Vísir - 30.04.1954, Blaðsíða 8

Vísir - 30.04.1954, Blaðsíða 8
ylSlB er ddýrasta blaSið og þó þaS fJ3I- breyttasta. — HrlngiS ! sima 1863 œg Tl gerist áskrifendnr. Föstudaginn 30. apríl 1954 Þelr sem gerast kaupendur VlSIS eftir 10. hvers mánaSar fá blaSið ókeypU tfl mánaðamóta. — Sámi 1660. ,;Uppstilling“. Þetta er mynd af einu málverka beina, sem Jóhannes Geir Jónsson sýnir í Listvinasalnum við Freyju- götu. Sýning hans hefur verið ágætlega sótt og hafa selst þar níu myndir. Sýningunni lýkur á sunnudagskvöld kl. 10. Tsðarl ferðlr FSugfélags íslands á innaniaiuðsleiðum. Flugfélag íslands hefur nú ■fíirt sumaráætlun sína, og færir félagið enn út kvíarnar með tíðari flugferðum á ýmsum leiðum, en hyggst auk þess bæta við sig einni Ðakota-vél, sem keypt verður fró Englandi. Frá og með morgundeginum verður flugferðum til Akureyr- ar fjölgað upp í tvær á dag, en frá 1. júní verða ferðirnar þrjár daglega. Til ísafjarðar verður flogið alla virka daga, en aúk þess verður flogið til fimm annarra staða á Vestfjörðum. Til Egilsstaða verður flogið fjórum sinnum í viku, en til Fáskrúðsfjarðar verður flogið vikulega, svo og til Neskaup- staðar. Tvisvar á dag verður T'logið til Eyja og Skógasands tvisvar í viku, en einu sinni í viku milli Eyja og Hellu. Þá verða þrjár ferðir í viku til Sauðárkróks, en tvær til Blönduóss, Siglufjarðar, Fag- urhólsmýrar og Kirkjubæjar- klausturs. Til Hornafjarðar verður flogið þrisvar í viku og oinu sinni til Hellissands. sfyllii má6. ® Óryggisráð Bandaríjanna kom saman á fund í gær- kvöldi. Kadford flotaforíngi gerði grein fyrir viðræðnm þeim, sem hann íók þátt í- er hann fór skyndiferðina til London og Parísar fyrir nokkrum dögum. — Eisen- hower sagði í gær, að Banda- ríkin lýstu ekki yfir styrj- öld án undangenginnar sam- þykktar þingsins. © Fulltrúadeild Bandaríkja- þings hefir fellt með 214:37 atkv., að takmarka vald for- setans til að senda herlið til annarra landa. Eisenhower hafði lagst fast gegn tillögu í þessu efni. © Franskar flugvélar hafa gert miklar sprengju- og vél- byssuárásir á flutningalest- ir uppreistarmanna á leið frá kínversku landamærunum til Dienbienfu. — Engar stórbreytingar hafa orðið á vigstöðvunumþ ar. Fiskviatnsiieshiivar hafa ekki ladas í Reykjavík. Svó mikið hefur borizt að af fiski hér í bænum undanfarna daga, að menn hafa ekki und- an að gera að aflanum. Fréttamaður Vísis tjáði blað- inu í morgun, að t. d. mætii geta þess í þessu sambandi, að bv. „Egill Skallagrímsson“ hefur legið hér síðan í fyrradag, án þess, að unnt væri að taka afl- ann til verkunnar. Þá hefur og borizt að mikið magn af báta- fiski, og hefur. t. d. Fiskiðjuver- ið ekki haft undan. Hefur orð- i J að flytja fisk héðan á bílum lil Suðurnesja til verkunar þar. —- í gær fengu bátarnir yfirleitt 5—8 lestir, og er það talið gott. Keflavíkurbátar öfluðu mis- jafnlega í gær, og þótti aflinn heldur tregari en undanfarria claga. Flestir voru með 8—9 lestir, en tveir bátar voru með yfir 10 lestir. — Dettiícss lest- ar nú freðfisk í Keflavík íyrir Russlandsmarkað. Þá liggur þar útlent skip, sem losar asfalt til flugvallarins. Sandgerðisbátar öfluðu ágæt lega í gær, eða 8—14 lestir á bát. Hæstir voru „Hrönn“ og „Mummi“, en þeir hafa yfirieitt aflað mjög vel á þessari vertíð. Afli Eyjabáta var misjafn eins og fyrri daginn. Flestir munu hafa verið með 9—13 lest ir, en sá hæsti var með 3200 fiska, eða um 30 lestir upp úr sjó. Veður var