Alþýðublaðið - 30.01.1955, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 30.01.1955, Blaðsíða 1
HANS HEDTOFT HANS IíEDTOFT, formaður danska Alþýðuflokksins og forsætisráðherra Dana, lézt í fyrrjnótt í herbergi sínu í Grand Hotel í Stokkhólmi. Hann hafði komið daginn áður til borg- arinnar til að sitja fundi Norðurlandaráðsins og tók þátt í um- ræðum þann dag við setningu fundarins. Hann virtist þá eltki kenna sér nejns meins og gekk til náða um miðnætti eftir að liafa rætt um stund við menntamálaráðherra Dana, Julius Bomholt. I gærmorgun fannst liann örendur í rúmi sínu og töldu læknar að banamein hans hefði verið hjartalömun og að dauða hans hefði borið að fyrir fimm íjl sex klukkustundum. Með Hans Hedtoft er í val hniginn einn af fremstu alþjóð legum foringjum jafnaðar- manna, forustumsður og fremsti talsmaður Alþýðu- flokkanna á Norðurlöndum, af burða baráttumaður og eínn mesti íslandsvinur á erlendri grund. KLÆÐSKEKASONUK FRÁ ÁKÓSUM de'lur í danska Aiþýðuflokkn um og gekk Hedfoft þá mjög fram fyrir skjöldu. Þá sótti hann og alþjóðlega verka- mannaháskóla og tók þátt í starfi þeirra. St.auning kom 'snemma auga á hina miklu hæfileika Hedtofts og það var hann, sem réði hann, árið 1929, sem starfsmann flokks- ins. Framhald á 6. síðu Minningarorð effir Har- ald Guðmundsson, for- mann Alþýðuflokksins. HANS HEDTOFT er látinn. Hann var jafnaðarmaður af li.fi og sál. Hann helgaði jafn- aðarstefnunni, fólkinu, líflnu, framtíðinni alla krafta sína, allt sitt mikla ævistarf. Nú er hann allur. Þeir, sem þekktu Hedtoft bezt, mátu hann mest og unnu honum heitast. Hann var í senn frábær foringi og ágætur samstarfsmaður, djarfur, víð- sýnn, öruggur og ráðhollur drengskaparmaður. Alþýðuflokkurinn og öll ís- lenzka þjóðin hafa með athvgli og aðdáun fylgzt með starfi hans í þágu danskrar alþýðu, allrar dönsku þjóðarinnarj fyr- ir Norðurlöndin öll, fyrir al- þýðu allra landa. Alþýðuflokk urinn hér samhrygglst af heil- um huga danska Alþýðuflokkn um, sem nú hefur orðið á bak að sjá ástsælum foringja, sín- um fremsta mann:. Öll danska þjóðin syrgir Hans Hedtoft og harmar. frá- fall hans. En danska þjóðin er ekki ein um að syrgja Hedtoft. Hún átti hann ekki ein. Hann var orðinn sameiginleg eign hinna norrænu þjóða. Milljón ir manna um öll Norðurlönd ræddu um Hedtoft sem „sinn mann“. Syo er um afburða- menn. Þeir eru of stórlr, of á- hrifaríkir. til þess að vera eign aðeins einnar þjóðar. Hedtoft var slíkur. Með starfi sínu gerði hann götuna greiðari fyr ir alla þá, sem í öðrum löndum börðust fyrir sömu hugsjónum og hann. Danir eru rík þjóð, Dan- mörk ríkt land. Hedtoft leit svo á, að mesta auðlegð Dan- merkur væri fólkið sjálft, mennirnir og konurnar, sem landið byggja hverja líðandi stund. Þessi lífsskoðun var grundvöllurinn undir öllu hans ævistarfi. Hver sá maður, sem skapar fólkinu 'betri lífskjör. andleg (Frh. a 6. síðu.) Hans Hedtoft fæddist í Ár- ósum 21. apríl árið 1903, klæð ' skerasonur. Þegar hann var 17 i ára gamall, fór hami að læra prentmyndagerð. — Hann gerðist mjög ungur þátt- takandi í félagsskap ungra jafnaðarmanna og var yngst- ur þelrra, sem stofnuðu Samband ungra jafnaðar- manna árið 1920. Tveimur ár- um seinna