Tíminn - 08.05.1948, Blaðsíða 8

Tíminn - 08.05.1948, Blaðsíða 8
Mun minni aíii hjá Ólafsvíkurbátum en undanfarið Hvenær verSisr Siaf- ixt iiamla um vega- g’erS yfir Fréíiár- lieilSi. Stefán Kristjánsson frá Ólafsvík er staddur í Rvík um þessar mundir. Tíðindamaður Tímans hitti hann að máli í gær og spurði hann frétta að vestan. Þrír bátar, 15—22 smáiesta, hafa verið gerðir út frá Ólafsvík í vetur. Fjórði bát- urinn, Framtíðin, fórst í vet- ur með þremur mönnum, svo sem flestum mun í iersku minni. Gæftir voru sérstaklega slæmar fram eftir öllum vetri, svo að afli hefir orðið minni en ella af þeim sök- um, en eigi að síður munu Ólafsvíkurbátarnir hafa afl- að bezt þeirra báta, sem gerö ir voru út við Breiðafjörð. Afii minni en að undanförnu. Tveir bátanna hafa nú feng ið rösklega 400 smálestir. Eru það Snæfell, formaður Víg- lundur Jónsson, og Glaður, formaður Guðlaugur Guð- mundsson. Þriðji báturinn er aðeins lægri. Það er Hrönn II, formaður Guðmundur Jensson. Undanfarnar vertíð- ir hafa þessir sömu bátar fiskað á sjötta hundrað smá- lestir. Hraðfrystihúsið í Ólafsvik hefir verið í góðu lagi í vet- ur, og hefir allur afli bátanna verið látinn í það. Rrýn nauðsyn á góðum vegi yfzr Fróðárheiði. Mikil snjóalög hafa verið á Fróðárheiði í vetur, og verð ur hún ófær bifreiðumennum 1 skeið, enda er þar aðeins um ruddar götur að ræða. Ber brýna nauðsyn til þess, að hafizt verði handa um vega- gerð á Fróðárheiði, því að ekki er lengur unandi við, að hún sé lengur sá samgöngu- tálmi, sem hún hefir verið. Væri lagður góður vegur yf- ir heiðina, og til þess er góð aðstajia, fengist þar að líkind um næsta örugg vetrarleið svo að Ólafsvík og Fróðár- sveit gætu oftast notið sæmi legra samgangna við aðra landshluta árið um kring. 27. hvítasimnu- kappreiðar Fáks 17. raaí Hestamannafélagið Fákur e'fnir að vanda til kappreiða á skeiðvellinum við Elliðaárn ar á annan í hvítasunnu. Verða þetta 27. hvítasunnu- kappreiðar félagsins. Þessi starfsemi félajísms hefir lengi verið vinsæl af hestamönnum hér sunnan lands og hafa þessar kapp- reiðar löngum verið víðs -veg- ar að úr nærliggjandi héruð- um. l'--v-r 101. blað Eins og skýrt var frá í Tímanum í gær seltíi togarinn Neptúnus 5709 kitts fyrir rösklega nítján þús- und sterlingspunda í Englandi. Af f ki þessum voru 4293 kitts þoskur, 898 kitts ýsa, 358 kitts upsi og lítils háttar af öðrum fisktegundu ,i. Andvirði aflans nemur nálægt hálfri miljón íslenskra króna, enda hefir enginn togari selt afla sinn fyrir annao eins verð. Félagið vai* stofuað aí sjis möasimii fyrsir 40 áram. Ungmennafélagið Fram í Seyluhreppi í Skagafirði átti í haust 40 ára afmæli og efndi það nýlega til hátíða- samkomu aö Varmahlíð. Var þar mannfagnaður hinn bezti og margt manna samankomið. Tobias Sigurjónsson í Geld- ingaholti hefir sent Timanum frásögn af afmæiishátíð þessari. Afmœllshófiö. Formaður félagsins, Sigur- jón Jónsson bóndi í Syðra- skörðugili, setti hófið. Var síöan setzt að súkkulaði- og kaffidrykkju. Undir borðum voru ræðuhöld og söngur. Þar tóku til máls Halldór Benediktsson bóndi á Fjalli, sr. Gunnar Gíslason í Glaum bæ, Haraldur Jónasson hrepp stjóri á Völlum, Ingibjörg Jóhannsdóttir skólastýra á Löngumýri, Gísli Stefánsson bóndi í Mikley, Hjörtur Benediktsson í Marbæli, Guð- jón Ingimundarson leikfimis kennari á Sauðárkróki, Jón Jónsson á ' Bsssastöðum og Ingimar Bogason á Sauðár- króki. Jón Björnsson bóridi' á Hafsteinsstöðum stjórnaði al mennum söng. Eítir þrjá tíma voru borð upp tekin og þá sýnöar 'kvikmyndir og sið an stiginn dans. Fór samkom- an hið bozta fram og var tii ánægju gestum og forgöngu- mönnum. Stofnun félagsins. *Þau voru tildrög að stofn- un félagsins að haustið 1807 hittust 7 ungir menn í Seylu- h'reppi að svokölluðu Gaxð- húsi, austan viö Reykjarhól, og ákváðu þar að stofna ung- mennafélag. Þessir menn voru Hjörtur Benediktson í Marbæli, Bryn- leifur Tobíasson í Geldinga- holti (nú kennari við Mennta skólann á Akureyri,) Páll Sig urðsson s. st. (nú bóndi í Keidúdal), Árni Arason á Vímimýri, (nú í Reykjavík), Jón Árn'ason á Vatnsskarði (nú bankastjóri i Reykjavík), Sigurður Þórðarson á Fjalli (síðar kaupfélagsstjóri og al- þingismaður Skagfirðinga nú