Tíminn - 13.11.1946, Blaðsíða 1

Tíminn - 13.11.1946, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON ÚTGEPANDI: FRAMSÓKN ARFLOKKURINN Simar 23S3 og 4S7S PRENTSMIÐJAN EDDA hl. RITSTJÓRASKRIFSTOFUR: EDDUH'JSI. LtudorgðtU • A Simar 2353 og 437* AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargðtu 9A Siml 232S 30. árg. Reykjavík, miðvikudagiuu 13. nóv. 1946 HVAD GERIST I FÆREYJUM EFTIR KOSNINGARNAR? Yfirlit um niðurstöður kosningaima Eins og' skýrt var frá í seinasta blaði, urðu kosningaúrslitin í Færeyjum þau, að Fólkaflokkurinn og þau samtök, sem gengu til kosninganna með honum, töpuðu þremur þingmönnum, Sambandsflokkurinn hélt sinni þingmannatölu óskertri, jafn- aðarmenn töpuðu einum, en Gamla sjálvstýri, sem var í kosn- ingabandalagi við jafnaðarmenn, hlaut það sæti. Þingmenn eru þremur færri en áður, þar eð engum uppbótarsætum var út- hlutað. Eftir þessar kosningar hafa skilnaðarmenn átta þing- menn, en hinir, er vilja eitthvert samband við Dani, tólf. 208. blað Pétursblóminn í útgerðinni: Rekstrarhalli vélbáts veröur 74 þús. kr. á ver- tíðinni, og togara 43 þús. kr. í hverri veiðiför ♦ r Dönsk skáldkona skrifar um ísland Danska skáldkonan Estrid Ott, sem hingað kom í sumar í þeim erindum meðal annars að Estrid Ott. viða að sér efni í bók, sem gerast skal á fslandi, hefir í haust skrifað greinar um ísland og íslendinga í. sunnudagsblað Kaupmannahafnarblaðsins Poli- tiken. Greinar þessar eru mjög skemmtilegar aflestrar og tals- vert skáldlegar, en hinar vin- gjarnlegustu i garð íslendinga. Ber hún þjóðinni og atorku hennar hið bezta orð og furðar sig stórlega á þeim stórstígu framförum, sem hér hafa orðið. Einkum eru það þó flugsam- göngurnar og hin mikla vega- gerð, sem hér hefir verið fram- kvæmd síðustu áratugi, er verður henni umræðuefni. Peninga- flóðið hefir einnig vakið athygli hennar — og kannske um of — og hún varar réttilega við því að fara of gálauslegu með fjár- munina, sem hér hafa borizt á land á stríðsárunum. Yfirleitt virðist ísland hafa eignazt góðan og eiginlegan vin, þar sem frú Estrid Ott er. nÞátttakan í kosningunum. Kosningaþátttakan var á ann- að þúsund atkvæðum meiri en við þjóðaratkvæðagreiðsluna. Samt var allmörgum meinað að kjósa nú, er atkvæðisrétt höfðu í haust — það er að segja þeim, sem dvelja erlendis eða eru nýkomnir heim. En þar á móti kom, að á annað hundrað Dön- um, er flutzt hafa til Færeyja, eða dvelja þar um skeið, var bætt á kjörskrá. Skiptust atkvæði svo, að Fólkaflokkurinn fékk 5383 at- kvæði, (5708 í fyrra), Sam- bandsflokkurinn. fékk 3781 (3199) og jafnaðarmenn og Gamla sjálvstýri 3689 (3007 og 1235). Eru þetta 12.853 atkvæði. Auk þess virðast vera atkvæði þau, sem hinn ungi skilnaðar- maður úr flokki jafnaðarmanna fékk á Vogey. Hinir kjörnu þingmenn. Þingmenn þeir, sem kosningu náðu, eru þessir: í Norðureyj- um Hákon Djurhuus ritstjóri í Klakksvík (F), J. Jacobsen hafnarstjóri í Klakksvík (J). í Austúrey Poul Petersen lögfræð- ingur (F), A. Samuelsen sýslu- maður (S), Johan Poulsen kenn- ari (S), Oregaard kaupmaður (J). í Norður-Straumey Friðrik Bláhamar skipstjóri i Vest- mannahöfn (F), Hans Iversen kaupmaður í Vestmannahöfn (S). í Suður-Straumey Thor- stein Petersen bankastjóri (F), Rikhard Long kennari (F), Poul Niclasen ritstjóri (S), Louis Zachariassen símstjóri (G. sjálv st.). í Sandey Antonius Sörensen kaupmaður (F), Johan Davidsen kaupmaður (J). í Vogey Samuel Ellefsen framkvæmdastjóri (F), Weyhe kaupmaður (S). í Suð urey Martin Holm kennari (F), Kristian Djurhuus sýslumaður (S), P. M. Dam ritstjóri (J), William Smith framkvæmda- stjóri (J). ERLENDAR. FRETTIR. Brezka þingið var sett í gær með venjulegri viðhöfn. í há- sætisræðunni gat konungur þess, að stjórnin myndi beita sér fyrir ýmsum stórmálum á þessu þingi, m. a. þjóðnýtingu á járnbrautum og raforkuver- um. Konungur gat þess og, að í utanríkismálum myndu Bretar hvorki þjóna Rússum né Banda- ríkjamönnum, heldur fara sínar eigin leiðir. Stjórnarnefnd sameinuðu þjóðanna hefir skorað á örygg- isráðið að taka inntökubeiðni Eire, Albaníu, Portugal, Mongól- íu og Transjordaníu til nýrrar athugunar. Truman hefir átt tal við blaðamenn um kosningaúrslit- in. Hann segir að stefna stjórn- ar sinnar í utanríkismálum verði óbr^ytt og í innanlands- málum muni hann leitast við Afrek Jákups í Jákupsstovu. Hinn ungi og umdeildi skiln aðarmaður úr flokki jafnaðar- manna, Jákup í Jákupsstovu, er gerður var flokksrækur fyrir afstöðu sína í sumar, bauð sig fram á Vogey. Munaði aðeins 24 atkvæðum, að hann næði kosningu og felldi Weyhe kaup- mann, þingmannsefni Sam bandsflokksins. Þykir frammi- staða hans hin frækilegasta, þótt ekki bæri hann sigur úr býtum. Hinn ungi og glæsilegi yfir læknir í Þórshöfn, Pouli Dahl, er var þriðji maður á lista Fólka- flokksins í Suður-Straumey, féll. Fögnuður í Danmörku. Dönsk blöð og stjórnarvöld hafa látið í ljós mikla gleði yfir úrslitum kosninganna. Eitt þeirra, Information, hefir þó látið svo ummælt, að ekki sé þó hægt að túlka þau sem sigur (Framhald á 4. síðu) að ná samkomulagi við republ ikana. í Bretlandi er óttast, að óald- arflokkur Gyðinga muni reyna að hefja þar skemmdarverka starfsemi. Hér á myndinni sést Friðrik krónprins Dana vera að tala á útvarpsplötu. Krónprinsinn þykir aiigóður útvarpsræðumaður. Aðalfundur F. U. F. í Flóa Aðalfundur Dagrenningar, fé- lags ungra Framsóknarmanna í Flóa var haldinn að Þingborg í Hraungerðishreppi síðastlið- inn sunnudag og hófst hann kl 3 síðdegis. Formaður félagsins, Kjartan Ólafsson Eyrarbakka, baðst und- an endurkosningu, með því að hann er að flytja burt af fé- lagssvæðinu. í stjórn félagsins voru kosnir: Bjarni Halldórsson Króki formaður, Helgi Vigfússon Eyrarbakka ritari og Brynjólf- ur Magnússson Flögu gjaldkeri. Varastjórn var kjörin: Stefán Jasonarson Vorsabæ, Kristinn Helgason Halakoti og Sigurður Guðmundsson Súlholti. Endur- skoðendur voru kjörnir: Guð- mundur Jónsson Stokkseyri og Árni Þórarináson Kolsholti. Þá kaus félagið þrjá fulltrúa á flokksþingið. Kosningu hlutu Bjarni Halldórsson Króki, Helgi Vigfússon Eyrarbakka og Krist- inn Helgason Halakoti. Vara- menn Kjartan Ólafsson Eyrar- bakka og Ólafur Halldórsson Króki. Þá var rætt um stjórnmála- viðhorfið og flutti Daníel Ágúst- ínusson framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins itarlegt framsöguerindi. Að lokum var rætt um framtíðarstarfsemi fé- lagsins og kom fram mikill áhugi fyrir þvi að auka og efla hana sem mest. Félaginu bætt- ust margir nýjir félagsmenn á fundinum. Félagssvæðið er sex neðstu hreppar Árnessýslu austan Ölfusár. Samvinnubyggingar- félag póstmanna Utreikningar