Vísir - 12.05.1956, Blaðsíða 1

Vísir - 12.05.1956, Blaðsíða 1
46. árg. Laugardaginn 12. maí 1956 107. tbl. Góður andi gagnkvæmrar samúðar og vináttu. Ólafur Thors ásamt fylgdarliði við komuna til Hamborgar. Rmíi1@í® 38 þús. nöfsi á kjörskrá í Reykjavík. Auknlng lifll frá þvi fyrir þremur árum. Samkvæmt upplýsingum, sem Vísir hefur fengið í Mann- talsskrifstofunni eru nú tæp- lega 38.400 nöfn á kjörskrá fyr- ir Reykjavík, en 'þegar ltosið var fyrir 3 árum rúmlega 37.900. — Að líkindum mun verða auglýst í næstu viku að kjörskrá liggi frammi og hvar. Þess er að geta, varðandi ofannefnda tölu, 38,400, að þar verður einhver frádráttur, því að þetta er um það bil nafna- fjöldinn, þegar fyrirspurnin var gerð, en verið er að ganga frá skránni. Hún gildir frá 15. Bretar yilja ekki missa Gurkhama. Bretar kvíða því, að Nepal inuni hætta helzta útflutningi sínum til þeirra efíir tvö ár. Verður þá útrunninn samn- ingurinn um, að Gurkhar megi ráða sig í her Breta, en ætt- bálkur þessi er herskár mjög og hefur þjónað Bretum vel um langt skeið. Nema tekjur Nep- alinga af þjónustu þessarra manna hjá Bretum um milljón punda á ári, en það er næstum fjórðungur ríkisteknanna. júní næstkomandi til 14. júní næsta árs. Frádráttur sá, sem vikið var að hér að ofan, er vegna búsetuskilyrða og aldurs aðallega. Á kjörskránni eru nöfn allra þeirra, sem fá kosn- j ingarrétt á því tímabili, sem kjörskráin gildir fyrir. Við seinustu alþingiskosn- ingar voru 37.910 nöfn á kjörskrá og virðist aukningin furðulega lítil, fljótt á litið a. m. k., en þess er að geta, að á þessum tíma hafa margir sezt að annarsstaðar, og vafalaust flestir þeirra í Kópavogi. Nýtareytni verður það næst, er menn ganga að kjörborði, að ekki verður kosið eftir nafna- röð, heldur heimilum, og geta því hjón og aðrir á sama heim- ili, er kosningarrétt hafa, kos- ið í sömu kjördeild, og hefur þetta fyrirkomulag sína kosti. I Eftirfarandi ræðu flutti dr. Konrad Adenauer kanzlari í kveðjuveizlu Ólafs Thors og frúar hans að Hotel Petersberg þann 9. maí. Eg þakka yður, herra for- sætisráðherra, einlæglega hin vingjarnlegu og hjartanlegu orð, sem þér beinduð til mín áðan. Ég var sérstaklega snort- inn, — og það vil ég einnig taka fram fyrir hönd allra landa minna, sem hér eru í kvöld, — af því, sem þér sögð- uð um þýzku þjóðina í önnum dagsins og á hátíðastundum. Vér metum þessi orð yðar enn meir fyrir það, að þau hefur sagt fulltrúi þjóðar, er í margra alda sögu sinni hefur svo oft sýnt fastan, karlmannlegan vilja að láta ekki hugfallast. Islendingar hafa ávallt unnað orðsins list og varðveitt góðlát- lega gamansemi, og um það eruð þér, kæri herra Thors, framúrskarandi dæmi. Allir höfum vér dáðst að þvi, hversu velyður lætur að létta hátíðleika og alvöru með kryddi hug- þekkrar gamansemi. Ég vona, kæri herra Thors, að fundum okkar beri bráðum saman aft- ur. Ég þakka yður innilega fyrir þau orð, sem þér rituðuð til mín á Skarðsbók. Sú gjöf verð- ur mér sérstaklega dýrmæt vegna þeirrar áritunar. Vér lítum ekki aðeins á heimsókn yðar hér ,sem sýni- legt tákn stefnu að sömu stjórnmálalegu markmiðum. Ég er þess fullviss, að þér mun- ið allir sammála mér um það, að á þessum fundi vorurn hef- ur að auki og enn fremur ríkt hinn góði andi gagnkvæmrar samúðar og vináttu er tengir svo nákomnar þjóðir sem vor- ar eðlilegum og frjálsum bönd- um. Ég vil ekki láta þetta tæki- færi síðustu samfunda vorra nú ónotað til að tjá fulltrúa ís- lands í Sambandslýðveldinu, ambassador Briem og hinni ástúðlegu konu hans, þakkir íors. mínar. Þau hafa stuðlað mjög að því að þessi heimsókn tókst svo vel. Oss væri það mjög kærkomið, að þér öll, sem hafið verið gestir vorir undanfarna daga, hefðuð heim með yður glögga og fjölbreytta mynd af þjóð- lífi Þýzkalands. Af hálfu vor allra óska ég yður góðrar ferð- ar heim. Herra forsætisráðherra, herra utanríkisráðherra, aðrir virðu- legir gestir. Éf lyfti glasi mínu og árna íslenzku þjóðinni allra heilla. (Áritun sú á Skarðsbók, er kanslarinn þakkaði forsætis- ráðherra sérstaklega, er úr þeirri bók og hljóðar svo: ,,Hér hefur kristindómsbálk. Hér .segir um helga trú. — Það er upphaf laga várra ís- lendinga, sem upphaf er allra góðra hluta, at vér skulum hafa og halda kristilega trú. Vér skulum trúa á guð föður, allsvaldandi skapara himins og jarðar.