ágætt í Eyjum, og allir á sjó, sem það gátu. Hörgull er á fólld til fisk- vinnu í Eyjum. Hafa menn oft unnið til kl. 10 og 12 á kvöldin, en dugar ekki til. Námskeið í háfjaliaíþrðtt- orn hefst á morgun. Fjallamenn efna til nám- skeiða í háfjallaíþróttilm, aðai- lega irteð tiiliti til björgunar og aðstoðar við slys í íjalllendi. Námskeið þetta hefst á morg un og stendur fram í seinni hluta júnímánaðar. Fer kennsl an aðallega fram um helgar og verður fyrst kennt í nærliggj- andi fjöllum, en síðar haldið austur á jökla og mun nám- skeiðinu ljúka austur á Fimm- vörðuhálsi um jónsmessuleyt- ið. Þátttakendur í námskeiðinu verða 10 talsins, og var ekki hægt að veita fleirum viðtöku. Eru þeir frá björgunarsveitun- um hér í bænum (Flugbjörgun- arsveit, Slysavarnafélagi) og verður þeim til að byrja með kennt að fara með öryggis- og björgunartæki viðerfiðar að- stæður í fjallendi, kennt að fara með línu og að klifa. Guðmundur Einarsson frá Miðdal ve'rður kennari á nám- skeiðinu. Var upphaflega gert ráð fyrir að fá hingað einnig erlendan kennara, en það fóist fyrir í ár. Hins vegar gera Fjallamennsér vonir um að seinna verði hægt að fá hingað góða fjallagarpa til kennslu, jafnvel á næsta ári. Lömunarveikin vm* skæð 1 Ðansmsr víd óperassia famaMst, en er m affur tekin a) æfa dans. Mikil athafnasemi Sviffiitgféiagsins. Aðalfundur Svifflugfélags ís- lands var haldinn fyrir skömrnu, Starfsemi félagsins á síðast- liðnu ári var að ýmsu leyti hagstæð, sérstaklega hvað snerti árangur af svifflug- kennslu, þar sem alls voru flog in um 1400 flug á vegum fé- lagsins, sem er rösklega helm- ingi fleiri flug en áður hafa ver- ið flogin á einu ári í sögu fé- lagsins. Félagið gerði tilraun með rekstur svifflugskóla á Sand- skeiði og var árangur svo góð- ur að nú er í athugun að koma upp á Sandskeiði föstum skóla fyrir svifflugmenn. Stjórn félagsins hefur ýmiss áform á prjónunum svo sem byggingu húsnæðis á Sand- skeiði, aukningu á svifflugum og ýmislegt annað,er kann að verða sviíflugmálum til fram- dráttar. Stjórn félagsins skipa nú: Ásbjörn Magnússon, formaður; Árni Valdemarsson, varaform.; Ólafur Magnússon, gjaldkei’i; Axel Aspelund, ritari; Hilmar Kristjánsson, meðstjórnandi. — Varamenn eru: Gunnar Zebitz, Sigurður Kristjánsson, Harald- ur Ágústsson. Aðalkennari félagsins er eins og áður Helgi Filippusson. Nú eru rétíur aldarfjórðung- «r liðinn frá bví er fyrsta ferð Ferðafélags íslands var farin. Var sú ferð á Reykjanes og var Helgi Jónsson frá Brennu þá fararstjóri. Á sunnudaginn kemur efnir Ferðafélagið til ferðar út að Reykjanesvita og verður Helgi þá aftur farar- stjóri. Stokkhóimi í apríl. Frá fréttaritara Vísis. Lömunarveiki hefir verið skæð í Svíþjóð í vetur, og fjöidi manns larhazt. Þessi veiki er ávallt þung- bær, eins og ajkunna er, en ef til vill fann ung stúlka, dans- mær við sænsku óperuna, enn sárar til þess, er hún fékk veik- ina. Dansmær þessi, sem heitir Margaret Stensköld, dansaði eins og hún átti að sér í óper- unni i ágúst í fyrra. En svo kenndi hún lasleika, og var henni ekið í farsóttahúsið. Nokkrum dögum síðar veiktist bróðir hennar einaig, -eri bæði höfðu þau lömunarveiki. Bróð- ir hennar var þó en verr hald- inn, og varð hann að liggja í stállunga. Ungfrú Stensköld lá þó ekki nema hálfan mánuð á farsóttahúsinu, en var síðan flutt á hressingarhæli. Svo komst hún í hjólastól, og brátt gat hún farið að styðjast við hælijur. Að lokum kom að því