Vísir - 26.03.1912, Blaðsíða 1

Vísir - 26.03.1912, Blaðsíða 1
260 4 Kemur venjulegaút kl.2 síðdegis sunnud- 25 blöð frá 21. mars kosta:Áskrifst.50a. Afgr. ísuðurendaáHotelIsland l-3og5-7 Þriðjud., miðvikud.jfimtud. og föstud. Send út um landöO au.— Einst. blöð 3 a. Óskað að fá augl. sem tímanlegast. Þriðjud. 26. mars 1912. Einmánuður 1. Sól í hádegisstað kl. 12,33“ Háflóð kl. 11*6‘ árd. og 11,59“ síðd. Háfjara um 6 t, 12‘mín. eftir háflóð. Afmœli: Frú M. T. Bjarnadcttir. Erlendur Erlendsson, kaupmaður. Á morgun: Hafnarfjarðarpóstur kemur og fer. Álftanespóstur kemur og fer. y Ur bænum Heiðurspening (la medaille d’honneur des Epidemies) hefur sjómannaráðuneytið frakkneska veitt ungfru Marguerite Loiseau, lijúkr- unarkonu hjer, fyrir góða frammi- stöðu í starfi sínu. Fiskiskútur þessar eru nú inni y hafa aflað alls: Keflavík um 8000 Sigríður - 14000 Ester - 4000 B. Ólafsson - 18000 Botnvörpungar hafa konið inn Freyr (sunnud.) með 17000 Bragi (í gær) - - 30000 Snorri Sturluson (í morgun) 20000 Vesta kom hingað í gær um kl. 2 síðdegis. Meðal farþega voru þessir: Olgeir Friðgeirsson faktor á Vopnafirði, Aðalsteinn Kristjáns- son kaupmaður í Húsavík, Sigurð- ur Sigfússon sölustjóri sama staðar (þeir tveir halda áfram á skipinu til útlanda), sjera Helgi Pjetur Hjálm- arsson á Grenjaðarslöðum, Þórður Thoroddsen læknir frá Akureyri, Guðjón Guðlaugsson alþingism. Strandamanna, Sigurjón Markússon er settur hefur verið sýslumaður í Suður-Múlasýstu, Sighvatur Bjarna- son bankastjóri úr skoðunarferð á útbúum bankans. — Ennfremur hafði komið þingmaður Bolvíkinga. — Vesta fer áleiðis til útlanda í kveld kl. 6. Um námurjett í Vatnsmýr- inni hafa tveir menn sótt ti! bæar- stjórnarinnar, þeir Páll Magnússon járnsmiður og Kristján Sigurðsson ‘Jvá uUöndum. Nýíí skipalag. Louis Zölner einn af einkarjetiarhöfum. Verkfræðingur í Newcastle, er A. H. Haver heitir, hefur fundið upp nýa gerð á skipum og keypt einkarjett á með fjelögum sínum á Englandi. Mr. Haver var staddur í Kristjaníu fyrir skömmu og skýrði frá nývirki sínu á fundi í fjelagi norskra verkfræðinga og vjelfræð- inga 8. þ. m. Leiðsögumaður hans var Louis Zölner, danskur konsúll í Newcastle, alþektur hjerlendis af skiftum sínum við Kaupfjelögin o. fl. og er hann einn af eigendum einkarjettarins, sem að ofan getur. Á fundinum voru margir útgerð- armenn flutningsskipa, kaupmenn og aðrir, er ljetu sig skifta nýung þessa. Skip Haver’s eru meðMonitor- Iagi, (kent við vígskipið Monitor, er Jón Eiríksson sænski ljet gera, best dugði Norðanmönnum í þræla- styrjöldinni). Skipið er beitt og flatbotnað, en utan á súðunum ganga i tveir ávalir bálkar alt framan frá söxum og aftur undir skut. Bálkar þessir valda því að skipið verður miklu stöðugra í sjó en ella, veltur minna og heggur minna, sjórinn kemur heilli og óbrotnari aftur með súðinni svo að skrúfuspaðarnir hafa betra átak. Af því leiðir, að hrað- inn verður meiri og kolaeyðsla hlutfallslega minni. Nemur það nærfelt 16 af hundraði sem spar- ast af kolum, móts við þá kola- eyðslu sem hingað til hefur hag- kvæmust verið í hlutfalli við hraða skipsins. — Bálkarnir eru skipinu mjög til styrktar svo að mun lengra bil má vera milli banda innan í skipinu. Það hefur meira burðar- magn en önnur skip jafn stór, farm- ur rúmast betur, einkum timbur, og eru skip af þessari gerð helst ætl- uð til vörutlutninga. Þau eru og sterkari en flutningaskip gerast. Hingað til hafa verið bygð 23 skip með »Monitor«-Iagi. Nú hefur fjelag eitt í Kristjaníu lagt drög fyrir að fá sjer tvö ný skip afþess- ari gerð, er skipstjóri þess einn hef- ur ferðast á slíkum skipum og sann- færst um kosti þeirra. — »Monitor«- skip eru ekki dýrari en önnur skip jafnstór. Eftir »Verdens Gang«. Síærsta mótorskip hei msins. Dísil-jjangvjel. Aust-Indíafjelagið danska hefur fyrir skömrnu lileypt af stokkunum nýu stórskipi með dísil-gangvjel og hefur verið drepið á það hjer í blaðinu. Skipið heitir »Selandia« og hóf fyrstu ferð sína í lok fyrra mánað- ar. Það kom við í Lundúnum og vakti mjög mikla eftirtekt. Kom sægur skipasmiða, farmanna og vjelameistara að athuga þetta ný- virki. Meðal þeirra, er skoðuðu skipið var Churchill flotamálaráð- gjafi. Skipið hrepti storma á leiðinni til Englands en farnaðist einkar vel. Hafnsögumaður sá, er stýrði því upp Temsá, kvaðst aldrei hafa far- ið með skip, er svo nákvæmt og auðveldlega hefði Iátið að stjórn. »Selandia« er 7000 smálestaskip og lang stærst allra skipa, er knú- in eru mótorvjelum. Gangvjelarnar eru tvær »dísil«-vje!ar; hefur hvor 1200 hesta afl. Auk þess eru í skipinu 10 Iitlar dísilvjeiar til ferm- ingar og með samskonar viel er framleitt rafmagn til ljósa. Engir venjulegir reykháfar eru á skipinu, heldur eru siglurnar holar innan og upp um þær fer reykurinn. Þær eru þrjár, allar úr stáli og gnæfa nær 48 fet yfir þiljur. Með þess- ari tilhögun verður mun rýmra á þilfari en ella. Lengd skipsins er 370 fet ensk. Maðalhraði 12 vikur á vöku. Á tæpum 20 sekúndum má hverfa vjelunum frá fullri ferð áfram til fulls hraða afturábak. Vjelarúmið er örlitlu stærra en á jafnstórum eimskipum, en allmikið rúm spar- ast við það, að gufukatlar eru engir. Svo sparast tneð öllu kolarúmið, en súð skipsins er tvöföld, úrjárni, og þar er olían geymd í súðhol- inu, sú sem notuð er til brenslu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.