Morgunblaðið - 10.01.1919, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.01.1919, Blaðsíða 1
Fðstudag 10 |au. 1919 M0R6UNBLADID 6. arcaniff 58 tðlublaf* Ritstjórnarsími nr. 500 Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen ísafoldarprentsmiðja Afgreiðslusími nr. 500 Knattspyrnufélag Reykjavíkur. Fundar í kvöld klukkan 8l/2 í Iðnó. Umræðuefni: Arsskemtun fé'rgsins o.’ fleira. Mntið vel. STJÓRNIN HEr1. simfre^nir (Frá frt..taritara Morgunblaðsins) Khöfn, 7. jan. Danska stjómin er viðbúin að lögleiða 8 stunda vinnudag óg einn helgidag í viku fyrir alla opinbera starfsmenn. Br búist við að aukin útgjöld, sem af þessu leiða, muni nema 10 miljónum, og að lögirt nái til 10,000 starfsmanna. (Jr loftinu London, 8. jan. Óeirðir í Berlín. Ástandið í Berlín er enn hið í- skyggilegasta. Svo virðist, sem einhver uppþot hafi orðið út af því, að birt var tilkynning um að Eichhorn lög- reglustjóra væri vikið frá og hann hafi neitað að leggja niður embætti. Síðan hóf Sparta- cus-flokkurinn tilraunir til að ná ýmsum stjómarskrifstofum á sitt vald. Æsingin var ákafleg' og eitt- hvað barist á götunum, þangað til kl. 6 á mánudagskvöld. Þó er ekki taljð að fleiri en 20 manns hafi beðið bana í þeim skærum. Eftir þetta er sagt, að stjórnin hafi aftur náð yfirhöndinni í borg- ínni. Eistur biðja hjálpar. Reuter fréttastofa segir frá því, að stjórnin í Eistlandi hafi skor- að á brezku stjórnina að senda sér stórskotalið og hergögn til þess að standast innrás Bolzhewikka, sem nú ætla sér að ná Reval og eru eigi meira en 25 mílur frá borginni. Bretar hafa þegar veitt Eistum lið, með því að senda þeim vélbyssur og önnur hergögn. En þessari á- skorun hafa þeir tekið vel og hafa skipað nefnd til þess að íhuga hem- aðarástandið í Eistlandi og aðrar horfur þar. Sykurverð til kanpmanaa og féiaga í heildsölu er frá í dag: Högginn sykur kr. 1.15 kílóið Steyttur sykur » 1.05 »» Póðursykur » 0.95 »» Reykjavik, 8. janúar 1919. JZanósvQTzlunin. Pólska byltingin að engm orðin. Byltingamennirnir í Póllandi áttu skamma stund sigri að hrósa. Meðlimir ráðuneytisins, sem fylg- ismenn samsteypustjórnarinnar tóku liöndum á sunnudagsmorgun, voru allir látnir lausir að kvöldi sama dags, og Sapicha prins, sem var forsprakki byltingarinnar, tek- inn höndum. Engar óvenjulegar óeirðir voru atburðum þessum sáxhfara. Allsherjar jafnaðarmannafundur- inn í Sviss. Huysmann, skrifari alþjóða jafn- aðarmannafélagsins, sem staddur er í París, segir að verkefni alls- herjar jafnaðarmannafundarins í Sviss sé ekki það, að binda jafn- aðarmenn allra þjóða bræðrabönd- um, heldur að leysa úr ýmsum vándamálum í stjómmálum og fjármálum í sambandi við friðar- skilyrði Wilsons. London, 9. jan. Maximalistar ósáttir. Samkvæmt símskeyti frá Moskva til „Göteborgs Avis“ hefir Trotzky látið varpa Lenin í dyflissu, en sjálfur tekið sér alræðisvald. Á- stæðan til þessa er sögð skoðana- mismunur þeirra á Bolzhewikka- endurbótum. Lenin vildi koma á samsteypustjóm, en Trotzky vill halda áfram „rauðu“ óstjórninni. Jarðarför Roosevelts 1. » verður mjög viðhafnarlans, sam- kvæmt ósk hans sjálfs. ílefir Mr. Arehibald Roosevelt, fyrir hönd fjölskyldunnar, afbeðið hernaðar- lega