hugmynd hefir að vísu komið fram, að Bæjarbókasafnið fengi húsrúm í væntanlegri æskulýðshöll. Sú hugmynd út af fyrir sig er á- gæl, en hinsyegar er hætta á, að æskulýðsliallarhyggingin dragist lengur en Bæjarbóka- safnið l>olir, í l>eim húsakynn- um, sem það er nú. Við bæjarbókasafnið starfa nú fimm manns auk hókavarðar og auk kennara þess í Austurbæj- arbarnaskólanum, sem veitir út- búi safnsins þar forstöðu. Hvað hókakosti safnsins við- kemur, má telja hann nijög góðan í alla staði, enda hefir frá fyrstu verið reynt að vanda til hans eftir föngum, bæði hvað innlendar og útlendar bækur snertir. í sambandi við útlán bóka má gela l>ess, að skáldsögur eru mest lesnar eins og allsstaðar í söfnum,, en þar næst koma þjóð- ur rit um þjóðleg fræði og hæk- ur sögulegs efnis. Leikfélag Reykjavíkur sýnir Lénharð fógeta í kvöld. Aðgöngumi'ðasalan hefst kl. 4 í dag. Hraðferðum norður er nú Iokið, því að Öxnadalsheiði er orðin ófær. Póstferðum verður haldið áfram í vetur, og verður ek- ið bifreiðum þar sem fært er, en annars staðar flutt á hestum. 1 gær var lokið við nýja veginn yfir Vatnsskarð, frá Bólsstaðarhlíð og norður háskarðið. Barnaspítali. Það er margt sem okkur vant- ar — eitt af þvi er sjúkrahús fyrir hörn. Enginn finnur þessa vöntun betur en mæðurnar og það er því engin tilviljun, að konurnar hafa beitt sér fyrir því, að reyna að bæta úr þessu og afla þess fjár, sem til þess þarf að koma bamaspítala á fót. Mér er ekki kunnugt um það, hve miklu þeim hefir tek- izt að safna í þessu augnamiði, en ætla má, að mikið fé þurfi til þess að hrinda þessari hugsjón í framkvæmd, svo kostnaðar- samar sem allar framkvæmdir eru nú. En mér hefir dottið í hug, hvort það gæti ekki flýtt fyrir slíkum framkvæmdum, ef hægt væri að fá húsnæði leigt í bráð fyrir slika starfsemi. Laust fyrir stríð var byggt stórhýsi eitt mikið hér í Hafn- arfirði — nunnuklaustrið í Jó- fríðarstaðalandi. Ætlunin var sú, að erlendar nunnur flyttust í klausturbyggingu þessa, þá er liún væri fullgerð, en þá var stríðið hafið, svo að ekkert varð úr því, og ætla má, að enn kunni að líða allmörg ár áður en úr því verður. Og eftir stríð má vera að aðstæðurnar verði orðn- ar það breyttar, að ekkert verði úr þesusm fyrirætlunum yfir- leitt. Mér er sagt að hús þetta standi nú autt. Væri ekki athug- andi fyrir þá, sem vinna að því að koma barnaspítala á fót, Kartöflusýki Alþýðublaðsins. Það virðist hafa komið heldur illa við Alþýðublaðið, að Vísir sýndi fram á firrur þess í sam- bandi við kartöfluverðið í gær. Blaðið lieldur, að langflestir liafi getað keypt kartöflur til vetrarins, þegar inn verður að llytja 60% af ársþörf lánds- manna vegna uppskerubrests. Og í því samhandi verður líka að gæta þess, að framleiðendur nota víða sjálfir megnið af þeim kartöflum, sem þeir rækta, ef ekki allar, og ekki geta aðrir neytendur birgt sig af þeim. Sannleikurinn er því sá, að langfæstir liafa getað hirgt sig aí kartöflum til vetrarins og verðlækkunin hefir því raun- verulega mikil áhrif á fram- færslukostnaðinn Rök Alþýðublaðsins eru