Tíminn - 09.02.1945, Blaðsíða 3

Tíminn - 09.02.1945, Blaðsíða 3
21. blað TlMIM, föstwdagimi 9. febr. 1945 Björn Stefánsson, kawpfélagsstjjórt í Sttiðvarfirfti: Launavínna og iramleiðslustörf Flestir munu viðurkenna, að minnsta kosti í orði, að fram- leiðslan til lands og sjávar séu þeir hornsteinar, sem velmegun þjóðarinnar hvílir á. Útflutn- ingsverðmæti okkar eru mest afurðir framleiðslunnar við sjó- inn. Og þó að hlutur landbún- aðarframleiðslu okkar af út- fluttum vörum sé miklu. minni en sjávarútvegsins, þá véfengja fáir þá stórmiklu þýðingu land^ búnaðarins við að afla lands- mönnum þeirra neyzluvara, sem sízt má án.vera. Lítið 'en ljóst dæmi um hvers virði landbún- aðarvörurnar eru okkur, er það óskapa umtal og eftirspurn, sem nú er eftir íslenzku smjöri í flestum eða öllum bæjum og þorpum landsins, þar sem smjörið fullnægir sízt allra landbúnaðarvara neyzluþörf landsmanna. En nærri má geta, hvort borizt væri betur af, ef það væri mjólkin eða jafnvel kindakjötið okkar, sem mestur væri skortur á. Og eitt er víst, að öll, hvar í stétt eða stöðu, sem við stöndum, fáum við okkar lífs- framfærslu beint eða óbeint frá framleiðslunni. Stöðvist framleiðslan eða dragist verulega saman, þrjóta fyrr en varir möguleikar til góðrar lífsafkomu hjá ölfum stéttum þjóðfélagsins. Hvernig ef svo búið að fram- leiðendum þessa lands, eða fólkinu, sem vinnur fram- leiðslustörfin; fiskimönnum og bændum? Því er fljótsvarað. Það er þannig búið að þeim, að þeim fækkar árlega, misseris- lega og jafnvel mánaðarlega, sem fást til að stunda þessi störf. Ástæður fyrir þessu eru eflaust ýmsar. Meðal annars sú ómennsku- og óheillaskoðun, sem állt of margt fólk hefir drukkið í sig, sennilega um ára- tugi og jafnvel aldir, svo að .segja með móðurmjólkinni, að það sé eitthvað fínna og meira að komast að því að vinna við einhvers konar skriftir eða snúninga*með hvítt um hálsinn, en að gerast, eins og stundum er sagt, „bara“ bóndi eða sjómaður Og því er svo átakanlega oft gleymt, að það er sá, sem er „bara“ duglegur sjómaður eða bóndi, sem við eigum sem ein- staklingar og þjóð meira að þakka lífsafkomu okkar og efna- legt sjálfstæði en máske stund- um heilum hóp af ýmis konar öðru fólki. En lang-veigamesta ástæðan fyrir flóttanum frá framleiðsl unni á síðustu tímum, er eflaust sú, að flest launavinna er nú miklu betur borguð, gefur meiri telcjur, en framleiðslustörfin yfirleitt. Mun þó mega undan- skilja fiskimenn þá, er vinna að staðaldri á togurunum. Tekjur þeirra eru yfirleitt allmiklar, encía því dýra verði keyptar, að þurfa langoftast að dvelja fjarri heimili sínu og ástvinum. Og þó að vitað sé, að tekjur bænda og sjómanna séu nú yfir- leitt meiri en þær hafa máske nokkurn tímá áður verið, þá nægir það alls ekki til að binda menn við þessi störf. Samkvæmt rótgrónu eðli eru menn ánægðir eða óánægðir með kjör sín, allt eftir samanburðinum við kjör annarra. Og allflestir leitast við að sitja við þann eldinn, sem bezt brennur. Ástæðan fyrir flóttanum frá framleiðslunni er því fyrst og fremst ósamræmið í kjörum þeirra, sem taka föst ákveðin laun fyrir störf sín, og hinna, sem starfa við fram- leiðsluna og eiga tekjur sínar allar undir afkomu hennar. Þessa fáu mánuði síðan lýð- veldi var stofnað á íslandi hefir varla á öðru meira borið en stöðugum áskorunum og á- tökum að hækka kaup launa- manna í landinu. í