Morgunblaðið - 05.09.1919, Blaðsíða 1
MOBNHBL
6. árgangur, 282. tölublað
Föstudag 5. september 1919
GAMLA BIO
Góður drengur.
Leikrit i f þáttom.
Fjarska falleg og efnhrik mynd,
vel leikin og útbúnaður hinn
vandaðssti, eins og venja er hjá
World Films Comp.
Isatoldarprentsmlðla
dTra ÍDanmör/tu
Flugið.
Flogið með íarþega.
Kl. 7ya átti flugsýningin í gær að
liyrja, en hún var orðin nærri 8
þegar flugvélin tók sig á loft. Voru
í vélinni þeir kapt. Faber og brezki
vélfræðingurinn og skemtu þeir sér
nokkrar mínútur í kveldkyrðinni.
Fólk var tillölulega fátt inni á
velli, eu fjöldi alt í kring um 'hann,
og er það illa farið að fólk skuli
ekki gjalda inngangseyri til þess
að sjá flugsýninguna. Flugfélagið
mun þó þurfa á styrk sem flestra
að halda, því það kostar ekki lítið
að koma slíku í framkvæmd, sem
gert hefir verið, hér á Islandi.
Faber flaug lágt í fyrstu ferðinni
lín hann dvaldi ekki lengi á jörðu,
því nokkrum mínútum eftir að hann
lenti, fór hann á stað aftur, en
var þá einn. Nú flaug hann hátt
nokkuð en skamrna stund, stöðvaði
mótorinn í háa lofti og leið í boga
til jarðar.
í þriðju ferðiuni var Ólafur
(Davíðsson útgerðarmaður í Hafn-
arfirði farþegi í vélinni. En í síð-
ustu ferðinni var formaður Flugfé-
lagsins, Garðar Gíslason. stórkaup-
maður.
Á morgun verður að líkindum
aftur flogið, ef veður leyfir. Má bú-
ast við því að margir vilji gjarna
komast á flug, en það mun fullráð-
ið, að Faber flytji farþega í nokkur
kvöld.
Sfjornars/irá
þýzfíalanés
Khöfn 4. sept.
Þýzkastjóniin álítur breytingar
]>ær, sem bandamenn lcrefjast að
gerðar verði á stjórnarskrá ríkis-
uis algerlega ónauðsynlegar.
cJ’riéarsRilmálar
cfiusfurríRis
Khöf’n 4. sei>t.
Frá Berlín er símað að Austur-
'ikismenn álíti friðarskilmála þá,
Sem bandamenn hafi sett þeim al-
8jörlega eyðileggandi fyrir landið.
Fjóðþingið liefir verið kvatt
Saman á laugardaginn til þess að
menn til að undirskrifa
Saiuningana.
Kliöfn 4. sept.
Það hefir verið stungið upp á
því að leggja alveg niður sjóvígin
við Kaupmannahöfn.
Verkfall hafnarmanna stendur
enn.
%3túmanar reiáir
Khöfn 4. sept.
Frá París kemur sú fregn að
Rúmenar ætli að neita að skrifa
undir friðarsamningana við Austur-
ríki. Bandamenn kunna þessu illa
og hafa í hyggju að slíta stjórn-
málasambaudið við Rúmeníu.
Alþingi.
Frumvarp.
Hækkun þingfararkaups.
Launamálanefnd neðri deildar
flytur frumvarp um þingfararkaup
alþingismanna. Hljóðar þiað svo:
1. gr. Alþingismenn skulu liafa
12 kr. þóknun daglega bæði fýrir
þann tíma, sem þeir sitja á Alþingi,
og þann tíma, sem fer til ferða að
heiman til þings og heim af þingi.
2. gr. Ferðakostnað fá alþingis-
menn, sem búsettir eru utan
Reykjavíkur, endurgoldinn eftir
reikningi. — Sameinað Alþing kýs
nefnd, sem úrskurðar þingfariar-
kaupsreikninga alþingismanna, en
foi’setar þingsins ávísa upphæðun-
um.
