Tíminn - 24.04.1957, Blaðsíða 12

Tíminn - 24.04.1957, Blaðsíða 12
VeðriS í dag: Hvass suðaustan, rigaiug. Miðvikudagur 24. apríl 1957. Hitinn kl. 12 í gær: ~™] Reykjavík 6 st., Akureyri 7 st., London 16 st., París 16 st., Kaup mannah. 6 st. New York 17 st. Friðdk efstur i lands- liðsflokki. Eftir fimm umferðir á Skák- þingi íslendinga, sem nú stendur yfir á Akureyri, er Friðrik Ólafs son efstur með fimm vinninga, liefir unnið hverja skák. Annar er Freysteinn Þorbergsson með 41/2 vinning. Þriðji Arinbjörn Guðmundsson með 3V2 v. Fjórði Bjarni Magnússon með 2j4 v. — Fimmti Eggert Gilfer með 2 v. og biðskák. Sjötti Júlíus Bogason með 2 v., og biðskák. Aðrir kepp endur hafa færri vinninga. í meistaraflokki er Þráinn Sig- urðsson frá Siglufirði efstur með 6 vinninga. Annar er Jóhann Snorrason Akureyri með 5 \2 v. Sjötta umferð var tefld í gær- kvöldi. Fékk 63 lestir í einm! netalögn Afli Vestmaiuiaeyjabáta hefir verið misjafn, en nokkrir bátar |> fengið góðan afla, sérstak- lega þeir, sem farið hafa austur í Meðallandsbugt. T.d. kom vél- báturinn Björg frá Eskifirði það an nieð 63 lestir úr einni lögn sJ. föstudag. Skipstjóri á Björgu er Hilmar Bjarnason frá Eski- firði. Annar bátur fékk 56 lest- ir. Björg hefir fengið á einni viku um 160 lestir og mun hásetahlutur eftir hana vera um 8 þús. kr. Slys á RauSarárstíg Strengjakvartetf Björns Olafssonar, Verk eftir nær öll íslenzk tánskáld flutt á tónlistarhátíð um helgina TÓBsknldafélf gi'í gengst fyrir hljómleikunum ^ar sem fólki gefst kosfur á að kynnast ís- lenzkum túnverkum Um næstu helgi verSjur haldin í Reykjavík hijómlistarhá- tíð þar sem flutt verða eingöngu verk eftir núlifandi íslenzk tónskáld, nærri alla félaga í tónskáldafélaginu, en þeir eru nú 21 að tölu. Jón Leifs og fleiri tónskáld áttu í gærdag fund með blaðamönnum og skýrðu þar frá þessu. Voru þar auk Jóns þeir Þórarinn Jónsson, Skúli Halldórsson, Páll ísólfs- son, Karl Runólfsson og Hallgrímur Helgason. 1 - i mikill kostnaður, sem það hefir í Þessi tónskaldahatið verður hin £gr meg s^r fyrsta, þar sem eingöngu verðai flutt íslenzk tónverk og eingöngu Hefst með stofutónlist eftir núlifandi tónlistarmenn. Tón- listarmennirnir hafa lengi undir- búið slíka kynningu á verkum sín- um, enda lítil tækifæri hér til slíkra kynninga, vegna þess hve erfitt og dýrt er að koma þeim til flutnings. Þegar norrænai tónlistarhátíðin var haldin hér; stóð til að flytja sérstaklega íslenzk; verk, en af því gat ekki orðið. Fyr ir rúmum þremur árum, þegar fé-| Það slys varð í gærmorgun á Rauðarárstíg, að lítil telpa, fjögurra ára, varð fyrir jeppa og meiddist á höfði. Telpan heitir , lagið varð tíu ára, var ætlunin að Borghildur Jónsdóttir, Sunnu-1 efna til slíkrar tónlistarkynningar hvoli við Háteigsveg. Reyndist á íslenzkum verkum, en það er Siún hafa fengið heilarhristing. fyrst nú, að ráðist er í þetta, enda. Maður drukknar er bát hvolfir við Rifshöfn Á miðvikudag fyrir skírdag varð það slys, að maður frá Hellissandi drukknaði, er bát, sem hann var á með öðrum manni, hvolfdi. Maðurinn, sem drukknaði, hét Björn Krist- jánsson. Hann var 59 ára gamall og lætur eftir sig 12 börn, J>ar af þrjú í ómegð. Atvik slyssins eru annars þau að Björn fór með þróður sínum á bát til þess að vitja um hrognkelsanet, «em lágu skammt undan Rifi. Voru þeir nýbyrjaðir að draga netin, þegar bára kom undir bátinn og hvolfdi honum. Komust mennirnir báðir á kjöl. Skipverjar á vélbátnum Ver frá ísafirði, sem staddux var í Rifs- höfn sáu. þegar slysið varð og fóru þeir á bát sínum til hjálpar. Þeg- ar þeir komu á slysstaðinn var Björn orðinn laus við bátinn og var látinn, þegar honum var bjarg- á laugardag. Tónskáldahátíðin, sem hefst á laugardaginn, hefir verið vel og lengi undirbúin, segir Jón Leífs. Sinfóníuhljómsveitin