Alþýðublaðið - 13.04.1944, Blaðsíða 7
Ffanmtadagnr 13. aprfl 1944.
;í;’ xcn.'ssx&'j JwmÚÍ
Næturlæknir er x Læknavarð-
StOfvcnni, sími 5030.
Næturvörður er í Ingqlfsajpó-
léki.
Næturakstur annast Bifreiðastöð
íslands, sími 1540.
ÚTVAEPIÐ:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 Dönskukennsla, 2. fl.
19.00 Enskukennsla, 1. fl.
19.25 Hljómplötur: Söngdansar.
19.45 Lesin dagskrá næstu viku.
EO. Fréttir.
80.20 Útvarpshljómsveitin (Þórar-
inn Guðmundsson stjómar):
a) Peter Schmoll-forleikur-
inn eftir Weber. b) Haust-
vals eftir Albeniz. c) Lag
Lenskis eftir Tschaikow-
sky.
20.50 Frá útlöndum (Jón Magnús-
son fil. kand.).
21.10 Hljómplötur: Lög leikin á
píanó.
81.15 Spurningar og svör um ís-
lenzkt mál (Björn Sigfús-
son magister).
21.50 Fréttir.
TJngmennafélag Reykjavíknr
heldur fund í baðstofu iðnaðar-
manna í kvöld kl. 8%. Félags-
memi eru áminntir um að mæta
atundvíslega, því að mörg áríð-
antíi mál eru á dagskrá.
•Tónlistarfélagiff
og Leikfélag Reykjavíkur sýna
Pétur Gaut annað kvöld. Að-
göngumiðasala hefst kl. 4 í dag.
Leikfélagið biður blaðið að minna
lnnheimtumenn á að útborgun
reikninga er 14. og 15. þ. m. í
Iðnó kl. 5.
Kirkjuriíið,
3. hefti 10. árg. er nýkomið út.
Ritið er að vanda fjölbreytt að
efni, meðal annars er í þessu
hefíi minningarræða um síra Jóh.
Þorkelsson dómkirkjuprest og
minningargreinar um hann eftir
eíra Bjarna Jónsson og dr. Alex-
ander Jóhannesson.
STYRJALDARLOK f ÁR?
Frh. af 3. síðu.
komust ekki nema um 30
þúsundir af. Hér er engu
slíku til að dreifa.
ALLT ERU ÞETTA að vísu
bollaleggingar leikmanns,
sem eklcert skynbragð ber á
hernaðarvísindi, en það er
þó fróðlegt athugunarefni
<jllum þeim, sem fylgjast
með fréttum. Telja má víst,
að orrahríð sú, sem fyrir
dyrum stendur, verði hörð
og grimmileg, þvi mikið er í
húfi. Þjóðverjar vita, hvers
þeir eiga að vænta, banda-
menn hafa ekki verið myrkir
í máli um þá hluiti. Og
bandamenn muniu leggja sig
alla fram um það að hekja
Þjóðverja á brott úr löndum
þeim, sem þeir hafa kúgað
og lamað undanfarin ár.
ALLIR VONA, að styrjöldinni
ljúki á þe9su ári, að minnsta
kosti í Evrópu, en eitt er
víst, að það verður banda-
mönnum erfið leið og torsótt.
LOFTÁRÁS
Frh. af 3. síSu.
stöðina Aachen í Þýzkalandi,
sem er skammt frá landamær-
um Belgíu. Um borgina liggja
mikilvægar jámbrautir frá
Þýzkalandi vestur á bóginn. Þá
hafa bandamenn ráðizt á Za-
greb, höfuðborg Króatíu.
Loka réðust amerískar Ma-
rauder-flugvélar á ýmsa staði í
JBelgíu og Frakklandi og ollu
mikltiin spjöllum. Nutu þær
fylgöa.-: brerkra orustuflugvéla.
liiœrmn í _____
7
Hiagnúsar ICfærraested, skipstjéra
fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 14. þ. m. — Húskveðjan
hefst að heimili mínu Ingólfsstræti 3 kl. 3,30 síðdegis
Athöfniimi í kirkjunni verður útvarpað.
Emilía Kjæmested.
Jarðarför móður okkar,
flargrétar Jéiisdéttsir
frá Eyvindarmúla, fer fram frá Fríkirkjunni föstudaginn 14. þ.
m. og hefst með húskveðju frá heimili hennar, Bragagötu 34 B
kl. 1%.
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Jönmn Guðlaugsdóttir. Steinuim Guðlaugsdóttir.