flestum eða öllum þorpum hér á Austur- landi hefir á tímabilinu frá 1. október til áramóta kaup við daglaunavinnu verið hækkað um 20%. Þótti þó flestum og jafnvel daglaunavinnumönn- unum sjálfum kaupgjaldið hátt áður. Kröfurnar um kauphækkr anir munu yfirleitt hafa verið rökstuddar með því, að aðeins væri verið að leiðrétta misræmi með því að „samræma" kaup þess staðar við kaup og kjör annarra staða eða stétta. Og þá hefir alltaf verið miðað við það hæsta, sem þekktist. Hér á Austurlandi mun kaup- gjaldið á Seyðisfirði hafa verið tekið til fyrirmyndar. En þar mun í sumar hafa verið greitt hærra daglaúnakaup en annars staðar austan lands. En það háa kaupgjald mun sízt hafa verið eða verða lyftistöng líf- ræns atvinnulífs eða bættrar afkomu Seyðfirðinga. Þvert á móti eru nú þegar að koma í ljós hér á Austfjörðum aðrar af- leiðingar af hinu háa og síhækk- andi kaupgjaldi. Aldrei fyrr mun hafa verið jafn erfitt að manna báta á Austfjörðum til fiskveiða og fyrir þá vetrarver- tíð, sem nú er að hefjast. Og þó að gefnar séu vonir um jafn hátt fiskverð eða hærra en að undanförnu, þá vilja margir á útgerðarstöðunum heldur vinna í landi fyrir ákveðið kaup. Síð- ustu vertíð báru þeir yfirleitt meira úr býtum, sem höfðu stöð- uga landvinnu, en hinir, sem á sjónum voru, og nú er kaup mun hærra og hækkandi vísitala, sem gefur vonir um enn fleiri krón- ur. Hvar sem von er um veru- leg vinnusnöp á föstum laun- um, hópast menn að. Það skal að vísu fúslega ját- að, að kjör daglaunamanna eru ekki öfundsverð eða of góð. At- vinna þeirra er oft stopul eða óviss. En of hátt kaupgjald er sízt lækning þeirra meina, því að engum er of hátt kaupgjald eins hættulegt og einmitt dag- launavinnumönnunum sjálfum. Ef framleiðslan minnkar fyrir of hátt kaupgjald, nálgast ó- hjákvæmilega atvinnuleysið. Að ákveða kaupgjald það hátt á einhverjum stað, að öll launa- vinna verði eftirsóttari en framleiðslustörf, er ekkert ann- að en að grafa undan eigin fót- um, hvað sem líður „samræmi" við kaup á öðrum stöðum. Eini sanni mælikvarðinn, sem miða á kaupgjald við á hverjum stað, eru algengustu tekjur manna þar við framleiðslustörf- in. Hin svonefnda verkamanna- eða daglaunavinnumannastétt er fjölmenn orðin í landinu okk- ar. Meðal annars af völdum er- lenda setuliðsins qg óeðlilegs peningaflóðs, er fjöldi þeirra manna, sem hyggjast að lifa af hátt borgaðri en óvissri vinnu, orðinn uggvænlega mikill. Það er mjög mannlegt að bæta. að- stöðu sína meðan þess er kost- ur. Mönnum er gjarnt að líta á stundar haginn. — En annað fyrirbrigði er furðulegra: að hið háa Alþingi skuli nú vera að undirbúa, að því er bezt verður skilið af þingfréttum, stórkost- lega hækkun á launum starfs- manna ríkisins. Launalaga- frumvarpið mun að vísu frann borið með það í huga, að minnsta kosti af einhverjum flutningsmanna þess, ’ að sam- ræma laun hinna ýmsu starfs- manna og bæta þeim, sem allra verst væru launaðir. En í með- förunum virðist daglauna-„sam- ræmið“ hafa verið tekið til fyrirmyndar: að miða aðeins við það hæsta sem þekktist. Eftir lauslegum útreikningum, sem borizt hafa, hækka útgjöld ríkisins um 6—8 miljónir króna á ári, ef frumvarpið nær fram að ganga. „Dýr myndi Hafliði allur“, stendur þar. Dýr verður hækkun launa íslenzku embætt- ismannanna og annarra fast- launamanna, sem sigla munu í kjölfarið. Mun ekki hin fjöl- menna