Tíminn - 08.02.1952, Blaðsíða 3
3.
í slendingaJpættLr
Sjötíu og fimm ára: Guðrún Jónasson
1 dag er frú Guðrún Jónas-
son 75 ára. Hún er fædd að
Felli í Biskupstungum 8. febrú-
ar 1877.
Ekki kann ég að rekja ættir
hennar, en það veit ég að for-
eldrar hennar voru sæmdar og
dugnaðarhjón. Barn að aldri
fór G.J. með foreldrum sínum
til Vesturheims. Ólst hún þar
upp, fékk þar staðgóða mennt-
un, giftist þar, kom heim til.
íslands fulltíða kona, setti fljót
lega upp verzlun í húsinu Að-
alstræti 8, rak hana um nokkurt
skeið.
Síðar stofnuðuu þær verzlun
saman frú Guðrún Jónasson og
Gunnþórunn Halldórsdóttir og
reka þær hana enn í samein-
ingu undix nafninu Gunnþór-
unn Halldórsdóttir og Co.
Jörðina Nesja í Grafningi eiga
þær vinkonurnar (G.H. og G.J.)
og hafa þær rekið þar búskap'
lengi og dvalið þar langdvölum I
á sumrin með uppeldisbörn sín,
sem nú eru fulltíöa fólk. j
Af ofantöldu, þótt stiklað sé
á stóru, sést að frú G.J. hefir
ekki verið athafnalaus um æf-
ina. Ótalin eru þó hin marg-
þættu félagsstörf, er hún hefir,
innt af hendi. í öllum félögum,
sem hún hefir verið í, hefir hún.
starfað með dugnaði, áhuga og
ósérhlífni. í bæjarstjórn Reykja
Víkur hefir G.J. setið í mörg ár.
Hefir hún starfað þar í fjölda
nefnda.
Ekki er hægt í stuttri blaða-
grein að rekja starfsferil frú G.
J., enda verður það sjálfsagt
gert betur og nánar af öðrumu
en mér. Kunnust eru mér störf
G.J. í Kvennadeild Slysavarna-
félagsins í Reykjavík og fjáröfl-
unarnefnd Hallveigarstaða.
Þegar Kvennadeild S.V.F.Í.
var stofnað 1930 var frú G.J.
kjörin formaður hennar og hef-
ír verið kosin formaður ár-
lega æ síðan.
' í stjórn S.V.F.í. hefir hún
verið síðan kvennadeildin var
stofnuð.
Óhætt er mér að fullyrða, að
konurnar, sem starfa með frú
G.J. í Slysavarnadeildinni elska
hana, virða og meta að mak-
legleikum, vegna mannkosta
hennar og góðgirni. Kvenna-
deildin hefir þróazt býsna vel
undir stjórn frú G.J. Tala fé-
lagskvenna mun nú vera um
1600.
Mikil eru störfin, sem Kvenna
deild S.V.F.í. í Reykjavík hefir
unnið undir stjórn G.J., enda
er hún lagin að velja sér konur
til samstarfs, sem eru dugandi
og áhugasamar.
Fyrir fé, er Kvennadeildin
hefir safnað, liafa verið byggð
mörg skipbrotsmannaskýli á
eyðisöndum og í óbyggðum, þar
sem helzt er hætta á skips-
ströndum.
Auk þess hefir verið lagt mik
ið fé í björgunarskipið „Sæ-
björgu“ og radartæki í „Maríu
Júliu“. Sést af þessu, þótt margt
sé ekki nefnt, sem félagið hef-
ir lagt fram til slysavarna, að
ekki hefir það legið á liði sínu.
Vissa mín er það, að fé, sem
deildin hefir aflað, hefir bjarg
að mörgum mannslífum.
Eining og kærleikur ríkja á
fundum Kvennadeildar S.V.F.x.
Fundunum stjórnar frú G.J. vit
urlega með mildi og mannúð og
tekur hún fullt tillit til tillagna
félagskvenna, jafnt úr hvaða
flokki eða stétt þær eru.
Frú G.J. er formaður í fjár-
öflunarnefnd Hallveigarstaða. 1
þessari nefnd eru konur frá
flestum kvenfélögum Reykja-
víkur, vil ég segja það, að ekki
er á allra færi, að fá konur af
öllum stjórnmálaflokkmn til
þess að starfa að einu máli á-
rekstralaust eins og frú G.J. hef
ir tekizt og allar konurnar á-
nægðar með stjórn hennar.