að hún gat farið að ganga hjálparlaust, og. fyrir fáum dögum tók hún aftur að æfa dans, og lætur ekki bugast. Hún ætlar að halda áfram á ballett- dansbrautinni. Annars hefir viðbúnaður lækna í Svíþjóð stórum batnað vegna veikinnar, og nú er vér- ið að reyna bóluefrd, sem menn gera sér vonir mn, að geti gert börn ónæm fyrir veikinni. Þá er til þess tekið, hve lcon- ur lömunarveikra manna hafi sýnt mikla þolinmæði og hjálp- fýsi. Margar þeirra hafa byrjað að vinna í sjúkrahúsunum til þess að geta annast menn sina, og hefir slíkri aðstoð verið tek- ið með þökkum. Þá er tahð. að návist eiginkvennanna stuðii mjög að því að veita hinum lömuðu aukna bjartsýni og' trú á bata. Gegn ,fkúgun< u Umræður um utanríkismál hófst ■ vestur-þýzka sambands- þinginu í gær. Adenauer kanzlari flutti framsöguræðu. Adenauer boðaði óbreytta utanríkisstefnu: Sámvinnu við hinar frjálsu vestrænu þjóðir gegn kúgunarstefnu kommún- ista. Hann taldi það sögulegan viðburð og algerlega breytta stefnu hjá Bretum, að heita fullu samstarfi við varnarsam- tökin í Vestur-Evrópu. Væri þessi stefnubreyting hin mikil- vægasta Adenauer harmaði seinaganginn á, að láta Evrópu- sáttmálann koma til fram- kvæmda. Ollenhauer leiðtogi jafnaðar- manna lagðist gegn Evrópu- sáttmálanum sem hann kvað franskt bragð til þess að geta haft öll ráð Þýzkalands í hencii sér. — Ollenhauer vildi láta athuga betur tillögur Rússa um Öryggissáttmála. ÍR íslandsæelstari í körkknattieik. í gær lauk körfuknattleiks- rnóti íslands, og er þetta þriðja íslandsmótið í þeirri íþrótta- grein. Til þátttöku mættu 8 flokk- ar, frá Ármánni, ÍR, íþrótta- félagi starfsm. á Keflavíkur- flugvelli (ÍKF) og Körfuknatt- leiksflaginu Gosa. Úrslit urðu þau að ÍR varð íslandsmeistari, hlaut 4 stig, ÍKF hlaut 2 stig og Gosi ekkert. í 2. fl. sigraði ÍR Gosa með 23 mörkum gegn 14 og í 3. fl. sigraði Gosi með 4 stigum. ÍR hlaut 2 stig, en Ármann ekkert. Keppt er um bikar, sem vinnst til eignar þrísvar sinn- um í röð eða finim sinnum alls. Að lokinni keppni afhenti for- seti ÍSÍ verðlaunin. Mótið fór mjög vel fram og var fjöldi áhorfenda. Auk Reykjanesferðarinnar verður efnt til annarar ferðar á sunnudaginn á vegum Ferða- félagsins, en sú för er út i eyjar, Viðey og Engey. 110 sjúklingar á f jórl- ungssjúkraliúsfiiu á Ákureyrí. Þegar fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri tók formlega íil starfa um áramótin lágu þar 66 sjúk- lingar, en í lok febrúar voru þeir orðnir 110. Á fundi stjórnarnefndar fjórðungssjúkrahússins nýlega var gefin yfirlit um sjúklinga- fjölda og þess háttar, og voru legudagar í janúar samtals 2659. kmmn HalSdórs- scn látiim. Ármann Halldórsson náms- stjóri andaðist í gær, aðeins 44 ára að aldri. Banamein hans var hjartabilun. Ármann hefur um langt skeið ekki gengið heill til skógar, og hafði um nokkurt árabil kénnt hjartabilunar, en síðari árin var heilsa hans þó betri. Ár- mann Halldórsson var fæddur 29. september 1909. Stúdent varð hann frá Menntaskólanum á Akureyri 1931 og mag. art. í sálarfræði frá Háskólanum í Oslo 1936, en síðan stmidaði hann framhaldsnám í Vín og Kaupmannahöfn. Hann varð kennari við Kennaraskóla ís- lands 1939, en skipaður skóla- stjóri Miðbæjarbarnaskólans 1941 og gegndi því starfi til 1950 er hann var skipaður námsstjóri gagnfræðastigs. Ár- mann ritaði margar greinar um ! uppeldis- og skólamál og þýddi i f jölda bóka.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.