Tíminn - 24.08.1960, Blaðsíða 2
2
T í MI N N, miðvikudaginn 24. ágúst 1960.
Fimmtíu ára starf að
menningartengslum
Undanfarna daga hefur
dvalizt hér á landi C. P.
Strong, framkvæmdastj. The
American-Scandinavian Found
ation, en stofnunin verður
fimmtíu ára gömul á þessu
ári. Strong er á heimleið úr
ferð um Norðurlönd, og kom
hér á föstudag. Hann hélt
ferð sinni áfram í gærkveldi.
í viðtali við fréttamenn í gær
sagði C. P. Strong lauslega fr'á
staa*fi stofnunarinnar undanfarin
50 ár. The American-Scandrnavian
Foundation var stofnað árið 1910
af dansk-amerískum auðmanni,
Niel Poulsen, og var ein fyrsta
slík stofnun í Bandaríkjunum en
margar aðrar af sama tagi hafa
fyigt á eftir eins og kunnugt er.
Stofnunin hefur aðalstöðvar sínar
í New York, en starfar í 12 deild-
um í Bandaríkjunum og stendur
einnig í nánum tengslum við vin-
áttufélög Bandaríkjanna og Norð-
urlanda.
Mannaskipti
The Arr.erican - Scandinavian
Foundation hefur frá upphafi unn-
ið að auknum menningartengslum
Bandaríkjanna og Norðurlandanna
og gagnkvæmum kynnum þjóð-
anna. Stofnunin hefur boðið ýms-
ura norrænum forustumönnum til
ferðalaga um Bandaríkin og geng-
irt fyrir ferðum bandarfskra
manna til Norðurlanda. Er þess
sfcemmst að minnast að Halldór
Kiljan Laxness fór slíka boðsferð
fvrir nokkru Þá styrkir stofnunin
vjsindamenn til framhaldsnáms og
rannsókna og veitir námsmöMum
margvíslega fyrirgreiðslu. Á síð-
i'Stu árum befur stofnunin einkum
haft fyrirgreiðslu um tækniþjálf-
un Norðrlandamanna í Bandaríkj-
num, og eru um 350 manns á veg-
! nm hénnar árlega til slíkra starfa.
Bókaútgáfa
Stofnunin hefur frá upphafi gef-
ið út um 90 rit um norræn efni,
cinkum bókmenntir og sögu Norð-
urlandaþjóðanna, þ. á m. íslenzka
bókmenntasögu eftir dr. Stefán
Einarsson. Margar íslendingasögur
haia komið út á vegum hennar,
og mun enginn annar aðili hafa
gefið jafmörg íslenzk fornrit út á
ensku. Þá gefur félagið út árs-
fjórðungslega tímaritið The Amer-
iccn-Scandmavian Review, sem
mikils álits nýtur, og mánaðarlega
félagsritið Scan. Stofinunin á
mikið bókasafn um norræn efni,
og enn fremur hefur það á seinni
árum beitt sér fyrir kynningu nor-
rænnar tónlistar og myndlistar í
Bandaríkjunum.
Meðan C. P. Strong dvaldi hér
á landi ræddi hann við forystu-
menn Íslenzk-ameríska félagið um
samstarfið í framtíðinni. í tilefni
sf 50 ára afmæli stofnunarinnar
munu full'tiúar Norðurlandanna
sækja hana heim, þ. á m. með-
limir dönsku, norsku og sænsku
konungsfjölskyldnanna. Ekki er
enn ráðið hver fer af hálfu fs-
lands. — ó.
Tvö héraðsmót Framsóknarmanna
um næstu helgi. - Strandasýsla.
Héraðsmótið í Strandasýslu verður í félagsheimilinu á
Hólmavík n.k. laugardag og hefst kl. 8,30. — Ræður
flytja Hermann Jónasson, alþm. og Jónas Jónsson,
bóndi, Melum. Ávarp frá S.U.F. flytur Páll Þorgeirsson,
verzlm.