verzlunarmannastétt fljótt vilja samræma sín laun við þessar og þvílíkar hækkan- ir? Og fleiri munu á eftir fara. Fastlaunamenn á landi hér hafa á undanförnum árum staðið fast saman og verið harðfylgnir við að knýja fram launahækkanir. Hafa óspart heyrzt frá þingum hinna ýmsu starfsmannasam- banda háværar raddir um brýna nauðsyn á bættum kjör- um. Og kröfurnar hafa verið heyrðar, og laun margra starfs- manna ríkisins sem annara, •verið smá-hækkuð. Það er ef- laust vandi fyrir ríkisvaldið að dæma um samræmi í kaupi og kjörum starfsmanna, þar sem flestir þykjast órétti beitj;ir. Ég held, að hyggilegast væri að láta fólkið í landinu sjálft dæma BÓKMENNTIR OG LISTIR Kennslubók í ilugí milli manna. En ekki mun nú fremur en fyrr skorta fólk í fastar launastöður á landi hér. En það vantar fleira dugandi fólk að framleiðslustörfunum. Sú hætta, að ekki fáist nógu margt af dugandi fólki til að vinna að framleiðslustörfunum í landinu, vofir nú yfir fremur en nokkru sinni fyrr. Það þarf áreiðanlega allt annað en stórkostlegar hækk- anir daglauna og fastalauna til að vinna á móti þeirri hættu. Og það er skylda vaMhafa þjóðarinnar að gæta mestu var- færni við hækkanir á launum við þau störf, sem nú þegar eru eftirsótt af öllúm þorra þjóðar- innar, ekki sízt á meðan mikil óvissa ríkir um möguleika ríkis- valdsins til þess að ráða nokkru um bættan hag til handa þeim, er vinna að framleiðslunni. Það er auðveldara að hækka laun en lækka þau aftur. Lækk- un á grunnlaunum, sem einu sinni hafa verið samþykkt, mun lítt þekkt fyrirbrigði hér á landi. Það er fullvíst, að kjör fram- leiðendanna verður að bæta frá því, sem nú er, en ekki hækka enn laun annarrá stétta á þeirra kostnað. Okkur er mikil þörf á nýjum bátum og skipum til eflingar fiskveiðunum og stórvirkum vél- um við landbúnaðarstörfin. En bátar og vélar eru einkis virði án handa og huga fólksins, sem á að vinna með þeim. Atvinnu- málaráðherrann minntist í út- varpsræðu í haust á þá miklu nauðsyn, sem það væri fyrir þjóðina að eignast fleiri dug- andi sjómenn. Upplýsti hann þá um leið, að ekki væri víst, að hægt yrði að halda út þeim fáu Svíþjóðarbátum, sem von er á, vegna vöntunar á vélamönnum. Þetta er augljóst öllum hugs- andi mönnum. Launamennirnir eru of fjölmennir i landi okkar, en framleiðendur of fáir. En breyting á því fæst aðeins með því, að af fullri einlægni sé reynt að bæta og tryggja kjör íslenzkra fiskimanna og bænda. Og út frá kjörum þeirra starfandi manjia, sem þjóðin má sízt án vera, á að samræma laun annarra Nýlega er út komin á íslenzku kennslubók í flugi, fyrsta bók þeirrar tegundar, sem gefin hefir verið út hér á landi. Ber vel að fagna þessu kveri. Nú fara sennilega i hönd áþekkir byltingartímar i íslenzkum samgöngumálum og þegar bif- reiðirnar komu til sögunnar, og er þá nauðsynlegt, að ungum mönnum gefist með auðveldu móti kostur á að kynna sér undirstöðuatriði flugtækninnar. Agnar Kofoed Hansen, flug- málaráðunautur ríkisins, skrif- ar formála að bók þessari. Segir hann þar: „Höfundur bókarinnar, Frank A. Swoffer, hafði þá, er hann skrifaði bók þessa, að baki sér lengri reynslu sem flugkennari, en flestir aðrir. Hafði hann starfað að flugkennslu hjá Royal Air Force og fjölmörgum einka- fyrirtækjum. Herra Árni Bjarnarson frá Akureyri hefir annazt útgáfu þessa og tekizt ágætlega, þrátt fyrir óteljandi örðugleika, t. d. fátækt