Tíminn - 28.01.1964, Blaðsíða 16

Tíminn - 28.01.1964, Blaðsíða 16
 VELLINUM Þriðjudagur 28- janúar 1964 22. tbl. 48. árg. KJ-Reykjavík, 27. janúar f dag fór fram á Reykjavíkur- flugvelli sýning á aksturshæfileik- um Morris Cooper, en bíll af þeirri gerð sigraði í Monte Carlo aksturs keppninni á dögunum. Morris Cooper vann ekki aðeins keppnina, heldur urðu þeir líka i fjórða og sjötta sæti af um þrjú hundruð bílum, sem þátt tóku í keppninni. Ökumaður sýningarbílsins var Sverrir Þóroddsson, svifflugmeist- ari íslands, og má með sanni segja, að aksturshæfnin sé alveg ótrúleg. Sverrir fór með blaðamenn einn af öðrum í smá reynsluferðir þarna á brautinni, tók krappar beygjur á miklum hraða svo söng og hvein í hjólbörðunum, en Morr- isinn var hinn stöðugasti á jörð- inni. Á að horfa sýndist þetta all- fífldjarft fyrirtæki, en er við sát um í bílnum í beygjunum vel spenntir niður í sætin með örygg- isólum, fór regluleg öryggistilfinn- ing um okkur og alveg ástæðulaust að óttast nokkuð. Cooper er í svokölluðum Mini bílaflokki, sem orðið hafa mjög vinsælir í Bretlandi, og er nú að verða vinsælasti smábfilinn á Norð urlöndum. Vélin er frammtí og snýr þvert í bílnum, driflð er á framihjólunum, flððrunin er gúmmífjöðrun og hjólin litll. afiur vegur bíllinn 610 kíló, vélin er 34 Framhal-d á 15. sRSu. DÓ í BfLSLYSI í ÞÝZKALANDI MORRIS COOPER [ einnl beygjunnl á Reykjavíkurflugvelll i dag. eru í bakgrunninum og runnið hafa saman i eitt. Glöggt má marka hraðann af húsunum sem (Ljósm.: TÍMINN-KJ). HS-Akureyri, 27. janúar. Þau sviplegu tíðindi bárust hingað í dag, að Jakob Jakobsson, tannlæknisstúdent, og einn kunn- asti knattspyrnumaður landsins, hefði farizt í bflslysi aðfaranótt sunnudags rétt hjá Erlangen, en þar stundaði Jakob nám. Þegar lát hans fréttist á Akuireyri, varð mikil sorg meðal bæjarbúa, enda Jakob mjög vinsæll af öllum. Fréttir af slysinu eru enn nokk- uð óljósar, en utanríkisráðuneytið fékk eftirfarandi upplýsingar frá sendiráðinu í Þýzkalandi. Jakob var ásamt þýzkum hjónum í bif- reið skammt frá Erlangen um kl. Vilja fá leggja upp í til að KH-Reykjavík, 27. janúar. fslenzkir fiskiskipaeigendur, sem vilja láta skip sín veiða við Græn- land, eiga þess nú kost að leggja upp hjá grænlenzkum frystihúsum, ekikum í Sukkertoppen og Nars- saq. Þeir geta fengið ís og kassa endurgjaldsiiaust í þessum höfn- imi, og einnig er mögufeiki á að manna skipin að nokkru giræn- lenzkum sjómönnum. Það er konunglega Grænlands- verzlunin, sem vill fá íslenzk fiski skip til að leggja fisk sinn upp í Grænlandi. í auglýsingu Græn- landsverzlunarinnar í útvarpinu í dag óskar hún eftir að hafa sam- band við íslenzka fiskiskipaeigend ur, sem áhuga hefðu á fiskveiðum við Grænland og að sel’ja aflann grænlenzkum frystihúsum, og er aðallega um að ræða veiðar fyrir frystihúsin í Sukkertoppen og Nars saq. Geta skipin fengið ís og kassa endurgjaldslaust í greindum hönf um, og einnig segir í auglýsingu Grænlandsverzlunarinnar, að mögu legt sé að fá hluta áhafnarinnar á skipin í Grænlandi. Væntanlegir eru til landsins erindrekar Græn- l'andsverzlunarinnar, sem gefa munu nánari upplýsingar dagana 29.