Tíminn - 22.09.1960, Blaðsíða 1

Tíminn - 22.09.1960, Blaðsíða 1
Húsvíkingar fá léða frystivél Sveifarás fæst ekki í stóru vélina fyrr en í októberlok Húsavík, 21. sept. — Eins og frá var skýrt í blaðinu í fyrradag, brotnaði sveifarás í stærstu frystivé! frystihúss KÞ aðfaranótt s.l. sunnudags. Vonir stóðu þá til, að hægt yrði að fá nýjan sveifarás frá Árósum með flugvél. og að mögulegt yrði að koma vél- inni í lag fyrir helgi. Nú hafa þessar vonir hins vegar brugðizt, því ekki verður unnt að fá sveifarásinn fyrr en seint í cktóber. Var þá tekið til þess bragðs að fá lánaða gamla frysti- vci frá Hólmavík, og ef allt fer að óskum kemst hún í gang ef'tir helgi. Forðar tjóni Sú vél er þó ekki líkt því eins slór og fullkomin og sú sem bil- aði, en mun þó að öllum líkind- um geta bætt úr brýnustu þörf- inni og þannig afstýrt vandræð- iim og s'tórtjóni. Eins og er er um það bil helmingur hins nýslátraða kjöts saltaður fyrir Noregsmarkað, og afgangurinn ýmist frystur á Húsavík, að svo miklu leyti sem hægt er, eða fluttur beint til Reykjavíkur. ÞE Bleiklaxar um- hverfis iandið Tveir slíkir veiddust í silunvanet í HornafírÖi fyrir skemmstu Fjármargt í Tungnarétt Biskupstungum, 21. sept. — í dag var réttað í Tungna- rétt, og var þar margt fólk og fé. Veðrið var sæmilegt, þurrt, en austanstrekkingur, sem réttagestir létu ekkert á sig fá. Féð er dálíið misjafnt, en líklega vænna en í fyrra, þegar allt kemur til alls. — Biskupstun\nabændur munu nú eiga um 25—30 þús. fjár alls, en ekki var það allt þarna í réttunum. Nokkur hluti sveitarinnar hefur ekki enn smalað upprekstrarlönd sín, hinir svokölluðu Hlíðar- bæir, frá Efri-Reykjum að Haukadal, sem eiga upp- rekstrarlönd í Úthlíðar- hrauni og Haukadalsheiði, og á þessu svæði eru 15—16 fjár margir bændur. Lítið mun (Framhald á 2. síðu). Hornafirði 21. sept. — Eins og lítillega var minnzt á í blaðinu í gær, veiddust nýlega tveir bleiklaxar í Hornafirði, og er því ekki annað sýnna en sá væni fiskur, sem eigi alls fyrir löngu var kaliaður furðufiskur eða skrímsli, sé í þann veginn að umkringja landið. Laxar þessir i Hornafirði komu - silungsnet, sem lögð voru frá bænum Dilknesi. Ekki tók heima- fólk á bænum eftir því, að þetta væru neinir kynjafiskar er vitjað var um, en ir.atreiddu annan þeg- ar og átu. Er ekki annað vitað en hann hafi smakkast vel. jBjargaði öðrum | Það var fréttamaður útvarpsins | L staðnum, sem komst að því að i þarna voru bleiklaxar á ferðinni, i tg fékk hann komið því til leiðar, I að sá sem óétinn var yrði sendur j suður. i Mikið var af silungi í netinu á- ; samt löxunum, en silungsveiði I hefur verið góð í Hornafirði í camar. Hefur silungurinn verið jírystur og seldur til Vestmanna- I eyja. AA — s • Nú skal setzt að samninga- borðinu Blaðinu barst j gær til- kynning frá ríkisst j órninni þess efnis, að samningar við Breta um fiskveiðilandhelg- ina hefjist hér í Reykjavík næstu daga. Er þá að fullu staðfest í>/> ríki'sstjómin hyggst halda fast við samn ingaáform sitt, þrátt fyrir mótmæli þóðarinnar, sem bor izt hafa hvaðanæva. Niður- lægihg 'samningaviðræðnanna verður ekki umflúin, en hins vegar ríður nú á, að þjóðin segi stjórninni enn einu sihni skýrt og skorinort, að hún mun ekki þola neins konar skerðingu á 12 mílna fiskveiði landhelginni umhverfis land ið allt. — Tilkynning ríkis- stjómarihnar hljóðar svo: Svo sem áður hefur verið (Framhald á 15. síðu). Þessi mynd var tekin af Krust- joff, er hann kom til aðalstöðva Sameinuðu Þjóðanna í New York. Krustjoff er eins og menn sjá hinn einbeittasti á svip og er greinilega staðráðinn í að láta hlut sinn hvergi. Ekki blæs þó byrlega fyrir Krustjoff að þessu slnni að því er virðist. Það þykir nú liggja Ijóst fyrir hver hin raunverulega stefna Sovétríkj- anna er í alþjóðamálum. Aðförin að Hamm- arskjöld mistókst Asíu- og Afríkuríkin snerust gegn Sovét- ríkjunum. Vilja leysa Kongómálið frið- samlega og aðstæður á allsherjarþinginu ekki eins hagstæðar Krúsjoff og hann hélt Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York er hafið. Það var sett s.l. þriðjudag og þá valinn forseti þingsins, Boland, frá írlandi Hann hlaut 46 atkvæði, Tékkinn No- sek fékk 25 atkvæði og Thor Thors 9 atkvæði. Sagt var, að Krústjoff, sem viðstaddur var atkvæðagreiðsluna hafi lítt fagnað kjöri Bolands. Þetta allsherjarþing vcröur á- reiðanlega eitt hið merkilegasta í sögu samtakanna. Þangað eru nú komnir fleiri þjóðaleiðtogar en rokkru sinni fyrr eða allra komm- únisrtaríkjanna með Krústjoff í Lroddi fylkingar svo og Fidel Castro og Nehru forsætisráðherra Indlands auk þess sem Eisenhow- er forseti Bandaríkjanna mun á- varpa þingið. Mikið áfall í grein sem Walter Lippmann ritaði fyrir fáum dögum um til- gang Krustjoffs með förinni vest- ur á allsherjarþingið (birtist hér í blaðinu í gær) telur hann full- vist, að Krustjoff sé fyrst og fremst kominn vestur til þess að sýna og notfæra sér aukin áhrif og vaxandi vald Rússa innan Sam- einuðu þjóðanna, en forsenda þess sé fyrst og fremst ítök Rússa meðal hinna nýju Asíu- og Afríku þjóða. Á þeim grundvelli hafi bann ætlað að byggja nýja sókn i kalda stríðinu innan S.Þ. Fyrsta lc.ta þeirrar sóknar er Kongó- (Framhald á 2. síðu).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.