Tíminn - 27.03.1947, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEPANDI:
PR AMSÓKN ARFLOKKURINN
Símar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
ÍHITST J ÓR ASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚ3I. Llndargötu 9 A
Sfmar 2353 og 4373
^ AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
\ OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9A
Siml 2323
31. árg.
Reykjavík, fimmtudaginn 27. marz 1947
60. blaft
ERLENT YFIRLIT:
Átökin í Japan
Verður mynduð alþýðuflokksstjórn í
Japan í vor eða sumar?
Ríkisstjórnin í Japan á nú við mikla erfiðleika að etja. Verk-
Jýðshreyfing landsins hefir mjög eflzt og vinnur gegn henni.
í maí í vor eiga að fara fram almennar kosningar samkvæmt
nýjum stjórnarskipunarlögum og spá ýmsir jafnaðarmönnum
miklum sigri í þeirri viðureign.
Búnaöarfélags íslands
Heimssamband verkalýðsfé-
laga hefir sent nefnd til Japans
til að kynna sér ástandið þar
í landi og kjör verkamanna.
Litlar fréttir hafa borizt það-
an að austan, síðan Ameríku-
menn tóku þar við völdum eftir
uppgjöf keisaraveldisins. En í
vetur og þó einkum það sem
af er þessu ári, hefir mikið ver-
ið þar um verkföll og vinnudeil-
ur: —
Mac Arthur er 67 ára gamall,
en hann gegnir nú því erfiða
hlutverki að vera æðsti og vold-
ugasti maður í hinu gamla ríki
keisarans. Það mun hafa auð-
veldað honum stjórnina fyrstu
mánuðina, að japanska þjóðin
er vön að líta upp til æðsta
manns síns gagnrýnislítið í auð-
mjúkri hlýðni. Keisarinn hefir
ekki nema að nokkru leyti verið
talinn af þessum heimi og því
hafa boð hans verið virt eins og
guðs orð.
Ýmsir fréttaritarar vilja skýra
það, hve rólega allt gekk í Jap-
an framan af, 'með >/ví, að Mac
Arthur hafi unnið sér þann sess
í vitund japönsku þjóðarinnar,
að boð hans væru virt og heiðr-
uð eins og fyrirskipanir keisar-
ans. Þeir telja þá lika, að völd
og áhrif Ameríkumanna séu að
verulegu leyti bundin við per-
sónu Mac Arthurs, herforingj-
ans, sem sigraði liðsveitir keis-
arans oa lagði japanska herinn
að fótum sér.
En vestrænum áhrifum fylgir
sæði lýðræðisins, mannréttinda,
persónulegs sjálfstæðis og
frjálsrar hugsunar. Það leiðir
því óhjákvæmilega af dvöl
engilsaxneskra hersveita í Jap-
an, að hinn gamli grundvöllur
einræðis og öflugrar stjórnar
gliðnar í sundur. Og þau áhrif
geta m. a. sagt til sín á þann
hátt, að nokkrir erfiðleikar fylgi
fyrir hernámsstjórnina.
Kikunami heitir foringi rót-
tækari manna í stéttarsam-
bandi verksmiðjumanna í Jap-
an, en verklýðshreyfing þar í
Varnarlyf gegn in-
flúensu auðfengin
í Sviss og Ameríku
En sitt lyfiff þarf gegn
hverri tegund inflúenzu.
Timanum heflr verið tjáð, að
það sé mjög auðvelt að fá
varnarlyf gegn inflúenzu, hvort
heldur er í Ameríku eða Sviss,
þar sem slík lyf eru einnig búin
til. Hafa borizt hingað tilboð um
afhendingu slíkra lyfja.
En öflun þessara lyfja og
notkun er þó ýmsum vand-
kvæðum bundin. Inflúenzan á
rót sina að rekja til mismun-
andi sýkia og þarf sitt varnar-
lyf gegn hverri inflúenzutegund.
Varnarlyfin geymast hins veg-
ar ekki óskemmd nema tiltölu-
lega stuttan tíma.
