Tíminn - 19.03.1961, Blaðsíða 2

Tíminn - 19.03.1961, Blaðsíða 2
2 TÍMINN, sunnudaglnn 19. marz<1961. ■; Kosið í Frama á þriðjudag og miðvikudag Næstkomandi þriðjudag og mið- vikudag fer fram kosning stjórnar og trúnaðarmanna í bifreiðastjóra- félaginu Frama. Listi vinstri manna í félaginu er B-listi og fer hann hér á eftir: Formaður: Ingjaldur ísaksson Fífu hvammi. Varaformaður: Sæmundur Lárusson Langholtsveg 200. Ritari: Grímur Runólfsson Álfhólsveg 8 A. Meðstjórnendur: Eirlendur Jónsson Kársnessbraut 137; Jónas Sigurðsson Garðsenda 4. Varastjórn: Guðmund- ur Hannesson Selvogsgötu 14 Hafnar- firði; Hafliði Gíslason Stórholti 20. Trúnaðarmannaráð: Óskar Sigvalda- son Sigluvog 15; Kristján Kjartanss. Hciðargerði; Þorbjörn Indriðason Ás vallagötu 64; Óskar Jónsson Álfheim um 44. Varamenn í Trúnaðarmanna- ráð: Þorleifur Gíslason Barónsstíg 61; Páll Eyjólfsson Þórsgötu 20. End urskoðandi: Sveinn Kristjánsson Ból staðahlíð 28. Varaendurskoðandi: Haraldur Jónsson Rauðaiæk 4. í stjórn Styrktarsjóðs: Óskar Lárusson Bragagötu 35. Varamaður: Þórður Þórðarson Framnesveg 14.'Bílanefnd. Andrés Sverrisson Álfhólsveg 14 A; Magnús Jónsson Melabraut 59; Þor- geir Magnússon Bragagötu 16; Jón Einarsson Efstasundi 4; Gísli Bryn- jólfsson Bogahlíð 16. Varamenn: Guð mundur Stefónsson Karfavog 42; Ingimar Einarsson Bugðulæk 13; Karl Pétursson Álfatröð 1; Snorri Jónsson Holtagerði 6; Kristján Jó- hannesson Efstasundi 32. í Gjald- skrárnefnd: Þórður Elíasson Ból- staðahlíð 29; Þorvaldur Jóhannes- son Bragagötu 35. Varamenn: Gunn- laugur Þorláksson Bólstaðahlíð 36; Tómas Kristjánsson Hraunbraut 2. Fjáröflunarnefnd húsbyggingasjóðs: Jónas Jónsson Kambsveg 21; , Vil- hjálmur Guðmundsson Stórholti 27. Varamenn Haraidur Sigurðsson Gnoðavog 16; Kristinn Magnússon Bárugötu 37. Skemmtinefnd: Gísli Sigurtryggvason Mávahlíð 46; Vigfús Sigurðsson Gnoðavog 40. Varamenn: Halldór Einarsson Kárastíg 5; Snorri D. Halldórsson Karfavog 21. Allir vinstri menn eru hvattir til að vinna ötullega að sigri B-listans. Mannekla á Ak- ! ureyrartogurum Á fimra togara ÚtgerSarfé- lags Akureyringa vantar nú s&mtals meira-en eina áhófn, en þó tekst að halda togurun- um öllum úti í einu. Er ráSið fram úr bessum vanda á þann hátt að Játa suma vera í sigl- irigu eða aðra að veiðum fyrir hraðfrystihúsið en færa menn mill iskipa, því að miklu færri menn þarf til siglingar á út- lendan markað. Ef þessum ráðum væ.ri ekki beitt, yrði að leggja tveimur teg- aranna vegna manneklu. Sjðmenn sækja mjög fast á, að siglt sé, og lætur útgerðarstjórnin það eftir á þann hátt, sem að framan greinir. Á Akureyri ríkir mikil óánægja með það, að hogararnír sigli í stað þess, að afli þeirr'a skapi atvinnu hér heima. Svalbakur seldi á mið-j vikudaginn 148 lestir í Cuxhaven fyrir rúm 80 þúsund mörk og Harð bakur 153 lestir á föstudaginn í Bremerhaven fyrir tæp 80 þúsund mörk. Kaldbakur landar á mánu- daginn á Akureyri og SléttbakUr á miðvikudaginn. Norðlendingur er á veiðum og fer til Þýzkalands í naestu viku. Nýtt snið á útvarps- viku bændasamtakanna Búnaðarfélag íslands og Stéttarsamband bænda hafa gengizt fvrir eins konar bænda viku í útvarpinu nokkur und- öníarin ár. Tíminn hafði fr^tt að fyrirkomulag þessarar viku yrði með nokkuð öðrum hætti en fiðkazt hefur og sneri sér því fil Búnaðarfélagsins í því skyni að leita fregna om þessi má!. Að þessu smni verður út- varpað frá bændavikunni dagana 20—24. marz n.k., frá kl. 13,15—14,15 nema fimmtu daginn 23. marz. Þá verður útvarpað frá kl. 14—14,30. Vikan er nú með nokkuö öðru sniði en verið hefur, bæði um efnisval og efnis- meöferð. Nú verður einum degi varið til þess, að ræða leiðbemingaþjónustuna, bæði frá sjónnrmiði bænda og ráðunauta. Verður það þriðju daginn 21. marz. Þátttakend ur eru Jón