Tíminn - 11.06.1963, Blaðsíða 1

Tíminn - 11.06.1963, Blaðsíða 1
ÚRSLITIN í KJÖRDÆMUNUM Á BLS. 3 benzin eða diesel HEKLA 127. *bl. — Þriðjudagur 11. júní 1963 — 47. árg. FRAMSÓKNARFLOKKURINN SIGURVEGARINN í ALÞINGISKOSNINGUNUM: ÞINGMEIN AlþJI. tapaði einu þing- sæti og Alþýðubandal. einu mörðu meiríhlutann AK-TK-Reykjavík, 11. júní. Framsóknarflokkurinn er ótvíræður sigurvegari í alþingiskosningun* um á sunnudaginn var« Vann fiokkurinn tvö ný þingsæti, annaö af Sjálf- stæöisflokknum í Reykjavík, hitt af Alþýðubandalaginu i Suöurlandskjör dæmi og hélt öllum fyrri þingsætum, þannig, aö nú fékk flokkurinn 19 þingmenn kjörna. Alþýöuflokkurinn tapaði einu þingsæti og Alþýöubanda lagið einu, en Sjálfstæðisflokkurinn hélt þingmannatölu sinni. Sfjórnar- flokkarnir hafa því marið meirihiutann í kosningunum, en stjórnin hefði orðið óstarfhæf, ef þeir hefðu tapað einu þingsæti til viðbófar, því að þá heföu þeir aðeins haft meirihluta í annarri þingdeildinni. — Mestur var sigur flokksins í Reykjavík, en þar náði Einar Ágústsson kjöri með míkl- um glæsibrag, og jók flokkurinn fylgi sitf í Reykjavík um 50% frá því í síðustu alþingiskosningum, hlaut 6178 atkvæði og vann þingsæti af Sjálf stæðisflokknum. í Suðurlandskjördæmi vann Helgi Bergs, þriðji maður á lista Framsóknarfiokksins, þingsæti af Alþýðubandalaginu. í Reykjanes- kjördæmi jók flokkurinn fylgi sitt einnig mjög mikið, fékk nú 2.465 af- kvæði en hafði 1760 atkvæði siðast. Framsóknarflokkurinn hefur í heild bætt við sig 3328 atkvæðum frá því í síðusfu alþingiskosningum — eða aukið fylgi sitt um 15.7%. Hlutfallslega hefur flokkurinn bætt aðstöðu sína veruiega, fékk nú 28.2% gíldra atkvæða, en hafði siðasf 25.7%. EINAR ÁGÚSTSSON ingum. Þeir bæta við sig um 600 atkvæðum í heildartölu frá síðustu alþingisk osn in gum, en sú tala nægir rétt til þess að mæta fjölgun á kjörskrá, og hafa þeir því tapað úr eigin liði s-em nemur því, er þeir hafa fengið úr Þjóðvarnar- flokknum. Alþýðubandalagið fær nú 14275 atkv. en hafði 13.621 í HELGI BERGS kosningunum 1959 og hefur bætt við sig 654 atkv. en það er 16% af gildum atkvæðum í bæði sikiptin. Alþýðubandalagið fékk nú sex kjöndæmakosna þingmenn eða sömu tölu og síðast en fær nú aðeins þrjá landkjörna í stað fjögurra áður og lækkar úr 10 þingm. í 9. Atkvæðamagn flokkanna og tap eða gróði er sem hér segir: Alþýðuflokkur 12683, lækkun 226 atkv. eða um 1,5%. AlþýSubandalag 14275, hækkun 654 atkv. eða um 5,1%. Framsóknarflokkur 25210, hækkun 3328 atkv. eða 15,7%. Sjálfstæðisflokkur 36917, hækkun 3117 atkv. eða 9,2%. Atkvæðamagn það, sem bæt- ist við þingflokkana alla sam- an lagt í þessum kosningum, miðað við haustkosningarnar 1959 er 7099 atkv. Stjórnar flokkarnir ná ekki saman helm ingi þess, hvað þá sínu hlut- falli, eða aðeins 2891 atkv. Ná lega helmingur þessarar aukn- ingar fellur til Framsóknar- flokksins eins, eða 3328 atkv. eins og fyrr segir. Alþýðuflokkurinn hefur tap- að langmestu. Hann fékk nú 12.683 atkv. en 12.909 atkv. í kosningunum 1959 og hefur því tapað 226 atkvæðum og allri aukningunni á kjörskrá. Al- þýðuflokkurinn fékk nú 4 þing menn kjörna eða etaum minna en áður en fær 4 landkjöroa, svo að þingmannatalan verður 8, einum minna en áður. Sj álfstæðisflokkurinn hefur unnið líttts háttar á í atkvæð- um, en þó litlu meira en svarar til hlutar hans í fjölgun á kjör skrá. Hann fékk nú 36.917 atkv. en 33,800 atkvæði 1959 og hef- ur því bætt við sig 3117 átkv. Sjálfstæðisflokkurinn fær nú 20 kjörna þingmenn, hafði 21, en fær hins vegar 4 landkjöma í stað þriggja áður, svo að þing mannatalan verður hin sama, 24. Augljóst er, að kommúnistar gjalda afhroð í þessum kosn- Uppbótarþingsætin Uppbótarþingsætin skiptust þannig milli flokkanna: Sjálf- stæðisflokkurinn fékk 4 upp- bótarþingsæti, Alþýðuflokkur- inn 4 og Alþýðubandalagið 3 en landskjörnir þingmenn eru samtals 11. Landskjörnir þingmenn Sjálf stæðisflokksins eru þessir: Davíð Ólafsson, Sverrir Júlíus- son, Bjartmar Guðmundsson og Hermann Þórarinsson. Landskjörniir þingmenn Al- þýðuflokksins eru Sigurður Ingimundarson, Birgir Finns- son, Guðmundur í. Guðmunds- son og Jón Þorsteinsson. Landskjömir þingmenn Al- þýðubandalagsins eru Eðvarð Sigurðsson, Ragnar Arnalds og Geir Gunnarsson. Ástæða er til að vekja athygli á þvi, að forseti Sameinaðs Al- þingis Friðjón Skarphéðins- son náði ekki kjöri sem lands- kjörinn þingmaður og heldur ekki Karl Guðjónsson, _ t

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.