Loks hafa gjaldeyrisyfirvöld
landsins verið treg til þess að
veita svo mikil innflutningsleyfi,
sem lyfjainnflytjendur hafa tal-
íð þurfa, og virðist það hafa
gengið út yflr þessi inflúenzulyf.
landi er greind í þrjú stór sam-
bönd. Honum var sýnt banatil-
ræði í janúar í vetur, þegar
hann undirbjó verkfall, sem
átti að hefjast 1. febrúar og 2
miljónir starfsmanna við opin-
ber fyrirtæki áttu að taka þátt í.
Morðtilraun þessi hefir að
vonum mælzt illa fyrir, þó að
margir líti það hins vegar illu
auga, að reynt sé að stofna til
verkfalla, þegar endurreisn
landsins stendur sem hæst og
verið er að reyna a$ reisa at-
vinnulíf og afþomu úr kalda-
koli.
Þó finnst ýmsum, að Kiku-
nami hafi verið seinþreyttur til
vandræðanna og forðazt yfir-
gripsmikil verkföll í lengstu lög.
Félagsbundnir verkamenn í
Japan eru nú meira en 4 milj-
ónir, og eru 10 sinnum fleiri en
nokkurn tíma fyrir styrjöldina.
En foringjar þeirra viðurkenndu
þá nauðsyn að auka fram-
leiðslumagn þjóðarinnar.
Stjórnarvöldunum tókst ekki
að halda uppi kaupmætti pen-
inganna. Seðlaveltan hefir
fjórfaldazt síðan um þetta leyti
í fyrra. Framfærslukostnaður
sl. haust var talinn 48 sinnum
hærri en fyrir stríð, e,n vöruverð
var þó á flestum sviðum orðið
64 sinnum hærra en þá. Þegar
þessa er gætt, er það engin
furða, þó að verkamenn krefð-
ust kjarabóta og beittu sér fyrir
ákveðnum lágmarkslaunum.
Stjórnin reyndi að setja regl-
ur um kaupgjaldsmál, en kapp-
hlaupið milli launa og verðlags
gerði allt ómögulegt. Gallinn
var sá, að það var reynt að festa
launakjör án tilsvarandi að-
gerða í verðlagsmálum. Telja
sumir, að ríkisstjórnin hafi
ekki þorað að brjóta í bág við
vilja verksmiðjueigenda og iðn-
rekenda með svo róttækum að-
gerðum. En það er þetta, sem
veldur ókyrrðinni í Japan og
hinum tíðu verkföllum þar nú
um sinn.
Þetta vandamál getur orðið
þung raun fyrir lýðræðisöflin í
Japan. Sjálfsagt má segja, að
hin nýja verkalýðshreyfing hafi
e. t. v. ekki að öllu leyti lært að
þræða takmörk þess, sem ábyrg
stéttarsamtök þfoskaðra lýð-
ræðisþjóða mega leyfa sér. En
hins vegar er ekki heldur hægt
að loka augunum fyrir því, að
stjórnarvöWin hafa sýnt til
hneigingu í þá átt að láta hart
mæta hörðu og jafnvel leysa
verklýðsfélögin upp.'
Yoshidas forsætisráðherra i
Japan á erfiða daga vegna þess-
ara mála. Öll verklýðssambönd-
in þrjú eru honum andstæð, en
jafnaðarmenn ráða tveftmur
þeirra, en í því þriðja hafa kom-
múnistar talsverð áhrif. Jafnað
armenn neituðu nýlega tilboði
Yoshidas að leggja til 5 ráð
herra í ráðuneyti undir forystu
hans sjálfs. Þeir vita það vel, að
stjórn hans er ekki vinsæl, og
það er talið, að ef hún veltist úr
völdum, séu þeir næstir.
Jafnaðarmenn vona því, að
það sé bara stundarfrestur
þangað til þeir hafi unnið meiri
hlutafylgi með þjóðinni og geti
einir tekið við ríkisstjórn. Ný
stjórnskipunarlög ganga í gildi
í maí í vor. Þá fara fram al-
mennar kosningar, og ýmsir spá
(Framhald á 4. síðu)
Myndin hér að ofan er af búnaðarmála-
stjóra og hinni nýkjörnu stjórn Búnað-
arfélags íslands. Yzt til vinstri er Pétur
Ottesen, þá Steingrímur Steinþórsson bún-
aðarmálastjóri, Bjarni Ásgeirsson og yzt
til hægri Jón Hannesson í Deildartungu.