3. gr. Auk hinnar daglegu þókn-
unar fá alþingismenn sams konar
uppbót á henni eins og embættis-
menn landsins fá á launum sínum
samkvæmt launalögum.
4. gr. Gjöld samkvæmt lögum
þessum greiðast úr ríkissjóði.
5. gr. Lög þessi öðlast gildi 1.
jan. 1920. Þó skal dýrtíðaruppbót
sö, er um getur í 3. gr., greiðast frá
1. júlí 1919 af núverandi kaupi.
6. gr. Með. lögum þessum eru úr
gildi numin lög nr. 10, 22. okt. 1912,
um þingfararkaup alþmgismanna.“
Greinarger ð.
„Það virðist eltki þurfa að færa
rök fyrir því, að hækka þurfi þing-
fai’arkaupið, né fyrir því, að kaup
það, sem sett er í frumvarpið, sé
ekki of hátt, enda er það í samræmi
við liækkun og stefnu þingsins í
launamálinu. Vildi því nefndin
flytja frv. þetta eftir tiímælum
stjórnarinnar, en þó ekki með sömu
þókiiun eins og hún vildi.
Ekkert annað virðist rétt o,
sanngjarnt en að alþingismenn fái
endurgoldinn þann ferðakostnað,
sem þeir verða að greiða, og eina
ráðið til þess er að greiða hann eft-
ir reikningi, sanngjarnlega úr-
skurðuðum,“
Nefndarálit.
Bifreiðaskatturinn
hefir rekið upp höfuðið aftur. Nú
er komið svolátandi álit um málið
frá fjárhagsnefcd efri deildar, en
hjá honni hefir frv. verið síðan í
júlí:
„Fjárhagsnefnd, eða meiri hluti
hennar, hefir við athugun frum-
varpsins komist að fastri niður-
stöðu um réttmæti þess í aðalatrið-
íi.
Bifreiðum hefir fjölgað mjög ört
hér á landi á síðustu árum, er sýn-
ir ljóslega, að þær bera sig vel fjár-
hagslega; verður-því heldur naum-
ast móti mælt, að mannflutninga-
bifreiðar séu mjög arðvænlegar.
Eins og á stendur uú, bæði hvað
atvinnuveg þennan snertir og þörf
ríkissjóðs fvrir tekjuauka, verður
ekki annað séð en rétt sé og sami-
gjarnt að leggja nokkurn skatt á
bifreiðar, eins og aðrar þjóðir hafa
þegar gert.
En þar sem uefndin vill gæta sem
inestrar varúðar við skattálögur á
ennan sem aðra atvinnuvegi lands-
manna, telur hún rétt, að skattur-
inn sé lækkaður til muna frá því,
sem hann er í frumvarpinu, og legg-
ur því til, að það verði samþykt
með þessari
BREYTINGU.
Við 1. gr.
Fyrsta málsgrein orjist þannig:
Af bifreiðum, sem notaðar eru til
mannflutninga, skal greiða árleg-
an skatt í ríkissjóð eins og hér
segir:
Af bifreið fyrir 1 mann ... 100 kr.
Af bifreið fyrir 2 menn .. . 150 kr.
Af bifreið fyrir 3 menin ... 200 kr.
og' svo áfram þannig, að skattur-
inn vex um 50 kr. fyrir hvern
mann, sem bifreiðin rúmar, að með-
töldum bifreiðarstjóra, þó svo, að
skatturinn fari eigi fram úr 450 kr.
á bifreið.
Alþingi, 2. sept. 1919.
Guðm. Ólafsson,
skrifari og framsögum.
H. Steinsson.
Undirritaður telur eigi rétt að
leggja slíkan skatt og hér um ræðir
á bifreiðar, meðan vegir eru í jafn-
mikilli vanhirðu og nú.
Maguús Torfason,
form.“
Hngfandir í fyrradag.
Efri deild.
Frumvörp til laga um breytingu
á sveitarstjórnarlögunum og um
forkaupsrétt á jörðum urðu að lög-
um.
Br. á lögum um friðun fugla vís-
að til 3. umr.