íslenzkrar tungu á flug- tæknilegum orðum og hugtök- um. Dugnaður og áhugi Árna Bjarnarsonar á þvi að koma bók þessari út er íofsverður og mik- ill skerfur til hina ungu flug- mála þjóðar vorrar. Væntanlegur lesandi kann að spyrja að tvennu. í fyrsta lagi: Er ekki vita þýðingarlaust að ætla að læra flug með því að lesa t. d. „Lærðu að fljúga“. í öðru lagi: Er til nokkurs, fyrir aðra en þá, sem ætla sér að verða atvinnuflugmenn, að læra flug hér á íslandi. Á einkaflug nokkra framtíð fyrir sér, eru ekki einkaflugvélar of dýrar og skilyrði hér of óhagstæð. Fyrstu spurningunni vil ég svara með þvi að benda á, að enginn mun hafa lesið sér til sundkunnáttu svo að hann gæti bjargað lífi sínu úr sjávarháska eða yfirhöfuð fleytt sér. Og svip- uðu eða sama máli gegnir um flugið. Þó þekkti ég mann, sem margoft flaug lítilli flugvél, án annarrar tilsagnar en þeirrar, sem hann aflaði sér með lestri flugbóka. Maður þessi er Dani og átti til skamms tlma heima í Vordingborg á Suður-Sjálandi í Danmörku. Þetta dæmi er alls ekki tekið um, hvernig skipta eigi launum I manna í landinu. á það bent, sem sönnun fyrir notagildi flugkennslubóka. Svar við annarri spurningunni er þetta: Fyrir réttum sex árum flugu tvær tveggja sæta einkaflugvél- ar kringum land í könnunar- skyni og lenti á 38 stöðum viðs vegar um landið. Enginn þess- ara staða hafði áður verið kann- aður, því síður mældur eða af- markaður á nokkurn hátt. Síðan þetta skeði hafa um 100 lend- ingarstaðir bætzt í hóp hinna 38, og sú er spá mín, að strax begar yfirstandandi ófriði lýkur og hægt verður að hefja skipu- lagsbundið könnunarstarf að nýju, tvöfaldist þessi tala á skömmum tíma. Langflest hyggðarlög á íslandi hafa sjálf- gerða lendingarstaði fyrir einka- flugvélar. Eldsneytiskostnaður flugvél- pnna tveggja, sem fóru í kring- um land 1938, var mun minni heldur en ef tvær bifreiðar hefðu farið svipaða vegalengd. Þetta kann sumum að virðast ótrú- legt, en það er eigi að síður staðreynd. Einkaflugvélar kostuðu í Bandaríkjum Norður-Ameríku, fyrir stríð um 1000—1500 $ þar á staðnum eða í íslenzkri mynt um 6.500 til 10.000 kr. Eftir bessa styrjöld mun hafin fjölda- framleiðsla einkaflugvéla, og verð þeirra verða stórum lægra en áður. í dag kaupa vel stæðir íslend- ingar einkabifreiðar fyrir 25—40 búsund kr. Kostnaðarhliðin ætti því ekki ■ að þurfa að vera til fyrirstöðu. Landið okkar er framtíðar- land einkaflugsins, það verðum við að gera okkur ljóst, Þeir, sem nú aka í -einkabifreiðum um landið þvert og endilagt í hol- óttum og meistaralega bugðótt- um vegum, munu í framtíðinni, og ef til vill^mjög náinni fram- tíð, kljúfa loftið í eigin einka- flugvél, og skjótast stað úr stað svipað þvi er getur í æfintýrinu „Þúsund og ein nótt“.“ „Lærðu að fljúga“ er 126 blað- siður að stærð, þýdd af Helga Valtýssýni, kennara á Akureyri, búin fjölda skýringamynda. Hún kostar 17 krónur óbundin, en 25 krónur í bandi. — Útgef- andi er, eins og áður getur, hér til eftirbreytni, en aðeins Árni Bjarnarson á Akureyri. Dr. Jón Jóhawnessow: Eftírlíftsierð Ludvig’s Harboes 1741—1745 Hér birtist síðari hluti greinar dr. phil. Jóns Jóhannes- sonar um eftirlitsferð Ludvigs Harboes til íslands 1741—45. Rekur hann hér fyrirmæli þau og tilskipanir, sem spruttu af íslandsför Harboes og starfi hér, og drepur á önnur af- skipti hans og íslenzkum málum. En komu