“) Iveir brezkir gislar Tívoií optiað 9 dag. Opnun Tívolí, sem átti að fara fram á uppstigningardag, en var frestað, fer fram kl. 3 í dag. Verða þá ýms skemmtiatriði, svo sem töfrar, búktal, eftir- hermur og fleira. Ferðir að Tívolí verða í sum- ar farnar frá Búnaðarfélags- húsinu og annast Strætisvagn- ar Reykjavíkur þær. EOKA samtökin á Kýpur til- kynntu í gær í dreifibréfi, að þau hefðu látið taka af lífi tvo brezka hermenn, í hefndar skyni fyrir það, að tveir Kýpur- búar af grískum stöfni vom teknir af lífi á uppstigningar- dagsmorgun. Menn þeir, sem EOKA sam- tökin segjast hafa banað, eru nafngreindir í dreifibréfinu, og nefnast Hill og Shelton. Bretar tilkynna, að engar sannanir séu fyrir hendi, að' þessir menn hafi verið á valdi EOKA. Annar hvarf í apríl, eftir að hann hafði sætt áminningu fyrir að hafa verið fjarverandi hvað eftir annað án leyfis, og hafði hann og sent fjölskyldu sinni á Englandi rangar upplýs- ingar um sig, kvaðst hafa særst,, en það var tilbúningur einn. Hinn segist EOKA hafa tekið í nóvember, en hann var óhorf- inn í desember. Sahara verHisr sem LciBidoRi. Margir hafa miklar áhyggjiu* af mannf jölguninni í heiminum, því að hún verður sífellt örari með vaxandi framförum í læknavísindum. Austurrískur læknir, dr. Her- mann Knaus, reiltnar út, að með sömu fjölgun mannkind- arinnar næstu 500 árin muni þéttbýli á Sahara og Suður- skautslandinu verða jafnmikið og i London nú, árið 2500. Karlakór Reykjavíkur syngur í áívarp í þrem löndum. Syngur mörg lög, íslenzk og erlend á plötur hjá HMV. 2,5 í U.S.A. ★ Fulltrúar Asíu- og Afríku- ríkja á vettvangi Sameinuðu þjóðanna telja að thorfur íj Alsír hafi stórversnað — þar sé raunverulega styrj- öld háð, og muni þeir nú íhuga að leggja til, að alls- herjadþingið verði kvatt saman til að ræða málið. < i Um síðustu mánaðamót voru 64 milljónir starfandi manna í öllum greinum í Bandaríkjun- um. Hefur vinna aldrei verið eins mikil þar í landi í nokkrum apríl-mánuði, og tala atvinnu- leysingja lækkaði um 300,000 — komst í 2,5 milljónir. Þjóð- artekjur Bandaríkjanna virðast ætla að fara yfir 5000 milljarða á þessu ári. Karlakór Reykjavíkur ætlaði að leggja af stað á morgnn í söngför til Norðurlanda, en vegna þess að farkosturinn, sem var Dronning Alexandrine hef- ur seinkað, hefur verið horfið að þvi ráoí að' fara, fjugleiðis til Khafnar þann 16. þ. m. Höfuð tilefni fararinnar er að mæta fyrir íslands hönd á hálfr- ar aldar afmælishátíðBel-Canto kórsins i Khöfn, en á þeirri há- tíð koma fram karlakórar frá öhum Norðurlöndunum. Frá Kaupmannahöín verður að öllu forfallalausu haldið þ. 24. þ. m. til Bergen og sungið tví- vegis á tónlistarhátíð sem hald- in verður um það leyti þar í borg Stáldrað verður I 2 eða 3 daga í Bergen en síðan farið til Osló, Stokkhólms og Gautaborgar og- sungið á öllum stöðunum. Það- an verður farið til Kaupmanna- hafnar og lagt heim með Gull- fossi 2. júní n. k. Á meðan Gull- foss stendur við í Edinborg syng- ur Karlakór Reykjavíkur þar. Auk þess sem kórinn kemur fram á opinberum hljómleikum hefur hann verið beðinn að syngja i útvarp í Kaupmanna- höfn, Osló og Stokkhólmi. Þá mun kórinn ennfremur syngja inn á allmargar grammófóns- plötur hjá His Masters Voiec, mest íslenzk kórlög, en einnig eitthvað af erlendum lögum. Með kórnum verða þeir Stefán íslandi og Guðmundur Jónsson einsöngvarar og Fritz Weiss< happel sem undirleikari.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.