Neðri myndin er af starfsmönnum Bún-
aðarfélagsins. í neðri röðinni eru, talið frá
vinstri: Gísli Kristjánsson, ritstjóri Freys,
Páll Zóphóníasson, nautgriparæktarráðu-
nautur, Gunnlaugur Kristmundsson, sand-
græðslustjóri, Ásgeir L. Jónsson, jarðrækt-
arráðunautur ög Pálmi Einarsson, land-
námsstjóri. — í efri röðinni, talið frá
vinstri: Hjörtur Eldjárn, búfjárræktar-
ráðunautur, Gunnar Bjarnason, hrossa-
ræktarráðunautur, Ragnar Ásgeirsson, garð-
yrkjuráðunautur, Steingrímur Steinþórsson,
búnaðarmálastjóri, Halldór Pálsson, sauð-
fjárræktarráðunautur, Metúsalem Stefáns-
son, fyrrverandi búnaðarmálastjóri, Gunnar
Árnason, gjaldkeri Búnaðarfélagsins og
Björn Bjarnarson aðstoðarráðunautur við
jarðrækt. — Tvo starfsmenn Búnaðarfélags-
ins vantar á þessa mypd — Svein Tryggva-
sön, mjólkurfræðing og Sveinbjörn Bene-
diktsson, skrifstofustjóri Búnaðarfélagsins.
Úrslit í skíðastökkun-
um á landsmótinu
Bnmkeppni karla fer
fram í dag.
Eins og frá var sagt í blaffinu í
gær, vann Jón Þorsteinsson frá
Siglufirffi sigur í tvíkeppni í
göngu og stökkum og hlaut
saómdarheitiff skiffakappi ís-
lands, í annaff sinn. Hann fékk
samanlagt 420,2 stig. Næstur
varff Jónas Ásgeirsson meff 409,5
stig og þriffji Ásgrímur Stefáns-
son með 407,5 stig.
Úrslitin í stökkunum í fyrra-
dag, er lauslega var skýrt frá í
blaðinu í gær, urðu sem hér
segir:
A-flokkur:
Jón Þorsteinsson hlaut 222,2
stig, stökk 43 og 45 m. Annar
var Ásgrímur Stefánsson, SKS,
með 220 stig. Hann stökk 46 m.
í báðum stökkum. Er þetta nýtt
brautarmet. Þriðji var Jónas
Ásgeirsson, SKS, með 219 _stig,
stökk 42,5 og 44,5 m. og 4. Sig-
urður Þórðarson, SKA, með 214
stig, stökk 40,4 og 41,5 m.
B-flokkur:
1. Haraldur Pálsson, SKS,
213,5 stig (41 og 43,5 m.) 2. Há-
kon Oddgeirsson, SKA, 209,8
stig (39 og 42 m.) 3. Björn Hall-
dórsson, SKA, 201,9 stig (38 og
38,5) og 4. Helgi Óskarsson,
SKR, 199,7 stig (39 og 41,5 m.).
17—19 ára:
1. Guðmundur Árnason, SKS,
223,2 stig (40,5 og 43), 2. Haf-
(Framhald á 4. síðu)
Kosin stjórn
Búnaðarfálags
islands
Á fundi búnaðarþings í gær
var kosin stjórn Búnaðarfélags
íslands til fjögurra næstu ára.
Aðeins einn listi kom fram,
og voru á honum Bjarni Ásgeirs-
son, Pétur Ottesen og Jón Hann-
esson í Deildartungu, er allir
hafa verið í stjórn Búnaðarfé-
lagsins síðasta kjörtímabil.
Varamenn á listanum voru
þessir: Þorsteinn Sigurðsson
Vatnsleysu, Gunnar Þórðarson
Grænumýrartungu, og Guð-
mundur Erlendsson Núpi. —
Annar listi k<jm ekki fram og
urðu því þessir menn sjálf-
kjörnir.