Hefir og furðulegur árangur
náðzt með störfum nefndar
þessarar.
Fyrir frumkvæði frú G.J. hef-
ir bæjarstjórn Reykjavíkur sam
þykkt að láta hið fyrirhugaða
kvennaheimili, Hallveigarstaði,
fá lóð við Tjörnina.
Stjórn Slysavarnadeildar
kvenna í Reykjavík gengst í
kvöld fyrir samsæti til heiðurs
frú G.J. Margir munu vilja taka
þátt í’ því. Vér, sem höfum
kynnzt henni, óskum henni
allra heilla á afmælisdaginn.
Þakkir fyrir störfin. Guði gefi
henni líf, heilsu og þrek, til þess
að starfa enn lengi að áhuga-
málum sínum meðal vor.
Þ. Þórðardóttir.
UTAN ÚR HEIMI
Kvikmyndaleikkonur, sem
James Mason metur mest.
Hinn fíægi enski kvikmynda
leikari James Mason, er nú
dvelur í Holliwood, hefir birt
lista yfir þær leikkonur, sem
honum líkar bezt við, Því
skildi ég ekki birta slíkan lista,
segir hann, eins og flestir aðr-
ir í þessari borg. „Glamour"-
stúlkurnar met ég ekki mikils,
en listi minn er þannig:
1. Pamela Kellino (kona leik
arans).
2. Ava Gardner.
3. Lauren Bacall.
4. Danielle Darrieux.
5. Joan Bennett.
6. Faith Domerque.
7. Lena Horne.
8. Peggy Lee.
9. Vivien Leigh.
10. Judy Garland.
Tvíburar í fimmta skipti.
Á sjúkrahúsi í Suður-Dakota
eignaðist kona nokkur, Mar-
cella Big Crowd, tvíbura í
fimmta skipti. I þetta skipti
voru það tvær stúlkur, en áð-
ur hafði það verið sitt hvort
kyniö.
Karl Finnbogason
skólastjóri
Falla hin fornu tré,
feigð kveður enn á glugg
Gustur um gömul vé
gnólegan boðar ugg.
Ljósið, sem lífgrös ól
ljómar um genginn stig,
Vorið mun veita skjól
vinum, sem harma þig.
Enn loga um „Aldamót“
æskunnar glæstu heit.
Djarfhuga disablót
drýgði hin frækna sveit.
Fráneygur fremstur stóð
fuilhugi, arfi Njáls.
Lýðfrelsi loftköst hlóð,
Iisthagi stíls og máls.
Björt var þín brúðarför,
að baki var þjóðarhjarl.
Þá ljómaði um lífs þíns knör,
í lyftingu stóðstu, Karl.
En lýðhyllin löngum brást,
þú lékst aldrei skjöldum
tveim.
Sanngirni og sannleiks ást
sigra ei þennan heim.
I .
Drenglyndi skar þér skrúð,
skart það af glysi bar.
Heilsteypt og hjartaprúð
hyggja þín jafnan var.
Aldrei var silfri seld
sæmd þín á Iífsins ferð.
Völsungur veður eld,
vílmenni ei dugir sverð.
Um látinn þig ljóma skal
logi, sem frelsið ól.
í vorbjörtum dýrðardal
iDrottinn þér veiti skjól.
Aldrei þar athvarf brást
elskuhuga lífs á jörð.
Sanngirni og sannleiks ást
sagt er þar haldi vörð.
Hjörtur Kristmundsson.
i
■ Vatnið* bjart og furðufjöll,
'fagrir skógarhlynir,
skreyttu þína haguarhöll,
hollir æskuvinir.
!
Hófst til liðs af hörkudög
hver sem gerðist þörfin,
lagðir ávallt allan hug
í ólíklegustu störfin.
I
Heilsteypt sál og hugsun skýr,
hjartahlýr og glaður,
æ til reiðu eins og nýr
íslands vökumaður.
Áður saman áttum vist
eygði sjónhring fríðan.
Geislastarf og grænan kvist
geymi frá þér síðan.
Lífs þín hurð i fals er felld
finn ég klökkvann undir.
Við þinn bjarta erineld,
urðu góðar stundir.
Þá ég met og veg á vog
vinarkynninguna,
er sem norðurljósalog
leiki um minninguna.
Kristján Sigurðsson
Brúsastöðum
* Fæddur á Arnasta í Ljósa
vatnsskarði.