Erlingur Vigfússon syngur með undirleik Fritz Weiss-
happels. Gamanleikararnir Gestur Þorgrímsson og Har-
aldur Adólfsson fara með skemmtiþætti. Að lokum
verður dansað.
Vestur-Húnavatnssýsla -
Fundir og sumarhátíð
verða að Laugarbakka n.k. sunnudag. Aðalfundir Fram-
sóknarfélags V-Húnvetninga og F.U.F. hefjast kl. 3.
Um kvöldið kl. 8,30 verður almenn skemmtisamkoma.
Alþingismennirnir Ólafur Jóhannesson og Björn Páls-
son flytja ræður. Jóhannes Jörundsson, skrifstofum.
flytur ávarp frá S.U.F Einsöngur: Erlingur Vigfússon
syngur með undirleik Frit Weisshappzels Gamanleik-
ararnir Haraldur Adolfsson og Gestur Þorgrímsson
skemmta. Síðan verður dansað.
i
j
Kjördæmisþing Vesturlands- j
kjördæmis
verður haldið að Varmalandi, Stafholtstungum, laugar-
daginn 3. sept. n.k. og hefst það kl. 2 e.h. — Fulltrúar
eru beðnir að mæta stundvíslega. ,
Nú stendur berjatíminn sem hæst. Berjum hefur vegnað ágætlega hjá okk-
ur f sumar og allt útlit fyrlr að berjatekja verSi mjög mlkil og góð. í
Danmörku hefur kirsuberjatrjám vegnað mjög vel í sumar og húsmæð-
urnar hafa ekki undan að sulta. Þessi mynd er af danskrj stúiku að tína
kirsuber, en hún gæti allt eins verið tekin hér upp á íslandi af blómarós
við rifsberjatínslu.
Kálfafellskirkja
vígð á sunnudag
Vík, 22. ágúst. — Biskup
íslands, herra Sigurbjörn Ein-
arsson, endurvígði á sunnudag
Kálfafellskirkju í Fljótshverfi.
Fjölmenni var við athöfnina,
sem var hin hátíðlegasta í hví-
vetna. f
Kálfafellskirkja var gömul
timburkirkja, sem ríkið af-
henti fyrir nokkrum árum
söfnuðinum til eignar og um-
ráða með nokkru álagi. Hefur
kirkjan verið endurbætt og
stækkuð, byggð við hana for-
kirkja og klukknaturn, og er
hún nú hið bezta hús. Kirkj
an á margt fornra og góðra
gripa, m.a. altaristöflu frá
17. öld.
Hátíðleg athöfn
Vígsluathöfnin hófst kl. 2
e. h.. Við vígsluna aðstoðuðu
séra Gísli Brynjólfsson, pró-
f astuir að Kirkj ubæ j ar-
klaustri, séra Valgeir Helga
son, Ásum, Páll Ólafsson cand.
theol., Reykjavík, og formað
ur sóknarnefndar, Ólafur J.
Jónsson, Teygingalæk. Sóknar
presturinn, séra Gísli Brynj-
ólfsson, prédikaði, en organ-
leikari var Óskar Jónsson, for
maður kirkjukórasambands
prófastsdæmisins. Fjölmenni
var við athöfnina svo sem
kirkjan framast leyfði.
Að lokinni vígslu og guðs-
þjónustu bauð sóknarnefndin
öllum viðstöddum til rausnar
legra veitinga, en síðan hófst
samkoma í kirkjunni. For-
maður sóknamefndar sagði
frá endurbyggingu kirkjunn-
ar og þakkaði öllum þeim, er
höfðu átt þar hlut að máli,
en séra Gísli Brynjólfsson
rakti sögu kirkjunnar, sem
fyrst er getið á 12. öld. Séra
Valgeir Helgason fiutti frum
ort ljóð, en aðrir ræðumenn
voru Páll Pálsson, frú Guðríð-
ur Pálsdóttir, sem flutti
kveðju frá Prestbakkasöfnuði,
og Óskar Jónsson. Að lokum
ávarpaði biskup söfnuðinn,
þakkaði ánægjulegan og eftir
minnilegan dag og óskaði öll-
um guðsblessunar. Ó.J.