Landsflokkaglím-
an háð á morgun
Keppt í þremur þyngdarflokkum.
19 þátttakendur frá fjórum félög'um.
Annaff kvöld verður landsflokkaglíman háff í íþróttahúsinu
viff Hálogaland og hefst klukkan 9. Þátttakendur verffa alls 19
frá 4 félögum, Ármanni KR., Umf. Reykjavíkur og Umf. Hvöt
í Grímsnesi.
Meðal keppenda í þyngsta
flokki eru Guðmundur Ágústs-
son, glímukappi íslands, Friðrik
Guðmundsson, glímukappi K.R.
og Guðmundur Guðmundsson,
Ármanni, sem lengstum hefir
reynzt nafna sínum skæður
keppinautur. Var hans mjög
saknað við skjaldarglímuna, þar
sem hann gat ekki keppt vegna
smávegis meiðsla í fæti.
í öðrum flokki keppa m. a.
Rögnvaldur Gunnlaugsson úr
K. R., sá er bar sigur úr býtum
í sama flokki í flokkaglímu
Reykjavíkur um daginn og
Kristján Sigurðsson úr Ármanni,
sem líka gat sér þar gott orð.
Og ekki má gleyma Gunnlaugi
Ingasyni úr Ármanni, sem ann-
ar varð í Skjaldarglímu Ár-
manns, jafn sigurvegaranum að
vinningafjölda, en féll fyrir
honum í úrslitaglímu.
í ]}iriðja flokki eru lika beztu
menn úr flokkaglímu Reykja-
víkur, t. d. sigurvegarinn Ólaf-
ur Jónsson, K.R. og Andrés Sig-
hvatsson U. M. F. R., sem þar
varð annar maður. Þar er líka
Sigurður Hallbjörnsson, sem
þreytt hefir kappglímur í tuga-
tali.
Auk þeirra, sem hér hafa
verið taldir, eru margir mjög
efnilegir og vaskir gilímumenn.
Þerfi má geta, að bifreiða-
ferðir inn að Háiogalandi hefj-
ast frá Bifreiðastöð íslands kl.
hálf átta.
Árshátíð samvinmi-
manna 1
Arshátíð samvinnumanna í
Stykkishólmi var haldin þar s.l.
laugardag. Var samkoman mjög
fjölmenn og í alla staði hin á-
nægjulegasta.
Samkoman hófst með ræðu
hins kunna forustumanns
samvinnumanna þar vestra,
Sigurðar Steinþórssonar kaup-
félagsstjóra. Baldvin Kristjáns-
son, erindreki Sambands ísl.
Aðrar kosningar
á búnaðarþingi
Auk stjórnarkosningar fóru
þessar kosningar einnig fram á
búnaðarþingi í gær:
í húsbyggingarnefnd voru
kosnir: Bjarni Bjarnason,
Laugarvatni og Ólafur Bjarna-
son Brautarholti.
Endiurskoðandi reikninga
Búnaðarfélags íslands var kos-
inn: Guðmundur Jónsson Hvít-
árbakka.
Kosnir í stjórn búnaðarmála-
sjóðs: Þorsteinn Sigurðsson
Vatnsleysu og Einar Ólafsson
Lækj/.rhvammi.
Kosnir í útvarpsfræðslunefnd
Búnaðarfélags íslands: Steingr.
Steinþórsson, Gísli Kristjánsson
og Halldór Pálsson.
Kosnir tveir menn i endur-
skoðun jarðræktarlaganna:
Hafsteinn Pétursson Gunn-
steinsstöðum og Ólafur Jónsson
Akureyri. — Varamenn: Hann-
es Pálsson frá Undirfelli og
Ólafur Bjarnason Bpautarholti.
Kosinn var í verkfæranefnd:
Pálmi Einarsson.
samvinnufélaga, flutti einnig
erindi og sýndi kvikmyndir,
frétta- og skemmtimyndir.
Þá fór og fram kvartettsöngur,
undir stjórn Víkings Jóhanns-
sonar, og annaðist hann einnig
undirleik.
Að lokum var stiginn dans
lengi nætur.