—31. janúar á Hótel Borg. Blaðið leitaði álits einstakra út- gerðarmanna og Landssambands Framhala a 15 siðu fimm aðfaranótt sunnudags. Sá, sem ók bifreiðinni, missti skyndi lega stjóm á henni með þeim af- leiðingum, að hún ók á steinvegg. Jakob lézt fljótlega eftir slysið, en þýzku hjónin eru nú á sjúkra húsi — hættulega slösuð. Jakob Jakobsson hafði undan- farna sex vetur stundað nám í tann Iækningum í Þýzkalandi, en kom heim á sumrin og keppti þá méð félögum sínum í Akureyrarliðinu við mjög góðan orðstír og ekki leið á löngu að hann var valinn í ís- Framhald á 15. síðu. JAKOB JAKOBSSON UM HELGINA LENTU 7 I SLYSUM í REYKJAVfK KJ-Reykjavík, 27. janúar Mikið var um slys í Reykjavík um helgina og munu 7 manns hafa hlotið meiri og minni meiðsli. Auk þess var eitt umferðarslys í Hafn- arfirði. Um tíuleytið á laugardagskvöld ið ók stúlka stórum amerískum fólksbíl á mikilli ferð upp Nóa- tún. Er komið var að gatnamót- um Nóatúns og Skipholts gekk maður út á götuna í veg fyrir bíl- inn, og varð hann fyrir honum. Sá, sem fyrir slýsinu varð, heitir Bald- ur Steingrímsson, verkfræðingur til heimilis að Baldursgötu 8, — marðist, hann allmikið, hlaut á- verka á höfði og liggur nú í Land- spítalanum. í gærmorgun um ellefu leytið, klemmdist maður um borð í dönsku skipi í Reykjavíkurhöfn. Hlaut hann slæmt mar. í gærkvöldi varð annað óhapp á mótum Skipholts og Nóatúns. Stór ameriskur bíll ætlaði fram úr VW bíl á gatnamótunum en lenti á kyrrstæðum bíl vestan megin götunnar. Stúlka sem var í amer- íska bílnum slasaðist á enni og var farið með hana í Slysavarðstofuna. | í morgun um hálf níu rákust | tveir amerískir bílar saman á Reykjanesbraut á móts við Foss- vogsveg. Áreksturinn var með Framhalo á 15. s(8u Manni bjargai írá drukknun / Eyjum SK-Vestmannaeyjum, 27. jan. Miðaldra maður frá Hornafirði féll í höfnina hér á tólfta tím- anum í fyrrakvöld. Hann var með- vitundarlaus, þegar honum var bjargað, en með Iífgunartilraun- um tókst að lífga hann við á tveim ur tímum. Maðurinn er Jón Karlsson, skip verji á Björg frá Neskaupstað. Hann féll í sjóinn milli skips og bryggju. Félagar hans urðu varir við, er hann féll í sjóinn, og gátu bjargað honum, þegar hann hafði verið aðeins örfáar mínútur í sjón um. Jón var fluttur í lögreglubíl í sjúkrahúsið og gerðar lífgunar- tilraunir á honum á leiðinni. Lækn irinn hélt lífgunartilraununum Framhalc á 15 síðu ndverji kynnir Yoga hér GB-Reykjavík, 27. janúar. ÍNDVERSKUR meistari í yoga-fræðum, Swami Pranavan- anda Saraswati, kom hingað til Iands í gær og ætlar að hafa hér þriggja daga viðdvöl, flytja fyrirlestur og sýna yoga-æfing- ar fyrir almenning í Guðspeki félagshúsinu að Ingólfsstræti 22 klukkan átta annað kvöld (þriðjudag). Swami Pranavananda ræddi við fréttamenn í dag að Hótel Borg, kvaðst nú í fyrsta sinn heimsækja ísland, en síðustu tíu árin hafi nann sótt 128 þjóð lönd heims til að kynna hina indversku heimspeki. Nú í vet- ur hefur hann verið á ferð um Evrópu og Afríku, flutti fyrir- lestur í Kaupmannahöfn í fyrra dag, en til Norðurlanda kom hann frá Sovétríkjunum og haíði þá ferðast um öll lönd A,- F.vrópu. Héðan fer hann til London, en heldur síðan vestur un haf. Spurningu um það- hverjar viðtökur hann hefði fengið í Sovétríkjunum, svaraði meistarinn: ,Mér til mikillar undrunar komu margir að hlusta á mig í öllum sósíalistísku löndunum. sem ég ferðaðist utn og áheyr- erdur sýndu mikinn áhuga. I húsi því, sem ég talaði í í Moskvu, voru þúsund áheyr- endur mættir, fólk af öllum stéttum, en mest bar á mennta- fólki, einkum vísindamönnum í læknisfræði og sálarfræði. En þið verðið !íka að athuga það, að yoga er ekki trúarbrögð, heldur fjölþætt heimspekikerfi, sem á að kenna fólki af öllum trúarbrögðum, þjóðum og flokk um listina að lifa lífinu með bvi að stunda ekki aðeins and- legar, heldur og líkamlegar æf- ingar til að öðlast vald yfir Framhald á 15. síðu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.