Alþýðublaðið - 29.04.1940, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 29.04.1940, Blaðsíða 4
MÁNUDAGUR 29. APRÍL 1940. MÁNUDAGUR Næturlæknir er Björgvin Finns- son, Laufásveg, sími 2415. Næturvörður er í Reykjavíkur- og Iðunnar-Apóteki. ÚTVARPIÐ: 19.45 Fréttir. 20.15 Um daginn og veginn — (V.Þ.G.). 20.35 Einsöngur (Einar Markan): Sönglög eftir Hallgrím Helgason: a) íslenzk þjóð- lög, endursamin: 1. Keisari nokkur. 2. Fagurt galaði fuglinn sá. 3.Tólfsonakvæði. b) íslands Hrafnistumenn. d1) Litla kvæðið um gimbil. d) Kvöldsöngur. -20.55 Kvæði kvöldsins. 21.00 Útvarpshljómsveitin: Dönsk alþýðulög. 21.25 Hljómplötur: Endurtekin lög. '/ Hjónaband. í gær (sunnud. 28. þ. m.) voru gefin saman í hjónaband Jóna S. Einarsdóttir og Hafliði Helgason á Siglufirði. Alþýðuflokksskyrtui’nar. Alþýðuflokksskyrturnar eru seldar í afgreiðslu Alþýðublaðsins. Ættu þeir Alþýðuflokksmenn, sem hafa í hyggju að fá sér skyrtu, að gera það í dag, því birgðir eru takmarkaðar. Býraverhdarinn 3. tbl. yfirstandandi árgangs er nýkomið út. Efni: Nokkur heil- ræði, Óvænt hjálp í neyö, eftir Jón Pálsson, Hrólfur, eftir G. Böðv- arsson, Viltar gæsir tamdar, eftir Pái á Hjálmsstöðum, Hjálpsemi, vitsmunir, forvitni, eftir Helgu Þ. Smári o. m. fl. Athygli skal vakin á tilkynningu frá kirkjugörðunum, hér í blaðinu. — Skrifstofan við Ljósvallagötu er opin kl. 11—12 virka daga, sími ■/ ÍSteinunn Bjarna- <> |dóttir systir Hailbjargar, syngur nýjustu danslogin Ií kyöld kl. 10: }»ar á með- al: „Óver the Rain-Bo\v(S „Pálína“ (í Sving), — „Chew, Chew.“ Matrosfötín úr Fatabúðinni Verkafélk! Ráðningarstofa landbúnaðar- ins í Alþýðuhúsinu er opin kl. 6—9 síðdegis alla virka daga nema laugardaga. SÍMI 1 3 2 7. Ms r vistir í boði. 4678. í Fossvogi kl. 2—3, sími 3678. Heimasími umsjónarmanns er 3639. Héraðsskólanum í Reykholti var slitið 21. þ. m. Nemendur voru alls 110 og tóku 34 þeirra burtfararpróf og 51 luku prófi í yngri deild. Hæsta eink- unn við burtfararpróf hlaut Páll Bergþórsson frá Fljótstungu í Hvítársíðu. Aðaleinkunn. 9,44. Heimavistarkostnaður varð í vet- ur kr. 1,71 á dag fyrir pilta. en l. 43 fyrir stúlkur. (FÚ.) Búnaðarskólanum ó Hvanneyri var slitið 21. þ. m. Þar voru í vetur 60 nemendur, og luku 31 þeirra burtfararprófi. Á Hvanneyri er nú hafið verklegt nám fyrir nemendur yngri deild- ar og vin»a þeir að því vor og sumar. (FÚ.) Forðum í Flosaporti, revyan 1940 verður frumsýnd í kvöld kl. 8. Útselt er á frumsýn- inguna. Önnur sýning verður ann- að kvöld. 4 Gangleri, 1. hefti yfirstandandi árgangs, er nýkomið út. Efni: Af sjónar- hóli, Frjálsir vængir, Til hins ,,rétttrúaða“, eftir Grétar Fells, Ný heimsskoðun, eftir Guðmund Geirdal, Bará'ttan við myrkravöid- in, eftir Jónas Kristjánsson o. m. fl. Armann vanu drengja Uaipið. FlkRENGJAHLAUP Ármanns var háð í gær kl. 11 árdegis. Þrjátíu og fjórir keppendur úr fimm félögum komu að marki. Keppt var í þriggja manna sveitum og mega keppendur vera elstir 18 ára. Úrslit urðu þau, að Glímufé- lagið Ármann bár sigur úr býtum eftir harða keppni. Hlaut það 12 stig. Átti L, 5. og 6. mann. Önnur var svéit K. R., hlaut 18 stig, átti 3., 7. og 8. mann. ÞriÖja var sveit 1. K., hlaut 29 stig, í. R. 35 stig og F. H. 37 stig. Fyrstur kom að marki Halldór Sigurðsson úr Glfmufélaginu Ár- manni; var 7 mín. 37,2 sek. Annar varð Guðm. Jónsson, f. K„ á sama tima, og þriðji Friðgeir B. Magnússon. K. R.. á 7 mín. 38,6 sek. I. O. fi. T. MUNIÐ sumarfagnað og bræðra- kvöld st. Víkings nr. 104 í kvöld. Fjölþætt skemmtiatriði. Mætið stundvíslega kl. 8 í kvöld. 