kemur þar fram undir stjórn Olavs Kiellands og strengjakvartett Bjöms Ólafs- sonar leikur. Auk þess koma fram einsöngvarar, söngflokkar og ein leikarar. Tilhögun hátíðarinnar verður sú, að á laugardag kl. 4,30 hefst með því, að Gylfi Þ, Gíslason menntamálaráðherra flytur ræðu. Síðan hefjast stofutónleikar. Á sunnudaginu klukkan 9 e. Ii. verða kirkjutónleikar í dónikirkj unni, þar sem dómkirkjukórinn syngur undir stjórn Páls ísólfs- sonar og Viktor Urbaucic leikur á orgel. Sinfóníutónleikar á þriðjudagskvöld. Á þriðjudagskvöldið verða svo sinfóníutónleikar í Þjóðléikhús- inu og hefjast þeir klukkan 9. Olav Kielland stjórnar hljóm- sveitinni og verða eingöngu flutt verk eftir núlifandi íslenzk tón- skáld. Þjóðleikhúskórinn syngur (Framhald á 2 síðu) að um borð í Ver. Hinn maður- jl lutnillfifar í .1. 1 fllllll- inn var enn á kjöl, er honum var j 0 bjargað. Björn Kristjánsson var fyrrum oddviti á Sandi og útgerðarmaður þar. Drengir finna mannslík í skúta í hrauninu suðvestur af Vífilsstöðum LikitS rcyndist vera aí Baldvin Skaftasyni, er hvarf á leitf til Vífilstaía um miðjan janúar Þann nítjánda janúar í vetur steig miðaldra maður af strætisvagni á Fífuhvammsvegi í Kópavogi og ætlaði að Víf- ilsstöðum. Maður þessi hét Baldvín Skaftason og spurðist ekki til hans fyrr en nú á föstudaginn langa, að þrír drengir fundu lík hans í hrauninu suðvestur af Vífilstöðum. Baldvin heitinn hafði verið Bjúk- lingur um tíma á Vífilstöðum, en hafði nýverið byrjað starf hjá Sam- bandinu. Síðast fréttist til hans um áttaleytið að kvöldi þess nítjánda, en þá tók hann sér far með áætl- nnarvagni suður í Kópavog, og tal- ið aS hann hafi ætlað að ganga beint til Vífilstaða. Hríð var á, þegar Baldvin fór úr bifreiðinni. Baldvins heitins var leitað mikið, þegar veður batnaði, en sú leit bar ekki’ árangur. í hraunskúta. Á föstudaginn langa voru dreng- ir úr Kópavogi á ferð í hrauninu suðvestur af Vífilstöðum. Rákust þeir þá á lík Baldvins í hraunskúta og gerðu þegar aðvart. Baldvin Skaftason var fæddur 11. septem- ber 1909 og því á fertugasta og áttunda aldursári þegar hann lózt. Tvær IiópíerSir vom íarnar anstur í Oræfi á bíkrni í páskavikunni j Leiðir greiífærar og lítið í vötnum Efnt var til óvenjulegra hópferöa í páskavikunni og haldiíS austur í Öræfi. Mun það ekki hafa verið gert um þetta leyti árs fyrr. Var þetta Guðmundur Jónasson og ferðaskrifstofa Páls Arasonar, og voru sex fjallabílar í förum og alls um 90 manns. Munu svo fjölmennir ferðamannahópar ekki hafa gist Öræfin í einu öðru sinni. landaflugi aukast Á fyrstu þrem mánuðum þessa árs fluttu flugvélar Fiugfélags ís- lands 1545 farþega milli landa, en 1131 á sama tíma í fyrra. Lætur því nærri að tala far- þega í millilandafluginu hafi auk- ist um þriðjung á þessum tíma miðað við s.l. ár. Vöruflutningar milli landa jan. -febr-marz 1957 námu 57339 kg. en 37500 á sama tíma í fyrra. Póst ur fluttur milli landa á þessu tímabili nam 7100 kg., en 5930 kg. s. 1. ár. í innanlandsfluginu urðu farþeg ar nokkru færri fyrstu þrjá mán uðina í ár, sem stafar af rekstrar stöðvun vegna verkfalls á flug- flotanum. Farþegar fyrstu þrjá mánuðina í ár voru í innanlandsfluginu 6140, en 6738 í fyrra. Vörur flutt- ar innanlands voru í ár 210 þús. kg. en 240 þús. kg. á sama tíma í fyrra. Hinsvegar jókst póstflutningur í lofti nokkuð. Var fyrstu þrjá mánuðina 1957 53012 kg., en á sama tíma 1956 var hann 45344 kg. Vegir máttu heita eins góðir og um hásumar, og sandar og vötn eins greiðfær og orðið getur. Gekk því ferðin vel. Guðmundur Jónas- son fór með sinn óp austur að Jök ulsá á Breiðamerkursandi. Ekkl lagði hann þó á bílum í ána en óð yfir hana og kannaði botn og taldi liann, að áin mundi fær bifreiðum núna. Salt sjávarlón. Guðmundur