Tíminn - 05.06.1957, Blaðsíða 1
Fylgist með tímanum og lesið
TÍMANN. Áskr'Ætarsímar: 2323
og 81300. Tíminn flytiu: mest og
fjölbreyttast almennt Iesefni.
41. árgangur.
Reykjavík, miðvikudaginn 5. júní 1957.
Efnl:
Alþingi og handritin, bls. 4. Í
Gróður og garðar, bls. 5. ]
Gröf í Miklaholtshreppi, bls. 5. !
123. bla».
Emil Jónsson Svanbjörn Frímannsson
Tveir nýir bankastjórar
að Landsbanka Isiands
Þaí eru Svanbjörn Frímannsson og Emil Jóns-
son. Fyrsti íundur hins nýja bankaráðs í gær
Hið nýkjcrna bankaráð Landsbanka Islands, en formað-
ur þess hefir verið skipaður Valtýr Blöndal, fyrrv. banka-
st.jóri, héit fvrsta fund sinn í gær og voru þar ráðnir banka-
stjórar og tilnefndir menn í stjórn Seðlabankans.
Bankaráðið samþykkti að
leggja tii við ríkisstjórnina, að
Vilhjálmur Þór, bankastjóri,
verði skipaður aðalbankastjóri
Seðlabankans. Hann er sam-
kvæmt Iögunum um Landsbanka
fslands skipaður af forseta.
Ennfremur samþykkti banka-
ráðið að tilnefna þá Ólaf Jóhann-
esson, prófessor, Inga R. Helgason,
lögfræðing, og Jón Axel Péturs-
son, framkvæmdastjóra, í stjórn
Seðlabankans.
Surprise fékk tund-
urdufl í vörpuna
Ráðnir bankastjórar.
Loks samþykkti bankaráðið á
þessum fundi sínum að ráða sem
bankastjóra við viðskiptabankann
þá Svanbjörn Frímannsson, aðal-
bókara, Emil Jónssoon, alþingis-
mann, og Pétur Benediktsson,
bankastjóra.
f bankaráði Landsbanka íslands
eiga sæti auk formannsins Stein-
grímur Steinþórsson, albingismað-
ur, Einar Olgeirsson, alþingismað-
ur, Baldvin Jónsson, lögfræðingur,
og Ólafur Thors, alþingismaður.
Skógræktarferð
Miiljónir barna munu fæðast and-
vana eða vansköpuð á næstu öldum
segja bandarískir erfíafrætSingar. Ástæían er
geislaáhrif af þegar gerftum kjarnorkutilraunum
2 þús. bandarískir kjaruorkusérfræðingar
krefjast alþjóðíegs banns við kjarnorku-
tiíraunum
Lundúnum, 4. júní. — Svo sem þegar mun kunnugt hafa
2 þús. kunnir bandarískir vísindamenn undirritað áskorun
þess efnis, að þegar í stað verði gerður alþjóðlegur samning-
ur um algert bann við frekari kjarnorku- og vetnissprengju-
tilraunum. í dag herma fregnir, að stöðugt bætist fleiri vís-
indamenn á þessu sviði í hópinn og nýjar hópgöngur voru
farnar fyrir utan brezka sendiráðið í Tókíó til að mótmæla
sprengjutilraunum Breta á Jólaéyju. Þríjr kunnir erfða-
fræðingar héldu því fram í dag á fundi með þingnefnd úr
öldungadeildinni bandarísku, að þær tilraunir, sem þegar
hefðu verið gerðar, myndu hafa þær afleiðingar að milljón-
ir ófæddra einstaklinga myndu á komandi tímum fæðast van-
skapaðir eða sjúkir, andlega eða líkamlega.
FUF ráðgerir hvíta-
sunmiferð til Eyja
Komið liefur til tals, að fara
ferð til Vestmannaeyja um hvíta
sunnuna. Farið yrði með flugvél
báðar leiðir, en fæði og gisting
yrði við vægu verði.
Nánari upplýsingar verða veitt
ar á skrifstofu Framsóknarfélag
anna í Reykjavík í dag, sími
5564.
sír halda áfram
PARÍS, 3. júní. — Uppreisnar-
menn í Alsír héldu í dag áfram
árásum og hefndarverkum gegn
múhameðstrúarmönnum og
Evrópumönnum um allt landið.
Virðast þessar aðgerðir skipulagð
ar af lierstjórn uppreisnarmanna.
Einkum bitna þær á innfæddum,
sem veitt hafa Frökkum stuðn-
ing.
Fremsti kjarnorkuvísindamaður
Ástralíu, Marcus Oliphant, sagði
í viðtali við blaðamenn, sem leit-
uðu álits hans á áskorun banda-
rísku kjarnorkusérfræðinganna, að
sjálfsagt væri að velja hina hættu
minni leið, er sérfræðinganna
greindi á eins og tilfellið væri í
þessu máli. Sumir teldu að geisla-
virknin væri ekki meiri en svo
að hættulaust mætti telja. Aðrir
héldu því gagnstæða fram og þar
sem svo mikið væri í húfi, væri
sjálfsagt að fylgja ráði hinna síðar
nefndu. Hann væri eindregið þeirr
ar skoðunar, að alþjóðlegur samn
ingur um bann við kjarnorkutil-
raunum væri nauðsynlegur til að
vernda öryggi alls mannkyns.
Skoðun erfðafræðinganna.
Þrír kunnir erfðafræðingar
tjáðu í dag bandarískri þingnefnd
álit sitt um áhrif af geislaverkun
Framh. á 2. síðu.
