Tíminn - 31.10.1951, Blaðsíða 7
:%>>M
j: fc o
i-1.»r 1
246. blað.
TÍMINN, miðvikudaginn 31. október 1951.
7.
Kvikmynd frá Lofti, er
vekja mun athygli ®
L.itkvikmyndin TViðurisctiiiiig'iii*iiiii, cr gcrð
var í Hækingsdal, frumsýud á laug'ardag'iiin
Loftur var í góðu skapi eins og venjulega í gær, er hann
sýndi blaöamönnum hina nýju kvikmynd sína, Niðursetn-
inginn, sem frumsýnd verður hér í Nýja bíó á laugardaginn
kemur. Hvort sem þessi mynd mín þykir vel eða illa gerð,
eða einhvers staðar þar á milli, þá er ég sannfærður um,1
að kvikmyndagerðin hér á framtíð fyrir sér, sagði Lofíur
Guðmundsson ennfremur í gær, en þetta verður síðasta fjallinu beggja megin heiðar.
afrek mitt á þessu sviði, bætti hann viö. -------------------------
Fjarðarheiði
greiðfær
Frá fréttaritara Tímans
í Seyðisfirði.
Vegurinn yfir Fjarðará liefir
ekki teppzt að neinu ráði á
þessu hausti, enda hefir haust
tíð verið góð að undanteknum
nokkrum dögum og loks í sum
ar lokið við upphækkaðan veg
j á heiðinni sjálfri. Má telja víst,
l að fært verði yfir heiðina fram
an af vetri í venjulegum árum.
Éftir er þó að gera nokkuð í
Fullhugi í kvikmyndagerð.
Loftur Guðmundsson er
sannkallaður fullhugi í braut
ryðjandastarfi sínu um ís-
lenzka kvikmyndagerð. Hann
hefir hiklaust lagt út í kvik-
myndatökur við hin erfiðustu
skilyrði og með ófullkomin
tæki þegar sá mælikvarði er
notaöur, sem miðað er við, við
fullkomna kvikmyndagerð
eftir handritum, þar sem tal
og leikur nýtur sín. Sumt hef
ir tekizt vel hjá honum og
annað miður eins og gengur.
En framtak Lofts og forusta
hefir hleypt fjöri í kvikmynda
gerðina og vakið áhuga, sem
ef til vill fæðir það af sér í
þessu efni hér á landi, er
koma skal: Kvikmyndaver
með fullkomnum tækjum og
raunverulegum fagmönnvim,
þar sem hæfileikarnir eru
prófsteinninn.
Hin nýja kvikmynd Lofts,
Niðursetningurinn, er athygl-
isverð fyrir margra hluta sak-
ir. Efni myndarinnar er saga
eftir Loft sjálfan. Frá bók-
menntalegu sjónarmiöi má
vel vera, að saga þessi sé ekki
mikilfengleg. En efni mynd-
arinnár er ramíslenzkt. Það
fjallar um eitt af vinsælustu
efnunum í þjóðsögum okkar
— söguna gamalkunnu um
niðursetning, eða öllu held-
ur niðursetningana, öskubusk
una í ævintýrinu, sem finn-
ur elskhuga sinn og hamingj-
una í sögulok.
Góð skenimtun, þrátt
fyrir smágalla.
Að vísu má segja, að marg-
ir tæknilegir gallar séu á kvik
myndinni og fyrri helming-
ur hennar sé full laus í reip-
unum og samhengislaus. En
flestir gallanna eru þannig,
að hinn almenni kvikmynda-
hússgestur getur vel notið
myndarinnar og það þarf eng
um að leiðast, sem á hana
horfir.
Síðari hlutj myndarinnar er
betri og atburðarásin þar fjör
ugri. Sá hluti myndarinnar
heföi þó getað verið ennþá
betri og alveg á takmörkum
þess að vera ágætur, ef oftar
hefðj verið skipt um mynd-
svið, til að auka fjölbreytni
myndarinnar.
Kvikmyndastjörnur
og kviltmyndaver .
Samtals unnu um 25 manns
að kvikmyndatökunni í Hæk-
ingsdal, þar sem kvikmynda-
ver Lofts var í sumar. Kvik-
myndað var svo til á hverju
sem gekk í ríki náttúrunnar,
og ber myndin þvi miöur að
nokkru þess merki.
Leikstjóri og einn af aðal-
leikendum er Brynjólfur Jó-
hannesson, en auk hans Bryn
dís Pétursdóttir, sem virðist
geta orðið hin ákjósanlegasta
kvikmyndastjarna. Aðrir leik
endur, sem koma mikið við
sögu eru Jón Aðils, Anna Guð-
mundsdóttir, Jón Leós, Rúrik
Haraldsson og Valur Gísla-
son.