hans hingað má telja upphaf þeirrar viðreisnarbaráttu, er siðan hefir verið háð hér á landi. Af tillögum Harboes spratt síðan fjöldi lagaboða og fyrir- mæla frá konungi á árunum 1742—1746, og skal hér' getið hinna merkustu. Flest voru þau mótuð af heittrúarstefnunni, en sum stefndu jafnframt að því að samræma kristnihald og kirkjusiði á íslandi og í öðrum ríkjum Danakonungs. Þó varð ekki hjá því komizt að laga sumt eftir íslenzkum staðháttum. Þeir Harboe og Jón rektor höfðu báð- ir mikinn áhuga á fræðslu- og skólamálum og lögðust á eitt með að fá ráðið bót á þeim. 1743 kom út konungsboð um nýja skipan latínuskólanna. Áð- ur höfðu biskuparnir verið ein- ráðir um stjórn þeirra að heita mátti, en nú voru völd þeirra skert og lögð að nokkru leyti í hendur stiftamtmanns, lög- manna og landfógeta. Með þvi átti að tryggja það, að skólun- um yrði haldið í réttu horfi. Nokkrum námsgreinum skyldi bætt við, þótt lítið yrði úr því. Meðal annars skyldi nú kennd íslenzka, enda studdu heittrú- armenn hvarvetna að notkun móðurmálsins, þótt það væri fyrst og fremst vegna barna- fræðslunnar. Um margt annað var skólaskipan þessi til bóta, ef farið hefði verið eftir henni í öllu. Síðar (1746) voru sett fyr- irmæli um viðurgerning og að- búnað skólapilta, en þau urðu að mestu dauður bókstafur sök- um vaxandi fjárhagsörðugleika biskupsstólanna. — 1744 komu ný konungsboð um fermingu og kristindómsfræðslu barna. Þess má geta, að lengi vel voru börn fermd á ýmsum aldri, er þau þóttu hafa öðlazt næga þekk- ingu, en 1759 var bannáð að ferma börn yngri en 14 ára. 1746 kom út tilskipun um hús-- vitjanir presta. Þæf höfðu tíðk- azt frá því á dögum Gísla bisk- ups Jónssonar og verið lögboðn- ar 1635, en löngum mjög van- ræktar. Nú var prestum lagt ríkt á herðar að húsvitja eigi sjaldn- ar en tvisvar á ári á hverjum bæ og líta vel eftir kristindóms- þekkingu almennings og sið- ferði. Harboe ■ lagði mikla stund á að bæta siði manna, eigi ein- ungis með áminningum á eftir- litsferðum sínum, heldur einnig með því að afla lagaboða í þeim efnum. Þau voru mjög mótuð af heittrúarstefnunni, og var markmiðið að setja helgiblæ á líf manna, jafnt á rúmhelgum sem helgum dögum. 1744 kom tilskipun um helgidagahaldj. Var þar brýnt fyrir mönnum að sækja kirkju sem bezt, vinna eigi nema hið bráðnauðsynleg- asta á helgum dögum og forðast gleðskap. Þá urðu skírdagur og föstudagurinn langi fyrst lög- helgir dagar. Hins vegar urðu ýmsir þjóðlegir kirkjusiðir og helgikvold að þoka til samræmis við það, sem tíðkaðist í öðrum löndum Danakonungs. Þá var afnumið helgihald á jólanótt, er var leifar aftan úr kaþólsku. Hafði þá verið messað og síðan hafður ýmiss konar gleðskapur í frammi, átveizlur og dans, unz leið aftur að messu á jóladag. Margar menjar þessa helgihalds eru í þjóðsögum, en lítt mun heittrúarmönnum hafa getizt að því, þótt líklegt sé, að farið hafi verið að draga úr gleð- skapnum löngu fyrir daga Harboes. Sumardagurinn fyrsti og fyrsti vetí-ardagur höfðu, verið haldnir hálfhelgir sums staðar norðan lands og e. t. v'. víðar, og var messað þá daga. Sú helgi var nú afnumin. Hún mun hafa verið ævaforn, senni- lega leifar sumar- og vetrar- blóta í heiðni. Enn fremur var þá af tekinn hinn forni heit- dagur Norðlendinga eða ein- mánaðarsamkoma, er-haldin var fyrsta dag einmánaðar í Skaga- fjarðarsýslu (nema austan á