Dagur - 12.02.1918, Blaðsíða 1
DAGUR
kemur úí tvisvar í mán-
’uði og kostar 2 kr. árg.
Gjaldd. 1. júlí.
DAGtni
^K# Ritstjóri: Ingimar Eydal.
AFGREIÐSLU-
og innheimtumaður:
Ráðhússtíg 4.
Lárus J. Rist. Talsími 31.
I. ár.
777 lesendanna.
Til skamms tíma hafa íslendingar
skipast í stjórnmálaflokka eftir af-
stöðu þeirra til deilumálanna við
Dani. Á þeim dögum stóðu sam-
bandsmál og stjórnarskrármál efst á
blaði hjá forgöngumönnum flokk-
anna.
Á þessu hefir orðið breyting á
allra síðustu árum. Þó að gömlu
flokkanöfnin sjeu enn við líði.þá eru
þau ekki annað en dauður bókstaf-
ur, er enga þýðingu hefir fyrir
stjórnmálalífið í landinu. Gömlu
deilumálin eru úr sögunni, að minsta
kosti fyrst um sinn.
Fyrir rás viðburðanna er það
verslunarmálið í víðustu merkingu,
sem öðrum málum frernur er orðið
að þungamiðju í ræðu og riti. Pað
mál sýnist ætla að verða grundvöll-
ur nýrrar flokkaskipunar í landinu,
þó enn sjeu þeir ftokkar ekki form-
lega fastir.
Að nokkru leyti er það styrjöld-
in mikla, sem þessu veldur. Lands-
verslunin, þetta nauðsynlega bráða-
birgða fyrirkomulag, er til varð að
grípa á þessum neyðartímum, er ein
af afleiðingum ófriðarins.
í raun og veru eru ekki nema
tveir flokkar hjer í Iandi nú sem
stendur. Annarsvegar eru flestir
kaupmenn og þeirra fylgifiskar í
skoðunum, sem er illa við lands-
verslunina og í nöp við samvinnu-
stefnuna.
Hinumegin eru þeir, er telja lands-
verslunina þjóðarnauðsyn, meðan
stríðinu ekki slotar, og þeir sem
unna samvinnuhugsjóninni.
Pessar tvær ólíku hugarstefnur,
Akureyri 12. febrúar 1918.
sem hjer hefir verið vikið að, setja
mót sitt á meðferð og framkvæmdir
flestra mála á þessum ttmum, þó
þau heyri ekki beint undir verslun-
armálið. Má þar til nefna dýrtíðar-
ráðstafanir og margt fleira.
Einhvernveginn hefir það atvik-
ast þannig, að flest blöðin hafa
hneigst til fylgis við kaupmanna-
stefnuna. Par á meðal eru bæði
Akureyrarblöðin.
Ýmsir áhugasamir menn hjer
norðanlands, sem ekki geta felt sig
við hugsunarhátt kaupmannasinna,
hafa fundið sárt til þess, hve baga-
legt það væri að eiga ekki ráð á
blaði hjer á Akureyri, er þeir gætu
birt skoðanir sínar í. Hefir þeim
fundist þeir stæðu varnarlausir gegn
árásum á stefnu þá, er þeir aðhyll-
ast. Samtök hafa myndast í því skyni
að ráða bót á þessu. Árangur þeirra
samtaka er blað það, er hér birtist
Pað er ekki litlum vandkvæðum
bundið að ráðast í útgáfu blaðs á
þessum tímum. Verðfall peninganna
kemur niður á blöðunum ekki síð-
ur en annarsstaðar. Pappír og prent-
un hafa stigið gríðarlega í verði eins
og vænta má. Til þess að reisa sjer
ekki hurðarás um öxl, hefir það ráð
verið tekið að láta blaðið fyrst um
sinn koma út á hálfsmánaðar fresti
og hafa það í litlu formi. Megn
pappírsskortur veldur þó ekki minstu
hjer um. Ganga má að því vísu, að
margir muni meðal annars finna
það að þessu blaði, hvað útgáfa
þess sje í smáum stíl. En vel eru
þeir sömu beðnir að athuga erfið-
leikana, sem hjer er drepið á. Beðnir
eru menn líka að minnast blaðanna,
er út voru gefin hjer á landi fyrir
1. blað.
ekki lengri tíma en 20 tii 30 árum.
Pá voru þau ekki mikil fyrirferðar
og ljetu menn sjer þó nægja. Menn
verða að temja sjer nægjusemi nú
á þessum erfiðu tímum. Nokkur
huggun ætti það líka að vera les-
endum blaðsins, að einhvernveginn
leg9t það í aðstandendur þess, að
kaupmenn finni ekki hjá sér sterka
hvöt til að styðja það með auglýs-
ingum, svo að rúm þess mun að
mestu upp tekið af almennu Iesmáli.
Með þessu er þó alls ekki gefið í
skyn, að tilgangur þessa blaðs sje
sá að sýna kaupmannastjettinni neinn
fjandskap, því það vill ræða hvert
mál ofsalaust, en þó með fullri hrein-
skilni og einurð, hver sem í hlut á.
Tekið skal það hjer fram, að svo
virðist sem landstjórn sú, er nú sit-
ur að völdum, verði á stundum fyrir
mjög ónærgætnum, ómildum og
jafnvel algerlega röngum dómum og
ásökunum úr ýmsum áttum, fyrir
framkvæmdir sínar og ráðstafanir.
Petta verður að teljast illa farið, og
mun því blað þetta bera hönd fyrir
höfuð stjórnarinnar, þegar hún er
höfð fyrir rangri sök eða gerðir
hennar rangfærðar eða lagðar út á
verri veg. En átalið mun á hinn
bóginn það, er henni ferst óhönd-
ulega.
Að öðru leyti skal hjer ekki fjöl-
yrt um stefnu blaðsins. Hún kemur
smásaman í Ijós í greinum þeim,
er blaðið flytur. Lesendum mun líka
skiljast af því, sem nú er fram tek-
ið, hver stefnan muni vera um það,
er flestum þykir mestu máli skifta
nú sem stendur.
Pað gefur að skilja, að rúm blaðs-
ins leyfir ekki að flytja langar rit-