Jón Guðlaugsson.
Konan mín
Sigaartojörg Meigadóttsr,
sem andaðist á páskadaginn, 9. þ. m., verður jarðsungin iaugar-
daginn 15. þ. m. og hefst athöfnin kl. 3.30 e. h. frá heimili okkar
Baldursgötu 3. Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni og jarðað
verður í Fossvogskirkjugarði.
Fyrir hönd mína og annara aðstandenda.
Einar Jónsson.
HafnargerSin á Húsa-
vik.
Frh. af 2. síðu.
verðum blóma á Húsavík. Þar
er starfandi leikfélag, sem Sig-
urður Kristjánsson veitir for-
stöðu. Það sýndi „Mann og
konu“ í vetur, og tókst það
með ágætum. Verkalýðsfélögin
eru tvö, V erkamannafélag
Húsavíkur og Verkakvennafé-
lagið Von. Auk þess er þar svo
starfandi iðnaðarmannafélag,
og er mikill áhugi fyrir að
koma á stofn iðnskóla. Kirkju-
kór var stofnaður á Húsavík í
vetur og starfar hann a£ mikl-
um áhuga og fjöri.
íbúar Húsavíkur eru um
1040 talsins. Hefir þeim lítið
fjölgað síðustu árin, enda hefir
engin stríðsvirma verið á Húsa-
vík og húsmæðisekla er þar til-
finnanleg eins og víðar.
Verkaýðssamfökin á
Ákureyri.
Frh. af 2. síðu.
þessi mál, þá voru um s. 1. ára-
mót um 200 verkamenn, er litla
sem enga atvinnu höfðu. Nokk-
uð mxm þó hafa rætzt úr þessu
síðan, bæði vegna þess að skip
voru þá ófarin á veiðar og svo
er nokkur vinna við hafnargerð
ina, og fer hún vaxandi.
Samkvæmt tillögum fulltrúa-
ráðs verkalýðsfélaganna, var
skipuð nefnd af bæjarstjórn Ak
ureyrar til athugunar á útgerð-
armálum bæjarins.
Nefndin hefir m. a. sent til-
lögur til ríkisstjórnarinnar þess
efnis að til Akureyrar fáist þrjú
af skipum þeim, sem keypt
verða í Svíþjóð.
Alþýðuflokiksmenn á Akuxþ
eyri munu ganga hart fram í
því að bætt verði úr um atvinnu
mál i bænum“.
Gjöfin
fil Sumargjafarinnar
Frh. af 2. síðu.
það átti upptökin að stofnun
Sumargjafar fyrir 20 árum.
Bréf, sem fylgdi gjöfinni og
var undirritað af Aðalbjörgu
Sigurðardóttur, Guðrúnu Pét-
ursdóttur og Svanfríði Hjart-
ardóttur, var á þessa leið:
„Bandalag kvenna hefir á-
kveðið að gefa kr. 3000,00 í
Vöggustofusjóð Ragnheiðar
Sigurbjargar ísaksdóttur í til-
efni af 20 ára afmæli Sumar-
gjafar og til minningar um
þær frú Kristínu Símonarson
og frú Camillu Bjamason, sem
mikinn þátt áttu í stofnun
Sumargjafar. Nefnd fjárupp-
hæð hefir verið lögð irm í
bankabók, sem fylgir með
þessu bréfi."
Flokksþiihg
Framsóknar.
Frh. af 2. síðu
þing, sem Framsóknarflokkur-
inn hefir nokkru sinni haldið,
enda mun hafa verið allmikið
kapp í fulltrúakosningunni og
munu öll félög flokksins hafa
kappkostað að senda fulla tölu
fulltrúa. Deilur allmiklar hafa
verið uppi í Framsóknarflokkn-
um um tveggja ára skeið og
hafa þær farið vaxandi upp á
síðkastið. Er gert ráð fyrir að
þetta flokksþing marki úrslita-
stefnu flokksins í framtíðinni —
og gengur sterkur orðrómur um
það að það geti leitt tiþ harðra
deilna og allmerkra tíðinda í
sögu flokksins og stjórnmála-
lífinu yfirleitt.
Upplýsingastöff
Þingstúku Reykjavíkur er opin
í dag frá kl. 6—8 e. h. í Templara-
hölltoni. Fríklrkjuveg 11.
Skíðamófið á Siglu-
firði.
Frh. af 2. síðu.
