Vísir - 03.02.1956, Blaðsíða 1
12
bls.
12
bls.
46. árg.
Föstwdaginn 3. febrúar 1956
28. tbF
==£□
SJr 3§fgvn'tnssveitz
Á llesfum bæjum í sveitimú
vari stórtjón í ofvðrimt.
Eizfu menn muna ekki
þvBÍíkt veður áðtir.
Frá fréttaritara Vísis.
Húsavík í gær.
Gífurlegt tjón varS víðsveg-
ar um Þingeyjarsýslu af völd-
um ofviðrisins mikla og hafa
nú borizt nokkru gleggri fregn-
ir af því en áður.
Eins og þegar var búið að
skýra frá í Vísi sukku nokkurir
trillubátar og einn stór vélbátur
hér á Húsavíkurhöfn. Nú hefur
öllum þessum fleytum verið
náð upp og kom þá í ljós að
þær voru allar meir eða minna
brotnai' nema ein.
Af öðru tjóni hér í grennd
má geta þess að hey fuku á
2—3 bæjum á Tjörnesi, síma-
staurar brotnuðu og víða brotn
uðu rúður í húsum. Á Laxamýri
fuku járnplötur af útihúsum og
þar sögðu heimamenn rokið
hafa verið svo gífurlegt að hey-
vinnuvélar og jeppakerra, sem
stóðu úti hafi fokið langar leið-
ir eins og fis.
Víða annars staðar varð
meira og minna tjón bæði í
Aðaldal, Reykjadal og víðar.
Einna mest tjón í einni sveit
mun þó hafa orðið í Mývatns-
sveit. Þar sætir það tíðindum
ef ekki varð meira eða minna
tjón á hverjum bæ. Ekki hafa
þó enn borizt nákvæmar fregn-
ir frá öllum bæjum vegna þess
að víða slitnuðu símalínur milli
bæja í sveitinni.
Það sem vitað er nú þegar
um tjón af völdum roksins í Mý
vatnssveit er í höfuðatrðum
þetta:
Á Borg fauk þak að mestu af
íbúðarhúsinu og varð fólkið að
flýja í kjallarann og hafast þar
við.
Hey fauk á fjölmörgum bæj-
um, en tilfinnanlegast mun
tjónið hafa orðið í Baldursheimi
á Stöng og Kálfaströnd.
í Baldursheimi fuku tvö eða
þrjú hey. Á Litlu Strönd fauk
heybraggi, lenti hnn á gamla
bænum g braut hann, en þó
sködduðust kýr, sem þar voru
geymdar, ekki. Munaði minnstu
að bóndinn, Steingrímur Kristj
ánsson, yrði sjálfur fyrir bragg-
Að Haganesi fuku margar
járnplötur af fjárhúsum, vegg-
ur féll inn og drap eina kind.
Enn fremur fauk þakið af fjós-
inu.
Á Álftagerði fuku allar járn*
plöturnar af gamla bænum, er
fólkið var nýflutt úr. Munaði
minnstu að þær lentu á nýju
íbúðarhúsinu, en sem betur fór
fuku þær allar fyrir ofan hús-
ið og ollu því ekki verulegu
tjóni.
Hey fauk á Arnarvatni og
enn fremur járn af útihúsuffi.
Á einum bænum, að Stöng,
brotnaði hleri fyrir hlöðuopi og
þakið á hlöðunni byrjaði að,
lyftast, en þó tókst að binda
það niður áður en frekara tjón
hlytist af. Þar hrundi þó fjár-
húsveggur.
Á Skútustöðum fauk mikið:
járn af útihúsum og morgun-
inn eftir fárviðrið þegar fólk
tók að litast um blasti við ó-
fögur sjón, því að margar járn-
plöturnar voru bókstaflega í
tætlum, en símalínur slitnar og
staurar brotnir.
í heild ber mönnum saman
um að þeir muni ekki þvílíkan
veðurofsa sem þennan, en eng-
in leið að gera sér minnstu hug
mynd um tjónið sem það hef-
ur orsakað. Það eitt er víst að
það er gífurlegt.
i bæfar-
ráð i fjær.
Á fundi bæjarstjórnar Reykja-
vikur í gær var m. a. kosið í
bæjarráð.
Hlutu kosningu Geir Hall-
grímsson, Auður Aúðuns, Guð-
mundur H. Guðmundsson, Guð-
mundur Vigfússon og Alfreð
Gislason.
Varamenn voru kosnir Gunn-
ar Thoroddsen, Sveinbjörn Hann.
esson, Ingi R. Helgason og Þórð-
ur Björnsson.
Forseri bæjarstjórnar var end-
urkjörinn, frú Auður Auðuns,
og varaforseti sömuleiðis, Sig-
urður Sígurðsson læknir.
Vegurinn austur að Þjórsá er enn
fær stærstu bíium í morgun.
I rffisrinn rtiður í IrHliu«juholts-
hrepp oríiiuu oí’«»r.
Það er nú komið fram, sem
óttast var í gær, að jakastífl-
an i Hvítá hjá Brúnastöðum
orsakaði stórflóð niður allan
Flóa.
Strax í gærmorgun tók áin
að flæða yfir bakka sína á
Biiínastaðaflötum og smáóx
flóðið því lengur sem leið á
daginn. Nú munu einir þrír
bæir í grennd við Hvítá vera
umflotnir með öllu og þ. á
m. bæði Brúnastaðir og Ölves-
holt.
í nótt og morgun beljaði
Fárviðrið olli ýmsu
tjóni í Skagafirði.
Hvassviðrið var svo mikið, að
ekki var akfært milli bæja.
rvwwwwww.
leikfélagið frumsýnir Galdra-
Loft n.k. miðvikudag.
Mpsrnuriiu atf keeaahfgSii enn
i ffullum tgunfji.
Leikféiag Reykjavíkur mun að
öllu forfallalausu frumsýna leik-
ritið Galdra-Loft næstkomandi
miðvikudagskvöld.
Svo sem kunnugt er, átti
Galdra-Loftur að vera jólaleikrit
Leikfélagsins, en æfingum hefur
seinkað mjög af ýmsum ástæð-
um, m. a. vegna veikinda.
Leikstjóri er Gunnar R. Han-
sen. Aðal hlutverkin leika Gísli
Halldórsson, sem leikur Loft,
Erna Sigurleifsdóttir, sem leikur
Steinunni, Helga Bachmann, sem
leikur Dísu og Knútur Magnús-
son, sem leikur Ólaf. Ráðsmann-
inn leikur Brynjólfur Jóhannes-
son.
Komið hefur til orða, að Leik-
félag Reykjavíkur sýni Galdra-
Loft í Færeyjum, en það mun þó
ekki endanlega ákveðið.
Leikrit Agnars Þórðarsonar,
Kjarnorka og kvenhylli, er ennþá
í fullum gangi og var troðfullt á
sýningunni í fyrrakvöld þrátt
fyrir ofviðrið.
Frá fréttaritara Vísis.
Skagafirði í gær.
í gær gerði aftakaveður af suð-
austri um aiian Skagaf jörð, með
úrhellisrigningn og meiri veður-
ofsa en menn eiga að venjast.
Víða hefur veður þetta valdið
talsverðu tjóni, ekki hvað sízt í
Blönduhlíðinni. Á Hrólfsstöðum
fuku þrjú hey er stóðu úti, þak
fauk af f járhúsi á Miklabæ og á
Víðivöllum fauk nokkuð af
hlöðuþaki. Þá íauk benzínskúr
á Þverá.
Tilfinnanlegast tjón á einum
bæ mun þó hafa orðið á Stóra-
vatnsskarði í Seyluhreppi. Þar
fauk þak af 150 kinda fjárhúsi,
en nokkuð af járninu lenti á í-
búðarhúsinu, skemmdi það og
braut glugga. Ennfremur sleit
járnið bæði rafmagns- og síma-
línur svo bærinn varð rafmagns-
laus á eftir og símasambands-
laus. Telja bændurnir á Vatns-
skarði að slíkt veður hafi ekki
komið þar áður í þeirra minn-
um.
Á Víðimýri fauk þó nokkuð
af heyi, að Fjalii í Sæmundar-
hlíð fauk þak af f járhúsi og víð-
ar varð nieira og minna tjón i |
flóðið yfir allar Brúnastaða-
flatir og á breiðu svæði niður
yfir byggðina. Fellur það yfir
veginn hjá Skeggjastöðum, en
í morgun vár hánn þó enn fær
stórum bifreiðum.
Aftur á móti er Villingaholts-
hreppsvegurinn orðinn ófær.