Grímur íjármaður
Efftir Víking' Gnðmnndsson, Grundarlióli
Gamansögur fyrir austan
járntjakl.
Kommúnistaflokkur Rúm-
eníu hefir um langt skeið safn
að fötum fyrir Norður-Kóreu
menn, en það hefir oft komið
fyrir, að safnararnir hafa
haldið eftir bezta klæðnaðin-
um handa sér. í Búkarest er
þessi saga sögð:
Tíu ára drengur kemur
heim til sín og kallar hátt í
föður sinn: Pabbi, ég hef séð
Kóreubúa!
Kóreubúa, segir faðir hans
undrandi. Hvar sástu hann?
Jú, hann kom út úr vínsöl-
unni hérna í götunni.
En hvernig vissir þú, að
hann var Kóreubúi? Var hann
gulur í framan?
Nei, það var hann ekki, en
hann var í buxunum, sem þú
gafst í Kóreusöfnunina.
Snemma að hátta
í Bandaríkjunum hefir það
verið rannsakað hve lengi fólk
þar í landi sefur. Við þessa
rannsókn hefir komið í ljós,
að# 96% af íbúunum fara í
rúmið fyrir miðnætti og að
75% eru komnir á fætur og
byrjaðir að vinna klukkan 7,30
á morgnana.
í afskekktustu sauðfjárrækt-
arhéruðum íslands finnast enn
sannir fulltrúar hins gamla
tíma; menn, sem helga starf-
inu líf og sál, hamingjusamir og
lítillátir menn, sem una glaðir
við sitt. Sjóndeildarhringur
þeirra er ef til vill ekki stór, en
hann er glöggur. Hamingja
þeirra er ekki sprottin af auði
og allsnægtum, glysi eða gjá-
lífi, heldur er hún sannur ávöxt
ur vel unnina verka. Og því bet
ur sem verkin eru unnin því
meiri er hamingjan og gleðin
við verkalok. Svo mikla aiúð
leggja þessir menn við vinnu
sína, að undirmeðvitund þeirra
starfar einnig í þágu verk-
anna. Af draumum sínum ráða
þeir hvernig þau verða bezt
íeyst, og af tilfinningu fram-
kvæma þeir hvert smáatriði.
Einn þessara manna er Hall-
grímur Antonsson fjármaður á
Grímsstöðum á Fjöllum. Grím-
ur er hann jafnan kallaður og
mun ég einnig gera það hér.
Hann er fæddur á Grímsstöð-
um 25. júní 1903, sonur hjón-
anna Kristínar Hallgrímsdótt-
ur og Antons Sigurðssonar.
Grímur ólst upp hjá foreldrum
sínum til sjö ára aldurs að Víði-
hóli á Fjöllum, en þá missti
hann föður sinn og heimilið
leystist upp. Var hann þá tek-
inn í fóstur af Kristjáni heitn
um Sigurðssyni á Grímsstöð-
um og ólst hann þar upp til full-
orðinsára. Grímur hefir víða
verið vinnumaður og alls staðar
þótt hið trúasta og bezta hjú,
en hvergi festi hann yndi ann-
ars staðar en á Fjöllum. Lengst
var hann vinnumaður, annars-
staðar en á Grímsstöðum, á
Núpi í Axarfirði, eða í sjö ár,
og telur hann síðan, að það sé
sér jafnan fyrir illu, ef hann
dreymir sig þar, og verður þess
nánar getið síðar. Siðastliðinn
rúman áratug hefir Grímur ver
ið vinnumaður á Grímsstöðum.
Þar nýtur hann sín bezt og er
ánægðastur með lífið, enda á
hann góða húsbændur og er
vel að honum búið á allan hátt.
Friður og kyrrð Fjallanna leiða
hann inn í lönd draumanna, þar
sem hann nýtur þess í ríkum
mæli, sem aðrir fá aðeins að
smakka á í veruleikanum, en
hann fer á mis við vegna þess,
að hann er á margan hátt öðru
vísi af guði gerður en aðrir
menn.
Draumar Gríms.