álilta gáfuleg og geip Hannesar á iiorninu fyrir skemmstu, um að við megum ekki láta það henda okkur, að uppskerubrestur verði til þess, að við flytjum inn-kar- töflur frá styrjaldarþjóð! Mprgunbl. lepur upp „rök“ Alþýðutyaðsins a grínsíðu sinni í morgun. Er ekki ljóst, hvort sá, er hlut á að máli, gerir það til að gera gys að Alþýðublaðinu eða af meðfæddum bjánaskap. Stúdentafélag Reykjavíkur efnir til umræ'Öufundar um stjórn- skipun lý'Öveldisins í 1. kennslu- stofu Háskólans í kvöld kl. 8)4. —- FramsögumaSur verÖur Bjarni Benediktsson borgarstjóri. — Auk þessa fara fram venjuleg! aðalfund- arstörf. Taflfélag Reykjavíkur efnir til skákkeppni milli Aust- ur- og Vesturbæjar á sunnudaginn kemur. Nokkuru síðar fer fram Innanfélagsmót T.R. Félagið hefir fengiÖ húsnæði á Hótel Heklu. For- maÖur þess er Aðalsteinn Halldórs- son. livort ekki væri tiltækilegt að fá þessa klausturbyggingu leigða til slíkra afnota, eða fá aðstoð hns opinbera til þess að Iiún yrði tekin eignarnámi? Við megum sannarlega ekki við því, að slíkar slórhyggingar standi auðar, og eg gæti trúað því, að þessi bygging væri að mörgu leyti tilvalin fyrir slíka starf- semi, sem liér um ræðir. Ódýr hús. Hannes á horninu var nýlega að skýra frá húsinu hans Valdi- mars í Ilraunsholti, og gat þess sérstaklega, hve húsið hefði orðið honum ódýrt fyrir það, live mikið liann hefir unnið að því sjálfur. Við að lesa þessa frásögn komu mér í hug tveir ungir bændur á Álftanesi, sem hyggðu sér sinn livort húsið fyrir nokkurum árum. Hús þeirra eru vönduð steinhús, sem þeir unnu að sjálfir að mestu, eins og Valdimar. En til þess að hraða byggingunni og spara fé, notuðu þeir tómstundir sin- ar veturinn áður til þess að steypa steina í þar til gerðum mótum og úr steinum þessum hlóðu þeir síðan veggi hússins. Varð þetta þeim til mikils sparn- aðar. Annars er nú í smíðum hús á Álftanesi sem er allsérkenni- legt og fráburgðið því, sem áð- ur liefir sézt hér. Hús þetta á Gunnlaugur Halldórsson arki- Gert er ráð fyrir þvi í frum- varpinu, að skipshafnir varð- skipanna verði taldar til lög- reglumanna ög að ráðherra verði einnig heimilt að ákveða það sama uni tollverði, með því sldlyrði að þeir inni þá af liöndum störf lögreglumanna. Um ástæðuna fyrir því, að frumvarp1 þetta er fram komið segir í greinargerð flutnings- manns á þessa leið: Það er nijög gagnstætt eðli málsins og sanngirni að leggja lögreglukostnað á sjóði hæja og stærri lcauptúna. Ríkinu ber sama skylda til löggæzlu þar sem annars staðar á landinu. Bæjar- og sveitarstjórnirhafaog engin álirif á stjórn lögreglunn- ar á þessum stöðum fremur en öðrum í landinu. Bæjarstjórnir eiga að visu í orði kveðnu að skipa lögregluþjóna, en mega eigi gera það nema eftir tillög- um lögreglustjóra, og hafa þeir úrslitavaldið um skipunina. Að öðru leyti hafa bæjarstjórnir og engin áhrif á stjórn lögreglunn- ar, en samt eru þær skyldaðar til greiðslu kóstnaðar af henni. Jafnvel fjöldi lögreglumanna er nú yfirleitt ákveðinn af tekt. Það er tveggja hæða hús en sérkennilegt fyrir það, að