Alþýðublaðið - 01.12.1943, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 01.12.1943, Blaðsíða 2
ALfrYÐUBLAPIP MiSvikndsgur 1. alet. ■! ir,".l|í'1 • , 1943. Heita vatHÍnu hieypt í bæinn. ekki síöar en 17. júní ’44. Þeir hafa ákveðið að ping komi sam an 10« janúar til að afgreiða málið* ■■■ ..................♦....... Sameiginleg yfirlýsing fi gær. FRÁ þingflokkum Sjálfstæðisflokksins, Kommúnista- flokksins og Framsóknarflokksins barst Alþýðublaðinu séint í gærkveldi eftirfarandi yfirlýsing: „Þingflokkar Framsóknarflokks, Sameiningar- fioldcs alþýðu 1 Sósíalistaflokksins og Sjálfstæðis- f flokks eru sammála um, að stofna lýðveldi á íslandi eigi síðar en 17. júní 1944 og hafa ákveðið að bera fram á alþingi stjórnarskrárfrumvarp milliþinganefnd- arinnar í byrjun næsta þings, enda verði alþingi kallað saman til reglulegs fundar eigi síðar en 10. janúar 1944 til þess að afgreiða málið. Svo mörg eru þau orð þessarar sameiginlegu yfirlýaing- ar og fer ekki hjá því, að hún muni vekja mikla furðu. Það er vitað, að hreifing hefir verið í gangi síðustu daga fyrir því að miðla málum í þeim ágreiningi, sem uppi er inn afgreiðslu skilnaðarmálsins. En með yfirlýsingu hinna þriggja flokka er sá samkomulagsvilji hundsaður og þjóð- inni vitandi vits sundrað í þessu viðkvæma máli og má slíkt ábyrgðarleysi dæmalaust heita. Mun Alþýðublaðð koma nánar inn á þetta frumhlaup við fyrsta tækifæri. Tjarnarbíóhneykslið: Ofbeldið við hið frjálsa orð veknr fjrrirlitningn. .—.—........ „Leiðrétting“ frá Níels Dungal og athugasemd frá Árna Pálssyni. HIÐ FURÐULEGA TILTÆKI stjórnar Tjarnarbíós að að setja skilyrði fyrir því, hvað Ámi Pálsson pró- fessor mætti segja í ræðu sinni á hátíðarsamkomu stúdenta í dag, sem hafði þær afleiðingar, að samkomunni var af- lýst, hefir vakið fádæma athygli og almenna andúð. Þetta mun stjórn Tjarnarbíós hafa fundið í gær, því að í gær- kveldi barst Alþýðublaðinu eft irfarandi greinargerð frá Niels Dungal prófessor um þetta mál — fyrir hönd bíóstjórnarinnar: „Leiðréttmg“ Dnng~ als. „IJt af ummælum Alþýðu- blaðsins og Vísis, í dag og í gær vil ég taka þetta fram: Munnleg skilaboð komu til Stjómar Tjarnarbíós frá stú- dentum um að fá Tjarnarbíó lánað 1. des. fyrir skemmtun stúdenta. Var þetta strax leyft. Seinna fréttist, að til stæði, að flytja þarna pólitískt erindi, og var þá eftir sömu leið skilað til stúdentanna, að húsið hefði verið lánað til skemmtunar og þeim tilmælum beint til stúdent anna, að hún yrði ekki notuð til pólitísks áróðurs, því að stjórn Tjarnarbíós hefði fyrir rúmu ári ákveðið að lána húsið sekki til slíks. Var þess því vænzt að skemmturíin yrði haldin innan, þess ramma sem upprunalega var gert ráð fyrir. Því miður fór allt þetta munn lega fram, vegna þess að engum okkar mun hafa dottið í hug, að deilur gætu sprottið út af þessu, sérstaklega þar sem um merkan afmælisdag sjálfstæðis vors var að ræða sem öllum mun þykja sjálfsagt að fari fram í sem mestri eindrægni og samlyndi. Vafalaust hafa þær munn- legu umræður, sem út af þessu hafa spunnizt, aflagast til mik- illa muna í meðförum, því að próf. Alexander Jóhannesson sagði við mig litlu seinna, að próf. Árni Pálsson hefði hringt til sín mjög reiður, út af því, að sér væri varnað máls í Tjarn arbíó. A. J. sagðist engu orði hafa komið