Tíminn - 06.09.1959, Blaðsíða 1

Tíminn - 06.09.1959, Blaðsíða 1
Landhelgismálið og stjórn- nrsálaviðhorfið — bls. 7. 13. árgangn.*. Syrgjendur dansa eftir jarðarfarar jazzi, bls. 3. Gróður og garðar, bls. 5. Dauði Epsteins, bls. 6. íþróttir, bls. 10. 191. blaS. Fimmtán ár I dag eru 15 ár liðin síðan gamla Ölfusárbrúin slitnaði niður öðru megin með þeim afleiðing- um, að tveim vörubílar, sem á henni voru, féllu niður í ána ásamt bílstjórunum, sem óku þeim. Brúin var orðin mjög lé- leg og menn höfðu veigrað sér við að fara yfir hana, þegar hvasst var, vegna þess hve hún rólaði til. Báðir bílarnir voru frá Kaupfélagi Árnesinga og var ver ið að draga annan þeirra til við- gerðar á Selfossi, en hann hafði bilað í Reykjavíkurferð. Sá sem dreginn var kom niður á hjólin og stóð upp úr vatni, en hinn féll á hvolf í hyl í ánni og var það hin mesta mildi, að bilstjór inn skyídi komast lífs af. Að sjálfsögðu varð mjög erfitt um allar samgöngur austur, þegar brúin var farin og varð að taka upp gamla lagið, að ferja yfir ána varning og fólk. Gekk í því þófi unz nýja brúin stóð full- byggð, mikið og fagurt mann- virki, sem hvorki rólar til í vindi né skelfur undan umferðinni. A annarri síðu blaðsins i dag er frekari upprifjun á þeim atburði þegar gamla brúin fór. Norskur síldvelðibátur fórst með 10 manna áhöf n Síys<$ varð á Seyðisfjart&ardýpi í fyrra- Framboð Fram- sóknarflokks- ins i Reykjavík Framboð Framsóknarflokksins í Reykjavík var ákveðið á fundi fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í gær. Listi flokks- ins er skipaður eins og hér segir: 1. Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri, Hofsvallagötu 57 2. Einar Ágústsson, lögfr., Bergstaðastræti 77 3. Unnur Kolbeinsdóttir, frú, LönguhlíS 11 4. Kristján Thorlacius, deildarstj., Bólstaðarhlíð 16 5. Kristinn Sveinsson, trésm., Bogahlíð 12 6. Jónas Guðmundsson, stýrimaður, Bugðulæk 15 7. Dóra Guðbjartsdóttir, frú, Aragötu 13 8. Kristján Friðriksson, iðnrekandi, Bergstaðastræti 28A 9. Eysteinn Þórðarson, skrifstofumaður, Kleppsveg 16 10. Jón D. Guðmundsson, verkam., Hofteig 28 11. Kristján Benediktsson, kennari, Bogahlíð 12 12. Elín Gísladóttir, frú, Sundlaugaveg 28 13. Sverrir Jónsson, flugstjóri, Dyngjuveg 5 14. Einar Eysteinsson, iðnverkam., Mosgerði 8 15. Bergljót Guttormsdóttir, frú, Lynghaga 8 16. Hannes Pálsson, bankar., Karfavog 56 17. Sigurður Sigurjónsson, rafv. Teigagerði 12 18. Kristján Þorsteinsson, stórkaupm., Skógargerði 6 19. Björn R. Einarsson, hljómsveitarstjóri, Sörlaskjóli 46 20. Guðni Ólafsson, flugumferðastjóri, Laugarnesveg 102 21. Jón ívarsson, forstjóri, Víðimel 42 22. Guðlaug Narfadóttir, frú, Stigahlíð 6 23. Sigurjón Guðmundsson, skrifstofustjóri, Grenimel 10 24. Séra Sveinn Víkingur, Fjölnisveg 13 Hann hefur veikt samningastöðu Dana segir Berlingske Aftenavis, sem ávítar Krag fyrir ummæli hans um handritamátð í Reykjavík Frá fréttaritara Tímans í Kaupmannahöfn í gær. Morgunblöðin hér í Höfn birta ummæli Jens Otto Krag utanríkisráðherra, er hann við hafði á blaðamannafundi 1 Reykiavík um handritamálið. Þar sagði hann m. a segja blöð in, að H. C. Hansen og hann vœru sannfærðir um, að lausn myndi finnast á málinu, og tíminn ynni fyrir íslendinga, 4 Danmörk-u væri vaxandi áhugi fyrir því aí koma til móts við óskir ísiendinga. Erfiðari samningar Þessi ummæli Krags hafa orð ið lilefni forystugrcinar í Bcrl. Aftenavis, þar sem segir m. a.: „Þessi ummæli geta aðeins auk ið vandkvæðin á því að komast að samningum. Þótt herra Krag bætti þvi við. að íslendingar gætu varla vænzt þess, að Danir upp fylltu kröfur þeirra að fullu, lief ur hann með þeirri yfirlýsingu sinni, að tíminn ynni fyrir ís- lendinga og að í Danmörku væri vaxandi áhugi fyir því að koma til móts við íslendinga, styrkt ís lendinga í óhnikanlegri afstöðu þeirra í málinu. Þann dag, sem málið kemur aft ur til samninga milli rikisst.iórna Dana og íslendinga, hafa Danir veikt stöðu sína fyrir fram með þessum ummælum. Þótt utanríkis ráðherrar vilji gjarnan sýna öðr um þjóðum vinsemd í orði, verð ur hin diplómaíiska kurteisi' að kunna sér takmörk.“ — Aðils. kvöld — tvö lík hafa fundi/t Eskifii'ði: Um sjöleytið í fyrra kvöld skeði það slys á Seyðis fjarðardýpi, að norskf síld- veiðiskip, Myrnef frá Ála- sundi. fórst og með* því öll á- höfn, 10 manns. ft' Skipið hafði verið um þrjár vikur á síldveiðum við Au$t- flrði, og mun hafa verið full- fermt. Neyðarköll heyrðust frá skipinu, en ekki náðist samband við nálæga bata í tæka tíð. Ekki er vitað með vissu um orsök til slyssins, en þess er helzf getið til, að það muni hafa verið með of mikið á delcki. Versta veður var á þessum slóðum. Tvö lík hafa fundizt á floti og var það annar norskur bát ur, sem fann þau. Myrnef frá Álasundi var gamall bátur, en var endurbyggður 1948, burð armagn var 109 tonn. Á.J. ögulegasta flugferöin Eins og Tíminn sagði frá 3. sept. hefur hann ákveöið að efna til verðlaunasamkeppni um söguieg ustu flugferðina með islenzkri flugvél á íslenzkum eða erlendum leiðum. Er þetta gert í tilefni af 40 ára afmæli flugsins. Ritgerð- irnar mega ekki vera yfir 15 vél- ritaðar siður, en gerir ekki til þótt þær séu nokkru styttri. — Handrit þurfa að hafa borizt blaðinu fyrir 1. nóv. þar sem ráð gert er að verðlaunaritgeröir birt ist í jólablaði Timans. Handrit auðkennist dulnefni, en rétt nafn fylgi í iokuðu umslagi. Verðlaun verða hin glæsileg- ustu: 1. Flugferð til Kaupmannahafn- ar og heim, ásamt uppihaldi erlendis í viku. 2. Flugferð fram og aftur milli hvaða tveggja staða sem vinn andi kýs sér á innlendum á- ætlunarleiðum flugvéla. Rifjið nú upp skemmtilegustu eða sögulegustu flugferðina og bregðið upp af henni Ijóslifandi mynd í skemmtilegri frásögn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.