Eiríksson, bóndi, Þórólfur Guðjónsson, bóndi, Halldór Pálsson ráðunautur og Agnar Guðnason, ráðu- nautur. Öðrum degi er svo varið til þess, að xæða menntun sveitafólks, einkum með til- liti til þess, að hvetja bænda- og húsmæðraefni að leita sér menntunar i sínu fagi. Verða flutt tvö erindi: Jónas Jónsson, kennari og Kristján Karlsson, skólastjóri. Rætt verður við skólastýru hús- mæðraskóla Suðurlands, námsmeyjar húsmæðraskóla og eldri og yngri nemendur bændaskóla. Vélum og verkfærum er einnig ætlaöur einn dagur. Verður rætt við menn úr verkfæranefnd ríkisins og framkvæmdastjóra hennar. Þórir Baldvinsson flytur er- indi um véla- og verkfæra- ■geymslur. Sauðfjárræktinni er ætlað ur einn dagur. Eru þaö um- ræður milli Gunnars Guð- bjartssonar, Jóns Gíslasonar, Jónasar Féturssonar og Hall dórs Pálssonar. Síðasta daginn verða flutt: þrjú errndi: Jarðeigna- og ábúðaskipulag, eftir Jón Gauta Péturssón og útflutn- ingur landbúnaðarafurða, er- indi, sem Helgi Pétursson, framkvstj. flytur. Þá verður og rætt um skipulag eggja- framleiðslunnar. Á fimmtudaginn er svo kvöldvaká bændavikunnar. Verður þar ým.san gamli-n og nýjan fróðleik að finna, sem vonandi verður einhverjum til ánægju- Missið ekki af kvik- mynd Osvalds Knudsen Ósvaldur Knudsen sýrilr kvikmyndir sínar í allra s-8- asta sinn í Gamla bíói kl 3 dag. Þær voru sýndar nokkr- um sinnum í vikunni sem leiS við ágæta og vaxandi aðsókh. Myndir þessar eru hinar skemmtilegustu og um margt ólikar því, sem sést hefur hér af þessu tagi. Er þar margt mjög vel gert. Er sérstök á- stæða til að hvetja fólk til að leyfa börnum og unglingum að sjá þessar myndir. Fyrsta myndin, sem sýnir íslenzkt vor í sveit að nýj- um ,og þó einkum gömlum sið. Sjást þar ýmsir horfnir búskaparhættir, og er þar margt vel fram sett, en þó munu fuglamjr'.idirnar vekja meiri athygli, enda eru þær afbragðsgóðar og hlýtur að haf-a þurft mikla þolinmæði og þrautseigju til að ná þeim. Þá er kvikmyndin af Þór- bergi Þórðarsynf í senn skemmtileg og óvenjuleg, og refaveðar Hinriks í M'erki- nesi kafli, sem vert er á að horfa, svo og nærmyndir þær, ,sem Ósvald hefur tekizt að ná af íslenzkum fjallaref i Fólk ætti ekki að láta þetta i síðasta tækifæri til að sjá , myndir Ósvalds að þessu sinni Ifram hjá sér fara. Hvítárvellir slegnir á 1.160.000. oo Sala Hvítárvalla var til lykta leidd á uopboði i gær. Einn af lögfræðingum erfingjanna bauð fyrs* jörðina 1 060 þúsund. Á móti honum ouðu P.æktunarsamband Borg-ar- tjarðar og Davíð bóndi Ólats- Ræktunarsambandið Bnoð 1.150 þúsund en Davíð hækk-j aði sig i 1.160, og var honumi slegin jörðin á það verð. Hreppurinn hefur forkaurs ! rétt í þ*-já daga, en ekki bjízt son. við að hann noti þann rétt, Bókmennta- kynning í há- skólanum í dag í kvöld kl. 20,30 efnir stúd- entaráð Háskólans til bók- menntakynningar í hátíðísal háskólans Kynning þessi verður he:guð þýðingum þeim íslenzkum er gerðar hafa ver- ið á verkum enska skáldsins William Shakespeares. Þar mun Ævar R Kvaran leikari íæða um skáldið, leikritagerð þess og uhrif hennar á leik- menntir fyrr og nú. Dr. Steingrímur J. Þorsteinsson, prófessor flytur síðan erindi um Shakespeare í íslenzkum bókmennt- um. Loks verða fluttir stuttir þættir úr þremur leikritum eftir Shake- speare: Rómeó og Júlíu, Óþelló og Macbeth.VÞeim er ætlað að bregða ljósi á þrjár mannlegar ástríður, ást afbrýði og heift. Kaflarnir úr Mac- heth og Óþelló eru í þýðingu sr. Matthíasar Jochumssonar en Rómeó og Júlíu hefur Heigi Hálfdánarson þýtt. Ævar R. Kvaran flytur inn- gangsorð að hverjum þætti og stjórn- ar þeim, en félagar úr leikfélagi stúdenta og Karl Guðmundsson leik- ari munu annast flutninginn. Aðgangur að bókmenntakynningu þessari er sem fyrr ókeypis og öll- um heimill, en menn eru minntir