Landssamb. íslenzkra útvegsmanna Ólafur Jónsson útgerffarmaður í Sandgerffi birtir ítarlega grein um afkomu sjávarútvegsins í Mbl. í gær og ber frásögn hans illa saman við þann vitnisburff Péturs Magnússonar, aff undir fjár- málastjórn hans standi hagur atvinnuveganna meff blóma. Ólafur upplýsir nefnilega í grein sinni, aff nú sé 43.510 kr. tap á söluferff togara, sem hefir meðalafla og selur hann fyrir hæsta verff í Bret- landi. Ennfremur upplýsir Ólafur, aff 53 smál. vélbátur, sem fengi meffalafla Faxaflóabáta, verffi ekki rekinn meff minni en 74.450 kr. halla á vetrarvertíðinni. Á mörgum öffrum útgerffar- stöffum, þar sem meffalaflinn er lægri, yrffi hallinn enn meiri. Upplýsingar þessar byggir Ól- afur á útreikningum, sem Landssamband íslenzkra út- gerðarmanna hefir látið gera fyrir hagfræðinganefndina. Nið- urstaða þessara útreikninga er sú, að fiskverðið þurfi að verða 85 aurar í stað 50 aura, ef út- gerðin á að geta borið sig á komandi vetrarvertíð að ó- breyttum öðrum aðstæðum. Byggingarsamvinnufélag póst- Slíkar eru orðnar afleiðingar manna var stofnað 11. þ. m. þeirrar stefnu, sem hefir verið Stofnendur voru 53. í stjórn voru kosnir: Hannes Björnsson, formaður, Óskar Einarsson, rit- ari, Guðmundur Albertsson og Gísli V. Sigurðsson. í varastjórn voru kosnir: Árni Þór. Jónsson, Jón Pálsson og Sigurður Ingva- son. Ákveðið hefir verið að byggja að minnsta kosti 12 íbúðir á næsta ári. Bifreið brennur Síðastliðinn föstudag brann fólkstíifreið til kaldra kola í Svínahrauni. Atburður þessi mun hafa gengið þannig til. Buick-fólksbifreið var að koma austan yfir fjall og kom upp eldur aftan í henni, án þess að bifreiðarstjórinn yrði þess var. Bifreiðarstjóri 1 mjólkur- bifreið, sem var næst á eftir fólksbifreiðinni, sá eldinn aft- ur úr henni og fór þá eins fljót- lega fram úr henni og unnt var, ók þvert á veginn og gaf merki um að nema staðar. Reyndist ómögulegt að slökkva eldinn og brann bifeiðin til kaldra kola á klukkustund. Eldsupptök munu hafa stafað Innflutningur á heimilisvélum Á Þingi Farmanna- og Fiski- mannasambands íslands, sem haldið var hér fyrir skömmu, var m. a. samþykkt svohljóðandi tillaga: „10. þing Farmanna og fiski- mannasambands íslands sam- þykkir að skora á Alþingi og ríkisstjórn: Að leggja nú þegar inn á reikning Nýbyggingarráðs upphæð, sem svarar til 10 — tíu miljónum króna í erlendum gjaldeyri (dollurum) og verði því fé eingöngu varið til kaupa á heimilisvélum. Vélum þessum verði úthlutað til almennings eftir ákveðnum reglum, og sé þess vandlega gætt, að þær fjölskyldur gangi fyrir, sem fólksflestar eru og þær, sem minnst vinnuafl hafa til heimilisverka. Ennfremur skal neytendum gefinn kostur á að fá þessar vélar keyptar með heildsölu- verði. Fyrirtækjum þeim, er leyfð- ur verður innflutningur á heim- ilisvélum, verði gert að skyldu að hafa til sölu va^ahluti til þeirra.