Morgunblaðið - 12.06.1918, Blaðsíða 1
5. argangr
Miðv.dag
12
júní 1918
M0R6UNBLA9IÐ
215
tðlnblað
Ritstiórnarsimi nr. 500
Gamla Bió
Dr. Mors.
Skemtil. og afarspennandi
sjónl. í 3 þlttum tekinn af
Dania Biofilm
(Gyldendahl).
Og leikin af ágætum dönsk-
um leikurum.
Aðalhiutverkið, Dr. Mors, leik-
ur hr. Paul Reumert.
Til Vífilsstaða fer bifreið fyrst um
sinn hvern þriðju , fimtu- og sunnu-
dag kl. 11 frá Breiðabliki. Farkeðlar
-'verða að kaupast þar.
(Aukafeiðir venjulega kl. 2.)
-St. Einarsson. 6r. Sígurðsson.
Sími 127.Sími $81.
Rttstjórt: Viihjátmur Fmsen
+
Sira Gisli Jónsson
Mosfelli.
Það sorglega slys vildi til í fyrra-
dag að síra Gtsli fónsson á Mosfelli
í Grímsnesi druknaði í Þverá.
Hann ætlaði austur til Odda og
vera þar við uppböð sem ha!d ð var
þar í gær á bút síra Skúla Skúlason-
ar, en fór fyrst snöggva ferð ofan i
Landeyjar. Ætlaði hann svo að ríða
Þverá hjá Hemlu, en mun hafa vilst
út af vaðinu og lenti í ál. Losnaði
hann þar við hestinn og druknaði,
en maður, sem með honum var,
komst klaklaust yfir ána.
Uppboð á málverkum.
Erl simfregiíir
(Frá fréttaritara Morgunbl.).
Khöfn, 10. júní.
Þingmenn í neðri málstofu hol-
lenzka þingsins vilja láta Hollend-
inga beita sér fyrir því að byijað
verði á friðarsamningum,
Frá Berlín er slmað, að Þjóð-
verjar hafi sótt fram hjá Gury og
fyrir suðvestan Noyon.
Khöfn, 10. júní.
Frakkar tilkynna að Þjóðverjar
haldi áfram hinum grimmilegustu
áhlaupum i vinstra herarmi og fylk-
ingarbrjósti. Frakkar hafa mist
' Ceuilly, Ressons sur Matz og Bel-
linglise-sléttuna.
Frá Moskva er simað, að her-
sveitir Þjóðverja, sem höfðu Melina
^ sinu valdi, hafi beðið ósigur.
£jóðverjar tilkynna að þeir hafi
tezið borgirnar Matz, Ceuilly og
Ricquebourg á vesturvigstöðvunum
og séu komnir til Bourmont og
Mareuil. Sunnar hafa þeir tekið
Lassigny og farið í gegnum Thies-
court-skóginn. Hafa þeir handtekið
Þarna 8000 menn.
Hér i Kaupmannahöfn er stofnað
alþjóða sjómannafélag. Havelock
Wilson er forseti.
í dag kl. 3 verður haldið uppboð
á málverkum, um 60 talsins, eftir
Magnús A. Árnason, bróðir Arsæls
bóksala. Mun það vera fyrsta sinni
að listmálari selur málverk sín á
uppboði hér á Iandi, en erlendis er
það alltítt. En ástæðan til þessa er
sú, að Magnús ætlar sér til Vestur-
heims með Lagarfossi á morgun.
Hann ætlar á listmálaraskóla i Santi-
ago í Chile í Suður-Ameriku og
hyggur til dvalar þar í nokkur ár.
Magnús Arnason hefir málað í
nokkur ár. Hefir hann eins og svo
margir aðrir yngri listmálaranna is-
lenzku, engrar tilsagnar notið, en
hæfileika hefir hann bersýnilega.
Sumar myndanna eru ágætar.
— Vér viljum eindregið ráða
mönnum til þess að koma i Good-
templarahúsið kl. 3 í dag því Magnús
er þess fullkomlega verður að hon-
um sé sómi sýndur.
Siriðs-iðnaður.
Af mörgum sögum sem nú eru
sagðar um stríðs-iðnað, getur sagan
af Aafhus Oliefabrik i Danmörku
orðið okkur hér til fyrirmyndar, ef
við viljum hugsa um það að bjarga
okkur sem bezt sjálfir. .