á breyttan samkomutíma. Hreindýr (Framhald af 1. síðu.) síðan aftur um hæl, þegar hundarnir hafa snúið heim. í hinum syðri byggðarlög- um austan lands hefur mikið borið á hreindýrum, einkum í Berufirði. Að undanförnu hefur stór hópur h'reindýra haldið sig við veginn hjá bæn um Urðarteigi, rétt innan við Djúpavog. Hafa menn talið þar f jörutíu dýr. Virðast hrein dýrin stöðugt vera að færa sig sunnar. Páskaferft í Öræfi (Framhald aí 1. síðu ) húsinu, annan daginn ekið aust ur yfir Skeiöarársand í Öræfi og farið í Bæjarstaðaskóg og Morsárdal. Þriðja daginn verð- ur sveitin skoðuð, ekið að Jökuls á á Breiðarmerkursandi og í Ingólfshöfða, gist í samkomu- húsinu að Hofi. Á páskadag verð ur haldið til baka að Klaustri, og til Reykjavíkur á annan páskadag. Guðmundur verður sjálfur far arstjóri í þessari ferð, en hann hefur efnt til ferðar sem þess- arar undanfarna páska, ávallt með fjölmennri þátttöku og á- nægju þátttakenda. Allar frek- Sauíaveiíar í þorskanet (Framhald af 1. síðu.) slíkir staðir, að sauðfé hætt ir til þess að lenda þar í sjálf heldu og farast úr sulti, sé ekkert að gert. Einkum er hætt við þessu í gljúfrunum við Gilsá og Markarfljót, og hefur komið fyrir, að menn hafa neyðzt til að skjóta fé ; niður á slíkum stöðum. Gljúfr hi við Gilsá eru öllu verri að þessu Jeyti. Fest á nibbur og snasir Hallgrimur hefur fundið það snjallræði að nota þorska net við .björgunina, og hefur það gefið mjög góöa raun. Nfetin eru fyrst strengd á heppilegum stöðum á kletta sillurnar, en síðan er féð rek ið í þau. Eru þau þá fest í nibbur' og snasir, eftir því sem við verður komið á hverjum stað, en ágætt er, ef hægt er að haga svo til, að menn haldi í endana. En þeir verða að vera við öllu búnir og hafa góða viðspyrnu. Gefst ve? Með þessari aðferð bjargaði Hallgrímur 3 kindum á síð- asta ári. Fyrst re>-ndi hann þetta í vor eða sumar við björgun kindar, er hann átti sjálfur í svelti í Gilsárgljúfxi, og tókst giftus'amlega. í .haust var hið sama reynt við dilk-a í svelti í höiprum við Mark- arfljót. Sagði Sæmundur 1 bóndi Úlfarsson á Heylæk í I viðtali við blaðið, að sú björg | un hefði ekki tekið nema ; klukkustund. Fyrst hafði net , ið verið strengt, en síðan jhefðu þrír menn farið niöur | og rekið kindurnar í það. í ; fyrra hefði hliðstæður at- burður orðið, en þá tóku björgunartilraunir hvorki meiri né minni tíma en tvo daga, og tókst þó ekki betur til en svo, að ærin stökk í dauð ann heldur en láta handsama sig. Lambið náðist þó. — „Eg er stórhrifinn af þessn“, sagði Sæmundur að lokum. ,Eg átti oft við kindur í klett um á yn^ri árum og mér er í fersku minni hve erfiðlega gekk oft að ná þeim, og var þó allt oft unnið fyrir gýg. Þetta er mikil hjálp“. Ekki er bláði'nu kunnugt um, að þorskanet hafi áður verið notuð til sauðaveiða, og má hér þá vera merkilégt ný mæli á ferðinnnni. P.E. ari upplýsingar um ferðina fást hjá B.S.R. í Lækjargötu og í símum 11515 og 36565. FÉLAGSMÁLASKÓLINN Annað kvöld kj. 8.30 (mánud.) flytur Gunnar Dal, rithöfundur, erindi um áhrif heimspekinnar á stjórnmálin. Skólinn er til húsa í Framsóknarhúsinu, uppi. FRAMSÓKNARFÓLK, eldra sem yngra, er velkomið. Mætum vel og stundvislega. FRAMSÓKNARMENN, AKRANESI muniS aðalfundinn kl. 4 í dag í Félagsheimili templara. DAGSKRÁ: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Fjárhagsáætlun Akra- neskaupstaðar 1961. 3. Þingmál. FRAMSÓKNARFÓLK, fjölmennið á fundinn. FRAMSÓKNARMENN AKRANESi Framsóknarfélag Akraness heldur aðalfund sinn í félagsheimili templara í dag (sunnudag) kl. 4'f.h. — DAGSKRÁ: Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Fjárhagsáætlun Akranesckaupstaðar 1961. 3. Þing- mál. — Framsóknarmenn eru hvattir til að fjölmenna á fundinn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.