að áður en Á. P. hringdi af í bræði. Skömmu seinna komu stú- dentar úr skemmtinefndinni að finna mig út af þessu, og sagði ég þeim frá afstöðu okkar í mál Franah. á 7. síðu. il|ýðih!aðið bem- BrehkiitámeriBB A LÞÝÐUBLAÐIÐ kemur ** ekki út á morgun af til efni dag. fullveldisafmælisins Fyrsta Msilfi, sem fiékk heita vata !i var listaverkasafin Eiaaars Jóns senar á Skólavðrðahæð. ■ • ■■■■ Næst komu nokkur hús í Norðurmýri. - .....»" j TJ ITAVEIITA REYKJAVÍKUR er loksins tekin til starfa. ■■■ Hveravatninu frá Reykjum í Mosfellssveit var í fyrsta sinn veitt inn í nokkur hús í gær. Fyrsta húsið, sem fékk heita vatnið var Hnitbjörg, listasafnhús Einars Jóns- sonar á Skólavörðuhæð og var það vel til fundið og smekk- legt af forstjóra hitaveitunnar, að hefja starf þessa mikla fyrirtækis í hinu veglega húsi þessa kunna listamanns. Helgi Sigurðsson, forstjóri hitaveitunnar, boðaði blaða- menn á fund sinn í gærkveldi klukkan 5,30 og skýrði svo frá, að um hádegisbilið í gær hefði hveravatninu verið veitt í fyrsta húsið í bænum og hefði það verið Hnitbjörg, hús Einars Jónssonar myndhöggvara. „Við vissum, að allir Reykvíkingár myndu verða sam- mála um það, að þetta hús ætti skilið að fá fyrst allra húsa í bænum heita vatnið“, sagði Helgi Sigurðsson. „Þegar þessu var lokið og heita vatnið var farið að streyma um þetta mikla hús,“ sagði forstjórinn ennfremur, „fórum við inn í Norðurmýri og hleyptum vatninu þar á nokkur hús. Voru þau aðallega í suðurhluta Norðurmýrar. Við förum Okkur mjög hægt í fyrstu, því að margt þarf að aðgæta, en síðan kemst meiri hraði á þessar framkvæmdir. Við munum lúka við Norður- mýrina fyrst, en síðan höld- um við upp Skólavörðuholtið og byrjum á Leifsgötu, Egils- götu, Eiríksgötu o. s. frv. Við munum þannig smátt og smátt færa okkur vestur bæinn í réttri röð. Eins og áður hefir verið skýrt frá eru aðalleiðslurnar frá geymunum þrjár. Sú fyrsta ligg ur um Laufásveg, um Skothús- veg og niður í Tjörn, önnur liggur norður Hringbraut, upp Egilsgötu, niður Skólavörðu- stíg, um Bankastræti, Áustur- stræti, Pósthússtræti, upp Tún- götu, í Bræðraborgarstíg og þaðan í Hringbraut og niður í Tjörn. Þriðja leiðslan liggur svo niður Vitastíg, vestur Hverfisgötu, um Hafnarstræti, í Ránargötu, að Bræðraborgar- stíg og þanðan um Hringbarut, sömu leið og önnur leiðslan, og niður í Tjörn. Þessum leiðum munum við svo að mestu fylgja, er við hleypum vatninu á hús- in. Það er búið að tengja við all- flest hús í bænum. Þó er mik- ið eftir í Þingholtunum, fyrir sunnan Bræðraborgarstíg og og svo nokkrir aðrir dreifðari blettir. Nú sem stendur er unnið að tengingum í Miðbæn- um. ■v Þá er og lökið við að skola út allar aðalleiðslurnar innan bæjar og mikið af smáleiðsl- unum, en það sem eftir er, verður gert jafnóðum og unnið er að því að hleypa, vatninu á húsin. Ég vona fastlega, að það, sem eftir er að gera, gangi vel og þó að húsunum, sem fá heita vatnið fjölgi ekki með mjög miklum hraða næstu dagana, þá býst ég við að við getum hleypt vatni á fleiri og fleiri hús á hverjum deigi. Hraðinn í þessum framkvæmdum verður meiri með hverjum degi sem líður úr þessu.“ Verða þá allir, sem á annað borð geta fengið heita vatnið búnir að fá það fyrir jól?