“ Hér er vissulega drepið á mál, sem valdhafarnir þurfa að’ gefa fyllsta gaum. T. d. væri ástæöa til að athuga, hvort ekki mætti leysa sum af þessum málum sameiginlega, t. d. með þvotta- húsum. Við slíka athugun ætti ekki sízt að athuga, hvemig hægt væri að rétta hlut sveita- kvenna með slíkum ráðstöfun- um. af því, að bensín lak niður á heitt blástursrör bifreiðarinnar fylgt undir fjármálastjórn Sjálfstæðisflokksins. Þótt fisk- verðið sé nú margfallt hærra en það var fyrir styrjöldina, er útgerðin nú rekin með stórfelld- um halla. Fiskverðið þarf að áttfaldast frá því, sem það var fyrir stríðið, ef útgerðin á að geta borið sig. n Forkólfar Sjálfstæðisflokks- ins máttu alltaf vita, hvert þessi fjáfmálastefna þeirra myndi leiða þjóðina og aðalatvinnu- vegi hennar. Af hálfu Fram- sóknarflokksins fengu þeir að heyra svo mörg varnaðarorð. En þau voru aðeins stimpluð hrak- spádómar og afturhaldssemi af hálfu íhaldsforkólfanna. Þeir mátu meira að þjóna bröskur- unum, sem græddu á dýrtíðinni. Margir útgerðarmenn geta nú ekki nejtað því, að þeir hafa sjálfir verið smiðir ógæfu sinn- ar, þar sem þeir héldu áfram að styðja Sjálfstæðisflokkinn, þrátt fyrir þessa stefnu hans. Þeim mætti nú vera ljóst, að farsælla hefði verið að fylgja Framsóknarflokknum og styðja stöðvunarbaráttu hans. Það er kominn tími til fyrir útvegs- menn að skilja, að þeir og brask- ararnir, sem ráða Sjálfstæðis- flokknum, eiga enga samleið. Hagur útgerffarinnar hefir síversnað síðan 1942. f grein Ólafs Jónssonar kem- ur ljóst fram, að útgerðinni vegnaði bezt meðan naut við áhrifa Framsóknarflokksins í ríkisstjórninni. Hann segir: „Árin 1940—1942 voru yfir- leitt hagstæð fyrir vélbátaút- veginn og réttu margir smá- útvegsmenn þá úr kútnum, sem þeir voru í eftir kreppuna á und- an. Gátu margir þá greitt all- ar skuldir sínar og átt þannig bátana skuldlausa eða skuld- litla, hafa margir þeirra búið að því fram að þessu. Aftur á móti hafa þeir menn er byggt hafa eða keypt, eldri sem yngri báta, eftir árið 1942 flestir orðið fyrir miklu fjár- hagstjóni, þar sem afkom.a bát- anna hefir sífellt farið versn- andi síðan, þótt nú virðist fyrst ætla að keyra um þverbak. Til skýringar skal þess getið, (Framhald á 4. síðu) Jarðsetning á beinum Jónasar Hallgríms- sonar Tímanum hefir borizt svo- hljóðandi tilkynning frá Þing- vallanefnd: . Ráðuneyti forsætisráðherra tilkynnti Þingvallanefnd þann l. október s. 1. að það hefði á- kveðið, að jarðneskar leifar Jón- asar skálds Hallgrímssonar skyldu hljóta legstað í þjóðar- grafreitnum á Þingvöllum. Jafnframt fól ráðuneytið Þing- vallanefnd að sjá um jarðsetn- inguna og allt þar að lútandi. Nefndin hefir nú ákveðið, að jarðsetningin skuli fara fram á afmælisdegi skáldsins 16. þ. m. og hefjast kl. 12 á hádegi. Enn hækkar vísitalan Vísitala framfærslukostnaðar fyrir nóvembermánuð hefir verið reiknuð út. Reyndist hún vera 303 stig eða 1 stigi hærri en í októbermánuði. — Stafar hækkun þessi af verðhæjtkun á sykri, fatnaði o. fl. vörum. Karlakórinn hefir sungið 25 sinnum Um helgina barst Ríkisútvarp- inu fréttaskeyti frá Karlakór Reykjavíkur. Skeytið er sent frá Mani- towoc í Wisconsin-fylki, og seg- ir í því, að kórinn sé búinn að ferðast 10.000 km. leið um 19 fylki landsins. — Tuttugu og fimm hljómleikar hafa verið haldnir og viðtökur og blaða- dómar hvarvetna ágætir. Rottueyðingin hefir borið góðan árangur Eins og kunnugt er, tók The British Ratin Company Ltd. að sér á sl. sumri að framkvæma allsherjarrottueyðingu hér í bænum og nágrenni hans. Eyðingin hófst um miðjan júlí sl., og er henni nú nýlega lokið. Upphaflega var gert ráð fyrir, að eyðingarsvæðið næði frá Elliðaám og Fossvogslæk vestur (Framhald á 4. síðu)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.