starfsmaður fjárhagsráðs) og Klemens Þórðarson, bróðir Sigurðar, (nú bílstjóri í jReykjavík). Á þessum fundi voru Bryn leifur, Páll og Sigurður kosn- ir til að seinja uppkast að lögum fyrir félagiö og stofn- fundur ákveðinn að Víðimýri 20. okt. Á þeim fundi mættu 5, Ari, Brynleifur, Klemens, Páll og Sígurður. Voru þar lög samþykkt og í stjórn kosnir Brynleifur Tobíasson, Páil Sigiuðson og Sigurður Þórð- arson. Þar með vár forrrilega gengið frá stefnun féiagsins. Á fyrstu handtökin í Varmahlíð. íþróttir hafa alimikið verið iðkaðar, og fljótlega kom fé- lagiö upp sundlaag austan við Reykjamól og hélt uppi sundkennslu um tuttugu ára íkeið. Um 1830 hóf félagiö undir- búning að byggiíigu stein- Sr. Philip Pétursson kosinn forseti Þjóð- ræknisfélagsins Á þirigi Þjóðræknisfélags íslendinga í Vesturheimi var séra Philip Fétursson, prest- ur i Winnipég kosinn forseti félagsins. Hann hafði áður verið varaforseti, en forseti þess var séra Valdimar Ey- lands, sem nú þjónar Útskála- prestakalli og mun dvelja npr fram á þetta sumar. Varaforseti félagsins var kjörinn Tryggvi J. Oleson, féhirðir Grettir L. Jóhanns- son og ritari séra -Halldór E. Johnson í Lundar. Á þessu þjóðræknisþingi voru þeir dr. Árni Helgason ræðismaður í Chicago og dr. Þorvaldur Þorvaldsson kjörn- ir lieiðursíéiagar Þjóð'ræknis- félagsins. Byggingarsaravinnu- félag Stykkishólms hefir byggt 27 á 3 árum Slitnað upp nr öllu samstarfi um kjarn- orkumálin Samstarfinu um kjarnorku málin er Iokið. Rússar kröfð-, ust þes.s, að bönnuð yrði fram leiösla kjarnorkuvopna. Þetía vildu Bretar, Bandaríkja- menn og Frakkár ekki íallast á, nema kom ð yrið á alþjóöa eftiriiti, En því höfnuðu Rúss ar. steyptrar suridlaugar, En um bað leyti var stoínað hér í sýsl unni félag til að hrinda af stað bygrúngu héraðsskóla við Reykjarhól og ákveðið að hefja þá starfsemi með vand aðri sundlaugargerð. Ákvað Fram þá að gerast þátttak- andi í þelrri framkvæmd og lagði fram nokkra fjárhæð og allmikla vinnu, og fyrstu handtökin við þá byggingu voru unnin af fólki úr Fram. Á sínum tínia átti félagið þátt í stofnun Sfeðgræktar- íélags Skagafjarðar, og skóg- rækarreit hefir íélagið nú. Byggingasamvinnufélag Stykkishólms hefir nú starf- að í þrjú ár. Það hóf starf- semi sína sumarið 1945 og hefir byggt nokkur hús á ári hverju síðan. Hefir félagið nú byggt alls 19 hús í kaup- túninu og eru í þeim 27 íbúð_ ir. Er hér um að ræða einbýl- ishús og fleirbýlishús, og eru flest nýju húsin í kauptúninu byggð á vegum íelagsiris. Þau eru öll steinsteypt og vönduð að frágangi. Óhætt er að fullyrða, að starf Byggingarsamvinnufé- lagsins hefir bætt úr brýnni þörf kauptúnsins og að miklu meira hefir verið byggt þar vegna þe.ss. Starfsemi. félags- ins hefir þó takmarkazt nokk uð vegna skorts á lánsfé,eins og hjá flestum öðrum bygg- ingarfélögum á landinu. Ekkl er enn ákveðið, hverjar fram kvæmdir félagsins verða á þessu sumri, þ'ví að bygging- arefni og lánsfé er af skorn- um skammti, en margir fé- lagsmenn hafa hug á að byggja. — Formaður félags- ins er Sigurður Steinþórsson kaupfélagsstjóri. Tveir íslenzkir full- trúar á ráðstefn- unni í Haag Á fundi þeim, sem nú stend- ur yfir í Haag og Churchill hefir boðað til, munu mæta tveir íslenzkir fulltrúar, Finn ur Jónsson og Ólafur Thors. Þeir mæta þar sem fulltrúar flokka sinna, en ekki sem full- trúar Alþingis. Yfirleitt mæta ekki nema flokksfulltrúar á þessum fundi og það nær ein- göngu fulltrúar frá andsósíal- istiskum flokkum. Brezki verkamannaflokkurinn neit- aði t. d. að taka þátt í hon- um, en nokkrir þingmenn hans mæta þar í óleyfi flokks- stjórnarinnar. — Jafnaðar- mannaflokkarnir á Norður- löndum muriú ekki eiga þar fulltrúa. Hungurvofunni hægt frá dyrura Fulltrúj Pakistanstjórnar hef ir látið svo ummælt, að pú sé í fyrsta skipti um langt skeið óþarfi að óttast hungursneyð þar í landi. í fyrsta lagi muni nú hefj- ast innflutningur landbúnað arafurða frá Burma. i öðru lagi muni hjálparstarfsemin koma Pakistan að verulegu liði. í þriðja lagi verði nú unnt að skipuleggja matvæla flutninga frá hinum frjó- sömu hlutum landsins til þeirra héraða, þar sem mat- arskortur kynni að verða. --

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.