gerðist hann starfs maður sambandsins og ferðað- ist víða um landið sem erind reki þess. VARÐ UNGUR STARFSMAÐUK FLOKKSINS Formaður sambandsins var hann árin 1927—1929. Á þess- um árum geisuðu innbyrðis Yopnahlé við sljórnina á For- mósu kemur ekki til mála -- segir málgagn kommúnistastjórnar. AÐALMÁLGAGN kommúnistastjórnarinnar í Kína hefur í grein um FormósumáliS látið í ljós, að það komi ekki til mála að kommúnistastjórnin semji um vopnahlé við Formósustjórn. Og ef Bandaríkin ætli að hindra það með vopnavaldi, að kommún'Istar taki Formósu, muni tekið á móti af því afh, sem Kína hafi yfir að ráða. Eisenhower forseti undirrit- aði í gær heimildarlög um, að hann megi eftir ástæðum beita hervald'i til að verja Formósu. Fiskimannaeyjar og nokkrar aðrar eyjar, komi til árásar af hálfu kommúnistastjórnarinn- ar í Peking'. Mannfjöldinn á bryggjunni. Nokkrir skipsbrotsmenn við borðstokk Ægis. Þúsundir voru á bryggpnni, er Ægir kosn með skiphrols- mennina tii Rvíkur í §ær ÞÚSUNDIR manna voru saman komnar niður við höfa í Reykjavík í gær, er Ægir kom með skipbrotsmennina af fog- aranum Agli rauða. Var Faxagarður þéttskipaður fólki, svo aS bifreiðin, er kom til að sæltja skipbrotsmennina komst varla að. Klukkan var um hálfþrjú. er' Ægir lagðist að Faxagarðl, og voru skipbrotsmennirnir strax fluttir þaðan td húsakynna Slysavarnafélags íslands, sem bauð þeim til kaff.drvkkju þar ásamt nokkrum gesium. ÁVARPSORÐ FLUTT Meðan setið var að borðum voru flutt nokkur ávörp. Þess- ir töluff:: Guðbjartur Ólafs- son, forseti Slysavarnafélags íslands, frú Guðrún Jónasson, formaður kvennadeildar slysa varnafélagsins, frú Bodil Beg trup, sendiherra Dana, Petar V'golund, verkstjóri hjá SlipD félaginu, en hann er færeysk ur, Eysteinn Jónsson fjármála ráðherra og þingmaður Sunn mýlinga og Henry Hálfdanar- son, skrifstöfustjóri slysa- varnafélagsins, sem m. a. flutti kveðjur Bæjarútgerðarinnar á Norðfrði og frá ætfcingjum og vinum eystra. SJÓPRÓF Á MÁNUDAGINN Sjópróf út af skipstapanum fara fram á morgun, og fyrr en þá er ekki að vænta frí-fagna um tddrög hans. Lík færeyska sjó- mannsins fundið! VÉLBÁTUR frá Bolunga vík fann í gær lík á reki út af Isafjafðardjúpi. Var tal- ið, að það væri af færeyska sjómanninum Sofus Skora- dal, sem drukknaði, meðan verið var að bjarga mönn- unum af Agli rauða. Sfefánsmófið fer fram í Hveradölum í dag. ! STEFÁNSMÓTÍÐ, sem er fyrsta skíðamót vetrarins, fer fram í Hveradölum í dag kþ 10 f. h. Margjr af beztu skíða mönnum Reykjavíkur eru með al keppenda,, t. d. 3 núverandi íslandsmeistarar í Alpagrein- um. Sfór steinn henfisf undan bílhjóii í rúðu á öðrum bíi. ÓVENJULEGT atvik kom fyrir í matartímanum í gær, um kl. 12.40, er stórefl is steinn heníist undan hjóli vörubifreiðar hátt í Ioft og skall á gluggakarmi á fó’Iksbifreið. Munaði minnstu að aivarlegt slys yrði. Fólksbifreiðin mætti vöru bifreiðinni á Suðurlands- braut og lenti ytri brún aft urhjólsins á steininum, sem mölváði rúðuna í fólksbif- reiðinni, en mundi hafa far ið inn í hana, ef hann hefði komið örlítið neðar. En í sætinu hjá bifreiðarstjóran- um sat maður, og hefði hann þá orðið fyrir steinin- um.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.