Tíminn - 14.08.1960, Blaðsíða 6

Tíminn - 14.08.1960, Blaðsíða 6
6 TIMIN N, smumdagmn 14. ágýst 1964 NMMMMM ÞÁTTUR KIRKJUNNAR Ísiensíka þj-óðm var einu sinni stórauðug í aHri sinni fá- tælct. Hún var rík af gulli heið- arleiíkans. Það var hið sama igullgentgi, sá myntfótur, sem ekki brást, 'hvað isem öliu ytr'a gengi leið. Drengur, sem fékk lánaðan snærisspotta upp í hest, skilaði snærinu örugglega aft- ur, þótt það væri trosnað í báða enda og margar vikur liðu tii þess tíma er fundum eiganda og lántakanda bar næst saman. Þingmaður og embættismað- ur', sem tóku laun sín að meira eða minna leyti af airr-'.nning.s- fé, ferðuðust á þriðja farrými HeiSarleiki skipa eða með sem ódýrustum hætti á landi til að eyða sem minnst. Þeir báru jafnvel meiri virðingu fyrir sjóðum almenn- ings en eigin peningum. Auðvitað voru til undantekn- ingar, en þetta var reglan, sem vitund þjóðarinnar fylgdi, sam- vizka fólksins ef svo mætti segja. Nú er öldin önnur, og það svo kunnugt, að vart þarf að lýsa. Þú gætir fengið yfirlýs- ingu um greiðslu á skuld, sem lánuð var til að bæta úr miH- um vanda undirskrifaða með drengskaparheiti, án þess að lánþiggjandinn láti sér til hug- ar koma að borga eða standa við beit sitt og nafn, jafnvel svo mánuðum skiptir. Og þetta gæti svo sem verið eitthvert af vel metnum borgurum, sem þannig breytti, embættismaður eða stórmenni í augum fjöld- ans. Kannske borgar hann aldrei, en stendur þó uppréttur og gengur um sjálfumglaður eins og ekkert hafi í skorizt og kann ekki að sjá skugga né bletti óheiðarleikans í vitund sinni og vild. Jafnvel á æðstu stöðum ríkir þessi sami óheiðarleiki í hugs- un, orðum og viðskiptum. Dag- lega hafa blöðin eitthvað um slíkt að segja og það svo að smávegis hnupl og þjófnaður, sem þó er básúnað um, hverfur í baksýn stórra fyrirsagma um fjárdrátt og pretti hjá forystu og leiðtoguim, ekki sízt á sjálfu sviði viðskiptanna. Þetta er eitt hið mesta af- hroð, sem íslenzk þjóð hefur goldið. 0*g hvað er gengisfell- ing peninga hjá slíkr’i gengis- fellingu í sjáifri sál, innsta lífsmagni heillar þjóðar? Að ógleymdum vinnusvikum á verkstæðum og hangsi eða dingluskap við verk bæði utan dyra og innan. Engar ,;ráðstafanir“ engin „bjargráð" munu duga, meðan ekki tekst að kippa þessu gul- gengi manngildisins í lag að svo miklu leyti sem unnt er. Heiðarleiki er þar númer eitt. Sú ráðstöfun fæst eingöngu framkvæmd með því að efla anda kristins dóms í dandinu með ráðum og dáð á heimilum, skólum, kirkjum og vinnustöðv um. Og þar verður að ganga fram án alis undansláttar með samkvæmni og alvöru, krefjast skilyrðislausrar ábyrgðar á starfi og umsjá, hvort heldur arkitektsins eða verkamanns- ins, hvort heldur meistara eða þjóns. Engin undantekning skal veitt í skjóli uphefðar eða mannvirðinga. Stærsti heiður og glæsileg- asta heiðursmerki hér á landi er að vera kristinn íslendingur. Það merki skyldi borið sem kóróna, hvað sem mæta kann í smáu sem stóru, Ieynt sem Ijóst. Sagt er að Nelson hershöfð- ingja hafi einu sinni verið ráð- lagt að dylja heiðursmerkin á brjósti sér með því að fara í kápu utan yfir, þar eð harin væri í sífelldri hættu fyrir skotum óvinanna, með allt þetta stjörnuskrúð. En hann svaraði: „Nei, ég hef unnið mér þau með heiðri og með heiðri skal ég deyja með þau, ef með þarf.“ Heiðursmerki kristins dóms eru öllum öðrum heiðursmerkj- um æðri. Þau eru hin einu, sem eru nokkurs virði, og þau má aldrei hylja hvorki af ótta né eigin hagsmuna von. Árelíus Níelsson. MBNNING: Frú Sigríður Kjartansdóttir, frá Holti undir Eyjafjöllum Hún andaðist hér í Reykjavík, hinn 31. júlí og var útför hennar gerð frá Fossvogskapellu, laugar- daginn 6. ágúst s. 1- Frú Sigríður var dóttir Kjart- ans prófasts Einarssonar í Holti og fyrri konu hans, Guðbjargar Sveinbjarnardóttur, sem prestur var í Holti næstur á undan séra Kjartani. Fædd var Sigríður norður á Húsavík í -Þingeyjarsýslu hinn 6. febrúar 1885 síðasta og fimmta prestsþjónustuár séra Kjartans þar, en þetta sama ár fékk séra Kjartan veitingu fyrir Holts- prestakalli og þjónaði þar alla æfi síðan enda úr byggðarlag- inu upp runninn, af hinni kunnu Skógaætt. Loks átti það fyrir frú Sigríði Kjartansdóttur að liggja að verða sjálf prestsfrú í Hollti, þeg ar hún hinn 27; september gift- ist séra Jakob Ó. Lárussyni, sem fengið hafði veitingu fyrir Holts prestakalli 28. júní 1913 og var vígður til þess þegar næsta dag. Á æskualdri var frú Sigríður árlangt í Danmörku við nám og dvaldi þá á heirriili Sveinbjarnar Sveinbjörnssonar yfirkennara við latínuskóla í Árósum, en Sveinbjörn var albróðir frú Krist ínar, stjúpu frú Sigríðar. Systkyni tvö átti frú Sigríður. Sveinbjörn og Elínu, sem bæði fluttust til Vesturheims og ílent- ust þar. Er Sveinbjörn nýlátinn en frú Sigurlína ekkja hans er komin heim, og /dvelzt. nú hjá dóttur sinni, frú Guðbjörgu, son ar og fósturdóttur séra Kjartans og frú Kristínar, en frú Guðbjörg er búsett á Akureyri, kona Arnþórs Þorsteinssonar forstjóra Gefjunnar. Ekki er unnt að hugleiða æfi- atriði frú Sigríðar Kjartansdótt- ur án þess að minnst sé á eins- konar fósturbróður hennar. Kristján Jóhannes Sigurðsson, tökudreng, sem stálpaður dreng ur kemur á vegu séra Kjartans norður á Húsavík og flyzt með honum suður og alla tíð dvaldi í hans brauði síðan, meðan báðir lifðu, og fylgdi staðnum samfellt í 60 ár. „Kunningi" eins og Krist ján var kallaður mun í bernsku hafa fengið minnisgáfu laskaða svo, að hann nam aldrei til hlýt ar móðurmálið, tók því seint út þroska, en reyndist vaxa að manndómi og manngöfgi æ meir eftir því sem árunum fjölgaði, alla æfi hugmaður og dyggur þjónn, sem hlýtur æ meiri ást og virðing samferðamanna eftir því sem kynni aukast. og skiln- | ingur á því hvað undir stakki bjó hjá þessu kynlega fatlaða göfugmenni. Kristján lifði til hárrar elli, og í lokin dáður sem hállf-heilagur maður. Eftir mína fyrstu langferð, svaraði ég því aðspurður um, hvaða byggð ég teldi fegursta, að það mundi vera Eyjafjöllin. Og nú þegar ég má teljast að hafa ferðast um landið allt, eru Eyjafjöllin enn í hópi hinna al- fegurstu byggðarlaga landsins að mínu viti. Það átti fyrir mér að liggja að flytjast í þessa fögru byggð og setjast þar í bú. með þeim prests hjónunum frú Sigríði og séra Jakob. Þau þrjú ár sem ég átti bú með þeim góðu hjónum, hefi ég löngum lofað, slík er birtan yfir þeim, sveitin fögur. jörðin öndvegis höfuðból, og kynni við sveitunga og sveitalífið yfirleitt, allt varð þetta mér eins og opin- berun en þá jafnframt skóli og er þá ekki undan að telja mesta undrið, útræðið á vetrar- vertíð frá brimströndinni. Einhverju sinni á þessum ár- um mínum í Holti kom það fyrir í mikilli þurrkatíð, að búið var aö hirða undan og ég að leysa úr síðustu böggunum, en þeir séra Jakob og vinnumaðurinn báðir úti í Djúpósum að slá, sinn með hvorri sláttuvélinni, að heyskaparáhuginn varð það mikill að ég fer á næsta bæ, fæ lánaða sláttuvél og beiti fyrir hana reiðhestum, sem hvorugur hafði komið fyrir sláttuvél áður, og vísast saknað þess, svo státn ir gegndu þeir þessu nýja hlut- skipti- Þegar ég kem í nánd við teiginn, þar sem þeir eru að vél- slættinum, heyri ég að prestur segir: „Mikil helv . . . læti eru þetta!" Eg fann að upphrópun- in var ekki tilefnislaus, svaraði engu, en beitti nú þriðju vél- inni á hinn óslegna hómla, sem skófst nú fljótlega niður, og mun þarna í fyrsta sinn hafa verið sleginn eins konar hælasláttur með sláttuvélum á íslandi- En þvi segi ég frá þessu, að þetta var í eina skiptið í okkar sam- eiginlega búskap, sem okkur sam býlsfólkinu féll styggðarorð af vör. Vorið 1914 þegar ég fluttist að Holti, hafði ég aldrei séð sláttuvél, en þetta sumar gengu þær níu á Holtsengjum, enda margar jarðirnar, sem þama áttu heyskaparítök. Að vísu byrj aði slátturinn þetta