Tíminn - 19.06.1964, Blaðsíða 1

Tíminn - 19.06.1964, Blaðsíða 1
VORUR BRAGÐAST BEZT 135. tbl. — Föstudagur 19. júní 1964 — 48. árg. TÓNSNILLINGARNIR LÉKU UNDIR BERU LOFTI FYRIR BORGARBÖA Það munu vers elnsdæmi hér á landi, að tveir tónsniilingar úr tvelm heimsálfum eigi ( hér stefnumót i þeim tilgangi að halda sameiginlcga tónleika, hvað þá að svo firna fræg- Ir menn taki lagið fjórhent á útr- samkomu, elns og þeir gerðu á þjóð- hátíðinni á Arnarhóli í fyrrakvöld. bessir tveir ungu menn, Vladimír Asjkenazí frá Sovétríkjunum og Malcom Frager trá Bandaríkjunum, sem sjást hér við flyglana tvo, um- kringdir tugþúsur.dum íslendi.iga. Enn er það í frásögur færandi um ferðir Asjkenazí, sem skuldbundinn er til tónleikahaids í stórborgum heimsins tvö ár fram í tímann, !eík- ur ekki aðeins hér i Reykjavík, held- ur eru ýmsir bæir úti á landi í áætl- un hans, svo sem ísaf jörður og Vest- mannaeyjar, og ein fámenn sveit fær líka að njótn listar hans, Mý- vatnssveit, Þar heldur hann tónleika i Skjólbrekku, og þefur þar ek’<i fyrr ieikið svo frægur maður. (Tímamynd-GE). • • KH-Reykjavík, 18. júní. í HÖFUÐBORGINNI rann þjóð- hátíðardagurinn upp þungbúinn og votur, og þjóðhátíðarnefnd gekk um ineð áliyggjusvip. Allt útlit var fyrir, að a. m. k. eitt dagskráratr- iði mundi falla.niður, leikur snill- inganna Askenazy og Frager, því að flyglarnir voru of dýrmætir til að á þá mætti rigna. En þegar leið að hádegi tók að glaðna til, og með liverri mínútunni léttist brún in, bæði á liimni og þjóðhátíðar- nefnd, og í dag sagði Ólafur Jóns- son, formaður nefndarinnar, að veðrið hefði aldrci verið betra á 17. júní, mannfjöldinn aldrci meiri, dagskráin aldrei fjölbreytt- ari og snuðrulausari, aldrci meiri þátttaka í dansinum um kvöldið, og eflaust mætti telja fleira upp. Reykvíkingar minntust 20 ára af- mælis lýðveldisins með glæsibrag og sóma. Hátíðarhöldin voru með fjöl- breyttara móti í Reykjavík í til- efni afmælisins. Þau 'nófust með samhringingu kirkjuklukikna kl. 10 og héldu áíram því nær óslitið til kl. 2 í nótt. Er það samhljóða ■ Forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, hefur lagt blómsveiginn að minnisvarða Jóns Sigurðssonar. V'ð hlið hans stendur Bjarni Benediktsson forsætisráðhe^ra og aftar stúdfnurnar fvær, sem báru sveiginn. (Tfmamynd-GE). álit allra, að hátíðin hafi farið mjög vel fram og þátttaka aldrei verið meiri, enda skein sólin glatt fram eftir öllu kvöldi og gerði sitt til að gera þessa afmælishátíð eft- irminnilega. Mannfjöldinn var geysimikill í miðbænum um miðjan daginn, — cinkum meðan barnaskemmtunin fór fram. Erfitt er að geta sér til um höfðafjöldann, en í fyrra munu hafa verið þar um 20—25 þús- und manns, og í gær voru þar sýni lega talsvert fleiri. Ýmsir hafa kvartað um, að erf- itt væri að sjá nokkuð í þessum fjölda, og bcnt hefur verið á, að betra væri að hafa barnaskemmt- unina í Laugardal, Þjóðhátíðarn. var lengi vel að hugsa um að flytja hana þangað, en niðurstað- an varð þó sú, að Laugardalurinn mundi ekki, geta tekið við öllum þessum fjölda, auk þess sem auð- veldara væri að hreyfa sig í mið- bænum. Fjölmargt var til skemmtunar fyrir börnin, sem kunnu vel að meta það allt saman, og hámark gleðinnar var, þegar Palli pjakkur og Bjössi bolla sendu nokkra fag- urlega veðurbelgi upp í loftið, — rétt svona til að stríða löggunni. Meðal annars kom þarna fram tvö faldur kvartett úr Þjóðleikhúskórn um og klæddist margvíslegum bún ingum, Mjallhvít og dvergarnir heilsuðu upp á börnin, sem eru Framhald á 2. síðu. Hafinn er undirbún- ingur geim- skota af Mýrdals- sandinum KH-Reykjavík, 18. júní. f dag lióf Almenna bygg ingafélagið framkvæmdir á Mýrdalssandi, um 11 km austan við Vík, til undir- búnings geiinrannsókna franskra vísindamanna þar í sumar, sem Tíminn skýrði frá á sínum tíma. Franskur verkfræðingur kemur til landsins í kvöld ti^ að hafa hönd í bagga með framkvæmd-unum, en fyrsti hópur vísindamann- anna kemur 1. júlí. Al- menna byggingafélagið hef- ur einnig tekið að sér flutn inga fyrir Frakkana, og kemur fyrsti farmurinn með Selá í kvöld. Árni Snævarr, verkfræð- ingur, sagði blaðinu í dag, að staður hefði verið val- inn undir geimrannsóknir Frakkanna í Höfðabrekku- landi, rétt við þjóðveginn, um 11 km fyrir austan Vík. Þar verða steyptir þrír pall ar undir eldflaugarnar og undir bráðabirgðaskýli, sem Frakkarnir koma með sjálf- ir. Einnig verður ruddur vegur eitthvað um svæðið. Jón Valmundsson, trésmíða meistari í Vík, stjómar framkvæmdum þama eystra, en þær hófust í dag. Franskur verkfræðingur er svo væntanlegur til lands- ins í kvöld til þess að hafa umsjón með undirbúningn- um. Almenna byggingafélagið mun annast mestalla fyrir- greiðslu fyrir Frakkana hér, sjá um útvegun fyrir þá og flutning á öllu efni, alls um 60—80 tonn. Hafskip flytur meginið af efninu til lands ins, og kemur fyrsti farmur inn með Selá i kvöld. Verð- ur sumt flutt austur með bílum, sumt með flugvél- um. Fyrstu Frakkarnir koma til landsins 1. júlí, um 10 manns, en síðar bætast 'smám saman fleiri við, og alls verða það um 40 manns, sem munu hafa að- setur í Vík. En eins og Tíminn hefur skýrt frá, munu þeir skjóta tveimur Dragon-eldflaugum af Mýr- dalssandi til rannsóknar á svo kölluðu Van Allen-balti í geimnum. Undirbúning- urinn dróst eitthvað á lang Framh. á bls. lö

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.