Fjórir lönduðu í
s.l. viku
f síðastliðinni viku lögðu
togarar Bæjarútgerðar Reykja
víkur á land afla i Reykjavík
sem hér segir:
16 ágúst, B.v. Þorsteinn Ing
ólfsson, 232 tonn af ísfiski.
17. ágúst, B.v. Jón Þorláksson
191 tonn af ísfiski. 18. ágúst,
B.v. Skúli Magnússon 132 tonn
af ísfiski. 19. ágúst, B.v. Pétur
Halldórsson 261 tonn af ís-
fiski.
Fjöldi skipa
hættur veiðum
Á Austurmiðum var storma
samt alla síðustu viku og gátu
veiðiskipin ekkert athafnað
sig á þeim slóðum. Þegar
lygndi í vikulokin og skipin
komust út, var hvergi síldar
vart. Á Norðurmiðum var gott
veiðiveður síðari hluta vik-
unnar, en þar varð ekki vart
sildar.
Er nú talið, að herpinóta-
veiði sé lokið á þessu sumri.
Nokkrir bátar fengu slatta
af smásíld inni í Reyðarfirði.
Vikuaflinn nam aðeins 4415
málum og tunnum og er rek-
netjaaflinn meðtalinn.
Þar sem fjöldi veiðiskipa
er hættur veiðum fyrir nokkru
og aflatölur þeirra fáu skipa,
sem fengu slatta í vikunni
hafi lítið breytzt, er ekki á-
stæða til þess að gefa út heild
arskýrslu nú.
(Frá Fiskifél. íslands).
LeiSrétting
; Tvær villur slæddust í frá-
i sögn blaðsins á dögunum af
i væntanleguih j arðbor sem
j staðsettur verður á Norður-
jlandi,_og var þar rangt haft
. eftir Áskeli Einarssyni, bæjar
i stjóra í Húsavík. Vegalengd
!in frá hverum í Reykjahverfi
er 18 km. en ekki 186. Þá eru
ekki hverir í Laugardal við
Húsavík, heldur aðeins finn
| anlegur ylur í jörðu. Loks
er þess að geta, að fram-
kvæmdir við borun í Húsavík
hefjast því aðeins i marz, að
borlnn verði látinn hefja þar
verk sitt, sem óráðið mun enn.
Nýstárlegt
taflmót
Taflfélag Reykjavikur mun
halda skákmót með allný-
stárlegu sniði um næstu
helgi.
Tefldar verða 5 umferðir
eftir Monrad kerfi, í einum
; flokki, og er öllum heimil þátt
i taka. Verður þetta hnað-
j keppni, því ljúka á mótinu
á 4 dögum Mun mótið hefj-
ast á föstudagskvöld kl. 8.
2. umferð verður tefld á laug
ardag kl. 2, 3. umferð á sunnu
dag kl. 2, 4. umferð sunnu-
dagskvld kl. 8 og 5. umferð
á mánudagskvöld kl. 8.
Taflstaður verður Breiðfirð
ingabúð, niðri. Umhugsunar-
tími verður 2 klst.. á 40 leiki
og síðan Vz klst. til lúkningar
skákinni.
j Verðlaun í mótinu verða
þrenn: 1000 kr., 500 kr. og
300 kr. Efstu menn úr 1. og
2. flokki flytjast upp um
flokk.
Þátttaka tilkynnist á æf-
ingu taflfélagsins í Breiðfirð-
ingabúð, uppi, n.k. fimmtu-
dagskvöld. Þátttökugjald verð
ur 100 kr. fyrir fullorðna, en
50 kr. fyrir drengi, 14 ára og
yngri.
Þess skal getið, að fyrirhug
aðri för taflfélagsins til Norð
urlands verður frestað til
helgarinnar 3. og 4. septem-
ber.