sumar með fimm vikna rosa, en þá breytti til og heyskapurinn þá fljóttekn ari fyrir vélakostinn. Séra Jakob beittist fyrir stofn un Kf. Hallgeirseyjar, og fyrir (Framhald á 13. síðu). Þér fáið Ijúffengan og nærandi drykk ef þér notið hið nýja INSTANT (5comalt Auðnofað, bragðgott og hreinlegt. Jafnvel börnin geta blandað sér án þess að óhretinka eldhúsHS. Heit eða köld miólk og INSTANT COCOMALT inniheldur mikið af vítamínum og öðrum nauðsynleg- um næringarefnum. Reynið INSTANT COCOMALT strax í dag. YMSIR HAFA VIKIÐ að því undan- farna daga, og spurt í forundran, hvernig á því gæti staðið, að upp er tekinn sá slður hér á landi að skíra stofnanir eftir lifandl mönn um í fullu fjöri. Er þá vltnað til Steingrímsstöðvar við Efrafall. Þyklr flestum, sem þetta hugsa svo fjarstæð smekkleysa, að þeir standa orðlauslr. Hvað boðar þetta eiginlega, spyrja menn? Á að fara að taka upp persónudýrkun hér á landi með sama hætti og í Rúss landi? Á að fara að skira ýmis helztu mannvirkl þjóðarinnar, jafn vel borgir og bæi eftir lifandi úr- valsmönnum á sama hátt og Stalin grad. Og það sem furðulegast verð ur að kalla er það, að frumkvæði til slíkra nafngifta kemur frá íhaid inu i landinu, þeim mönnum, sem mest hafa forðast manndýrkunar- nafngiftir Rússa. ÞETTA UPPÁTÆKI, sem ekki á sér fordæmi um slíkt alþjóðafyrir- tæki sem orkuver, hefur vakið menn til hugleiðinga um það, hvar við lendum, ef við höldum áfram á þessari braut. Englnn vafi er á því, að embættismaður sá, sem hið nýja orkuver er við kennt er hinn mesti sómamaður, frábær embættismaður og á að baki stór- merkt starf í þágu þjóðarinnar. Hann á bví neira en skilið þann heiður, sem á að felast í nafngift inni — og alla aðra sæmd og við- urkenningu fyrir starf sltt. En það breytir engu um þann ósóma, sem framinn er með skírn orkuverslns. Spurningin er aðeins sú, hvort við eigum að taka upp þá persónu dýrkun, sem felst í þessu, og ef við byrjum á þessu, þá er betra að skoða i upphafi, hvar við lend- um. ÞAÐ ERU "flL FLEIRI ágætir emb- ættismenn en Steingrímur raf- magnsstjóri, sem ættu eins mikla heimtingu á heiðursviðurkenningu í þessum nýja stil. Það má nefna ýmsar stofnanir í bæjum og ríki, sem þeir hafa öðrum fremur byggt upp og jafnmikil ástæða væri til að skíra eftir þeim. Má nefna banka, skóla, skrifstofur — og svo alls konar mannvirki önnur — brýr, vegi, sima og hvers konar byggingar. Látum vera þó að ein- staklingar og félög kalli hús sín eða báta eftlr elnhverjum ætt- mennum eða forgöngumönnum, en fyrirtæki þjóðarinnar allrar á ekki að skíra eftir einstökum mönnum í landi þar sem persónu dýrkun er ekki viðtekln lífsregla. HVAÐA TRYGGINGU höfum við líka fyrir því, að ekki verði gengið enn lengra á þessari braut, ef haid er út á hana á annað borð — t.d. að farið verði að skíra upp götur og bæi eftir núlifandi ráðamönn- um eða forgöngumönnum á ýms- um stöðum. Það er ekkert við því að segja, þótt staðir og stofnanir séu kennd við fornmenn eða aðra öndvegis- menn, sem gengnir eru og hafa hvílt um sinn undir grænni torfu, en að kaila eftir bráðiifandl og starfandi mönnum er ómenguð og ógeðsleg persónudýrkun, sem frjálsir menn fyrlrlita — og ekk- ert annað. Það er huggun gegn þessu níð- höggi, að almenningur lætur sig auðvitað slíkar fyrirskipaðar nafn giftlr engu sæta, svo litil hætta er á að þetta festist við stöðina. Fólk mun halda áfram að kalla hana Efrafali eða Efrafallsstöð eins og áður, og eins og hún heitir að réttu íslenzku örnefni. Og fólk mun elnnig brosa í kampinn að því, að miklir fyrir- menn skull einmitt hafa verið svo seinhe£» nir að ríða á vað persónu dýrkunarinnar með því að skíra í höfuð bráðlifandl íslendlngi mannvirki, sem íslendingar hafa ekki einu sinni getað byggt af eigin rammieik sjálfir, heldur hafa þurft til erlendra tækniað- stoð og annað fulltingi. — Hárbarður.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.