Lesbók Morgunblaðsins

Dagsetning
  • fyrri mánuðurmars 1950næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    2627281234
    567891011
    12131415161718
    19202122232425
    2627282930311
    2345678

Lesbók Morgunblaðsins - 12.03.1950, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 12.03.1950, Blaðsíða 1
10. tolublað. XXV. árgangur. Jttorgmilrliito im Sunnudagur 12. mars 1950. Hvernig Reykvíkingar eignuðust BARIMA8KÓ L A í húsinu til hægri var fyrsti barnaskólinn haidinn. Það er gamla lóskurðarstofa innrjettinganna, nú Aðalstræti 16. ÁRIÐ 1829 kom hingað nýr stipt- amtmaður, L. A. Krieger, og helt því embætti til 1837. „Mun trauðla annar landstjóri hjer hafa verið ástsælli landsmönnum og verður hans ætíð minst í árbókum vorum með virðingu og þakklæti,“ segir um hann í „Fjölni“. Reykvíkingar mega og sjerstaklega minnast hans fyrir drengileg afskifti hans af bæ- armálefnum. Hann kom á fót reglu- legri bæarstjórn fyrir kaupstaðinn, og að tilstuðlan hans var barna- skóli stofnaður hjer. Er efni þess- arar greinar að rekja í stórum drátt -um sögu barnaskólans frá upphafi og þangað til Miðbæar-barnaskól- inn var reistur. KONUNGSBRJEF (til Skálholts- biskups) um fræðslu barna, var gefið út 1790. Þar segir svo að öll börn skuli byrjuð á bóklestri áður en þau sje fullra 5 ára; kristin fræði eigi þau að byrja að læra áður en þau sje 10 ára og vera al- ment búin með barnalærdóm sinn þegar þau sje 14 ára. Var prestum falið að hafa eftirlit með þessu, en kenslan fór fram á heimilunum. Þótt Reykjavík hefði fengið kaup -staðarrjettindi 1786, var ekkert hugsað um það að koma hjer upp skóla. Barnafræðslan fór hjer fram á heimilunum, eins og annars stað- ar. Hinir svokölluðu borgarar, eða efnaðri menn, fengu kennara handa börnum sínum, en á heim- ilum fátæklinganna fengu börnin eigi aðra fræðslu en þá, er foreldrar eða heimafólk gat látið þeim í tje. En eftir því sem fólki fjölgaði í bænum og fleira glapti fyrir börn- unum, þóttust menn verða varir þess, að þau yrðu eftirbátar barna í sveitum. Fyrsti vísir til barnaskóla í Reykjavík er sá, að Helgi G. Thord- ersen, síðar biskup, tók að sjer að kenna nokkrum börnum veturinn 1819—20. Hann var þá nýkominn frá háskólanum. En það fell niður aftur og leið svo enn nokkur tími að ekkert var hugsað um barna- fræðsluna fram yfir það sem til- skilið var. Árið 1827 varð Gunnlaugur Odds

x

Lesbók Morgunblaðsins

Gerð af titli:
Flokkur:
Gegnir:
ISSN:
1670-3898
Tungumál:
Árgangar:
84
Fjöldi tölublaða/hefta:
4069
Skráðar greinar:
1
Gefið út:
1925-2009
Myndað til:
17.10.2009
Útgáfustaðir:
Efnisorð:
Lýsing:
Greinar um menningarmál, bókmenntir
Styrktaraðili:
Aðalrit:

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað: 10. tölublað (12.03.1950)
https://timarit.is/issue/240596

Tengja á þessa síðu: 141
https://timarit.is/page/3278903

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

10. tölublað (12.03.1950)

Aðgerðir: