Tíminn - 28.09.1945, Blaðsíða 3

Tíminn - 28.09.1945, Blaðsíða 3
73. blað TÍMEViy, föstndagmn 28. sept. 1945 ÖR SÖGU SIGLUFJARÐARMÁLSINS Þannig stjórnuðu kommúnistar kaupfélagsfundum Kaupfélag Siglfirðinga, sem er samvinnufélag, mun vera stofnaS á árinu^ 1929. Fyrst framan af mun félagiS hafa verið óskipt heild, þannig að á aðalfundum og öðrum félags- fundum höfðu allir félagsmenn atkvæðisrétt og kusu stjórn og aðra trúnaðarmenn félagsins beint. En fyrir nokkrum árum var þessu breytt þannig, að fé- lagssvæðinu, Siglufj arðarkaup- stað, var skipt í fjögur deildar- svæði, sem hvert um sig kusu fulltrúa á aðalfundi og félags- fundi félagsins, til eins árs í senn, í hlutfalli við fjölda félags- manna á deildarsvæðinu. Þessir fulltrúar höfðu einir atkvæðis- rétt á félagsfundum, en allir félagsmenn höfðu þó aðgang að þeim, málfrelsi og tillögurétt. Eftir núgildandi samþykktum K. F. S. skulu fulltrúar vera 1 fyrir hverja 10 deildarmeðlimi, en í reglum um kosningu deild- arstjórna og fulltrúa segir enn- fremur að auk þess skuli koma fulltrúi fyrir brot úr tug, sem sé 6/io eða stærra. Skulu fulltrúar þessir kosnir á aðalfundum deildanna, er halda skal í marz eða apríl ár hvert, hæfilega löngum tíma áður en aðalfund- ur kaupfélagsins er haldinn, en hann á að halda fyrir lok apríl- mánaðar ár hvert. Varafulltrúa skal kjósa eftir þörfum, sem- kvæmt samþykktum K. F. S., en í Reglum um kosningu deildar- stjóra og fulltrúa segir, að þeir skuli vera helmingi færri en aðalfulltrúar. Skulu varafull- trúar taka sæti aðalfulltrúa í forföllum þeirra eftir atkvæða- magni. — Á aðalfundum deild- anna skal og kjósa 3 menn í deildarstjórn og 3 til vara. At- kvæðisrétt á deildarfundi eiga allir félagsmenn á deildarsvæð- inu. Aðalfund deildanna skal boða með viku fyrirvara. Deild- arstjórn boðar deildarfundi, en vanræki hún það skal félags- formaður gera það. Á árinu 1945 voru aðalfundir deilda haldnir svo sem nú grein ir: Aðalfundur 1. deildar var haldinn 1. júní. í þeirri deild voru þá 167 félagsmenn og mættu á fundinum 85. Aðalfundur 2. deildar var haldinn 4. júní. í þeirri deild voru þá 167 félagsmenn og mættu 116 á fundinum. Aðalfundur 3. deildar var haldinn 5. júní. í þeirri deild voru þá 101 félagsmaður og mættu 54 á fundinum. Aðalfundur 4. deildar var haldinn 2. júni. í þeirri deild voru þá 192 félagsmenn og mættu 123 á fundinum. Gjörðarbeiðendur skýra svo frá, að vegna óánægju með stjórnarmeirihlutann í K. F. S. hafi andstæðingar sósíalista haft með sér kosningasamtök 1 deildunum og fengið kosna alla fulltrúa í 1., 3. og 4. deild félags- ins á aðalfundinn 1945, eða sam- tals 46 aðalfulltrúa og ennfrem- ur alla varafulltrúana í sömu deildum, samtals 23. Þó muni síðar einn eða tveir þessara full- trúa hafa helzt úr lest þeirra. Fylgismenn stjórnarmeirihlut- ans hafi hins vegar fengið kosna alla aðalfulltrúana í 2. deild 17 að tölu og einnig alla varafull- trúana í þeirri deild en þeir voru 8. Aðalfundur K. F. S. árið 1945 kom fyrst saman fimmtudaginn 7. júní. Dagskrá sú, er fyrir fundinum lá var þessi: 1. Athugun kjör- bréfa. 2. Bréf Ólafs H. Guð- mundssonar. 3. Skýrsla stjórnar. 4, Skýrsla kaupfélagsstjóra. 5. Skýrsla endurskoðenda. 6. Ráð- stöfun tekjuafgangs. 7. Erindi deilda. 8. Kosningar: a. einn maður í stjórn félagsins til þriggja ára í stað Kristjáns Sig- urðssonar (gjörðarbeiðanda), er úr gengur. b. Einn varamaður í stjórn til tveggja ára. c. Einn aðalendurskoðandi til tveggja ára. d. Einn varaendurskoðandi til tveggja ára. e. Tveir fulltrúar á aðalfundi S.Í.S. 9. Önnur mál. Kjörbréf virðast öll hafa verið tekin gild og deila aðilar ekki um það, að þarna hafi komið saman lögmætur aðalfundur K. F. S. Bókað er í fundarbyrjun að mættir séu 59 fulltrúar, en síðar á fundinum sýnir atkvæða- greiðsla, að mættir hafa verið þá a. m. k. 61 fulltrúi. Félags- formaður, Ottó Jörgensen, gjörð- arþoli, var fundarstjóri á fundi þessum. Eftir athugun kjör- bréfa var tekið fyrir brott- rekstrarmál Ólafs H. Guð- mundssonar,er lauk á þann hátt, sem þegar er greint*). Síðan kom fram fundarályktun nokk- ur, er síðan getur lítillega. Þá kom fram tillaga frá Halldóri Kristinssyni, gjörðarbeiðanda, svohljóðandi: „Fundurinn sam- þykkir að fresta aðalfundi til næstkomandi sunnudags kl. 15 og felur framkvæmdastjóra og stjórn að auglýsa fundinn að nýju og geta þess í fundarboð inu, að tillögur um lagabreyt ingar verði bornar fram.“ Aðra tillögu bar Halldór og fram á fundi þessum. Frumrit hennar hefir glatazt, án þess þó að félagsformaður hafi getað gert grein fyrir á hvern hátt það liefir skeð. Hafa gjörðarbeið- endur haldið fram, og félags- formaður ekki treyst sér til að mótmæla, að tillagan hafi.verið þannig: „Þar sem vitað er, að ýmsar ráðstafanir meirihluta stjórnar K. F. S. á s.l. starfsári eru ekki í samræmi við meiri hluta fulltrúa á aðalfundi K. F. 5. samþykkir fundurinn, að heimila ekki stjórn K. F. S., eða meirihluta hennar, að ganga frá leigusamningum eða gera aðrar bindandi samþykktir fyrir fé- lagsins hönd, nema með sam þykki meirihluta fulltrúa, þar til aðalfundi er lokið.“ Þessarar síðari tillögu Hall- dórs Kristinssonar er ekki getið í fundargerðarbókinni, en við- urkennt er, að hún hafi komið fram og telur Halldór að hann muni hafa afhent formanni báð- ar tillögur þær, er nú hafa verið greindar, samtímis, enda telja gjörðarbeiðendur tillögur þessar svo nátengdar, að þær hafi þurft að koma fram samtímis, þar eð ,sú síðari hafi eiginlega verið bein og eðlileg afleiðing af þeirri fyrri. Fundarstjóri telur hins vegar, að fyrri tillagan hafi komið fram, meðan stóð á um- ræðum um mál Ólafs H. Guð- mundssonar og að hún hafi ver- ið rædd að máli Ólafs afgreiddu. Meðan á umræðunum um frest- unartillöguna hafi staðið, hafi Halldór komið með síðari til- löguna. Halldór hafi talað þrisvar um frestunartillöguna og í síðustu ræðu sinni vikið að síðari tillögu sinni og lesið hana upp. Næsta tillaga, sem bókuð er, að hafi komið fram á fundi þess- um var frá Jóhanni G. Möller, svohljóðandi: „Fundurinn sam- þykkir að slíta nú þegar umræð- um um málið og ganga til at- kvæða um fram komnar til- lögur.“ Var sú tillaga borin upp og samþykkt með samhljóðá at- kvæðum. Neitaði nú formaður að bera undir atkvæði nema þenna hluta fresttillögunnar: „Fund- urinn samþykkir að fresta aðal- fundi til næstkomandi sunnu- dags kl. 15“ og var hann samþykktur með 15 samhljóða atkvæðum, en meirihlutafull- trúarnir sátu hjá, þar eð þeir töldu framferði formanns ólög- mætt. Síðari tillö'gu Halldórs Kristinssonar neitaði formaður með öllu að bera undir atkvæði. Að þessu loknu lét Halldór Krist- insson bóka eftir sér eftirfarandi mótmæli: „Um leið og ég neita fundarstjórn O. J. (formanns) í heild, þá leyfi ég mér að telja algerlega óheimilt að neita að bera fram tillögu mína alla eins og hún var lögð fram — og því verra eftir að fundarstjóri er búinn að bera upp tillögu Jóhanns Möller um að slíta um- ræðum og „ganga til atkvæða um framkomnar tillögur.“ Hefir Halldór,er hann gaf aðila skýrslu í málinu, að gefnu tilefni skýrt mótmæli þessi á þann veg, að með því hafi hann mótmælt því, að frestunartillagan var ekki borin undir atkvæði í heild svo og því að 'neitað var að bera undir atkvæði tillögu hans um takmörkun á valdsviði stjórnar- innar meðan á aðalfundi stæði, sbr. hin undirstrikuðu orð í mótmælunum: alla og fram- komnar tillögur. Virðist réttin- um og ekki um að villast, að skilja verði mótmælin á þann veg. Þess skal getið hér, að tvö vitni, er leidd voru í málinu, þeir Hlcðver Sigurðsson, barna- skólastjóri, og Ásgrimur Alberts- son, gullsmiður, báru það, að Halldór Kristinsson hafi í ræðu, er hann hafi haldið á fundinum, sagt frá því, að hann hefði feng- ið formanni tillöguna um tak- mörkun á valdsviði stjórnarinn- ar og jafnframt lesið hana upp á fundinum. Hafi hann skýrt svo frá, að formaður væri því andvígur, að hún væri borin upp. Er Halldór hefði skýrt frá þessu, hafi hann jafnframt lýst yfir, að hann félli frá því, að fá tillöguna borna upp á fund- inum, en myndi, að því er Hlöðvi skildist, taka málið upp aftur á framhaldsaðalfundi. Þessu hefir Halldór Kristinsson harðlega mótmælt og talið, að þetta mis- minni vitnanna muni stafa af því, er nú greinir: Hann hafi á fundi í H/f. Söltunarfélag kaup- félagsins talið vafasamt, að K. F. S. mætti eiga þar helming hlutafjár, en Þóroddur Guð- mundsson, gjörðarþoli, andmælt þeirri skoðun hans. Þessu hafi hann skýrt frá á fundinum 7. júní og þá jafnframt sagt, að hann myndi sætta sig við þetta í bili, en athuga það betur síðar. Hafi hann sagt frá þessu í sömu ræðunni og hann hafi verið að tala um valdatakmörkunartil- löguna í og því kveðst hann ímynda sér, að misskilningur vitnanna sé af þessu sprottinn. Enginn málsaðilja og engin vitni, önnur en þeir Hlöðver og Ásgrímur, virðast hafa skilið Halldór á þann hátt, er þeir gerðu. Af þeirri ástæðu svo og því að skýring Haldórs er mjög eðlileg, þykir, gegn andmælum hans, ósannað að hann hafi tek- ið aftur síðari tillögu sína. Þegar framangreind mót- mæli Halldórs höfðu verið bók- uð, var fundinum frestað svo sem samþykkt hafði verið. Félagsformaður og málflutn- (Framhald á 6. síðu) órinn í «.3áíendinaa-L ^J\a tinnicuiiiah öín íslendingar í Kaupmanna- höfn héldu uppi miklu og öflugu félagslífi á hernámsárunum og reyndu á þann hátt að bæta sér upp hina löngu og ströngu ein- angrun. íslendingafélagið starf- aði ötullega, útgáfa tímaritsins Fróns var hafin, lagður grund- völlur að smíði íslendingahúss og stofnaður fjölmennur kór, er gat sér góðan orðstír, svo að nefnd séu nokkur veigamikil atriði. Hér verður aðeins sagt stutt- lega frá íslenzka kórnum. Mun hugmyndinni um stofnun hans fyrst hafa verið hreyft opin- berlega á fundi í íslendinga- félaginu. Var bráðlega hafizt handa, og í febrúarmánuði 1943 stofnaði Axel Arnfjörð tónskáld, svo kórinn. Fékk hann í hann 30—40 manns, konur og karla, og æfði hann af mikilli elju, þrátt fyrir þá örðugleika, sem við var að etja. Kórinn söng síðan margsinn- is við hátíðleg tækjifæri, svo sem 17. júní og á öðrum sam- (Framhald á 6. síðu) íslenzki kórinn í Kaupmannahöfn. — í fremstu röð, talið frá vinstri: Am- dís Thoroddsen, Jóna Kristófersdóttir, Halla Snæbjörnsdóttir, Guðmunda Elíasdóttir, einsöngvari kórsins, Axel Arnfjörð, stjórnandi kórsins, Guðrún Njelsen, gjaldkeri kórsins, Sigríður Schultz, Jóhanna Jóhannesdóttir, — í miðröðunum: Herold Guðmuncjsson, Viðar Pétursson læknir, Guja Björns- son (kona Jóns Björnssonar rithöfundar), Ásta Hjartar, Sighvatur Bjarnason, Jónína Eyþórsdóttir, Bergur Jónsson, Lóa André, Jón Helgason stórkaup- maður, Guðrún Erlendsdóttir, Hjörtur Þorsteinsson verkfræðingur, for- njaður kórsins, Sigurbjörg Jónsdóttir, Ottó Michelsen, Rafn Jónsson, tannlæknir, ritari kórsins. — Aftasta röð: Leifur Jóhannesson, rakari, Einar Guðmundsson, Ólafur Albertsson, kaupmaður, Björn Snorrason, bókbindari, Eiríkur Magnússon, rafvirki, Ólafur Gunnarsson, kennari. — Myndin er tekin 17. júní. — Nokkra söngvara vantar á myndina. Stefám Jónsson: *) Sjá það, sem áður hefir verið birt í blaðinu úr dómsskjölunum. Skólamál sveitanna Stefán Jónsson námsstjóri gerir hér skólamál sveitanna að umræðuefni. Það er mikilvægt mál, sem þó hefir verið fremur hljótt um, að minnsta kosti innan vébanda kennarastéttarinnar sjálfrar. Á hinn bóginn verður bað aldrei leyst á viðunandi hátt nema þar leggist margir aðilar á eitt. Væri vel, ef fleiri vildu láta til sín heyra um þetta mál. Þegar Jón Sigurðsson forseti hóf baráttu sína fyrir frelsi og sjálfstæöi íslands, var þjóðin, 3ða meginþorri hennar, búsett í sveit. Krafa hans um fullt frelsi og sjálfstæði íslands byggðist fyrst og fremst á þessum aðal- rökum: 1. íslendingar eru af góðum stofni. — Þeir eru afkomendur dugandi landnámsmanna og af beim nefnir Landnáma um 400 og rekur ættir þeirra. 2. íslendingar hafa geymt og ritað sögu lands og þjóðar, og ekki eingöngu sögu sinnar eigin bjóðar heldur einnig sögu ann- arra Norðurlandaþjóða, og væri bar skarð fyrir skildi, ef íslenzk handrit hefðu ekki verið til. 3. íslenzk alþýða stendur að menningu jafnfætis alþýðu manna á Norðurlöndum og þó sérstaklega í bóklegri menn- ingu, og íslendingar eru lesandi þjóð. Á þessum staðreyndum byggði Jón Sigurðsson meðal annars kröfur sínar, og þetta eru enn í dag höfuðrök þess, að þjóð eigi kröfu á fullu frelsi og sjálf- stæði. — Sú staðreynd, að íslenzk al- þýða hafi verið nokkurn veginn bóklæs i kringum 1850, er svo merkilegt atriði, að ég vil fara um þag nokkrum orðum áður en ég sný mér að því, sem er höf- uðefni máls míns, sem er skóla- mál sveitanna, eða hugleiðing- ar um þau vandamál, er þar bíða úrlausnar. — — Við, sem höfum fengist við lestrarkennslu, og vitum hve erfitt nám það er sumum börn- um, jafnvel þótt þau njóti þeirr- ar tækni, er nútíma kennarar beita við lestrarkennsluna, — undrumst þau afköst heimil- anha, að