Skaganum), Eyjafirði og í Reykjadal. Bændur komu sam- an þann dag að vissum kirkj- um til frj'álsra samskota handa fátækum, og var þá messað. Samskotin og messan voru sprottin af heitum, er gerð höfðu verið í sóttum eða hallærum einhvern tímann í kaþólskum sið, en oft endurnýjuð síðan með ýmsum breytingum. Upphaflega mun einmánaðarsamkoman hafa verið hreppsþing. í Ljós- vetningasögu er hennar getið á fyrra hluta 11. aldar, en senni- lega hefir hún verið miklu eldri. Norðlendingar tóku afnámi þessara helgihalda heldur illa, einkum afnámi heitdagsins. Þeir reyndu að fá hann leyfðan aftur 1755, en árangurslaust. Sums staðar höfðu héraðs- og manntalsþing verið haldin 1 kirkjunum, en það var nú bannað. 1746 kom út löng tilskipun um heimilisaga. Þar gætir ákafrar vandlætingar. Menn voru hvattir til þess að sýna jafnan guðrækni, góða siði og vinnu- semi, en forðast skemmtanir, jafnvel lestur fornsagnanna og rknnakveðskap. í tilskipuninni um húsvitjanir var prestum einnig falið að líta eftir þeim efnum. Slík vandlæting gekk auðvitað úr hófi fram, enda bar hún lítinn eða engan árangur. Hinar veraldlegu bókmenntir voru svo samgrónar þjóðinni, að engin boð fengu hana til að hafna þeim. Á fyrra hluta 17. aldar hafði brennivín fyrst tekið að flytj- ast hingað að ráði, en innflutn- ingur þess jókst síðan stöðugt. Við það óx drykkjuskapur svo úr hófi, að menn voru jafnvel út úr drukknir á opinberum mannfundum- og við embættis- störf. Jón biskup Árnason hafði tvisvar sent erindi til konungs í því skyni að fá bót ráðna á þessu, en árangurslaust. Harboe blöskraði svo drykkj uskapurinn hjá öllum stéttum, að hann tók málið upp af nýju. Helzt vildi hann, að innflutningur brenni- víns yrði bannaður, en ef slíkt þætti ógerlegt, vildi hann láta takmark(a sölu brennivíns og leggja þungar refsingar við mis- notkun þess. En allar tillögur Harboes í þeim efnum strönduðu á' réttindum Hörmangarafé- lagsins. Kaupmenn þóttust ekki mega missa þann hagnað, er þeir höfðu af brennivínssölunni, enda héldu þeir áfenginu óspart að landsmönnum. Harboe þótti stjórn kirkju- málanna hvergi nærri nógu styrk eða festumikil, enda var örðugt um allt eftirlit. Af þeim sökum beitti hann sér einnig fyrir umbótum á því sviði. Þess er áður getið, að nokkur breyt- ing var gerð á stjórn latínuskól- anna 1743. En 1. júlí 1746 var gefið út erindisbréf handa bisk- upum beggja stólanna. Með því voru settar rækilegar reglur um öll embættisstörf þeirra, og er bréfið enn 1 gildi í ýmsum greinum. Þar var biskupum meðal annars boðið að sjá um, að prestar héldu kirkjubækur, bæði prestsverkabækur (min- isterialbækur) og húsvitjana- bækur (sálnareglstur), enn fremur kopíubækur. í þær skyldi skrá öll bréf, er prestum voru send, um kirkjumál og kristni- hald. í tilskipuninni um hús- vitjanir fná sama ári eru skýr fyrirmæli um húsvitjanabæk- urnar. Þar skyldi skrá þekkingu og siðferði hvers manns og guðs- orðabókaeign á hverju heimili. 1744 hafði prestum verið boðið að senda yfirvöldunum árlega fermingarskýrslur, og 1747 kom boð um kirkjustóla. Þar skyldi skrá eignir og tekjur hverrar kirkju, og komu kirkjustólarnir því í stað máldaganna, er tíðk- azt höfðu frá fyrstu dögum kristninnar hér á landi. Öll þessi fyrirmæli voru til þess sett, að auðveldara yrði en áður að hafa eftirlit með fjárhag kirkna,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.