Tíminn - 09.05.1964, Blaðsíða 1

Tíminn - 09.05.1964, Blaðsíða 1
Aðflutnings- og afnotagjöldin ein borga sjónvarp um allt land - BÆÐISTOFN- Ofi REKSTURSKOSTNAÐ FVRSTU Slð ÁRIN, SKV. SIÖ ÁRA ÁÆTLUNINNI ÚTLENDINGAR STREYMA T!L EYJA í FISKVINNUNA FB—Reykjavík, 8. maí. Fiskvinnslustöðvairnar í Vest mannaeyjum berst nú daglega fjöldi bréfa, aða'llega frá ír- landi, þar sem ungt skólafólk býður fram þjónustu sína. Vinnsiustöðin veit um 6, sem ákveðnir eru i að koma, Fisk- iðjan er búin að fá 4 og ísfélag ið hefur ráðið hátt í 50 Fær- eyinga til sín til vinnu í surnar. Sighvatur Bjarnason hjá Vinnslustöðinni sagði, að fyrir tækinu hefðu borizt á milli 40 og 50 bréf frá frum, sem vildu koma- hingað til lands í vinnu, en erfitt væri að ráða þetta fólk. Sumt gæti ekki komið fyrr en einhvern tíma í júní og aðrir hættu við að koma þegar á ætti að herða og vont væri að missa af öðrum vinnukrafti Framhalú ö 15. sfiSu Þannig hafnaði sendiferðabíllinn á Ijósasfaurnum, eftir að Hafa ekið á telpurnar tvær á gangstéttinni fyrir framan Útvegsbankann í Vestmannaeyjum í gær. Umferðarskiltið sem billinn fór innfyrir er rétt aftan við bílinn. (Tímamynd Atli Ásmundsson). TK-Reykjavík, 8. apríl í tilefni af fyrirspurn Helga Bergs utan dagskrár í sam- einuðu Alþingi í dag las Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráð- herra, upp meginatriði úr skýrslu áætlunum og tillögiun sjónvarpsnefndarinnar, en nefndin hefur nú nýlega lokið störfum. y M. a. kom fram í máli ráðherr- ans, að sjónvarpsnefndin áætlar, miðað við þá tekjuöflun, að sjón- varpið fengi um 80% aðflutnings- gjalda af innfluttum sjónvarps- tækjum, 1000 króna slofngjaldi á sjónvarp og 1500 króna árlegu af- notagjaldi af sjónvarpi, væri unnt að greiða árlegan reksturskostnað fyrstu 7 starfsárin, allan stofn- kostnaðinn skv. 7 ára fram- kvæmdaáætlun nefndarinnar um sjónvarp til allra landsmanna án nokkurrar lánsfjáröflunar eða framlaga frá ríkissjóði . í áætlunum nefndarinnar cr gert ráð fyrir tveggja til þriggja stunda sjónvarpi fyrstu 5—10 árin. Er gert ráð fyrir að byrja dagskrá kl. 20, en senda endurtckið efni síðdegis á laugardöguin og sunnu dögum. Gert er ráð fyrir 15 mín. í fréttir og 15 mín. í auglýsingar kl. 20,30 til 21. Frumflutt íslenzkt efni verði um 40—50% dagskrár- innar en að auki fréttakvikmynd- ir og fræðslukvikinyndir með is- lenzku tali og stærri kvikmyndir með íslenzkum textum. Sjónvarpsnefndin, sem skipuð var útvarpsráði ásamt útvarps- stjóra leggur til að sjónvarpið verði deild í Ríkisútvarpinu. Ræða menntamálaráðberra xmi skýrslu nefndarinnar var ýtarleg og komu mörg mjög athyglisverð atriði fram þar. Hefur Tíminn á- kveðið að birta ræðu ráðherrans í heild, enda er þetta mál mönn- um mjög liugleikið. Fyrrihluti ræðu ráðherrans birtist í blaðinu í dag á bls. 5. SKAGAMENN UNNU Spennandi augnablik i bæj- arkeppninni í knattspyrnu milli Reykjavíkur og Akraness á fimmtudaglnn. Þama hefur Sigurþór Jakobsson skallað að marki Akraness, en Helgi Dan íelsson markvörður er að bægja hættunni frá. — Skaga menn sýndu góðan leik og unnu verðskuldað með 2:0. Tímamynd-GE. AÁ-Eyjum og KJ-Reykjavík, 8. maí íbúar Vestmannaeyja urðu óhug slegnir í dag, er sú frétt barst út um bæinn, að ekið liefði verið á tvö stúlkubörn á aðalgötu bæjarins, og önnur þeirra hefði látizt af völdum meiðslanna, er hún lilaut í slysiniu. A tæpum þrem vikum hafa þá tvö stúlkubörn látizt í umferðar- slysum í Vestmannaeyjum. — Er einnig skcmmst að minnast þess, er fyrr í þessari vilcu varð bam fyrir bíl á Suðurlandsbrautinni í Reykjavík og beið bana. Þessi rciðarslög hafa vakið menn til um hugsunar um, að virkari aðgcrða er þörf, ef draga á úr slíkum sorgarleikjum í framtíðinni. Sjö manns liafa orðið fyrir bíl og lát- izt í Reykjavík og Vestmannaeyj- um, það sem af er þessu ári. Til samanburðar má geta þess, að á árinu 1963 létust 10 manns á land inu eftir að hafa orðið fyrir bíl. Slysið varð í Vestmannaeyj- um laust fyrir klukkan fjögur. Tvær telpur, Sigurfinna Stefáns- dóttir, Gerði, sex ára að aldri, og Margrét Gísladóttir, Bessastöðum, fimm ára, voru að selja blöð. Er þær voru staddar fyrir utan Út- vegsbankann kom sendiferðabif- reið akandi austur Vestmanna- braut og ætlaði að beygja til hægri upp á Kirkjuveg. Ökumað- Framhald é 15. si3u. ENN VARD BARN FYR- IR BÍL OG BEIÐ BANA

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.