Tíminn - 06.09.1959, Blaðsíða 10

Tíminn - 06.09.1959, Blaðsíða 10
10 T í MIN N, sunnuda'-inn 6. septeniber 1959. KR - Akranes leika í dag í dag.fer fram síðasti leikur íslandsmótsins í knattspyrnu 1959. KR-ingar hlaupa í dag inn á Laugardalsvöilinn sem sigurvegarar í mótinu; leikurinn í dag skiptir því ekki máli um úrslit mótsins — þau voru ráðin löngu áður. í tilefni þessa leiks, sem því miður er ekki hreinn úrslitaleikur á- horfenda vegna, birtum við hér á síðunni nokkrar myndir af fyrrverandi íslandsmeisturum og skrá yfir íslandsmeist- arana í knattspyru frá byrjun. Og Íþróttasíða Tímans óskar KR til hamingju með sigurinn í íslandsmótinu 1959. — Um titilinn „Bezta knatt- spyrnufélag íslands“ hefur nú verið keppt síðan 1912, en það ár varð KR fyrst íslandsmeist- ari í knattspyrnu. Á þessum tíma — eða í 48 ár — hafa aðeins fimm félög hlotið þenn- an eftirsók.narverða titil, og þar af aðeins eitt utan Reykja víkur. KR hefur oftast borið sigur úr býtum, eða 16 sinn- um, Fram hefur 13 ár verið með bikarinn og titilinn. þar af tvö ár, 1913 og 1914 án keppni, þar sem ekkert ann- að félag tilkynnti þá þátttöku í mótið. Valur hefur sigrað 12 sinnum. Akranes fimm sinnum — en fyrsti sigur hinna ágætu Akurnesinga var 1951 — svo þeir hafa sigrað fimm sinnum á níu árum •— og Víkingur rekur lestina með tvo sigra — en 35 ár eru nú síðan það félag hefur sigrað í íslandsmótinu. Hér á eftir fer skrá yfir tslandsmeistarana frá bvriun: 1916 1917 1918 1919 1920 1921 1922 1923 1924 1925 1926 1927 1928 1929 1930 1931 1932 1933 1934 1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943 1944 1946 1947 Fram Fram Fram K.R. Víkingur Fram Fram Fram Víkingur Fram K.R. K.R, K.R. K.R. Valur K.R. K.R. Valur K.R. Valur Valur Valur Valur Fram Valur K.R. Valur Valur Valur Fram Fram Fyrstu íslandsmeistararnir í knattspyrnu — keppnisiið KR 1912. Frá vinstri, efsta röð: Davíð Óiafsson, Guð> mundur Þorláksson, Lúðvík Einarsson, Kjartan Konráðsson, Björn Þórðarson. Önnur röð: Nieljohníus ÓlafssoHj Benedikt G. Waage, Skúli Jónsson, Sigurður Gunnlaugsson. Fremst: Jón Þorsteinsson, Geir Konráðsson, Kristinn Pétursson 1948 K.R. 1949 K.R. 1950 K.R. 1951 Akranes 1952 K.R. 1953 Akranes 1954 Akranes 1955 K.R. 1956 Valur 1957 Akranes 1958 Akranes 1959 K.R Tveir menn hafa orðið ís- landsmeistarar oftar en nokkr ir aðrir, þeir Frímann Helga- son og He?-mann Hermanns- son, en þeir urðu tíu sinnum íslandsmeistarar með Val á blómaskeiði félagsins. Ríkarð lir .Tnníenn hnfnr cpy cinniim wiaiiuöiuciöiau, -luuui sinnum með Akranesi og einu sinni með Fram. — hsím. íslandsmeistarar Fram 1946. Fremri röð, talið frá vinstri: Sæmundur Gísla* son, Karl Guðmundsson, Magnús Kristjánsson, Haukur Antonsson og Krist- ján Ólafsson. Aftari röð: Þráinn Sigurðsson (form.), Þórhallur Einarsson, Hermann Guðmundsson, Valtýr Guðmundsson, Sigurður Ágústsson, Magnús Ágústsson, Gísli Benjaminsson og MacCrae, þjálfari. iandsmótinu í dag. Hörður Felixson, Guaflar Guðmannsson og þjáKarinn, Óli B. Jónsson. ísiandsmeistarar Vikings 1924. Efri röð frá vinstri: Valur Gíslason, Sigurður Waage, Þórir Kjartansson, Helgi E>'íi'.sson, Óskar Norðmann, Þórður Albertsson. Fremri röð: Guðjón Einarsson, Halldór Sigurbjörnsson, Einar B. G..ómundsson og Magnús Brynjólfsson. Fyrstu íslandsmeistarar Akraness, íslandsmeistararnir 1951. Fremri röð frá vinstri: Sveinn Teitsson, Sveinn Benediktsson, Magnús Kristjánsson, Hi'i sigursæla kapplið Vals, íslandsmeistarar 1938. Frá vinstri: Guðmundur Sigurðsson, Ellert Sölvason, Grímar Ólafur Vilhjálmsson, Guðjón Finnbogason. Aftari röð: Guðmundur Jóns- Jórssor:, Gísli Kjærnested, Egill Kristbjörnsson, Hermann Hermannsson, Bolli Gunnarsson, Hrólfur Benedikts- son, Pétur Georgsson, Þórður Þórðarson, Dagbjartur Hannesson, Rikarður 6on, Frímann Helgason, Björgúifur Baldursson og Jóhannes Bergsteinsson. Jónsson, Halldór Sigurbjömsson^..

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.