5. Jónas Ásgeirsson, SS 1:05,44
6. Ásgr. Kristjánss., SS 1:10,22
Gangan var 17 km. og vom
keppendur 7 í þessum flokki,
en í B-flokki voru 4 keppendur
og urðfci þar úrslit þessi:
B-jlokkur.
1. Steinn Símonars., SS 1:05,33
2. Inghn. Sæmunds., SS 1:06,20
3. Sig. Sigurðss., Þinge. 1:14,10
4. Ingvar Hólm, ÍRA 1:29,02
Ganga drengja 17—19 ára.
(15 km.)
1. Haraldur Pálsson, SS 51,04
2. Valtýr Jónasson, SS 51,14
3. Helgi Öskarsson, SS 53,26
4. Kristinn Jónsson, SS 58,25
5. Lárus Guðmundss., SR 61,12
6. Haraldur Bjömiss., SR 64,29
Hér voru 7 keppeiidur, en 1
meiddist í göngunni, Þórir
Jónsson úr Reykjavik, og varð
að hætta.
Keppendur voru nokkr^ fáir
í göngunni, sérstaklega þegar
þess er gætt, að mótið fer nú
fram heima hjá mestu gön«m-
görpum landsins, og víst eru
piltarnir góðir riorður þar, að
ekki skuli þurfa að stytta vega-
lengdina nema um tvo km. fvr-
ir drengi. Tólf km. hefði víst
flestum fundizt nóg hér syðra.
(SS þýðir Skíðaráð Sir1' .
ar, SR Skíðaráð Reykjavíkur
og ÍRA íþróttaráð Akureyrar.)
Á lauigardag fyrir páska fór
fram svig. Kvenfólk kenpti í
tveim flokkum, B og C, og
urðu úrslit þessi:
B-flokkur.
1. Maja Örvar, SR 54,5
2. Alfheiður Jónsd., ÍRA 57,4
Aðeins þessar tvær stúlkur
kepptu hér.
C-flokkur.
1. Aðalheiður Rögnv.d., SS 49,4
2. Kristín Aðalbjömsd., SS 49,8
3. Rarmveig Júníusd., ÍRA 52,2
4. Erla Kjartansdóttir, SR 56,2
5. Inga Guðmundsd., SR 56,9
,6. M.argrét Gestsdóttir, Sam-
einingu, Ólafsf., 59,0
Keppendur voru alls 8 í
þessum flokki.
,,Slalombikarinn.“
Þá fór fram keppni um „Sla-
lombikar" Litla Skíðafélaýsins
fyrir 4 manna sveitir. Úrslit
urðu:
1. Skíðaráð Siglufjarðar (A-
sveit) á 339,1 sek. í sveitinni
voru: Har. Pálsson, Jón Þor-
steinsson, Ásgr. Stefánsson,
Jónas Ásgeirsson.
2. íþróttaráð Akureyrar (A-
sveit) á 348,4 sek. (Björgvin
Júníu'sson, Magnús Brynj-
ólfsson, Eysteinn Ámason,
Júlíus Magnússon).
3. Skíðaráð Reykjavíkur (A-
sveit) á 379,9 sek. (Jóhann
Eyfells, Bjöm Blöndai, Jón
M. Jónsson, Haraldur Árna- J
son).
4. ÍRA, B-sveit á 388,9 sek.
5. Menntaskóli Akureyrar á
390,2 sek.
6. SR, B-sveit, á 393,7 sek.
7. SS, B-sveit, á 418 sek.
Brautin var 350 m. löng.
Svig karla.
A-jlokkur.
1. Har. Pálsson, SS 125,8
2. Björgvin Júníuss., ÍRA 131,4
3. Jón Þorsteinsson, SS 140,1
4. Har. Árnason, SR 146,4
5. Jón M. Jónsson, SR 147,6
6. Eysteinn Árriason, ÍRA 150,3
Brautin var 520 m. og kepp-
endur 12. Bjöm Blöndal var 10.
á 173,4 og Jóhann Eyfells 11.
ó 179,2. — ÍRA hlaut svigbikar
I fyrir beztu 4 manna sveit í 3.
sinn og til fullrar eignar, á
597,5 sek. SR hafði 646,6. Aðr-
ir fengu ekki fulla sveit.
1. Guðm. Guðm.son, ÍRA 125,2
2. Eyjólfur Einarsson, SR 127,4
3. Hreinn Ólafsson, IRA 130,0
4. Hörður Bjömsson, SR 133,8
5. Pétur Blöndal, MA 142,7
6. Sig. Þórðarson, IRA 144,8
Keppendur voni hér 17 og
brautin nokkru styttri en hjá
A-flokki (470 m.). Har. Björns.
varð 11. á 174,0, og Magnús
Guðmundsson, Hafnarfirði, 9.