því flóðið fellur í Hróarslæk-
inn og er hann nú sem hafsjór
yfir að líta. Fellur vatnið yfir
brúna og engin leið að komast
þar á neinu fai'artæki.
Vatnsflóðið var í morgun
komið niður á Gaulverjabæjar-
veginn og náði þá upp á veg-
arbrúnina, en ekki byrjað að
flæða yfir hann. Búizt var þó
við að það myndi verða á hverri
stundu.
Þegar Vísir átti í morgun tal
við fréttaritara sinn á Selfossi
var eðlilegt vatnsmagn í Ölfusá
oð sýnilegt að stíflan heldur
ennþá.
héraðinu. Svo mikiö var hvass-
viðrið, að ekki þótti viðlit að aka
eftir þjóðveginum í Blönduhlíð-
inni enda var þar ófært veður.
Tiðarfar hefur verið mjög ó-
stillt frá því um áramót og vega-
samgöngur teppzt annað slagið
sökum snjóþyngsla. En í vik-
unni sem leið brá til sunnanátt-
ar og hefur snjóinn tekið upp
að mestu svo að fært er orðið
víðasthvar um upphéraðið. Aftur
á móti enn miklar fannir í út-
sveitum og vegir lokaðir.
Lömunarveikin, sem geisað
hefur hér undanfarið, er nú að
mestu rösuð út. Alvarleg lömun-
artilfelli hafa ekki komið fyrir
að undanskildu því að einn mað-
ur lézt úr veikinni, en hún hef-
ur samt sem áður lagzt þungt á
ýmsa og ekki nærri allir búnir
að ná sér til fullnustu eftir \’eik-
ina.
'AVVAW^.’.^VWAW.V^.V.WWAW.V^JVAV^W
Um 50 klndur króknuðu
i fiárhúsi í FlékatiaL
Krapaflóð féil inn í Msin í ofviðrinu.
Athugun á fé í Þverár-
Míh og Noriurárdaf.
Upp úr næstu helgi mun
liggja fyrir niðurstaða blóð-
rannsóknar á fé á 'þeim tveim-
ur bæjum í Þverárhlíð, þar
sem garnaveiki varð vart ný-
lega.
Verður ekki tekin nein frek-
ari ákvörðun af Sauðfjársjúlc-
dómanefnd fyrr en sú niður-
staða liggur fyrir, nema að
sendur verður maður til að at-
huga fé á bæjum í Þverárhlíð
og Norðurárdal, sunnan árt ef
ske kynni að kindur fyndus'
þar grunsamlegar útlits.
Kýpurdeilan
að leysast?
Makarios erkibiskup á Kýp-
ur hefir, að því er talið er, fall-
izt á íillögur Breta um sjálf-
stjórn á Kýpur, í grundvallar-
atriðum.
f svari sínu til Hardings í gær
óskaði hann þó eftir skýringum
á vissum atriðum. — í Aþenu-
útvarpinu var fullyrt að líta
mætti svo á, að Makarios teldi
meginágreining úr sögunni.
! I veðurefsamun, sem fór yfir
landið síðdegis í fyrradag varð
það tjón að Brennistöðum í
Flókadal, að vatnsflóð skall á
fjárhúsi og drápust þar um 50
kindur.
Fjárhúsín á Brennistöðum
standa við gil eitt, og var það
fulit af snjó. Vorú fjárhúsin
hýbyggð og ekki kómin i þau
gólfgriridin.
Um fjögurleytið hafði fjár-
maður gengið frá fjárhúsunum
og var þá ekkert að, en þegar
fárviðrið vár komið um kvöldið,
fór hann aftur til fjárhúsanna,
til að líta eftir.
Þegar þangað kom, sá hann.
að flóð hafði runnið úr gilinu
og fallið krapaflóð inn í húsin.
Voru hér um bil allar kindurn-
ar á kafi í krapaflóðinu og um
fimmtíu þeirra dauðar eða
dauðvona og höfðu þær krókn-
að.
Tókst þó að bjarga tuttugu
kindum úr krapanum og ná
þeim út úr húsinu.
Er þetta mikið tjón, svo sem
að líkum lætur. Bóndinn á
Brennistöðum var fjarverandi,
þegar þetta bar að höndum.
Ligg'ur hann veikur í sjúkra-
l'-úsi. ^...jJ