Morgunblaðið - 13.04.1918, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.04.1918, Blaðsíða 1
Laugard. i3 apríl 1918 B0R6DNBLABID » flrgangr 157. tölublaO Ritstjárnarslmi nr. 500 Ritstjón: Yilhjálmur Finsen ísafoldarprentsmiðja Afpreiðslnsimi nr. 300 Gamla Bió Nýja Bíó 1 PAX ÆTERNA EÐ A FRIÐUR Á JÖRÐU. Stórfenglegur sjónleikur í 5 þáttum eftir Ole Olsen. Aðalhlutverkin leika: Carlo Wieth, Zanny Petersen, Fred. Jacobsen, Carl Lauritzen, Anton de Verdier, Philip Bech. Hljómleikar undir stjórn hr. Theodórs Arnasonar eru viðhafðir undir sýn- ingunum. Eingöngu spiluð^ þar til valin úrvalslög. Aðgöngum. má panta í síma 107 og kosta fyrstu sæti 2.00, ‘ önnur sæti 1.50, þriðju sæti 1.30. NB. Allar. pantanir verða afhentar íNýja Bí ó frá kl. 7—8 daglega Leikfélag Keijkjcwíkur. Frænka Charley's verður 1 e i k i n sunnudaginn 14. apríl kl. 8 síðdegis / siðasta sinn, Aðgöngumiðar seldir í Iðnó á laugardag frá kl. 4—8 síðd. með hækkuuð verði, á sunnudag frá kl. 10—12 og 2—8 með venjul. verði. Ást og fréttasnati Afarskemtilegur gamanleikur í 3 þáttum, tekinn af Svenska Biografteaterne Leikinn af okkar góðkunnu sænsku leikurum Rich. Lund, Stina Berg, Jenny Larson og Karin Molander, hinni forkunnar fögru leikkonu Svía. — Feikna aðsðkn var að þessari mynd þegar hún var sýnd í Paladsleikbúsinu og hlaut einróma lof, því að sjaldgæft er að sjá jafn skemtilega mynd og þessa. — Myndin er jafnt fyrir börn sem fullorðna. Frelsens Hær! Dansk OplæsningafStabs- kaptein Grauslund, Lördag d. 13. April Kl. 81 /2- Program : »S t e r k e n ec af H. C. Andersen. ----»S t y r m a n d H a n- senc af Stabskaptein Grauslund. ----»A b e l s D ö d« af Paludan Múller. Adgang 25 Öre. Alle er velkommen. Álþíðufræðsla Stúdentafélagsins. Arni Pálsson flytur erindi um: Ognarárið i stjórnarbylt- ingunni miklu (1793 -94) sunnudag 14. apríl kl. 5 síðd. í Iðnaðarmannahúsinu. Inngangur 20 aurar. TíésmiSalélag Rvíkur Fundur sunnudag 14. þ. m. kl. 2 siðd. á Spítalastíg 9 (niðri). Nýir meðlimir velkomnir. Stjórnin. Unglingast. Æskan heldur foreldrafund á morgun kl. 4. Þau börn sem ekki hafa fengið aðgöngumiða, sæki þá i dag milli 5 og 7 í Templó. Embættismenn tnæti stundvíslega. Erl. simfregnir. frá fréttaritara Morgunbl.). Khöfn 11. apríl Austurríkiskeisari hefir fullvissað Þýzkalandskeisara um að »ákærurc Clemencius viðvikjandi Elsass séu algerlega tilhæfulasar. Asqaith hefir risið gegn frumvarpi Bonar Lnws urn herskyldu á írlandi. Enska blaðið Times vill ekki við- urkenna Finnland sem hlutlaust land. Lífláti Bolo Pasha hefir verið frestað vegna þess að ýmislegt nýtt er komið upp i málinu. Bretar búast til varnar á linunni Wytschaete—Messines. Islenzkir hestar til Ameríku. Svo sem menn muna, sendi Slát- urfélag Suðurlands 6 hesta til Ame- ríku í haust sem leið, til þess að reyna fyrir sér með markað á is- lenzkum hestum vestan hafs. Eim- skipafélagið flutti hestana ókeypis vestur um haf og Stefáni ferða- mannatúlk Stefánssyni var falið að sjá um sölu á hestunum í Ameriku, og undirbúa iunflutning íslenskra hesta þangað i framtíðinni. Því miður hefir tilraun þessi al- gerlega mishepnast. Eftir langa og dýra dvöl í New York seldust hest- arnir loks, allir sex, fyrir 103V2 dollar, eða um 370 krónur alls. — Fóður hestanna og gæzla í New York kostaði um 700 kr., svo að það hefir orðið mikill tekjuhalli af hestasölu þessari. Hestana átti að lokum að selja til slátrunar, en mann- inum, sem gætti þeirra i New York, þótti það synd, og bauðst til þess að kaupa þá J vf verði, sem slátrar- inn vildi gefa fyrir þá. En það voru 103V2 dollara alls. Sláturfélagið hefir fengið þær upp- lýsingar frá Stefáni Stefánssyni, að hestarnir hafi komið á versta tíma ársins. Hyggur hann að betur mundi hafa tekist, ef þeir hefðu komið um vortíma, því að þá sé markaður betri. Ennfremur var sá galli á, að allir hestarnir, nema einn, voru ótamdir. Það má ganga að því visu, að önnur tilraun til þess að selja is- lenska hesta í Ameriku verði látin bíða fyrst um sinn. Að norðan. Væuir sauöir. Signrgeir bóndi Jónsson á Hellu- vaði í Mývatnssveit lét vigta 17 sauði tvævetra i haust, er hann átti, og jöfnuðu þeir sig í 153 pund hver. Allir voru sauðirnir tvílembingar, nema 2, og allir hagalömb. 8 af þeím átn sama og ekkert hey i fyrravetur. Eftir þessu að dæma, virðist sauðaeign enn vera arðvæn- leg þar sem landkostir leyfa, þó að ekki muni víða finnast jafn vænir sauðir, sem sauðir Sigurgeirs bónda. Hötrungar. Rétt við flæðarmál fram undan Úlfsdölum hafa nú nýlega náðst ná- lega 100 höfrungar. Láu þeir allir dauðir á Mararbotni. Hafa þeir eðlilega kafnað undir hafísuum, sem er horfinn þaðan fyrir skemstu. Spik og rengi var til samans seit á 10 aura pundið. 2 höfrungar hafa fundist í ísnum á Eyjafirði. Annan höfrunginn fundu þeir síra Björn í Laufási og Arni læknir á Kljáströnd. Útgerðarmannafélag var stofnað á Akureyri 1 marzmán- aðar síðastl. Stjórn þess skipa: Jóhann Hav- steen (formaður), Hallgrimur Davíðs- son (ritari) og Rögnvaldur Snorra- son (gjaldkeri). Tilgangur félagsins er að mynda samband meðal þeirra, sem reka út- gerð í stærri stíl, og efla sjávarút- gerð á alla lund. Kaupirðu góðan hlut mundu hvar þú fekst hann. Smurningsolía: Cylínder- & Lager- og 0xuIfeiti eru áreiðanlega ódýrastar og beztar hjá Slgurjóni Hafnarstræti 18. Simi 137.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.