Söguefni myndarinnar er
prentað í leikskrá, sem látið
verður ókeypis með aðgöngu-
miðum. Er nauösynlegt fyrir
sýningargesti að lesa þaö til
að skilja til fuíls gang mynd-
arinnar og samhengi fram-
an af, þar sem kvikmyndin
nær ekki að fullu efni sög-
unnar.
SniIIdarbragð á tóntöku.
Hin góða tón- og talupp-
taka gefur þessari íslenzku
kvikmynd talsvert gildi fram
yíir það, sem maður á að
venjast í íslenzkum kvikmynd
um. Mun óhætt að segja, að
með þeim ófullkomnu tækj-
um, sem notuð hafa veriö,
hefir hér prýöilega tekizt í
höndum Valdimars Jónsson-
ar. En hann er snjall og vel
menntaður á þessu sviði. Hef
ir hann unnið að samsetn-
ingu myndarinnar og endur-
bætingu hljómsins erlendis
um nokkurt skeið.
Benti Loftur réttilega á, að
þar er hæíileikamaður á ferð,
sem getur orðið íslenzkri kvik
myndagerö að góðu liði, ef
hún þá á framtíð fyrir sér,
en það skulum við vona. Hin
nýja kvikmynd Lofts er all-
góður áfangi og betur af stað
farið en heima setið.
Fiskaflinn þriðjungi
meiri en í fyrra
Samkvæmt upplýsingum Fisld
félag íslands var fiskaflinn í
september 1951 22.528 smál., þar
af síld 10.418 smál., en til sam
anburöar má geta þess að í
september 1950 var fiskaflinn
20.463 smál., þar af síld 11.966
smál.
Fiskaflinn frá 1. janúar til 30.
september 1951 varö alls 329.678
smál., þar af síld 82.007 smál.,
en á sama tíma 1950 var fisk-
aflinn 257.723 smál., þar af síld
46.474 smál. og 1949 var aflinn
287.176 smál., þar af síld 64.286
smál.
Hagnýting þessa afla var sem
hér segir: (til samanburöar eru
settar í sviga tölur frá sama
tíma 1950):
ísvarinn fiskur 30.338 (26.802)
smálestir. Til frystingar 83.120
(47.113) smál. Til söltunar 57.
870 (96.526) smál. Til herzlu
6.440 (475) smál. í fiskimjöls-
verksmiðjur 67.313 (38.658) smál.
Annað 2.590 (1.675) smál.
Síld til söltunar 19.450 (17.116)
smál. Síld til frystingar 3.792
(4.949) smál. Síld til bræðslu
58.765 (24.409) smál.
Þungi fisksins er miðaður við
slægðan fisk með haus að und
anskilinni síld og þeim fiski,
sem fór til fiskimjölsvinnslu, en
hann er óslægður.
Undanliald jöklanna
í norðlægum löndum
i Ahlman prófessor, sem ís-
lendingum er að góðu kunn-
ur, hefir skýrt frá því í út-
varpserindi, að Kebnekajse-
jökullinn i Sviþjóð hafi minnk
að um ellefu milljónir ten-
ingsmetra síöustu sjö árin. —
. Þótt ýmsum hafi þótt sum-
1 arið ómilt, sagðist hann full-
yröa, að það þýddi ekki neina
breytingu á því, að jöklar á
Norðurlöndum minnkuðu.
í þessum sama útvarps-
þætti skýrðj Leo Lysgaard veð
urfræðingur frá því, að hiti
þriggja sumarmánaðanna
hefði í rauninni verið' í með-
allagi, en því fyndist fólki
veðurfariö hafa verið erfitt,
að votviðrj hefðu verið meira
að staðaldri eh fólk á að venj-
ast, þótt • úrkomumagn hafi
líka verið svipað og oft áður.
j Á þessu ári sagði Ahlman,
að Kebnekajse-jökullinn
hefði minnkað um tvær millj.
teningsmetra, sem er meira en
nokkurt annað' sumar.
| Bengt Strömgren prófessor
kom enn fram í þessum sama
. útvarpsþætti og ræddi hann
um það, hva'ð ylli þeirri veð-
uríarsbreytingu, sem óumdeil
anlega hefði átt sér stað síö-
ustu áratugi hér í norðlægum
löndum. Minntist hann með-
al annars á þá tilgátu, að' sól-
in stafaði frá sér meiri hita
en áður. Um það sagði hann
þó, að ekkert yrði fullyrt að
j svo stöddu. En þegar þeir
j tímar kæmu, að’ hægt væri
aö skjóta nógu langt út í
geiminn flaugum með mæli-
tækjum, er mældu últra-fjólu
bláa geisla sólarinnar, væri
hægt að svara spurningu þess
ari með fullu öryggi. Þess get-
um viö ef til vill vænzt eftir
I tíu ár, sagð'i Strömgren.