Haustið 1948, snemma í sept-
ember, kom Grhnur á fætur
venju fremur úrillur. Hann var
þögull framan af degi en vann
þó verk sín með sömu ná-
kvæmni og að vanda. Það hafði
snjóað um nóttina og var al-
hvít jörð. Hey voru alls staðar
úti, meiri og minni. Þegar líða
tók á daginn fór að brá af
Grími. Það var verið að tala
um tíðina, svo sem títt er. „Já,
ekki lízt mér vel á hann“, seg-
ir Grímur. „Ég var úti á Núpi
í nótt að passa fé og það veit
aldrei á gott. Mér þótti Guð-
mundur á Núpi biðja mig að
passa fyrir sig tvö hundruð og
áttatíu kindur og voru þær flest
ar hvítar. Þær voru svo óþægar,
að ég réði ekkert við þær, og mér
I þótti Guðmundur skamma mig
I fyrir ræfildóminn." „Og fyrir
hverju ræður þú nú þetta?“ var
Grimur spurður. „Nú, tvö hundr
j uð og áttatíu daga ótíð.“ Þá
: hlógu allir hátt og lengi, en
I Grímur brosti hálf vandræða-
lega. Þetta Pótti nú aldeilis
saga til næsta bæjar og barst
hún fljótt út og menn hlógu
mikið og almennt. Flestir í-upp
sveitum Norðurlands og Norð-
austurlands vita hvernig þetta
haust var. Hey lágu undir snjó
allt haustið og var seinast hrúg-
að saman hálf rennandi og sett
þannig inn svo að einhver not
yrðu af því. Og ekki býst ég við,
að margir, sem við búskap feng
ust vorið 1949 gleymi því vori
strax. En ekki er ég grunlaus
um að brosið hafi verið farið að
stirðna á þeim, sem hæst hlógu,
þegar lömbin drápust sem ör-
ast (vorið ’49), heyin voru á
þrotum og stórhríðin geisaði
útifyrir, þegar komið var fram
í júní. Ég viðurkenni, að ég var
þarna engin fyrirmynd, en þetta
opnaði augu mín fyrir því, að
sá hlær bezt sem síðast hlær, og
Grímur mátti hlæja að okkur.
Grímur er fjármaður, og hann
er heilsteyptur í sinu starfi. Hug
urinn er þar óskiptur og sálin
fylgir með. Nú vilja ef til vill
þeir vantrúuðu segja, að þetta
hafi verið tilviljun ein; ætla ég
því að segja frá öðrum draum,
sem Grím dreymdi í fyrravetur,
þ.e. 1951, í janúar, nánar til-
tekið þann 10. Honum þótti
hann vera staddur í Hólsseli á
Fjöllum og vera að reka af stað
fjárhóp ofan yfir Hólssand við
annan mann. Kemur þá til
hans Sigurður bóndi i Hólsseli
og segir við hann: „Þið eigið
hundrað kindur eftir hérna
uppi á Bakkahorninu. Ætlið þið
að láta þær vera?“ Grímur
sagði frá þessum draum um
morguninn og réð liann svo að
hundrað daga ótíð væri eftir af
vetrinum. Nú hló enginn, en
menn settu á sig daginn. Vet-
urinn varð eins og allir lands-
menn vita einhver snjóamesti
og harðasti vetur, sem yfir Norð
austurland hefir komið, en 20.
apríl skipti um tíð og eftir þann
tíma var engri heilbrigðri kind
á Hólsfjöllum gefið strá og get-
ur nú hver sem vill reiknað.
Grímur er ekki einn af þeim
mönnum, sem ofmetnast við að
það skuli vera tekið mark á hon
um, og fer að vaða reyk og spá
út í loftið. Hann segir bara: „Ég
veit það ekki, mig hefir ekkert
dreymt", ef hann er spurður
hvernig tíðin verði í framtíð-
inni. En ef hann dreymir eitt-
hvað, sem h’onum þykir mark-
vert, segir hann frá því í hjart-
ans einlægni og verður stund-
um að aðhlátri fyrir. En það
gerir honum ekkert til. Hann er
ánægður með\ sitt hlutskipti.
Hann er fjármaður, einn af
þeim, sem guð hefir velþóknun
á, eða voru það ekki fjárhirð-
arnir, sem fyrst var boðað fagn
aðarerindið urn komu frelsar-
ans.
Gleymið þessu ekki
ef þér þurfið að kaupa eða
selja fasteignir, skip eða fyrir
tæki þá talið við okkur sem
allra fyrst.
FASTEIGNIR S. F.
Tjarnargötu 3 — Sími 6531
Gerist áskrifendur að
^Jímanum
Áskrlttnrtimi 1311