Tíminn - 09.06.1964, Blaðsíða 5
RITSTJÓR! HALLUR SÍMONARSON
Það fér eins og ti! var stofnað
Hér sækja Bretar að marki íslenzka liðsins. En Matthias bægir hættunni
frí með skaila. Ljósm. Tíminn G.E.
ALBERT I KEPPNI
VIÐ UNGLINGANA
,,UNGLINGAÚRVALIÐ" sigraði FH, styrkt með gömlum stjörn
um, á sunnudagskvöld með 1:0. Leikurínn fór fram á Hafnarfjarð
arvellinum og skemmtu áhorfendur sér hið bezta. Albert Guð-
mundsson og Hermann Hermannsson vöktu mcsta athygli í liðl
FH.— Og á myndinni hér að ofan sjáum við Albert kljást við tvo
unglinga. Þrátt fyrir sin mörgu aukakíló sýndi Albert marga snilld-
artakta og fékk óspart klapp frá áhirfendum. Hafði einhver orð á
því, að það væri synd, að Albert væri ekki 20 árum yngri. „Ungl-
ingaúrvalið" sýndl oft ágæta samleikskafla. Mesta athygii vakti
markörðurinn, Guðmundur Pétursson, KR, sem varði mjög vel.
Wanderers vann tilraunaliðið 6:1
Alf-Reykjavík. — Ógæfulegt tilraunalið landsliðsnefndar fékk háðulega útreið á Laugardals-
vellinum í gærkvöldi, er það mætti brezku gestunum The Wanderers. Sex sinnum í leikn-
um máttu varnarmenn íslenzka liðsins gera sér að góðu að horfa á eftir knettinum í eigið
mark, en tilraunalandsliðinu tókst aðeins að skora einu sinni. Má segja, að farið hafi eins
og til var stofnað. í næstum hverri stöðu í tilraunalandsliðinu var nýtt andlit, greinilegt
merki um margvísleg sjónarmið, sem liin mannmarga landsliðsnefnd þarf að samræma.
Og landsliðsnefndarmennirnir 5 mega vissulega þakka forsjóninni, að lokatölur leiksins
urðu ekki 5:0, eins og staðan var nokkrum mínútum fyrir leikslok, en ekkert hefði getað
undirstrikað betur „hin 5 földu hrossakaup.“
Vissulega má segja sem svo, að
þörf sé breytinga, þegar landslið
er valið, en var þetta ekki heldur
mikið af því góða? Um 5 þúsund
áhorfendur, sem sáu leikinn í gær
kvöldi kváðu að minnsta kosti upp
sinn dóm — sem sé góðlátlegan
hlátur, þegar síðustu mörkin urðu
að staðreynd. En nóg um það. —
Öllum getur orðið á skyssa — og
vonandi tekst landsliðsnefnd bet-
ur upp næst, en næsta skref hlýt-
ur að vera að fækka í nefndinni.
Fyrsta mark leiksins var ekki
á dagskrá fyrr en á 28. mínútu.
Lítum nú á minnisblaðið.
é Á 28. min. lék miðherji brezka
liðsins, Fay, upp að endamörk-
um hægra megin og gaf fyrir til
Brimacombe, vinstri útherja,
sem skallaði örugglega í mark,
1:0.
ý Á 5. mín. í síðari hálfleik lék
hægri útherjinn, Candey gegn-
um vörnina hægra megin og
skoraði með föstu skoti, 2:0.
é Á 25. mín. kom 3:0. Miðherjinn,
Fay, fékk sendingu frá kant:
manni og skallaði inn. (Þess má
geta, að eftir þetta mark yfirgaf
Heimir markvörður völlinn
vegna meiðsla).
ý Á 3Ó. mín. skoraði Candey sitt
annað mark með föstu skoti af
vítateigslínu, án þess, að ís-
lenzka vörnin reyndi mótleik.
| Á 34. mín. skoraði Quail, vinstri
innherji, 5. markið, fékk send-
ingu rétt fyrir utan vítateigslínu
og skaut nær viðstöðulaust.
} Eina mark íslenzka liðsins kom
á 40. mín. Eyleifur Hafsteinsson
fékk sendingu fyrir opnu marki
STUTTAR
FRÉTTIR
• Argentína sigraði England
á laugardaginn og varð þar
með sigurvegari í „Litlu heims
meistarakeppninni", sigraði í
öllum leikjum og fékk ekki á
sig mark. Sigurinn gegn Eng-
Iandi var 1:0, en það gefur
alranga hugmvnd um gang
leiksins, því cnska liðið var
mun betra, þótt því tækist
ekki að skora Daginn eftir
vann Brazilía Fortúgal 4:1 og
lokastaðan í mótinu var bví
þannig:
Argentína 3 3 0 0 6:0 í
Brazilía 3 2 0 1 9:5 4
England 3 0 1 2 2:7 1
Portúgal 3 0 1 2 2:7 1
og þurfti ekki annað en ýta við
knettinum.
