Tíminn - 10.12.1948, Blaðsíða 8

Tíminn - 10.12.1948, Blaðsíða 8
Skipverjar vsIíIm, sem fsesí segja tmi sti*sinelS3 ©í*' fsjÖ!*gasnliia Skipbrotsmennirnir sex, sem af komust, er brezki togar- inn Sargon fórst vestur við Hafnarmúla við Örlygshöfn á dögunum, eru nú komnir til bæjarins. Komu þeir hingað með flugvél frá Patreksfirði í gærdag. Blaðamenn ræddu við þá í flugvallarhótelinu, skömmu eftir komu þeirra til bæjarins, en þeir vildu sem fæst segja um hrakninga sína. Mynd þessi var tekin af brezku skipbrotsmönnunum, er þeir komu til Reykjavíkur í gær. Stýrimaffur inn er þriðji maffur frá vinstri á myndinni. (Ljósm. Guffni Þórffarson) Fimm samkomur Framsókn- armanna í Reykjavík og nærsveitum um heigina Framsóknarfélögin í Reykjavík og nágrenni munu gang- ast fyrir fimm skemmtisamkomum í Reykjavík og nærsveit- um þessa helgi. Verða samkomurnar í Keflavík, Gaulverja- bæ, Hveragerði, Akranesi og í Reykjavík. Framsóknarvist í Keflavík. Framsóknarfélagið í Kefla- vík efnir til skemmtunar í i Keflavík í kvöld. Hefst hún með því, að spiluð verður hin j vinsæla framsóknarvist, en siðan veröa ræðuhöld, söng- 1 ur og dans. Vigfúg Guðmunds ' son mun mæta á þessari skemmtun. Samkoma F. U. F. í Gaul- verjabæ. Dagrenning, félag ungra Framsóknarmanna í Flóa, heldur almenna skemmtisam komu á laugardagskvöldið að félagsheimilinu í Gaulverja- bæ. Hefst hún kl. 9 s.d. Þar flytur Bjarni Ásgeirsson, at- vinnumálaráðherra, ræðu. Svanasystur, fjórar ungar stúlkur, syngja með gítarund- irleik. Síðan verður dansað og leikur mjög góð hljómsveit fyrir dansinum. Samkoma í Hveragerði. Framsóknarfélag Ölfuss og Hveragerðis heldur einnig al- menna skemmtisamkomu á laugardagskvöldið og hefst húrí kl. 9 e. h. Þar flytja þeir ræður Hermann Jónasson, formaður Framsóknarflokks- ins og Daníel Ágústínusson. Þar verður einnig sýnd kvik- mynd Óskars Gíslasonar Reykjavík vorra daga. Dans- að verður á eftir og leikur góð hljómsveit. Samkoma á Akranesi. Framsóknarfélag Borgar- fjarðarsýslu gengst fyrir al- mennri skemmtisamkomu á Akranesi á laugardagskvöld- ið. Verður þar spiluð fram- sóknarvist og einnig verður til skemmtunar ræður, söng- ur, kvikmyndasýning og dans. F. U. F. í Reykjavík. Að lokum má svo geta þess, að F. U. F. í Reykjavík held- ur skemmtun í samkomusal Edduhússins við Lindargötu á laugardagskvöldið og hefst hún kl. 8,30. Þar verður ým- islegt til skemmtunar svo sem kvikmyndasýning, en annars verður sú skemmt- un auglýst síðar. Reykjaskóli fékk aftnr rafljós í fyrradag Reykjaskóli í Hrútafirði fékk aftur rafljós í fyrradag. Var komið upp bráðabirgða- stöð handa skólanum, og gekk það mjög greiðlega. Þakkar Guðmundur Gíslason skólastjóri það mest Halldóri Einarssyni rafmagnseftirlits- manni, hversu skamma stund skólinn néyddist til þess að sætta sig við olíuljós. Kennsla féll aldrei niður í skólanum, þrátt fyrir brun- ann.. Mestum vandkvæðum veld- ur það skólanum, að smíða- skálinn brann, svo að vinnu- kennslan lamast af þeim sök- um. Vélunum var þó bjargað úr smíðaskálanum, og er fyr- irhugað að upphita bragga, j þar sem unnt veröur að koma I þeim fyrir að nýju. Kviknar í véibátnum Þorbirni frá Keflavík í fiskiróðri Báíverjar átti ekki annars úrko.star en hleypa á land Síðdegis í gær kviknaði í vélbátnum Þorbirni frá Keflavík, er hann var í fiskiróðri. Voru tveir menn á bátnum, og fengu þeir ekki ráðið við eldinn, svo að ekki var annars úrkostar en hleypa á land upp. Eldurinn kom upp í vélar- rúmi bátsins. Magnaðist hann skjótt, en bátverjar, Axel Eyjólfsson og Gunnar Sigurðsson, náðu landi í Helguvík undir Keflavíkur- bjargi, áður en það var um seinan. Komust þeir heilu og höldnu á land. Leituðu þeir sér nú hjálp- ar til þess að slökkva eldinn í bátnum, en þegar komið var á vettvang var báturinn orð- inn ónýtur. Bátur þessi var átta smá- lestir að stærð, eign Maríu Jónsdóttur í Keflavík, smíð- aður árið 1916. Annar mannanna brennd- ist ltils háttar í andliti við slökkvitilraunirnar, en