Aarhus Oliefabrik er að nokkru
leyti á vegum dönsku stjórnarinnar
og þess vegna hefir hún fengið til
í saíold i rprents m i ð í a
Afgreiðslusimi nr. 500
>nyjd. Diu4
Skuggi ío tíðarinnar
eða
Ast Yvonne
Sjónieikur i þrem þáttum, tekin á kvikmynd af Nordisk Films Co.
Aðalhlutverkið leikur Elso Frölich.
Hvers er krafist af góðri kvikmynd? Að hún sé áhrifamikif, fögur,
eiukennileg, efnisrík, hrífandi og vel leikin.
Öll þau skilyrði uppfyllir þessi piynd.
Góóan matsvein
vantar nú þegar á mótorkútter H a r r y.
Menn snúi sór til skipstjóraus, sem hitt-
ist í Slippnnm.
Hér með tilkynnist að jarðarför konunnar minnar, Guðrún-
ar Þórðardóttur, fer fram frá Fríkirkjunni og hefst með hús-
kveðju á heimili okkar, Spítalastíg 6, á morgun kl, 11 átdegis.
Fyrir hönd mína, barna minna og tengdabarna.
Lárus Pálsson.
umráða alt það lýsi sem frá Græn-
landi kemur. Og eftir margskonar
rannsóknir og tilraunir getur verk-
smiðjan nú framleitt úr lýsinu ýms-
ar og ólikar vörutegundir.
Grænlenzka lýsið er brúnt og þef-
ilt, en verkfræðingum og efnafræð-
ingum vex eigi i augum að hreinsa
það og ná úr því öllum sýrum o.
s. frv. svo að hægt sé að nota það
sem smurningsoliu við allskonar vél-
ar. Ur lýsinu vinna þeir líka Elain-
oliu, sem leysist upp í vatni og er
nauðsynleg fyrir allar tóvinnuverk-
smiðjur. Úr lýsinu er og gert gljá-
vax til þess að fægja með gólf, og
ennfremur »vaseline«. Þá er og
nnnin úr þvi »parafin«-olía, sem er
bráðnauðsynleg til margs og segir
blaðið, sem þetta er tekið eftir, að
margar eldspýtnaverksmiðjur, pappírs-
verksmiðjur og ritblýaverksmiðjur
(sem allar þurfa mikið af »parafin«-
olíu«) hefðu orðið að hætta starfsemi
sinni, ef olíuverksmið,urnar í Arós-
um hefði eigi notið við.
Þá framleiðir verksmiðjan einnig
tólg úr lýsinu og er eigi hægt að
þekkja hana frá venjulegum tólg.
Auk þessa rekur verksmiðjan ýms-
an annan stóriðuað. Meðal annars
býr hún til kartöflumjöl, sago,
þrúgnasykur og dekstrín úr kaitöfl-
um. Úr lyngi býr hún til lyngmjöl,
Stúlkur óskast í kaupavinnu og
drengur til snúninga. Komi til við-
tals kl. 9—12 f. m. og 6—9 e. m.
á Hverfisgötu 94 (uppi).
sem er ágætt 'nestafóður og auk þess
lyngte — Terica — sem nú er mjög
farið að nota i Danmörku.
Með aðstoð verksmiðjunnar er nú
daglega framleitt »benzol« í gasstöð-
inni i Árósum fyrir mörg hundruð
krónur.
Enn fremur hefir verksmiðjunni
tekist að framleiða sápu, kítti og
margt annað úr glerlegi (Vandgias).
Hér skal nú staðar numið með að
telja upp afrek verksmiðjunnar, en
vér höfum viljað segja frá þessu ef
ske kynni að einhver framtakssamur
maður vildi koma á fót verksmiðju
hér, til þess að vinna iðnaðarvörur
úr lýsi. Af þeirri vöru höfum vér
nóg og þar sem nú mun ilt að koma
henni markað sem slíkri, mundi
það gróðavegur að breyta henni í
aðrar vörur, er vér þörfnumst mjög
tilfinnanlega. Gæti sú iðnaðargrein
og orðið arðberandi að striðinu loknu,
því að satt að segja er það mesta
sleifarlag að vér skulum enn flytja
út hrálýsi, en vinna eigi sjálfir úr
því aðrar og dýrmætari vörutegundir.
----- ■ ................. ......
Kaupirðu góðan hlut
mundu hvar þu tekst hann.
Smurningsolia: Cylinder- & Lager- og 0xulfeiti
eru áreiðanlega ódýrastar og beztar hjá Sigurjóni
Hafnarstræti IS
Simi 137.