í því eru engir lóðréttir veggir á liliðum, lieldur mjókkar það upp allt frá jörðu eins og tjald. Mér er sagt, að eigandinn telji að Jiús með þessu lagi verði miklu ódýrara en önnur hús af sömu stærð, auk þess, sem smíði þess sé öll miklu einfalld- ari, og því hægara um vik fyrir ófaglærða menn að vinna að slíkri liúshyggingu sjálfir. Reykjavík — Hafnarfjörður. Það er ekki alltaf þrautalaust að komast á milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, frekar en fyrri daginn. Bílarnir eru stund- um svo yfirfullir, að hver treð- ur á öðrum og oft verða bílarn- ir að skilja fólk eftir, þó troðið sé í þá eins og frekast er hægt. Einn af bílstjórunum, sem aka á milli bæjanna, sagðist nýlega liafa flutt 68 farþega á milli í einni ferð, en bíllinn hefir sæti fyrir 32. Má nærri geta, hvern- ig farið hefir um farþegana í þeirri ferð. Yið þetta bætist að þráfaJd- lega kemur fyrir, að ferðir falla niður, af því að enginn bíll kem- ur, og er slíkt óafsakanlegt með öllu. Er hin hrýnasta nauðsyn á J>ví, að reynt verði að bæta úr þessum ágöllum sem eru á fólksflutningunum á milli bæj- anna. dómsmálaráðlierra, stundum gagnstætt tillögum bæjar- sljórna. Kostnaður sá, sem með þessu er lagður á bæjarsjóði, nemur mjög miklu. í Reylcjavik einni eru á fjárhagsáætlun 1943 1800000 krónur ætlaðar til lög- reglumóla, og fær bærinn ein- ungis % hluta jæirrar upphæð- ar endurgreiddan úr ríkissjóði. Af þessari skyldu hæja til að greiða lögregluþjónum laun hefir verið talið leiða, að þeim bæri einnig að greiða lögreglu- þjónum hætur, ef þeir væru settir frá starfi, án þess að næg- ar sakir væru sannaðar. Þess vegna var f. d. Reykjavíkurbær með dómi hæstaréttar 11. des. 1942 dæmdur til að greiða fyrr- verandi lögregluþjóni bætur af þessum sökum. En það er þó að öllu leyti á valdi lögreglu- stjóra, en að engu leyti stjóm- arvalda bæjarins, hvort lög- regluþjónar eru sviptir störfum. Stormblússur. Herrabúðin Skólavörðustíg 2. Sími 5231. Sciu allra fyr§t óska eg eftir 2 Iierbergjum og eldhúsi. Þrennt í heimili. ÓSKAR JÓNSSON, sími 5302. Sófi osr 2 isfólar óskast til kaups. Stakur sófi kemur einnig til greina, ef um það væri að ræða. Uppl. í síma 5434, eftir kl. 5. Stúlku vantar í KAFFISTOFUNA SKÓLAVÖRÐUSTÍG 8. Uppl. hjá forstöðukonunni. I Krlstján Giðlavpson Hœstaréttarlögmaðnr. Skrifstofutími 10-12 og 1-8- Hafnarhúsið. — Simi S4M. I i* dagbók Hafnfirðings tt ■o n wi •X ð 'Z ■ s m r :© íi * s k X m © £ Sf. © S s •w «8 '© V *m a m •m Wl '0 55 It \{g 0 Næstmn CÍEFIMS! Hlutavelta Heimdallar á föstudaginn í Lista- mannaskálanum. Kaffi, matvæli ný og niðursodin, þurkaðir ávextir, kjöt» skrokkar. Kol í tonnatali. Skófatnaður. Keramik. Pen- ingar. Slysatpygging með dagpeningum og margt fieira. Síðasll. iaugardag liélt lögregla Reykjavíkur lögreglustjóra Bandaríkjahersins, Green ofursta, kveðjusamsæti. Green ofursti er 4. frá iiægri á myndinni. Honum voru færðar ýmsar góðar gjafir. Viðstaddr voru Vilhjálmur Þór utanríkisráðherra, Key hershöfðingi, Bjarni Benediktsson horgarstjóri, Agnar Ivofoed- Hansen