viðhöfn. Wilson forseti hefir símað tilkynningu til Bandaríkja- þjóðarinnar, og mælir þar svo fyr- ir, að fáni sé dréginn í hálfa* stöng yfir „Hvíta húsinu“ og á öðrum stjórnarbyggingum í 30 daga í röð. Rsknar úr viðskifíateppumii. Víðtæk útflutningsleyfi frá Englandi. Stjórnarráðið hefir fengið til- kynningu um það frá ræðismanni Breta hér á landi, að síðan stríð- inu lauk hafi verið kipt burtu mörgum skorðum, er settar voru við frjálsum viðskiftum í Bret- landi, bæði um framleiðslu og sölu, og að nú sé miklu auðveldara held- ur en áður að fá útflutningsleyfi og undanþágur. Útflutningsbann hefir verið upp- hafið á ýmsum vörutegundum, þó eigi á hrávöru, fyrst um sinn. Nær þetta þó eigi til þeirra landa, sem að Þýzkalandi liggja, fyr en hafn- bannið hefir verið upphafið.Fer hér á eftir skrá yfir nokkrar þær vöru- tegundir, sem nú má flytja úr landi til allra annara landa en þeirra, sem hafnbann er á, og þeirra, sem að Þýzkalandi liggja (Danmörk, Holland, Rússalönd, Svíþjóð?): Aluminium • vörur, asbestvörur, bómullarvörur, reiðhjól, skór og stígvél, nema á böm, burstar og kústar, margs konar koparvörur, margs konar jám- og stálvörur, linoleum, vírdýnur, bifreiðar, sem haia minni vél en 30 hestafla, ljós- myndaáhöld, olíur, fernis, vagnar og kerrur og margs konar ullar- varningur.----- Það er búist við því, að pantanir á vörum, sem legið hafa í Englandi, verði nú afgreiddar hið fyrsta og kept verður að því, að koma verzl- aninni í jsama horf og áður var. Er þar að vísu við ýmsa örðugleika að stríða, svo sem skort á vinnukiafti, áður en hermennimir verða sendir heim, skipaskort og svo þarf að gera ýmsar endurbætur á mörgum verksmiðjum. En það er búist við, að fram úr þ'essu rakni á fáum mánuðum. n4GBOK I. O. O F. 1001109—0. Fullveldishátíðin. Magnús ólafsson ljósmyndari hefir gert stóra og góða mynd af fullveldishátíðinni hér. Er að- almyndin af því, þá er ríkisfáninn ís- lenzki er dreginn að hún og fáninn lit- skreyttur og hefir Ijósmyndarinn lag- að hann svo í þendi sér, að hlutföllin í honum eru rétt. Fyrir ofan eru tvær minni myndir, önnur af „Islands Falk“ þegar hann er að skjóta við- Lafnarskotunum, og hin af úrvalsliði því, sem viðstatt var athöfnina. — Má búast við að margir vilji eignast þessa mynd, og heyrt lxöfum vér, að stjórnarráðið hafi þegar pantað marg- ar handa sér. L. F. K. R. heldur fund í kvöld. Þar verður meðal annars lesið upp, kveð- ist á og kaffi drukkið. Frú Theodora Thoroddsen stýrir núna „Mánaðarrit- inu“. Mjólk. Eitt af því, sem Samverjann vantar aðallega, er mjólk. Hverjir vilja hlaupa þar undir bagga og hjálpa? Skautasvell hefir nú verið gert á Tjörninni. Mikið af rjúpum hefir komið niður í bygð núna síðan tíðin fór að harðna. Með Borg fengu þeir far í fyrradag Kristján Wathne og Einar Jónsson, sem eftir urðu af Sterling um daginn. Öskuhreinsun. Bærinn hefir nú tekið að sér sorp- og öskuhreinsun í bæn- um. í g&i sáum vér tvo ökumenn, sem unnu að þessu starfi, og báru þeir sorpið úr sorpílátunum og í vagnana — í spánnýrri taukörfu! Ágúst Jósefsson heilfcrigðisfulltrúi var kosinn formaður verkamannafé- lagsins ,,Dagsbrún“ á síðasta aðal- fundi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.