Tíminn - 22.01.1955, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Ótgefandi:
Framsóknarflokkurlnn
39. árgangur.
Skrifstofur í Edduhúsi
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
Reykjavík, laugardaginn 22. janúar 1955.
17. blað.
Umbrotaófærð á öllum veg-
um suðvestan lands í pr
Hvalfjarðarleið ófær — Helllslieiðarvegi
haldið opnuM með ýtuisi — I mSerðasíii>Svuit
á Keflav.vegi — Strætisvag’nalelðir illfærar
Að því er Davíð Jónsson. fulltrúi á vegamálaskrifstofunni,
skýrði blaðinu frá í gærkveldi, voru óskaplegir erfiðleikar
á vegum í nágrenni Reykjavíkur og raunar alls staðar suð
vestan Iands í gær, og margar leiðir alveg tepptar. Gekk á
með hvössum og dimmum éljum, og tafði blinda för bifreiða
auk ófærðar.
Hellisheiði var þó haldið op
inni í allan gærdag, og unnu
að því fjórar ýtur og tveir
snjóplógar og máttu ekki af
sér draga. Mjólkurbílarnir
komust leiðar sinnar fram og
til baka. Klukkan 10 í gær-
kveldi voru 10 bílar staddir
við skiðaskálann á leið í bæ
inn, og ætluðu að halda áfram
í lest með ýtu og snjóplóg á
undan.'
Krísuvíkurleið í dag.
Davíð bjóst við, að
ekki
Bíllinn fór ofan
um ísinn
Frá fréttaritara Tímans
í Miklaholtshreppi
í vikunni sem leið bar svo
við, er verið var að aka
steypusandi til byggingar
heim að bænum Illíð í
Hnappadal yfir ísilagt vatn
ið, að ísinn brctnaði undan
bílnum, og fór hann í vatnið.
Til allrar hamingju voru
skarirnar svo svo sterkar, að
bíllinn sat á pallinum á skör
unum. Menn, sem í bílnum
voru, sakaöi ekki, en hefði
bíliinn ekki setið á skörun
um, hefðu orðið þarna alvar
Iegir atburðir.
Ekki er bílfært stórum bíl
um að sumarlagi frá sand-
námunni heim að bænum í
Hlíð og átti því að nota færið
á Hlíðarvatni til að koma
heim byggingarefninu, því
að þarna er verið að byggja
íbuöarhús.
mundi verða reynt að halda
Hellisheiðarleiðinni opinni í
dag, helaur mundu ýtur verða
sendar á Krísuvíkurveginn
með morgninum, og umferð-
inni stefnt þangað. Nokkur
snjór er þó þar, en mestur við
Kleifarvatn og á Vindheima
heiði.
Hvalfjörður ófær.
Hvalfjörður var algerlega
ófær í gær. Var þar hið versta
veður, allmikil snjókoma og
blinda. Fjórar áætlunarbif-
reiðar, tvær úr Stykkishólmi,
ein úr Staðarsveit og ein frá
Akureyri lögðu af stað frá
Reykjavík í gærmorgun. Kom
ust þær upp í Kollafjörð, en
urðu að snúa þar við og kom
ust við illan leik til Reykjavík
ur um sexleytið í gærkveldi
og voru þá miklir snjóskaflar
komnir víða á veginn.
Umferðarstöðvun
á Keflavíkurvegi.
Um klukkan níu í gærkveldi
bárust fréttir um það, að öll
umferð væri stöðvuð á Kefla
(Framhald á 2. síðu).
í greniskógi skógræktarinnar í Múlakoti í Fljótshlíð
Tuttugu aurar lagðir á vindlinga-
pakka til þess að klæða landið
„Þeir koma í haust”
Leikritið Þeir koma í haust
eftir Agnar Þórðarson hefir
verið sýnt þrisvar í Þjóðleik-
húsinu. Fjórðasýningin er í
kvöld. Leikritið hefir þótt at
hyglisvert og fékk góða dóma.