lögreglustjóri, Jónatan Hallvarðsson sakadómari, Er- lingur Pálsson yfirlögregluþjónn o. m. fl. riunour rKveiui bb ijnlkur Landsmálafélagið Vörður hélt í gær fjölmennan fund með fé- lögum sínum ogöðrumsjálfstæð- ismönnum, og liófu þeir Gunnar Tlioroddsen og Eyjólfur Jó- hannson umræður um mjólkur- málið. Sagði Eyjólfur sögu mjólkurmálsins í stórum drátt- um og lauk lienni með harm- sögu mjólkursamsölunnar. — Gunnar lýsti átökunum á þingi um mjólkurmálið og rannsókn- ina, sem lagl er til að fram- kvæmd verði. Á. eftir ræðum þeirra tóku nokkrir fundarmenn til máls, þ. á m. Sigbjörn Ármann og Hannes Jónsson. Á fundinum kom . einhuga fram sá vilji Sjálfstæðismanna að vinna að góðu og lieilu sam- komulagi við framleiðendur. Voru fundarmenn yfirleitt and- vígir þeirri tillögu kommúnista, að bærinn tæki að sér rekstur mjólkurstöðvarinnar, töldu eðli- legast að framleiðendur bæri úbyrgð á mjólkinni heint til neytenda. Hinsvegar var það óttazt að engin slík vinsamleg samvinna gæti komizt á fót, meðan pólitískir tilberar gerði sér mat úr því að hera róg og illmæli á milli, enda bæri að stefna að því að samvinna tæk- ist milli framleiðenda og neyt- enda án milligöngu þeirra sjálf- hoðaliða. frétfír Sannýall heitir ný bók eftir dr. Helga Pjet- urss, sem Bókaútgáfa Guðjóns Ó. Guðjónssonar hefir sent á markað- inn. Þetta er 5. bindi Nýals, hins merkiléga rits dr. Helga, sem fjall- ar um hinar stórmerku kenningar hans á framhaldi annars lífs, og heimsskoðun hans yfirleitt. Slökkviliðið var kallað út tvisvar í gær. Hafði orðið truflun á brunasíma við Skólavörðustig og Týsgötu og sýndi hann brunaboð á stöðinni. Slökkviliðið var einnig kallað að húsi á Frakkastig, þar sem heim- taug hafði slitnað, svo að hún log- aði við húsið. Mæðrastyrksnefndin heldur a'ðalfund sinn á föstudag- inn kemur á sama sta'ð og tíma og venjulega. Breytingar á lögunum koma til umræðu á fundinum. Slysið t Suðurgötu á mánudag stafaði ekki af því, að herbillinn hafi mætt slökkviliðsbíí. Verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfirði ætlar í vetur að halda uppi alþýðufræðslu, og hafa tveir fyrirlestrar þegar verið haldn- ir i Góðtemplarahúsinu í Hafnar- firði á vegum félagsins. Flutti bisk- up íslands erindi um kirkjumáli, en Jón Rafnsson um verklýðshreifing- una. í þessum mánuði tala þeir Sig- urður Nordal og Jóhann Sæmunds- son, en í næsta mánuði Árni Frið- riksson og Þorsteinn Einarsson. Eftir áramótin flytja þessir svo er- indi: Haraldur Guðmundsson alþm., Lárus Pálsson leikari, Símon Jóh. Agústsson dr. phil., Magnús Ás- geeirsson skáld, Pálmi Einarsson ráðunautur, Ragnar Ólafsson lögfr. og Hákon Bjarnason skógræktar- stjóri. Úlvarpið í kvöld. Kl. 20,30 Kvöldvaka: a) Kvæði Matthiasar Jochumssonar: „Þuríður Kúld“ (upplestur). b) Þórbergur Þórðarson rithöf.: Þáttur um frú Þuríði Kúld (f. 2. nóv.. 1843), eft- ir frásögn Árna prófasts Þórarins- sonar (fyrri hluti). c) Tónleikar. d) 21,20 Ásmundur Helgason frá Bjargi: Fyrir austustu nesjum Is- lands. Erindi (Bjarni Vilhjálmsson cand. mag. flytur). Ennfremur