Kjartansson, jarð- fræðingur, var með í förinni og fékk hann Sigurð í Kvískerjum til þess að fara með sér austur að Jökulsá, og reru þeir um lónið og könnuðu dýpt þess o. fl. Það er nú auðsætt, sagði Guð- mundur, er bfeðið átti tal við hann (Framhald á 2. síðu) Skipverji á Norð- lendángi drukknar Aðfaranótt skírdags varð þa<¥ slys á togaranum NorölendingL sem var a® veiðum út af Garð- skaga, að ungur maður, Rögn- valdur Axelsson frá Ólafsfirði féll útbyrSis og drukknaði. Mun honum hafa skolað út í ólagi, Var hans leitað um hríð em fannst ekki. Rögnvaldur var um tvítugt og átti foreldra og systkin á lífi í Ólafsfirði. Hann var dugnaðar- maður hinn mesti og hafðí lengi verið skipverji á Norðlendi ingi. 1 Halastjarnan Arend Roland sést nú gerla hverja heiðskíra nótt Frá Reykjavík sést hún í stefnu yfir Akranes heldur neÖan viÖ miÖjan himin Þessi kvöldin má sjá óvenjulega sýn á himni, einnig hér á landi, þegar heiðskírt er. Er það halastjarnan Arend Ro- land, sem er á yfirreið og sést nú neðan við miðjan himin í norðuráít. Hefir hún verið sýnileg undanfarin kvöld og mun einnig verða svo næstu 2—3 vikurnar. Undanfarin kvöld hefir loft ver ið skýjað þangað til í fyrrakvöld. Þá var heiðskírt, og sást stjarnan þá mjög vel, lýsandi kjarni um- vafinn ljósþoku og út frá því lýs- andi hali. Sú stærsta síðan 1910. Trausti Einarsson, prófessor, sagði blaðinu í gær, að þetta væri talin stærsta halastjarnan, sem hér hefir sézt síðan 1910. Hún er kennd við stjörnufræð- inginn, sem fyrst uppgötvaði hana, eins og venja er. Fann hann hana í nóv. s.l. og var þá hafizt handa um að reikna út braut henn ar. Síðustu dagana var hún þar komin, sem hún gengur næst jörðu, og var þá um það bil miðja vegu milli sólar og jarðar. Nú er hún farin að fjarlægjast jörðina aftur. Búast má við, sagði Trausti, að stjarnan verði sýnileg næstu kvöld og raunar alla nóttina næstu sólarhringa, ef bjart verður yfir. Geislaverkun getur valdið krabbameini og hvítblæði segsr Joliot-Curie. Hættan vofir yfir ölhim, ef vetnissprengjutilraunum verÖur ekki hætt PARÍS, 23. apríl. — Franski vís- ingamaðurinn og nóbeisverð- launahafinn Frederic Joliot- Curie hélt því fram í ræðu í kvöld, að geislavirkar agnir í gufulivolfinu gætu valdið krabba meini, ef ekki yrði hið bráðasta bundiun endir á tilraunir með vetnissprengjur. Joliot-Curie, sem uin skeið var yfirmaður kjarnorkurannsókna í Frakk- landi, kvað „næðing vitfirringar innar“ neyða hvert ríkið af öðru til þess að taka þátt í vígbúnaðar kapphlaupinu. Hinir færustu vísindamenn hefðu kvað eftir annað varað við afleiðingum geislaverkana og sjálfur hefði hann taiið sér skylt að benda almenningi á þessa hættu. Geislavirka efnið strontium 90 getur varðveizt í allt að 30 ár, og það er þetta efni, sem myndast við kjarnorku og vetnissprengingar. Það svíf- ur síðan um í gufuhvolfinu og fellur smátt og smátt til jarðar með regní og ryki, sem sezt á gróður jarðar. Menn og dýr eta hinn mengaða gróður og fá þann ig strontium í líkamann. Jafnvel mjólk verður geislavirk á þenn- an hátt. Ef tilraunum með kjarnorku* og vetnissprengjur verður >icki hætt, er vafalítið, að magnið af strontium í gufuhvolfinu verður svo mikið að það verður stór- hættulegt mönuum, ekki sízt börnum, sem eru að vaxa, og geíur m.a. valdið krabbameini og iivítblæði. Sýnt er, að geisla- virkni sú, sem menn verða fyrir, er vaxandi, sagði Joliot-Curie. Margir láta sig þetta vandamál litlu skipta og halda að þeim sjálfum sé óhætt, þar eð þeir séu svo fjarri þeim stöðum þar sem tilraunirnar eru gerðar. —< Þetta er blekking. Sérhvert okk ar er í mikilli hættu og ekki síð- ur afkomendur okkar, ef tilraun um með vetnis- og kjarnorku- vopu verður ekki hætt þegar í stað, sagði Joliot-Curie.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.