Sömul. frv. til laga um landhelg-
isvarnir.
Til 'annarar umræðu var vísað
Frv. til laga um heimild til lög-
gildingar á fulltrúum bæjarfógeta,
til þess að gegna eiginlegum dóms-
störfuní o. fl. Frv. til laga um br.
á 1. gr. laga um laun háskólakeun
ara. Frv. til laga um lieimild fyrir
landsstjórnina til að leyfa íslands-
banka að auka seðlaupphæð þá, er
bankinn má gefa út. Og frv. til
stjórnarskrár konungsríkisins ís-
land.
Fundur stóð að eins í 40 mínút-
ur. Umræður því nær engar, nema
hvað forsætisráðherra lét stjórnar-
skránni fylgja nokkur orð til
nefndarinnar. Mintist hann á bú-
setuskilyrðið, og kvaðst ckki
muudu láta það mál taka frekar
til sín, en vekja kvaðst hann vilja
athygli nefndarinnar á ákvæðinu
um íslenzkukunnáttu, er neðri
deild samþykti. Lýsti hann því yf-
ir, að þetta ákvæði væri eftir eín-
um skilningi brot á sambandslögun-
um.
Neðri deild.
Kl. 9 árdegis hófst fundur. Fór
xá fram atkvæðagreiðsla um II.
kafla fjárlaganna. Voru allar br.
■till. fjárveitinganefiidar samþ.
nema utanfararstyrkur símamanna
—. 2000 kr. Viðurkendi deildin
>annig nauðsyn allra þessara fjár-
veitinga. Er oss eigi Ijóst, hvers
vegna þessi lítilfjörlegi styrkur til
síma.manna var feldur, og efumst
um að þingmönnum sé það sjálf-
um ljóst.
Kl. 1 liófust umræður að nýju.
Stóðu þ<er með litlum hléum til
kl. 12.
Pingfnndir í gœr.
Efri deild.
Afgr. var til neðri deildar frv.
til laga um liafnargerð í Ólafsvík
og breyting á hafnarlögum Vest-
mannaeyja.
Frv. til laga um löggiltar reglu-
erðir sýslunefnda um eyðing refa
varð að lögum.
Um breytingu á húsaskattslög-
unum urðu talsverðar ximræður.
Þingmaður ísfirðinga var frV.
mótfallinn,en atvinnumálaráðherra
mælti með því. Mun þingmanni ís-
firðinga hafa runnið í skap, þótt
vel færi hann með það sem endra-
nær. Var orðalag og framburður
að vanda slétt og fágað. Sagði
hann meðal annars, að fáir lygju
meir en um helming, en atvinnu-
málaráðherra og stjórnina hafði
hann í minnihlutanum. Frv. var
vísað til 3. xxmr.
Frv. til laga um lestagjald af
skipum var vísað til 2. umr. og fjár-
hagsnefndar.
Neðri deild.
Þar var framhald annarar um-
ræðu um fjárlögin. Fundur stóð í
4 tíma. Fór lengstur tími í atkvæða-
;reiðslu um breytingartillögur fjár-
veitinganefndar. Voru þær nær því
allar samþyktar. Drepin var þá
með 16 :16 atkv. tillagan um fjár-
veitingu til að senda íþróttamenn
á Olympíuleikana; er eins og skelf-
ingarótti grípi þingmenn hvert sinn
er það kemur til mála að sýna oss
sem sjálfstæða þjóð. Blóð húskarl-
anna, er forfeður vorir fluttu hing-
að, er trútt eðli sínu. —
Bannlagabreytingin
i erlendam blöðnm
2. umræða, sem nú er loks
hefir tekið afarlangan tíma
um vér liér nöfn þeirra, er
lopann, og ræðufjölda hvers
1. Jþn Magnússon ....
2. Sigurður Eggerz ....
3. Sigurður Jónsson ..
~)4. Magnús Pétursson .