gerði lítið úr því, er tíðinda- maður Tímans í Keflavík átti tal við hann í gærkvöldi. Fyrir hádegi í gær var Kata ! línaflugbátur frá , Flugfélagi íslands sendur vestur til Pat- reksfjarðar til að sækja skip- brotsmennina af brezka tog- aranum Sargon, sem fórst á dögunum. Kom flugvélin hing að til Reykjavíkur um klukk- an eitt í gær, og með henni hinir hröktu brezku sjómenn. Blaðamenn höfðu tal af skip- brotsmönnum, þegar þeir komu úr flugvélinni, en fyr- irliði þeirra, stýrimaðurinn, varðist allra frétta, a. m. k. þar til hann hefði haft sam- band við Geir Zoéga, umboðs mann togarafélagsins. Þeir sex sem af komust eru á ýmsum aldri. Þrír þeirra eru ungir menn, sá.yngsti nítj án ára, og elzti maðurinn sex tugur. Var hann matsveinn á togaranum, en er annars gamall skipgtjóri, nú hættur skipstjórn fyrir nokkru. Hann ;var hér í Reykjavík tvö ár á hernámstímanum og þekkti hér menn og hagi og hafði við orð fara strax í gær að heilsa upp á gamla kunn- ingja, ef sér batnaði höfuð- verkurinn, er hann hafði, er hann kom úr flugvélínni. Ann ars eru mennirnir allir nokk- I urn veginn búnir að ná sér j eftir volkið. En alvaran hefir j mótazt í andlit þeirra við þær j hörmungar, sem þeir félagar hafa orðið að þola og horfa j upp á. ! Stýrimaðurinn er 56 ára að ! aldri og heitir Welwerit. Hann . hafði orð fyrir þgim félögum ! og leysti úr spurningum, er lagðar voru fyrir hann, eftir þvi sem hann taldi ástæðu til. j — Við vorum á leið inn Patreksfjörð í óveðrinu, sagði hann, er ógæfan skall yfir og skipið strandaði. Dýptarmæl- irinn var bilaður og. svarta- myrkur af nóttu og illviðri. Vissum við ekki fyrr til en skipið tók niðri. Var það um klukkan níu um kvöldið. Flestir skipverj- ar voru þá neðan þilja. Það leið ekki á löngu, að skipið varð ljóslaust með öllu og bráðlega var heldur ekki hægt að nota senditæki skips ins. Var því ekki annað að gera fyrir skipverja, en biða í greipum dauðans, þess er verða vildi. Sjógangurinn var svo mikill, að ekki var fært um skipið, og innan stundar var með öllu ógerlegt að kom ast eftir þilfarinu milli hval- baks og brúar. Lá þilfarið stöðugt undir ólgandi sjávar- soginu. Hvasst var, og stóð vindur á land, þar sem skip- ið strandaði. Ekki sáu þeir skipverjar til lands, né nein merki þess að lifandi verur byggju þar nærri, fyrr en um morguninn, að birti. Ekki segjast þeir félagar hafa séð línu, sem skotið var á undan þeirri, er þeir náðu, enda varla getað séð hana þá, vegna veðurofsans. Strax í birtingu var línu skotið um borð og var þó Þórð ur Jónsson tekinn við forustu björgunarstarfsins, en hann vann sér frægð með fræki- legri framgöngu við björgun mannanna af brezka togar- anum Dhoon í fyrra og stjórn aði þeirri björgun. Náðu skip- verjar í línuna þá strax um morguiiinn, og var búið að bjarga þeim, er bjargað var, um klukkan ellefu, að því er stýrimaður telur. Voru þeir félagarnir þá þjakaðir mjög og telja þeir, að hjálpin hefði ekki mátt koma mikið seinna, ef þeír hefðu ekki átt að far- ast aliir af skipinu. Þegar skipið strandaði, fóru fimm menn framundir hvalbak og höfðust við um nóttina undir honum og síð- ar uppi á hvalbaknum, eftir að ekki var lengur fært að vera undir honum. Komust þeir allir af. Hinir voru í brúnni um nóttina og bjarg- aðist aðeins einn þeirra, stýrimaðurinn. Hinir létust í brúnni um nóttina, af kulda og vosbúð, því sjórinn braut allar rúður í brúnni og ofan ! af henni síðari hluta nætur. Stýrimanninum tókst að brjótast fram á hvalbak við illan leík, en sj ór gekk þá yfir það nærri viðstöðulaust. At Íanzhaf ssát tmáli í dag munu hefjast í Washington umræöur um væntanlegan Atlanzhafssátt- mála. Taka þátt í þeim um- ræðum Bretland, Frakkland - og Beneluxlöndin, sem eru að- ilar að Bandalagi Vestur- Evrópu en auk þeirra Banda- ríkin og Kanada. Seinna verð ur svo fleiri ríkjum boöið að taka þátt í þessum viðræð- um. 32. árg. Reykjavík 10. iles. 1948. 273. blaö

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.