Tíminn - 17.01.1962, Blaðsíða 1

Tíminn - 17.01.1962, Blaðsíða 1
Fréttamyndir frá skriðusvæði Perú BJA 4. BIÐU Ársuppgjör Búnaðaröankans SJA 15. SIÐU 13. tbl. — Miðvikudagur 17. janúar 1962 — 46. árg. SKJALDBREIÐ STRANDAR Á BREIDAFIRDI ílhi .. lillM , ■ piM ‘i, “il íf' Björn Pálsson flaug a3 belðni Tímans yfir Skjaldbreið, þar sem hún lá við akkeri skammf frá strandstað með aðallest fulla af sjó. Björn tók mynd ina hér að ofan um kl. 1,30 í gær, eða um það leyti sem skip voru að tína upp björgunarbáta þá, sem slitnað höfðu mannlausir frá skipinu og einnig þann, sem hafði níu menn innan borðs. Hér til hliðár er mynd af því, þegar þeir á Jökulfellinu eru að ná öðrum bátnum um borð. SKILRÚMIN HALDA SKIPINU FLJÓTANDI NÍU MANNS VORU UM BORÐ í GÆR 0G NÓTT — NÍU KOMU TIL GRAFARNESS í GÆR M Frá fréttaritara Tímans í Stykkishólmi, 16. jan. Klukkan 8.45 í morgun strandaði M.s. Skjaldbreið á Lágaboða, um 2—3 mílur út af Bjarnareyjum. Veður var vont, ; norðaustan hvassviðri og illt í jsjóinn, en Lágiboði er að mestu á kafi, a. m. k. um flóð. Strax og fréttist um strandið fór Flóabáturinn Baldur á vettvang og skömmu síðar v.b. Svanur, SH 111. Þegar þeir komu á vettvang um klukkan 11 var Skjaldbreið laus af boð- anum og lá fyrir akkeri, og hafði þá þrjá gúmmíbáta rekið frá skipinu með 9 menn. Höfðu gúmmíbátarnir strax ver- ið sjósettir, en hálftíma siðar slitn- uðu þeir frá skipinu og rak burt.; Var skipstjórinn á Skjaldbreið, Högni Jónsson, ekki viss um, j hvemig menn höfðu skiptzt í bát-: ana, en rekstefna þeirra var talin á j Rif eða Hellissand. Jökulfell, sem var á leið til Ólafs- víkur sneri við til að aðstoða við leitina. Landhelgisflugvélin Rán var við Öndverðarnes, þegar bát- arnir hófu leitina. Hækkaði í vélarrúmi Klukkan 11.30 lá Skjaldbreið við akkeri og var eldd talið þorandi að hreyfa skipið. Aðallestin var þá full af sjó og hækkaði ört í vélar- rúmi. Með m.b. Svan var Berg- sveinn Jónsson hafnsögumaður í Stykkishólmi, og ræddi hann við Högna skipstjóra um það, hvort fært væri að færa skipið upp und- ir Bjarnareyjar, en þar er gott var. Skipstjóri taldi það ekki vera, því ef skipinu slægi flötu með svona miklum sjó væri stór hætta á hlið- arveltu. Klukkan 12.20 tilkynnti m.b. Blíðfari gúmmíbát á reki’ um 3 mílur út af Krossanesvita. Rán var þar skammt frá og flaug yfir bát- inn, en taldi að ekki væru menn í honum. Nokkru' síðar tilkynnti Rán: Erum yfir gúmmíbát norð- vestur af Höskuldsey, tæpar 4 míl- ur frá eynni, hefur uppi rautt blys. (Framhald á 3. siðu.) Sigurfari fekur menn og bát um borð. (Ljósmynd Rán). Röðuðu sér á f jörðinn Þegar fréttist um rek bátanna fóru bátarnir Skarðsvík, Hamar og Arnkell frá Rifi og Blíðfari, Sigur- fari og Gnýfari frá Grafarnesi og röðuðu sér á rekleiðina þannig að þeir sáu vel yfir bilin milli sín, og Grafarnesi, 16. jan. Rétt fyrir klukkan fjögur í dag kom m.b. Sigurfari hinga'ð með þá af Skjaldbreið, sem komust í gúmmíbát. Nöfn þeirra eru þessi: Friðrik Jónsson, 1. stýrimaður, Jón Ragnars, Erlingur Magnússon, Hlöðver Jónsson og Hörður Jó- hannesson, allir hásetar, Jóhann Guðjónsson, 3. vélstjóri og Aðal- steinn Friðfinnsson skipstjóri frá Grafarnesi, en hann var farþegi. Fréttaritari símaði eftirfarandi: Ég náði tali af Friðrik stýri- manni, og sagðist honum svo frá: Ilann var í koju, þegar skipið tók niðri, og fór þá strax fram úr og til skipstjóra, sem ákvað að gúmmí- bátarnir skyldu gerðir klárir og þeir færu í þá sem vildu. Áhöfnin sneri sér þegar að því. Fyrsti bát- urinn slitnaði þegar frá og annar líka, en þeir sem uppi voru, kom- ■(Frári.h -a i5 íiöu > sjá grein Eysteins Jónssonar — bls. ð

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.