Sjö ára teípa féll í hver
í gær og beið bana
Sfysið varð að Reykjum á Skeiðum
Frá fréttaritara Tímans á Skeiðum í gær.
Það sviplega slys varð hér að Reykjum á Skeiðum í dag,
að sjö ára gömul telpa, Kristjana Bjarnadóttir, féll í hver
skammt frá bænum og beið bana.
Ofbeldisverkin
Togarinn Surprise kom til ísa-
fjarðar í gærmorgun og var þá
með tundurdufl á þilfarinu, sem
komið hafði í vörpuna. Maður frá
Landhelgisgæzlunni kom flugleið-
is hingað í gær til að gera duflið
óvirkt og gekk það ákjósanlega.
G.S.
FUF í Heiðmörk
Farið verður í skógræktarferð
í Heiðmörk í kvöld, ef veður
leyfir. Þátttakendur verða sóttir
heim. Vinsamlegast tilkynnið
þátttöku ykkar í síma 5564.
Kristjana litla var dóttir lijón-
anna Bjarna Þórðarsonar, bónda
á Reykjum, og konu hans Sigur-
laugar Sigurjónsdóttur. Skammt
frá Reykjabænum eru tveir hverir,
og er vatn og gufa leitt úr þeim.
Eru þeir yfirbyggðir, þ. e. steypt
hella yfir þá, en á öðrum þeirra
að minnsta kosti er op undir hell-
una um hálfur metri í þvermál.
Er þar gengið niður tröppu að op
inu. Vatnið í hvernum er um 80
stiga heitt og sýður því ekki.
Fannst í hvernutn.
Fyrir hádegi í gær var Krist-
jana litla send erinda frá bæn-
um, og er hún kom ekki aftur, var
farið að leita hennar um hádegið.
Fannst hún þá von bráðar í hvern-
um, hafði gengið niður tröppurn-
ar að opinu og fallið inn um það.
Enginn veit, hvernig þetta hörmu-
lega slys hefir að höndum borið,
þar sem enginn var nærsladdur.
Líklegt er, að litla stúlkan hafi
af einhverjum ástæðum lagt leið
sína að hvernum og runnið til og
fallið inn um rifuna undir hell-
(Framhald á 2. síðu.)
Tíminn átta siður
í sumar
Vegna sumarleyfa l prent-
smiðjunni mun TÍMINN ekki
verða nema átta síður flesta daga
yfir sumarmánuðina, eða þar til
1. sept. í haust. En þá verður
hann að nýju tólf síður. Þetta
eru kaupendur beðnir að hafa í
huga.
Mikið um byggingaframkvæmdir og
ræktun í Fljótum að undanförnu
Tvö nýbýli byggði í sumar — nýtt frystihús
tekur til starfa í Haganesvík i haust
Haganesvík í gær. — Á undanförnum árum hefir verið
mikið um nýbyggingar hér í Fljótum. í sumar er fyrirhugað
að reisa tvö nýbýli með öllum húsakosti. Annað nýbýlið er
í landi Depla í Holtshreppi en hitt í landi Syðsta-Mós í Haga-
neshreppi.
timbur hér í Haganesvík í dag.
Sement er áður komið hingað og
allt byggingarefni komið nema
þakjárn.
Viðgerð á bryggju og nýtt
frystihús.
í sumar á að lengja bátabryggj
una hér í Haganesvík um tíu m.
og jafnframt að gera við skemmd
ir sem bryggjan varð fyrir í ó
veðri í vetur. Þá er ráðgert að
ljúka byggingu frystihúss í sumar
sem Samvinnufélag Fljótamanna
er að reisa í Haganesvík. Byrjað
var á smíði frystihússins í fyrra
og þá var það gert fokhelt. Fyrir
hugað er að frystihúsið verði til
búið fyrir sláturtíð í haust. SE
Mikil ræktun hefur verið sam
fara byggingunum og vélakostur
aukizt mjög. í sumar koma hingað
þrjár nýjar dráttarvélar og fer
þá að liggja nærri því að dráttar
vél sé á öðrum hverjum bæ í Fljót
um.
Ný íbúðarhús.
Um þessar mundir er unnið að
því að fullgera tvö íbúðarhús, er
gerð voru fokheld í haust sem
leið. Íbúðaíhús þessi eru að Lang
húsum í Haganeshreppi og Bjarn
argili í Holtshreppi. Þá er tölu
vert um hlöðu og gripahúsabygg
ingar á jörðum hér í Fljótum. Sam
bandsskipið Dísafell var að losa
Fegurðardrottning íslands 1957 verð-
ur kjörin á 2. í hvítasunnu í Tívolí
Margar stúlkur, víís vegar afö af Iandinu munu
taka jiátt í keppninni atí þessu sinni
Á annan í hvítasunnu hefst fegurðarsamkeppnin í Tívólí,
hin eina, sem hér verður haldin á þessu ári. Þá verður kjörin
„Fegurðardrottning íslands 1957“, sem taka mun þátt í
keppninni um „Miss Universe“-titilinn í Long Beach í Kali-
forníu í júlí í sumar.
Eins og kunnugt er, verða þátt-
takendur í keppninni á aldrinum
17—28 ára. Forráðamönnum keppn
innar barst meiri fjöldi ábendinga
um fallegar stúlkur, sem til greina
(Framhald á 2. síðu.)
Þessi mynd er frá fegurðarsamkeppninni á Long Beach i fyrra.