Tíminn - 18.12.1946, Blaðsíða 3

Tíminn - 18.12.1946, Blaðsíða 3
233. folað TtMlNN, miðvikndaginn 18. des. 1946 3 » Eiríkur á Brúnum * er jólabókin Eiríhur Ú Brúnunt var einn af Sérkennilegustu mönnum sinnar samtíðar hér á landi. Hann var fæddur 1823 og bjó á Brúnum í nærri aldarfjóröung. Skömmu eftir þjóðhátíðina fór hann í kynnisferð til Kaupmannahafn- ar. Um þá ferð skrifaði hann „Litla ferðasögu,“ sem er ein skemmtilegasta og einkennilegasta ferðabók, sem til er á íslenzku. Eiríkur á Brúnum tók eftir mörgu, sem aðrir veittu ekki athygli, eða þótti ekki ástæða til aö segja frá. Hann kom úr fásinni íslenzkrar sveitar og undrun hans og einlægni kemur vel fram í ferðaþáttunum, í hispurs- lausri, skemmtilegri og skrítilegri frásögn. Ferðasagan á sinn sess í bókmenntasögunni, bæði vegna frásagnargleði og málfars Eiríks á Brúnum, og vegna þess að hún sýnir þau áhrif, sem ný menning og óþekkt erlend tækni hafði á íslenzkan bónda upp úr miðri seinustu öld. Ýms sömu einkenni koma fram í „Annari lítilli ferðasögu," sem segir frá Ameríkuför Eiríks nokkrum árum seinna. Hann gerðist þá um skeið mormóni. Eiríkur á Brúnum var einnig góður sagnamaður og skráði ágæta þætti um'huldufólk, útilegumenn og samtíma atburði. „Eiríkur á Brún- um“ er í senn fróðlegt menningarsögulegt heimildarrit og skemmtilestur til dægradvalar. Rit Eiríks Ú Brúnunt komu út á tvístringi í bókum og pésum á árunum 1878 til 1890. Flest af þeim er nú sjaldgæft eða með( öllu ófáanlegt. — Hér er ritum Eiríks á Brúnum safnað í eina heild í fyrsta sinn, nærri hálfri öld eftir dauða hans. Ritunum er raðað hér í fjóra meginþætti: Lítil ferðasaga, Önnur lítil ferð>saga, Sögur og sagnir, Mormónarit. Hverjum þætti fylgja formálsorð útgefandans Vilhjálms Þ. Gíslasonar. Hann hefir einnig samið bókarauka með athugasemdum og skýringum. Þar er safnað saman ýmis konar fróðleik úr samtíma heimild- um, prentuðum og óprent^ðum, sem bregða birtu yfir frásagnir Eiríks á Brúnum. Samtímamyndir eru einnig í skýr- ingunum, og myndír af Eiríki á BVúnum sjálfum og rithönd hans. Ritunum er raðað hér í bálka eftir efni og aldri og leiðréttar augljósar prentvillur í fyrstu útgáfunni, en óbreytt að öllu hið uphaflega efni og orðfæri höf- undarins. Auk skýringarmyndanna er í þessari útgáfu bókarskraut, upphafsstafir eftir Jörund Pálsson og teikning- ar eftir Halldór Pétursson. Bókaverzlun ísafoldar :: :: « NEW YORK — ÍSLAND Frá og með þessum mánuði taka Culliford’s Associated Lines Ltd. að sér gegnumgangandi flutninga frá New York til allra íslenzkra hafna, með umskipun í Glasgow og Liverpool. Þar sem ferðir eru mjög tíðar frá New York til Glasgow og Liverpool, en skip félagsins ganga vetrarmánuðina á 20 daga fresti frá Fleetwood og Glasgow til íslands, þurfa vörur svo að segja aldrei að bíða flutnings í New York, og er hér því um mjög hagkvæma flutninga að ræða. Farmgjaldið greiðist allt í sterlingspundum, og sparast landinu á þann hátt mikill dollaragjaldeyrir. Umboðsmenn í New York eru: A. L. Burbank & Co. Ltd. 17, Batter place, New York. Allar upplýsingar veitir: GUNNAR GUÐJÓNSSON skipamiðlari, sími 2201. Merkur ferðamaður Eiríkur á Brúnum: Ferðasögur, sagnaþættir mormónarit. — Vilhjálm ur Þ. Gíslason sá um út- gáfuna. — ísafoldarprent smiðja. — Stærð: 280 bls. 22X15 sm. — Verð: ib kr. 40.00. Eiríkur Ólafsson á Brúnum var einn þeirra ævintýramanna sem fæðst hafa í íslenzku fá- sinni. Hann fæddist 1823, og bjó lengi á Brúnum undir Eyja fjöllum. Þegar hann var kom- inn yfir miðjan aldur, tók hann sig upp og réðist til utan- ferða — fyrst til Kaupmanna- hafnar og síðan til Vesturheims þar sem hann gerðist mormóni Kom hann í trúboðserindum heim aftur, en dvaldi síðan alllengi vestan hafs. Meira en hálfsjötugur maður kom hann svo alkominn heim, átti um skeið heima á ísafirði og síðan í Reykjavík, þar sem hann and- aðist aldamótaárið. Eiríkur var gáfaður. maður og (Framhald á 4. slöu) Merk bók EH MIKIL GJÖF 1 ^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦*&♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ g ^ I og 21 Orösending til félagsmanna K R O N Afgreiðsla á nýjum og niðursoðnum ávöxtum sam- kvæmt vörujöfnun hefst frá öllum matvörubúðum KRON miðvikudaginn 18. desember og lýkur laugardaginn 21. j| desembar. Út á reit nr. 1 er jafnað 2 kiló epli fyrir hvern fjöl- skyldumeðlim. Út á reit nr. 2. er jafnað, 1 dós niðursoðnir ávextir fyrir hvern fjölskyldumeðlim, þó ekki fleiri en 6 dósir til fjöl- skyldu. Reykjavík 17./12 1946. :: Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis Tilkynning varlSandi umsóknir um kaup á vörum frá ítalíu. Þeir sem geta keypt og hafa í hyggju að kaupa vörur frá Ítalíu gegn greiðslu í lírum sendi um- sóknir um innflutnings og gjaldeyrisleyfi nú þegar ásamt nákvæmum upplýsingum um verð og gæði varanna og afgreiðslumöguleika. Reykjavlk 16. desember 1946. VIÐSKIFTARÁÐIÐ.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.