5. Bjarni frá Vogi ...
6. Björn Kristjánsson
8. Einar Jónsson......
7. Björn Stefánsson ...
9. Gísli Sveinsson....
10. Jón Jónsson, Hvanná
11. Magnús Guðmundsson
12. Matthías Ólafsson .
13. Pétur Jónsson ....
14. Pétur Ottesen ....
15. Pétur Þórðarson ...
16. Stefán Stefánsson .
17. Sveinn Ólafsson ...
18. Sigurður Sigurðsson
19. Þórarinn Jónsson .
20. Þorleifur Jónsson .
21. Sigurður Stefánsson
22. Einar Arnórsson ..
tey
lokið,
Birt
g'ðu
4
11
2
. 5
. 4
. 3
1
3
. 5
1
1
2
3
6
Nýja Bió
Eftirlætiskona stórfurstans.
Indverskur sjónleikur i 4 þittum. Tekinn af Nðrdisk Films Co.
I
Aðalhlutverkin leika þessir alþektu og ígætu leikendur:
Lilly Jacobsson, Carlo Wieth og
Gunnar Tolnœs.
Þeir munu ógjarna gleyma þessiri mynd, er á hana horfa.
Margt ér talað og ritað um okk-
ur íslendinga nú. Við erum smám
saman að flytjast nær athygli er-
lendra þjóða. En fátt er það í fari
okkar nú, sem nágrannaþjóðirnar
hafa rekið eins tilfinnanlega aug-
un í eins og bannlagabreytingin í
xiiiginu.
I nær 40 blöðum, dönskum, norsk-
um og sænskum, úir og grúir af
feitum fyrirsögnum greina um
bannlagabrejdinguna, og rétt til
smekks skulu teknar upp nokkrar
fyrirsagnir, til þess að menn geti
séð hve mikilli virðingu andar af
>eim í garð þjóðarinnar yfir þessu
skynsamlegaý!) og merka (!) til-
tæki.
í „Esbjerg Posten“ stendur þessi
fyrirsögn yfir helztu bannlaga-
breytingunni: ..Jslandsk Gal'.niati-
as. Der drikkes Parfumer, Haar-
vand og Kogesprit.“ í „Vestsjæl-
lands Folkeblad“ : „500 kr. minst
for en Rus“. í „Nordsjællands
V enstreblad*
„Islænderne drik-
ker Parfuxne, Haarvand og Koge-
sprit“. í „Lolland-Falster Folke-
tideride“ : „Nu skal det være Alvor
]>aa Island! Afholdsfanatikerue
vil forbyde Indförsel af Parfume
og Haarvand!“ í Middelfarts
Venstreblad“ : „Islænderne maa
ikke drikke Haarvand!“. í „Dag-
ens Ekko“ ; „Islænderne drikker
Parfume, Haarvand og Kogesprit* ‘.
í „Politiken* 1 ‘ : „Islandsk Forbunds-
Fanatisme“ 0. s. frv. 0. s. frv.
1 „Landmandstidende“ byrjar
greinin á þessa leið: „Það er alt í
vitleysu á gömlu sögueyjunni. Hin-
ir góðu íslendingar hafa, meðan
þeir náðu ekki í glas af góðu víni,
glatt sig við hármeðul, ilmvötn og
annan hressaiidi vökva.“
Þetta sem nú er talið er minst af
þeim liæðnislegu og spottandi um-
mælum urn baimlagabreytingarnar,
sem erlend blöð eru Tull af. Það
er með Öðrum orðum auðséð, að
þetta frumvarp hefir ekki einung-
is gert okkur minkun helma fyrir,
heldur og aflað okkur óafmáan-
legrar smánar erlendis. Og grátleg-
ast er, að þingið okkar, sem á að
lialda sóma okkar og veg á lofti
og vera útvörður íslenzkrar menn
ingar, það skuli hafa orðið til þess
að kalla réttláta lítilsvirðingu ann-
ara þjóða yfir höfuð okkar.