I Síðasta mark leiksins varð til á
41. mín. Það var Brimacombe,
sem skoraði með hörkuskoti af
um 20. m. færi.
Fleiri urðu mörkin sem sé ekki
og fannst sumum nóg. Hitt er
víst, að þau gátu hæglega orðið
fleiri og hjálpaði heppnin tilrauna
liðinu í nokkur skipti.
Varla er vert að geta um
framimistöðu einstakra leikmanna
f tilraunaliðinu lék „hver fyrir
sig“ en minna var um samstillt-
an leik liðsins. Tvær breytingar
voru á liðinu frá þvl sem upphaf-
lega var ákveðið. Árni Njálsson
kom inn fyrir JÓhannes Atlason og
Högni Gunnlaugsson kom inn fyr-
ir Jón Stefánsson. Má segja, að
þessir tveir varamenn hafi komið
einna skást frá leiknum. Það var
greinilegt, að ungu mennirnir, Her
mann og Eyleifur, höfðu ekki þá
reynslu til að bera til að geta
komið fyrirvaralaust. inn í leik
sem þennan.
Dómari í leiknum var Hannes Þ.
Sigurðsson og dæmdi vel.
Westmmmœyingar
hafa forystuna
AÁ-Véstmannaeyjum, 8. júni.
VESTMANNAEYINGAR mættu Haukum í 2. deildar-keppninni i lelð-
indaveðri á laugardag — og var knattspyrnan að ýmsu leyti í samræmi
við veðráttuna. Þó sýndi Vestmannaeyja-liðið, sem vann með 3:1, mun
betri knattspyrnu en gegn Víklng í Reykjavík á dögunum. Með þessum
sigri sínum hefur ÍBV nú tekið forystu f A-riðlinum hlotið 6 stig í
þremur leikjum, og á nú aðeins eftir að leika gegn FH í fyrri umferð-
Inni.
ÍBV náði forystu snemma í
fyrrihálfleik, *r Haukar sendu
knöttinn í eigið mark fyrir mis-
tök. Bjarni Baldursson skoraði svo
2:0 fyrir ÍBV með glæsiiegu skoti
af u. þ. b. 20 m. færi, sem hafnaði
í stöng og inn.
Rétt fyrir hlá skoruðu Haukar
mark úr vítaspyrnu, 2:1. Og að-
eins mínútu síðar er dæmd víta-
spyrna aftur, en nú á Hauka- Ekki
tókst ÍBV að nota þetta '„okifæri
til að skora, þannig að í hálflsik
var staðan 2:1.'
Síðari hálfleíkui var allur þóf-
óennari en sá fyrri. Eina markið
í hálfleiknum skcraði Bjarni Ba’,d-
ursson, sem einlék laglega gegn-
um vörn Hauka og síðast mark-
vörðinn og skoraði 3:1.
Beztur í liði ÍBV var Atli Ein-
arsson, sem að þessu sinni lék í
stöðu vinstri framvarðar. Af sókn
anmönnum var Ealdur beztur. —
í liði Hauka sýudi markvörðurinn
prýðisleik.
Dómar: var Baldur Þórðarson
úr Reykjavík o.g dæmdi vel.
Víkingar kræktu
ssn fyrstu stig
VÍKINGAR kræktu í sín fyrstu stig í 2. deildar-keppninni með sigri
gegn Breiðablik á sunnudagskvöld, 2:1. Ekki var knattspyrna þessara liða
upp á marga fiska, en talsverð spenna var siðustu mfnúturnar, en þá
reyndu Breiðabliksmenn án afláts að jafna mefin.
Víkingar skoruðu fyrra mark
sitt um miðjan fyrri hálfleik 0r
vítaspyrnu, sem dómarinn, Carl
Bergmann, dæmcii á Breiðab’ik-
Þetta var eina mark hálfleiksins.
— Snemma í síðari hálfleik bætti
Víkingur öðru markinu við.
Breiðablik skcraði svo sitt eina
enark, þegar u. þ. b. 30 mín. voru
liðnar af síðari hálfleik. Og síð-
ustu mín. sóttu Breiðabliksmenn
af miklum krafti. en ekki vildi
knötturinn í netið. Oft skall hurð
mjö« nærri hælum, og einu sinai
glumdi hörkuskot í stöng Víkings-
marksins.
Þarna voru Vikingar heppnir að
krækja í bæ^ stigin, en scgja ;ná,
JS jafntefli hefði verið sanngjör.n
úrslit.
T ( M 1 N N, þriðjudagur 9. júni 1964.
5