“ spyr einn blaðamannanna. Forstjórinn hugsar sig lengi um, en segir svo. „Ég þori ekk- ert að fullyrða, en ég vona það. — Hversu heitt verður vatn- ið úr krana á heimilunum? „Það verður nokkuð misjafnt og fer það eftir því, hvort vatn- ið þarf fyrst að fara í geymi uppi á lofti. En þar sem því er ekki til að dreifa, verður- það um 80 stiga heitt úr krana.“ — Hversu mikið kólnar vatn- ið frá geymunum í Öskjuhlíð og til dæmis í vestasta húsið í bænum? „Það mun kólna um það bil 2 stig,“ svarar forstjórinn. — Ætlar hitaveitan ekki að leiðbeina fólki á einhvern hátt með notkun heita vatnsins? „Jú. Þeir, sem vinna að því að hleypa heita vatninu í húsin, tala við fólkið jafn óðum og svo munum við gefa úr leiðarvísi, sem hverjum notanda verður látinn í té. Er blaðamennirnir kvöddu forstjórann óskuðu þeir honum til hamingju með þetta volduga fyrirtæki hans, sem tók til starfa í gær, eftir að hafa verið í smíðum í meira en fjögur ár — og allir hafa beðið eftir með óþreyju. Kveðjur frá Ameriku og Englandi á fult- veldisdaginn. M. a. frá Wallace, varaforseta og AI- exander flotamála- ráðherra. T GÆR flutti Henry A. Wall- ■■■ ace, varaforseti Bandaríkj- anna, heillaóskir til íslendingtt í tilefni af fullveldisdeginums 1. desember. Kvaðst varaforset inn bíða þess með eftirvænt- ingu, að hin vinsamlegu tengsl milli þessara frelsiselskandi og óháðu þjóða yrðu traustari. Samskonar kveðjur hafa og bo® izt frá Elbert D. Thomas, þing- manni Utahfylkis, þar sem ís- lendingar settust fyrst að I Bandaríkjunum, og frá dr. Paul Douglass, forseta America®. University í Washington D. C., sem var brautryðjandi hreyf ingar þeirrar, að 8 helztu há» skólar Bandaríkjanna veittu ís* lenzkum námsmönnum styrkL Þá hefir íslendingum einnig borizt vinsamleg kveðja frá A. V. Alexander, flotamálaráð- herra Bretlands, í tilefni af fullveldisdeginum. Veða kveðjur þessar birt«p orðréttar í næsta blaði. Ni ——— Steingrímur J. Þor- sfeiimon sæmdnr doklorsnafnból. Fyrir rif sift uirai Jóit Thoroddsesi skáid. HEIMSPEKIDEILD há- skólans hefir að fengnu sam'þykki háskólaráðs álykt- að að veita mag. art, Stein- grími J. Þorsteinssyni nafn- bótina doktor í heimspeki, dr. phil., fyrir bók hans „Jón Thoroddsen og skáldsögur hans,“ án þess að munlegt doktorspróf fari fram. Undanþága þessi er veitt án umsóknar af hálfu doktorsefnis með þeim forsendum, að heilsu- fari hans hefir um skeið verið Framh. á 7. síðu. Hátiðahðldln f dag — á fullveldlsdaglian. HÁTÍÐAHÖLD stúdenta hefjast í dag með því að þeir safnast saman við háskólann kl. 1 og ganga í skrúð- göngu að leiði Jóns Sigurssonar forseta — þar flytur for- maður Stúdentaráðs, Páll S. Pálsson, ræðu og leggjir hlóm- sveig á leiði forsetans. Síðan heldur skrúðgangan áfram að alþingishúsinu. Ræða ríkisstjóra hefst af svölum húsins kl. 2. Hátíðasamkoma stúdenta í háskólanum hefst kl. 3 og flytja þar ræður Halldór Kiljan Laxness og Hermann Jón- asson. Um kvöldið efna stúdeníar til hófs að Hótel Borg. Hátíðarsamkomu þeirri, sem stúdentar höfðu ákveðið í Tjarnarbíó hefir verið aflýst, eins og áður hefir verið skýrt frá. Ríkisútvapið hefir mikla dagskrá af tilefni dagsins, að loknu hádegisútvarpi, sem hefst að þessu sinni kl. 12, eða kl. 1,30 verður útvarpað þænargjörð hiskupsins úr dóm- kirkjunni, en dagskrá útvarpsins stendur til kl. 12 e. h.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.