J En meðan við' bíöum þeirr-
ar stundar, getum við' glatt
okkur við það, að horfur eru
á h’.ýnandi veðurfari í hinum
norðlægu löndum, jökulhett-
urnar minnka, kornyrkjan
þokast norður á bóginn, og
, fuglar, dýr og fiskar leita í
i sömu átt.
.s. Hugrún
verður hér eftir í stöðugum
ferðum milli Reykjavíkur og
Vestfjarð'a.
Skógafoss
annast ferðir milli Reykjavík-
ur og Vestmannaeyja.
Vörumóttaka daglega.
Sími 6420 og 80 366.
AFGREIÐSL A L A X F O S S
TENQILL H.F.
SelSi rið K1«ppsref
Siml 86 694
annaat hversKonar raflagn
Ir og vlðgerðir svo sem: Verl
wnlðjulagnlr, búsalagmr
skipalagnlr ásamt viðgerðum
og uppsetnlngu á mófcrum
i röntgentækj um r>g beimlli*-
frélum
Gerist áskrifendur að
n
~.ji
Rafgeymar
6 volta, 84 — 100 — 114 Amp.
12 —64 — 72 — 100 Amp.
fyrirliggjandi. — Sendum
gegn eftirkröfu.
Véla- og raftækjaverzlunin,
Bankastræti 10. Símj 6456
Tryggvagötu 23. Sími 81279.
ALLSKONAR
pípulagningavinna
Nokkurt cfni fyrirliggjandi.
Guðmilndur Friðfinnsson,
Kjartansgötu 5. Sími 6103.
Sýningar kl. 5 og 9, með
þátttöku fjögurra ljóna.
Fastar ferðir til Cirkusins
hefjast klukkutíma fyrir
hverja sýningu frá Búnaðar-
félagshúsinu og Sunnutorgi
viö Langholtsveg.
S. í. B. S.
Kaupum - Seljum
Allskonar notuð húsgögn.
Staðgreiðsla.
PAKKHÚSSALAN
Ingólfsstræti 11 — Sími 4663
ELSKU MUT
Sýning á morgun kl. 8. Aðgöngu
miðasala í dag frá kl. 4—7 og á
morgun eftir kl. 2. Sími 3191.
Ragnar Jónsson
hæstaréttarlögmaður
Laugaveg 8 — Siml 7753
Lögfræðistörf og elgnaum-
•íala
STÚDENTAFÉLAG REYKJAVIKUR:
e-<
I
★ aðalfundur!
félagsins verður haldinn í Listamannaskálanum
fimmtudaginn 1. nóvember og hefst kl. 8,30 e. h.
DAGSKRÁ:
a Aðalfundarstörf.
1. Skýrsla stjórnarinnar.
2. Stjórnarkosning.
b Gylfi Þ. Gíslason flytur erindi um skatta
málin og er fundarmönnum heimilt að
leggja fyrir hann fyrirspurnir.
Félagar eru áminntir um að sýna félagsskýrteini við
innganginn. — Nýir félagar geta fengið skýrteini eftir
kl. 8 við innganginn á fudarstað.
Stjórnin.
!
tmaacsnnnnii
«
ji
;nnnniironiiWgM
il
::
• ♦
• ♦
::
1
• ♦
::
Sníðaskólinn
Sníðanámskeið hefst fimmtudaginn 1. nóvember. —
Kennt veröur eins og aö undanförnu að sníða eftir
máli alla dömu- og barnafatnað.
Jafnframt hefst saumanámskeið í kjólasaumi og alls
konar barnafatnaði.
BERGLJÓT ÓLAFSDÓTTIR,
Laugarnesveg 62 — Sími 80730
imanum
Áskrlttr.rslml 2323
H
♦
♦
!
t
t
t
ATHUGIÐ!
VIÐ HOFUM FLUTT MALARAVINNUSTOFU OKK-
AR ÚR VELTUSUNDI 1, í MÁVAHLÍÐ 29
Sprautum allskonar hluti úr tré, gleri og málmi.
Sprautum skó (alla liti). Hrærivélar, þvottapotta,
barnavagna og lterrur, gibsmyndir, dúkkur.
Kökukassa o.fl. — málum húsgögn gömul og ný.
MÁLARAVINNUSTOFA Hörður & Kjartan h. f.
Mávahlíð 29. — Sími 80945
♦
♦
!