'Æt. MINERVA nr. 172. Sumarfagnað- ur miðvikudaginn 1. maí kl. 8V2 í -G.-T.-húsinu. Skemmti- atriði: 1. Ræða. 2. Leikrit (Hrossasóttin). 3. Söngur. 4. R^výa (spáný). 5. Ðraugasög- ur. 6. Dans. Aðgöngumiðar í Góðtemplarahúsinu eftir kl. 6. F.U.J. Talkórinn hefir æfingar í kvöld kl. 8,30 í fundarsal félagsins. * F.U.J.-skyrturnar eru seldar á afgreiðslu Alþýðublaðsins. Ættu allir ungir jafnaðarmenn að fá sér þær fyrir 1. maí. HÍTAVEITAN OG LAGA- PRÓFESSORINN Frh. af 3. síðu. stjórn MacDonalds á Englandi 1931 og Leons Blum á Frakk- landi fyrir fáum árum, því til stuðnings. Jú, fjármálamenn erlendis vita vafalaust, hvaða brögðum þeir beittu þessar stjórnir til þess að koma þeim í vanda. En hitt er ekki sjáan- légt, að Bjarni Benediktsson viti það. Og hvers vegna nefn- ir hann ekki fjármálastjórn sósíalista í Svíþjóð og Dan- mörku undanfarinn áratug? Flefir hann máske einhvern grun um það, að reynslan af henni komi illa heim og saman við sleggjudóma hans, og að óheppilegt sé fyrir Sjálfstæðis- flokkinn að minna á það, hvaða flokkur hefir farið með fjár- málastjórn í þessum tveimur löndum, sem hin „ágæta“ fjár- málastj órn bæj arstj órnaríhalds ins hér í Reykjavík hefir leit- að til í nauðum sínum, þegar lán hefir brugðizt annars stað- ar? Af þekkingarsnauöum eða ó- fyrirleitnum pólitískum æs- ingaskrifara hefði mátt búast við málflutnings eins og þeim, sem Bjarni Benediktsson býð- ur okkur upp á í greinum sín- um um hitaveitumálið í Morg- unblaðinu, en ekki af prófess- or í lög'um við sáskóla landsins. Hvað munu stúdentarnir hugsa um slíkan ísériföður? Og hvers mætti vænta af réttsýni og á- byrgðartilfinningu slíks laga- prófessors sem dómara í hæsta- rétti? SAMKOMULAGSUMLEITAN- IRNAR UM 1. MAI Frh. af 3. síöu. og einingu allra sannra íslend- inga með því að fylkja okkur sem fastast undir merki hinnar íslenzku alþýðu og hinnar ís- lenzku þjóðar hinn 1. maí naest kömandi og styrkja þannig hina innri samheldni um leið og við vottum bræðraþjóðum vorum hina dýpstu samúð í raunum þeirra. SJÖMANNADEILAN Frh. af 1. síðu. uppkasti yðar.“ í þessu felst fullkomin neitun við því samningsuppkasti, sem sjómannafélögin höfðu lagt fyrir útgerðarmenn. í bréfinu er held- ur ekki eitt einasta orð, sem bendi í þá átt, að þeir vilji taka til umræöu og breytingar tillögur sjómannanna. Þá má einnig geta þess, að stéttarfélög yfirmann- anna höfðu bréflega sent tilmæli til togaraeigenda um það, að samningaumleitanir gætu hafizt. Svar hefir yfirmönnunum ekki borizt, hvorki skriflega né munn- lega frá útgerðarmönnum. Sjómenn töldu alveg vonlaust að vera með frekari tilraunir til sammhga á þessu stigi málsirts og það gætl eKKí orðið tll ann- ars en að tefja tímann enn þá meira. Qii aflasala. Með skrifum eins og þessum tekst andstæðingablöðum verka SEBoamla Blð Wá 1 GUNGA DIN Amerísk stórmynd frá Indlandi, þyggð yfir sam- nefnt hetjukvæði enska skáldsins, Rudyard Kipl- ings. ' Börn innan 14 ára fá ekki B aðgang. • 1 —..... ........ m nyja mo Œ n Firirsbipanir fersetans Amerísk stórmynd er ger- izt á forsetatímabili Mc- Kinley Bandaríkjaforseta. Aðalhlutverkin leika: ROBERT TAYLOR, BARBARA STANWYCK og VICTOR MCLAGLEN. Börn fá ekki aðgang. Forðnmlí Fiesaperti Frumsýning í kvöld klukkan 8 í Iðnó. Ósóttar pantanir tafarlaust seldar öðrum kl. 2, ef ekki sóttar. Sími 3191. EOIAN ÚTSEL-T. Önnur sýning annað kvöld kl. 8 í Iðnó. Aðgöngumiðar seldir kl. 4—7 í dag og eftir klukkan 1 á morgun. Sími 3191. — Pantaðir aðgöngumiðar að þessari sýningu seldir klukkan 4—7 í dag, é ekki sóttir á þeim tíma, þá tafarlaust seldir öðrum. Fyrirfram pantanir daglega klukkan 2—5 í síma 3850. BANNAÐ FYRIR BÖRN. Aðalfundur Aðalfundur Taflfélags Reykjavíkur verður haldinn í K.R.-húsinu uppi, sunnudaginn 5. maí kl. 13. Dagskrá samkvæmt félagslögum. STJÓRN T. R. lýðsins ekki að drepa niður kröf- ur sjömannastéttarinnar. Það er vitað mál, að sjóménnn hafa mætt ósanngirni af hálfu togaraeigenda, og nægir í því efni aðeins að nefna lifrarhlutinn, sem útgerðarmenn hafa neitað að hækka. Það er vitað mál, að togararnir hafa selt ákaflega vel. Útgerðin hafði sannarlega þörf fyrir það, að henni gengi betur en verið hefir undanfarin ár. En þessi mikli gróði verður að koma sjó- miönnunum líka til göða. Síðustu sölurnar hafa gengið bnn betur en áður og hafa sðlur þó gengið vel síðan stríðið brauzt út. Fimrii togarar hafa nýlega selt, og nam sala þeirra frá 5400 sterlingspundum og upp í 6500 stpd. Mun láta nærri, að heildar- gróðinn af þessum 5 togurum í einum túr sé um 380 þúsundir króna eða rúmlega 74 þúsund af hverjum til jafnaðar. 1. MA! Frh. af 1-. síðu. þessum hátíðahöldum, og sýni þar með í verki samúð sína við bræðraþjóðir okkar á Norður- löndum og hugsjónum verka- lýðshreyfingarinnar. (Sjá ennfremur grein um samkomulagstilraunirnar um hátíðahöldin 1. maí eftir vara- formann Fulltrúaráðsins á 3. síðu blaðsins í dag). SLYSIÐ Frh. af 1. siðu. og var hún dregin ofurhægt af flutningabifreið. Maður, sem fylgdi hrærivélinni hafði geng- ið fram með vélinni til að segja bifreiðarstjóranum hvar ætti að setja vélina, en á meðan klifr- aði litli drengurinn upp á hana. Hann féll rétt strax á götuna og mun að líkindum hafa slegist í skúffu, sem stóð út úr vélinni. Hann var meðvitundarlaus er að honum var komið og var þegar lagt af stað með hann í Landsspítalann, en hann lézt á leiðinni. NOREGUR Frh. af 1, síðu. ræðismaður Þýzkalands í Le Havre, þegar franska hafskipið ,,Paris“ eyðilagðist af eldi, sem kom mpp með grunsamlegum hætti, en brátt þótti Noldrun ráð- legra að hverfa frá Le Havre og fór þá til Þýzkalands. Hambro lýsti einnig yfir, að hann hefði eiðsvarna yfirlýsingu frá hafnsögumanninum, sem siýrði þýzka skipinu „Jan Vil- helm“ inn í Narvík', þess efnis, að skipi'ð helði haft Bandaríkjafána uppi og anerísk einkenni máluð á skipshliðarnar. Útbrddið Alþýðublaðið! yi vsr yx w w y$ y 4. /\. «V'v í V'w tf vy aVí !?*

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.