gera stóran barnahóp sæmilega lesandi, — sérstaklega þegar það er haft í huga, að allt skorti, sem til þæginda gat tal- izt. v— Húsakynnin voru þröng og köld, ljósin léleg og sparlega með þau farið, og allt heimilis- fólkið í sömu baðstofunni. — Þótt löggjöf landsins mælti svo fyrir, að öll börn skyldu læra að lesa, þá hefði þessi árangur aldrei náðst, ef þjóðin hefði ekki metið mikils bóklega þekk- ingu og skilið það, að lesturinn var þá og er enn, þrátt fyrir alla útvarpstækni mesta menn- ingartækið. — Og það er við- urkenndur sannleikur, að eng- inn getur talizt menntaður maður, sem ekki beitir sinni lestrarkunnáttu sér til stöðugr- ar fræðslu og þroska, hversu marga skóla, sem hann hefir gengið í gegnum. — Lesturinn er lykill menningarinnar. Undanfarin fjögur skólaár hafa fjórir námsstjórar ferðast um landið á vegum fræðslu- málastjórnar, og var þeim með erindisbréfi falið að kynna sér og athuga starfsemi barnaskól- anna, hver á sínu svæði. — |Cynna sér fræðslu, aga og upp- eldisáhrif þeirra, og gera tillög- ur um breytingar. — Var þar sérstaklega framtekið, að náms- stjórunum bæri að athuga hvar heppilegt væri að sameina tvö eða fleiri skólahverfi um bygg- ingu heimavistarskóla. Það kom í minn hlut að ferð- ast um svæðið frá Mýrdalssandi austur um og norður að Rifs- tanga, og er því margtr, sem hér verður sagt, að einhverju leyti miðað við það, er ég4Lynnt- ist í þessum héruðum, en ég vil þó taka það fram, að aðbúð öll og erfiðleikar með skólahald er mjög svipuð i strjálbýlum sveitum um útnes, strendur og dali, hvar sem er á landinu, en nokkra sérstöðu hefir Suð- urlandsundirlendið ,vestan Mýr- dalssands, þar sem alimargir heimavistarskólar hafa þegar risið þar upp, og vegna þess, að þar er oftast snjólétt og greiðar samgöngur, er þar létt- ara um allt skólahald, en ann- ars staðar í byggðum landsins. Þegar rætt er um skólamál sveitanna er skylt að ræða fyrst um heimilið og hlutverk þess. — Þótt landslög mæli svo fyrir, að hvert heilbrigt barn sé skóla- skylt sjö ára, þá fá allflest skólahverfi til sveita undan- þágu frá þessu ákvæði, og beita eigi skólaskyldu fyrr en við tíu ára aldur. Heimilin ann- ast því fræðslu og allt uppeldi barnsins til þess tíma. — Móð- urmálið, Iestur, réttritun og skrift er undirstaðan undir öllu námi barnsins í skólanum, og þessi undirstaða er lögð á hverju heimili í sveitum lands- ins, og veltur þar á miklu að hún sé rétt lögð. Um tveggja ára aldur byrja börnin að forma setningar og beygja orð. Fyrirmynd þeirra er fullorðna fólkið og oft eldri börn á heim- ilinu. — Á aldrinum tveggja til sjö ára læra börnin meira í beygingarfræði málsins og fleiri ný orð, en allan sinn skóla- aldur. — Ef þau læra á þessum árum bjagað tæpitungumál, rangar orðmyndir og beygingar, bá má‘ heimfæra um það orð Þorsteins Erlingssonar, — að hálfa ævina þurfi til að nema bau áhrif L burtu. — Um tíu ára aldurinn á iestrarnáminu að vera lokið, og þá eiga börnin líka samkvæmt fræðslulögunum að hafa numið skrift nokkúrn veginn og dálítið í reikningi. Það heyrist oft í umræðum manna, að skólarnir og fræðslu- lögin hafi létt fræðsluskyldunni af heimilunum. — Það er rang-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.