Odborgin Baskaði skrúfuna
í ísreki við Borgarnes í gær
Liggur uú í Borgarncsi. 30 farþcgar IVorð-
urlciðar tcp|itir á Akrancsi i gærkvöldi
Þegar flóabáturinn Eldborg var að leggja frá brjrggju í
Borgarnesi í gærdag síðdegís lenti hún í ísreki og laskaði
skrúfuna svo, að ekki þótti fært að halda suður, og var henni
lagt við akkeri þar cfra. í henni er mikil mjólk.
Tvær vindlingategundir bcra merki Land-
græðslusjóðs — koma á markað um hclgina
Takmarkið cr: 2 millj. plantna á ári Iivcrju
Stjórn Landgræðslusjóðs ræddi víð fréttamenn í gær og
skýrði frá afkomu sjóðsins og horfum í skógræktarmálun-
um. Hákon Bjarnason, skógræktarstjóri, skýrði frá því, að
sjóðnum mundi nú bætast nýr tekjustofn, þar sem sjóður-
inn hefði fengið leyfí til að setja merki sitt á tvær tegundir
vindlinga og yrðu þær scldar 20 aurum dýrara hver pakki
og rynni það fé til skógræktarinnar. Tegundír þessar eru
Camel og Chesterfield, og munu koma á markaðinn með
merkjunum þessa dagana.
Davíð Stefánssyni ákaft fagn
að við hátíðasýningu í gærkv.
Hátíðasýning á Gullna hlíðinu eftir Davíð Stefáns,'on í
Þjóðleikhúsinu vakti mikla hrifningu. Hvert sæti var skip-
að í liúsínu og komust færri að en vildu.
I upphafi sýningarinnar
flutti skáldið sjálft hið snjalla
og þróttmikla forljóð leiksins.
í leikslok flutti Guðlaug-
ur Rósinkranz, þjóðleikhús-
stjóri, ræðu til skáldsins og
þakkaði því, en Davíð svar-
aði með ræðu. Fögnuðu leik-
húsgestir honum ákaflega.
Ríkisútvarpið minntist af-
mælis Davíðs í gærkvöldi, og
flutti Kristján Eldjárn, þjóð-
minjavörður þar afbragðs-
gott erindi um þjóðskáldið,
en það las upp áður óprent-
að kvæði afburða snjallt.
Einnig voru sungin og leik-
in lög við ljóð Davíðs.
Samsæti í kvöld.
í kvöld verður Davíð hald-
ið veglegt afmælishóf í Sjálf
stæðishúsinu og flytja þar
ræður Bjarni Benediktsson,
menntamálaráðherra, og Þór
arinn Björnsson, skólameist
ari á Akureyri og fleiri.
Ekki mun skrúfan vera
brotin, en vélin gengur svo
þungt aö ekki er talið hættu
laust að sigli henni suður. Þó
mun skipstjórinn hafa í
hyggju að fara á mjög hægri
ferð beint til Reykjavíkur í
dag, ef veður hægir.
30 farþegar að norðan.
Áætlunarbílar Norðurleið-
ar tepptust í Hvalfirði og
voru með 30 farþega. Sneru
þeir til Akraness og átti aö
senda fólkið með Eldborg-
inni þaðan til Reykjavíkur,
en þar sem ekkert varð af
för hennar, er fólk þetta
teppt á Akranesi. Ekki er vit,
að, til hvaða ráða verður grip
ið með ferðir yfir flóann í
dag.
Arið 1950 var sú stefna
mörkuð í skógræktarmálun-
um, sagði Hákon, aö auka
uppeldi trjáplantna á næstu
árum upp í tvær millj. á ári.
Var þetta gert með samþykki
þáverandi landbúnaðarráð-
herra, Hermanns Jónassonar.
Þótti þá sýnt með starfi skóg
ræktarfélaganna, að gróður-
setja mætti miklu fleiri plönt
ur árlega en áður hafði verið.
Slík gróðursetning mun vera
um 8 þús. fullkomin dagsverk
eða vinna um 200 manna í
40 daga. Mundi þá er fram
líða stundir árlegt viðarmagn
(Framh&Jd & 2. síðuJ
* t ■ *
mmmM: KsÆlta .1
Unglingar að starfi í uppeldisstöð skógræktarinnar að
Hallormsstað.