ís- lenzk lög. €ape úr silfnrrefa- skinnnm -M-v- .. Crcú&a Þurrkaðir ávextir perur — ferskjur — bland- aðir — þurrkuð epli — grá- fíkjur. VERZL. INGÓLFUR Hringbraut 38. — Sími 2294. Grundarstíg 12. — Sími 3247. Lakaléreft DUNHELT-LÉREFT, SILKI-LÉREFT. VERZL. ZZ85. Grettisgötu 57. Ný bók eftir dr. Helga Pjeturss: SANNYALL Þetta er 5. hindi Nýals, hins gagnmerka og margþætt* rfí- verks dr. Helga. Höfundurinn er löngu þjóðkunnur fyxír visindastörf sín, spámannlega andagift og stómierkilegar götvanir á sviði náttúruvisindanna. Og hann er ekki affeuss óvenju snjall vísindamaður, heldur einnig afborðamikilí ríí- líöfundur. Enda er hverri nýrri bók frá hans hendi teki<5 með öskípt- um fögnuði af þúsundum manna, sem láta ekkert osð- er dr. Helgi skrifar, fram hjá sér fara ólesið. Sannýall á erindi til allra hugsandi manna Fæst hjá bóksölum. Bókaútgáfa Guðjóns Ó. Guðjónssonar. eigrendnr Komum til með að smíða í stórum stíl 2ja og 3ja manna hús á vörubíla. Þurfum ekki að hafa bifreiðina nema í 3—4 daga. — Talið við okkur strax. H.f. Bílasmiðjan Skúlagötu 4. — Sími 1097. Aðalfundur Sundfél. Ægis verður lialdinn í Baðstofu iðnaðarmanna næstk. föstudag, 5. nóv„ klukkan 8.30. — Auk venjulegra aðalfundarstarfa verða sýndar skuggamyndir úr norðurferðinni í sumar. — Félag- ar, fjölmennið. Stjórnin. Aðalfundur Sögufélagsins verður haldinn í lestrarsal Þjóðskjalasafns fimmtudaginn 4. ''Wsy-- nóv. 1943 kl. 6 síðdegis. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Stúdentafélag Reykjavikur: FIJMDIJR í 1. kennslustofu Háskólans i kvöld, miðvikudag 3. nóvember, hefst kl. 8.30 síðd. Umræðuefni: " 4 f Stjórnskipun lýðveldisins. Framsögumaður: B janii Benediktsson, borgarstjóri. Auk þess fara fram vanaleg aðalfundarstörf. STJÓRNIN. Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna, biður aila félagsmenn og velunnara félagsins, sem vilja gefa muni á hlutaveltu þess, er haldin verður n.k. föstudag, að senda þá í dag eða á morgun á skrifstofu Sjálf- stæðisflokksins, Thorvaldsensstr. 2, eða gera aðvart í síma 2339 og verða þeir þá sóttir. PEDOX er nauðsynlegt í fótabaðið, ef þér þjáist af fótasvita, þreytu í fótum eða likþornum. Eftir fárra daga Qotkun mun árangurinn koma í Ijós. Fæst i lyfjabúð- ím og snyrtivöruverzlunum. (92 Sriístofustúlka Dugleg skrifstofustúlka, vel að sér í enskri bréfrií- un og helzt braðritun, íslenzkri og enskri, getur feug- :ð atvinnu nú þegar hjá heildsölufyrirtæki hér í bæn- um. Tilboð merkt: „Kalamazoo“. SöliBinaötir Duglegur sölumaður óskast nú þegar eða 1. janirar. Hátt kaup. Góð atvinnuskilyrði. Tilboð pieð meðmælum, ef til eru, sendist Vísi, merkt: „Elacio“; fyrir 9. þ. m. Minn hjartkæri sonur og bróðir Haukur Jónsaon andaðist á Landsspitalanum 2. þ. m. Friðlín Þórðardóttir ©g systkini. Jarðarför konunnar minnar, Fanneyjar Jónsdóttur, fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 5. þ. m. Athöfnin hefst með húskveðju að héknili hinnar látnu Hverfisgötu 83, kl. 1 e. h. Sigurgeir Björnsson.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.