á 159,1. — Svigbikar II féll
einnig í skaut IRA, sem hafði
545,7 sek. fyrir 4 manna sveit
móti 658,1, sem SR hafði. Aðr-
ir komu ekki til greina. Í.R.
vann þennan bikar í fyrra.
C-flokkur.-
1. Valtýr Jónasson, SS 67,8
2. Eirik Eylands, SR 70,0
3. Sveinn Óskarsson, ÍRA 70,1
4. Eggert Steinsen, ÍRA 70,3
5. Hjörtur Jónsson, SR 72,0
6. Lárus Guðm.son, SR 73,4
Keppendur voru hér 36.
þessum flokki var ekki keppt
um neinn sérstakan bikar.
Mótið gat ekki haldið áfram
á 2. páskadag né þann 3. vegna
veðurs. Sunnlendingar og Ak-
ureyringar héldu því heimleið-
is í fyrradag, því þeir eru
flestir tímabundnir.
Mótið hélt svo áfram í gær
með stökki í A- og B-flokki.
Urslit urðu þessi í A-flokki:
1. Jón Þorsteinsson, SS 230,1
stig (stökk 33V2 og 34 m.).
2. Jónas Ásgeirsson, SS 232,2
stig (stökk 331Á og 30 m.).
3. Sigurgeir Þórarinsson, SS
217,8 stig (stökk 33 og 33Vz
m.).
í B-flökki sigraði Steinn Sí-
monarson, SS á 198,5 stig
(stökk 29V2 og 28 m.). Næstur
var Ingimundur Sæmundssön,
SS á 151 stigi (stökk 31 og 33XA
m. — féll í síðara stökkinu).
Eftir stökkið var hægt að
reikna út hver hefði hlotið tit-
ilinn Skíðakappi íslands. En
hann hlýtur sá, er fær hæsta
stigatölu samaníagt í göngu og
stökki. Sigur af hólmi nú bar
Jón Þorsteinsson, og hefir
hann borið það heiti áður.
Hann fékk 467,1 stig. Næstur
var Ásgrímur Stefánsson með
441 stig stig, þriðji Jónas Ás-
geirsson með 422,2, og fjórði
Sigurgeir Þórarinsson með
385,8 stig. Allt eru þetta Sigl-
firðingar. Skæðasti keppinaut-
xxrinn, Guðmundur Guðmunds-
son frá ÍRA, sem þennan fitil
bar í fyrra, var farinn heim,
svo að nú fékk Jón léttan sig-
ur, en þó engan veginn óverð-
rigan.
í B-flokki sigraði samanlagt
í göngu og stökki Steinri Sí-
monarson á 399,5 stigum, en.
næstur var Ingimundur Sas-
mundsson með 352 stig.
í dag heldur mótið áfram og
verður þá keppt í bruni um
Andvökubikarinn.
HROÐALEG AÐBÍJÐ
Frh. af 3. síðu.
sniíðum með berum hnefum,
eða með gúmmíslöngum.
1 maí í fyrra fór sendiherra
Dana, Mohr í utanríkismála-
ráðuneytið þýzka og ræddi þar
um hegningarfangabúðir. Hann.
sagði þá: „Ég vakti athygli á
hinum mörgu mannslátum og
því, hve mörg þeirra væru af
völdum lungnabólgu. Þá benti
ég á, að dauðsföllin gætu staf-
að af ofþreytu, enda svæfu fang
arnir á hörðu steinsteypugólf-
inu einu saman.“
Þá hefir það komið fyrir, að
danskir verkamenn hafa verið
settir á einhvers konar nám-
skeið og síðan verið sendir til
austurvígstöðvanna, þar sem
þeir voru notaðir til þess að
sækja lík fallinna Þjóðverja og
greftra þau. Var þess krafizt
að menn þessir yrðu að sverja
Hitler hollustueið. Þetta barst
til eyma dönsku stjórnarinnar,
sem mótmælti þegar í stað. Þá
lofuðu Þjóðverjar, að danskir
verkamenn yrðu ekki framar
notaðir til slíkra starfa og ekld
heldur þyrftu þeir að sverja
Hitler hollustueið.
Tvær íbúðir
3—4 hérbergja, í Norðurmýri eða nálægt Rauðará óskast nú
þegar. Tilboð, merkt: „Austmaður“, sendist afgreiðslu
blaðsins fyrir n. k. föstudagskvöld.