FuHveldisviðurkenningin aflaði
okkur álits og samúðar. Nágranna-
þjóðirnar fögnuðu komu okkar í
tölu þeirra. En skyldi ekki geta
skeð, að bannlttgabreytingin sú
arna deyfði það álit og samíið 1 Við
getum tæplega búist við, að rnikil
virðing sé borin fyrir þeirri þjóð,
sem „repræsenterar" sjálfa sig
með þiugmönnum, er unga slíku út.
En ííú flýgur það um veröldina
hröðum fetum, að banna þurfi að-
flutniug á íslandi á háfmeðulum,
ilmvötnum og öðru slíku, vegna
þess að það sé drukkið þar. Og
að man öll þjóðin, að það eru
þingmennirnir hennar,' sem hafa
breytt þennan veglega hróður út
um liana.
-i.M
c
DAOBOK
Veðrið í gær.
Reykjavík: Logn, hiti 7,4 st.
Isafjörður: Logn, hiti 6,0 st.
Akureyri: Logn, 7,5 st.
Seyðisf jörður: Logn, hiti 6,6 st.
Grímsstaðir:. Logn, hiti 2,5 st.
Vestm.eyjar: A. stinn. gola, hiti 7,4 st.
Þórshöfn: SV. gola, hiti 10,0 st.
I. O. O. F. 101959.
í kvöld verður kept um „Knatt-
spyrnuhorn Islands“ (sbr. auglýsingu
hér í blaðinu í dag). Þátttaka af hálfu
knattspyrnufélaganna er óvenju lítil
í þessu móti og keppa eingöngu hin
ömlu og þrautseigu félög „Fram“ og
„K. R.‘ ‘. Má búast við miklu kappi
af beggja hálfu, þar eð „hornið“ verð-
ur nú fulleign „K. R.“, ef það vinnur
það í kvöld, en hins vegar mun „Fram‘ ‘
hafa mikinn hug á því að svo verði
eigi. Þetta verðúr að öllum líkindum
síðasti kappleikurinn á þessu ári milli
þessara félaga og má þvi vænta að
hinir mörgu knattspyrnuvinir þessa
bæjar f jölmenni á völhnn í kvöld. Það
mun eins reynast í kvöld .eins og ávalt
áður, að „spenningurinn“ er mestur
þegar þessi félög keppa.
„Gullfoss" fór fram hjá Cape Race
á þriðjudagskvöldið á leið hingað.
Samkvæmt loftskeyti frá skipstjóran-
um leið öllum vel um borð.
„Gylfi“ mun nú vera á leiðinni frá
Bretlandi. Með skipinu kemur Hárald-
ur Árnason kaupm. og frú hans, en
þau hafa dvalið í Bretlandi um hríð.
„Sterling" kom í gær að austan, úr
hringferð. Farþegar voru 135 á fyrsta
farrými og um 400 á öðru farrými og
þilfari. Á meðal farþega voru Jón
Sveinsson borgarstj. á Akurevri, Árni
•Jónsson verzlunarstjóri á Yopnafirði
og frú, Jón biskup Helgason og sonur
hans Hálfdán stud. theol., Ari Arn-
aids bæjarfógeti og frú hans, Krist-
ján Blöndal Sauðárkróki, Olafur Ó.
I.árusson læknir, Gunnar Olafsson
kaupm., frú Elín Einarsson Yest-
mannaeyjum, frú Friðgeirsson, læknis-
frú Lára Lárusdóttir, Johansen full-
trúi H. S. I. V., stabskapt. Grauslund
o. fl. o. fl.
Mb. Víkingur fór i gær til Horna-
fjarðar með vörur fyrir Þórhall Daní-
elsson kaupmann. Fór hann sjálfur
með bátnum austur.
„Ýmir“ kom til Hafnarfjaröar í
fyrradag, af síldveiðum nyrðra. Hefir
hann aflað 1700 tunnur. Um 70 far-
þegur voru með skipinu.
. í dag verður engin flugsýning, en
líkindi eru til að á morgun verði aug-
lýst farþegaflug, og gæti það orðið um
kl. 4 eða 5, þegar -ætla má að fólk
sé komið úr vinnu. Þó verður ekki með
vissu sagt nema farþegaflugið drag-
ist til sunnudags.